Dagur - 14.10.1982, Qupperneq 3
Frystigeymslur fullar
„Það má segja að plásleysi
hrjái okkur mjög hér í frysti-
húsinu,“ sagði Aðalsteinn
Gottskálkson, frystihússtjóri á
Dalvík, er Dagur ræddi við
hann
leg þar, enn sem komið er. Það er
óhætt að segja að það sé komið
upp vandræðaástand hvað varðar
freðfiskinn. Að öllu jöfnu erum
við með fiskinn á brettum í frysti-
klefunum en höfum upp á síðkast-
ið orðið að taka til þess ráðs að
handstafla til að fá betri nýtingu.
En það er von á skipi í vikunni
sem tekur fisk til Bandaríkjanna
og vonandi gengur þetta þangað
til,“ sagði Aðalsteinn.
„Birgðasöfnun hefur verið
mikil í freðfiski og liggur það
aðallega í því að við erum með
mikið af svokölluðum „Rússlands-
fiski“ en sá samningur er fyrir
löngu orðinn fullur. Okkur barst
nýlega skeyti þar sem okkur var
tilkynnt að fá og með 22. október
væri bannað að framleiða karfa
fyrir Rússlandsmarkað.
Birgðahlutföllin hjá okkur eru
þannig að 75% af birgðum í freð-
fiski er fiskur fyrir Rússlands-
markað. Við höfum ekki losnað
við þennan fisk og þar af leiðandi
eru frystigeymslur fullar. Það hef-
ur enginn fiskur farið frá okkur á
Rússlandsmarkað mjög lengi.
Það má segja að birgðastaðan í
freðfiski sé mjög erfið og svo
þyngist alltaf birgðastaðan í
skreið, enda engin hreyfing sjáan-
Fréttir úr
Stórabrekku, Fljótum 12. október
Slátrun er hafin í Fljótum. Fall-
þungi er góður og almennt gott
hljóð í mönnum enda er veður
gott. Á sama tímaí fyrra var allt
fé komið á gjöf. Ég gæti trúað
því að meðalfallþungi í Holts-
hreppi væri eltki undir 16 kfló-
um.
Heyskapur gekk vel í Fljótum,
en heyfengur var hinsvegar með
minna móti. Á sumum stöðum er
hann eflaust um þriðjungi minni
en í meðalári. Þess voru dæmi að
áburður væri ekki runninn af tún-
um þegar þau voru slegin, en
ástæðan er sú að sumarið var
mjög þurrt.
Fljótum
í sumar voru sett 60 þúsund
niðurgönguseiði í Flóká og ef allt
gengur vel ætti að vera hægt að fá
fyrstu fiskana næsta sumar. Hins-
vegar hefur laxveiði dregist
saman í Flóká og Fljótaá svo
menn eru ekkert alltof bjartsýnir
á að þessi fiskiræktartilraun geti
tekist, en það er þó aldrei að vita.
í sumar hefur verið unnið að haf-
beitarstöð við Reykjarhól. Brátt
verður hún tilbúin til að taka við
klakfiski.
Þess má að lokum geta að tvö
refabú eru að rísa í sveitinni.
Annað er á Laugalandi, en hitt á
Minni-Reykjum. RP.
1 tL
Nýkomið úrval
af efnum
í fatnað,
gluggatjöld,
sængurföt
og
sturtuhengi
Einnig þvottapokar, handklæði,
vaxdúkar o.m.fl.
Jazzdansstudio Alice
Glerárgötu 26 (áður Pallas)
9 vikna námskeið hefjast 20. október.
★ Unglingar, byrjendur, framhald.
★ Konur, byrjendur, framhald.
★ Sturtur
★ Sauna
★ Hressing
★ Vigtun og mæling fyrir þá sem vilja.
Upplýsingar og innritun í síma 25590 frá kl. 6-8
e.h.
Ath.: Afhending skírteina fer fram þriðjudaginn
19. október frá kl. 5-8 e.h. að Glerárgötu 26, (geng-
ið inn að austan).
TÆKNI ENDING ÞJÓNUSTA
Frystikistur
QLERÁRGÖTU 20 — AKUREYRI — SlMI 22233
TÆKNI • ENDING • ÞJÓNUSTA
óskar að ráða vanan blaðamann. Um framtíðarstarf
er að ræða.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist:
Hermanni Sveinbjörnssyni, ritstjóra Dags,
Strandgötu 31, pósthólf 58,600 Akureyri.
FIMM NATTA HAUSTFERÐ TIL
Beint þotuflug frá Akureyri (með viðkomu í fríhöfninni)
Brottför: 9. nóvember-Heimkoma: 14. nóvember.
Gisting: London Embassy Hotel, afbragðsstaðsetning, öll herbergi
með baði og litasjónvarpi - Fararstjóri: Pétur Maack.
Möguleikar á skoðunarferðuin, knattspyrnuleikjum, söngleikjum, leikhúsmiðum o.s.frv.
FA-kjör: Útborgun kr. 2.500.-
FERÐASKRIFSTOFA AKUREYRAR
14. október 1982 - DAGUR - 3