Dagur - 17.09.1982, Blaðsíða 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167
SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÖRNSSON
BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT H.F.
Húsnæðismál
ungs fólks
Á 19. þingi Sambands ungra framsóknar-
manna sem haldið var fyrir skömmu var meðal
annars fjallað ítarlega um húsnæðismál ungs
fólks. í ályktun þingsins um þessi mál segir
meðal annars á þessa leið:
„Alkunna er að bygging eða kaup á eigin
íbúðarhúsnæði - sér í lagi í fyrsta sinn — mark-
ar sérstakt tímabil í lífi flestra íslendinga.
Æskilegt er að sem flestir eignist eigin íbúð.
Slíkar framkvæmdir mega þó ekki raska öllu
fjölskyldulífi þeirra sem í þær ráðast. Ekki er
síður mikilsvert að fólk geti óþreytt nýtt frí-
stundir sínar til þroskandi og fjölbreytilegra
tómstundastarfa.
Á þessu umfangsmikla sviði húsnæðismála
er úrbóta þörf. Auknar fjárveitingar til bygg-
ingar eða kaupa á íbúðarhúsnæði er nauðsyn.
Jafnframt er brýnt að athuga hvernig húsnæð-
isstjórnarlánum er ráðstafað og hvernig heild-
arfyrirgreiðslum í formi langtímalána er
háttað.
Byggingar verkamannabústaða hafa stór-
aukist á undanförnum árum. Útlán úr Bygg-
ingasjóði ríkisins hafa dregist saman á sama
tíma og útlán úr Byggingasjóði verkamanna
hafa aukist. Þetta stafar af því misræmi sem er
á lánshlutfalli úr þessum tveimur sjóðum.
Byggingar verkamannabústaða hafa því ekki
orðið til samsvarandi aukningar í íbúðabygg-
ingum.
19. þing SUF telur einkum eftirfarandi um-
bætur nauðsynlegar:
1. Að lán frá Byggingasjóði verkamanna að
meðtöldu lífeyrissjóðsláni nemi allt að 90% af
byggingarkostnaði.
2. Að lán frá Byggingasjóði ríkisins til
þeirra er byggja eða kaupa í fyrsta sinn verði
hækkuð verulega. Lánstími verði lengdur.
3. Að sveitarstjórnir tryggi að lóðaframboð
á hverjum tíma verði nægjanlegt.“
Varðandi leigumarkaðinn segir í ályktun
SUF: „Ljóst er að sl. 2-3 ár hefur það reynst
erfiðara fyrir fólk að fá leiguhúsnæði og fyrir-
sjáanlegt er að þessir erfiðleikar fara vaxandi.
Meginástæður þessara erfiðleika eru að
samfara aukinni eftirspurn þar sem stærstu
árgangar í sögu þjóðarinnar eru að koma inn á
leigumarkaðinn hefur húsnæðisframboð,
einkum á höfuðborgarsvæðinu og í þéttbýlis-
kjörnum út um land, dregist verulega saman
og má þar að hluta til kenna um húsaleigulög-
unum.
Það er engin tilviljun að á sama tíma og
skólar hefjast er vöntun á leiguhúsnæði á höf-
uðborgarsvæðinu mest. Ein fljótvirkasta og
raunhæfasta leiðin til lausnar þeim vanda er
bygging námsmannaheimila, sem myndu
draga úr mestu þenslunni á leigumarkaðin-
um.
Frambúðarlausnin í þessum málum er að
auka framboð á húsnæði.“
4 - 'dÁGÚr -17. septembér i 982
Umdaginn
ogveginn
— Nokkur heilræði til örmagna þjóðar
Eins og lesendur muna, þá var í
síðasta pistli HÁKS lítillega vik-
ið að eymd þeirri og uppdráttar-
sýki sem þjáir þessa þjóð nú á
tímum. Var málið kannað frá
ýmsum hliðum, fordómalaust í
jákvæðum anda. Hygg ég að
menn hafi gert góðan róm að
þessum skrifum og þykir nú
HÁKUR standa næst Svart-
höfða að mannviti og hógværri
fræðimennsku um þjóðfélag
vort og sögu.
Okkur félögunum til sárrar
mæðu hefur landinn þó ekki lát-
ið segjast við tilskrifið og ekki
annað að sjá en heldur hafi sigið
á ógæfuhliðin síðan síðast.
Á stundum sem þessum, þeg-
ar þjóðinni virðist ekki upp úr
aumingjaskapnum bjargandi,
minnist ég þess jafnan hvernig
forfeður vorir tóku á þessum
málum. í þá daga reiknuðu
menn öngvar vísitölur, en undu
þó glaðir við sitt. A.m.k. þeir
sem eitthvað áttu að una við.
Mér er sagt að langafi minn hafi
verið hraustmenni og aldrei
kveinkað sér. Ekki gerði hann
sér rellu útaf því hvort gengið
féll eða seig, eða hvort útgerðin
tapaði 300 milljónum, eða 3000
milljónum, já öllum heimsins
milljónum á því að vera ekki
hætt fyrir löngu. (Vel á minnst,
kunningi minn einn tölvís hefur
reiknað út að útgerðin hafi frá
stríðslokum tapað fé sem svarar
árlegum fjárlögum 30 bjargálna
ríkja í þriðja heiminum, eða til-
kostnaðurinn við að senda sjö
geimför til tunglsins og heim
aftur. Þegar á allt er litið mun út-
gerðin hafa tapað að meðaltali
14 aurum á hvern titt sem kom-
inn er úr sjó. Hvað skyldu þeir
græða mikið á því að taka sér
frí?) Jæja, en aftur að efninu,
langafa mínum sáluga. Hann
hafði það sér helst til dægrastytt-
ingar að brjótast á hverjum degi
beitarhúsaleið sem ekki var
skemmri en þrjár dagleiðir, til
þess að vitja um fé sitt og helst
gefa því heytuggu ef jarðbönn
voru, en svo var ævinlega fyrr á
öldum og veður svo hörð að
tungan fraus á milli skolta
mönnum. Voru menn jafnan
fáorðir í beitarhúsaferðum. Þó
heyrði það til undantekninga ef
hann átti nokkur hey, því sumur
voru köld á þessum árum og
komu seint, ef þau komu þá
nokkuð. Var sjaldan kominn
sauðgróður fyrr en viku af ágúst
og yfirleitt lagðist vetur að
skömmu eftir höfuðdag. Og
ekki fengu kartöflubændur neitt
fyrir sinn snúð ef þeir gleymdu
að taka upp í þá daga, enda gras-
ið jafnan fallið um jólamessu-
leytið, ef það lét þá nokkurn
tíma sjá sig.
En hvernig er því háttað, les-
andi góður, að þjóð sem á sér
svo glæsta sögu að baki, þjóð
sem hefur staðið í stormi og
stórsjó frá örófi alda, kveinkar
sér nú undan neikvæðum raun-
gengishagnaði og stigminnkandi
hækkunum á vísitölu kaupmátt-
ar ráðstöfunartekna? Er ekki
nokkuð lítilmannlegra fyrir
slíka þjóð en leggjast flöt fyrir
einum skitnum viðskiptajöfn-
uði?
Eitt er víst, að fáir munu
ánægðir með ástandið. Menn
svipast um eftir sökudólgnum og
er víða leitað fanga. Lengi vel
var danskurinn okkur haldgóður
í þessu efni og öllu á hann klínt,
en nú er hann meinlaus, eins og
menn sáu á dögunum þegar
Anker kom hingað norður og
skálaði við menn í koníaki til
þess eins að vera settur í skamm-
arkrókinn þegar heim kom. Lé-
legur djöfull það. Bretinn var
líka til nokkurs gagns um tíma,
enda kenndi hann Islendungum
leti og slæpingjahátt í stríðinu
sem frægt er orðið. Og kaup
fyrir í þokkabót. En nú eru þeir
hættir að gera öðrum óskunda
en sjálfum sér. Könum og Rúss-
um mátti og kenna margt hér
áður fyrri, en nú er eins og það
sé löngu komið úr tísku að berja
á þeim. A.m.k. sá ég ekki betur
en Reagan gamli þyrfti á allri
umhyggju forsetans okkar að
halda þegar þau sýndu sig í rósa-
garðinum hér á dögunum.
Hvert förum við þá í leit að
blóraböggli? Sumir vilja koma
sökinni á Gunna Thor, sem
glottir út í annað af öllu saman,
eða Haukdal sem skrifa leyndar-
dómsfull bréf. Aðrir á Steingrím
fyrir að leyfa mönnum að kaupa
sér skip til þess a gera út á tapið
margnefnda. Sumir segja að
þetta sé Hjörleifi að kenna því
hann talar svo mikið og segir svo
fátt. Enn aðrir ásaka sauðkind-
ina sem samþykkir athuga-
semdalaust að vera til og deyja í
veikri von um útflutningsbætur
úr vasa skattborgarans marg-
þjáða, eða þá sjónvarpið sem
eitrar hugi vora við beinum út-
sendingum og Tomma og Jenna,
eða . . .
Er nokkur með í beitarhúsa-
ferð?