Dagur - 14.10.1982, Blaðsíða 7
Skák:
Þór Valtýsson sigraoi
Nýlega lauk árlegu minning-
armóti um Júlíus Bogason. Eftir
harða og tvísýna keppni sigraði
Þór Valtýsson, hlaut 5.5 v. af 7
mögulegum. í 2.-3. sæti urðu
Sigurjón Sigurbjömsson og
Haukur Jónsson með 5 v. Hauk-
ur hafði hálfs vinnings forskot
fyrir síðustu umferð, en tapaði
þá fýrir ungum pilti, Arnari Þor-
steinssyni. Amar kom mjög á
óvart í mótinu og hafnaði í 4.
sæti með 4.5 v. Við verðlaunaaf-
hendingu að mótinu loknu bauð
Skákfélag Akureyrar til kaffi-
drykkju að venju. Að henni lok-
inni fór fram hraðskákmót. Sig-
urvegari varð Halldór Jónsson
með 12.5 v. úr 14 skákum.
15 mínútna mót fór fram 30.
sept. sl. og sigraði Þór Valtýs-
son. Sk. startmót var haldið
sunnudaginn 2. okt., en með því
hefst hið eiginlega vetrarstarf
félagsins. Sigurvegari varð
Áskell Örn Kárason.
Nýlega lauk í Reykjavík fyrri
hluta deildarkeppninnar á ný-
byrjuðu keppnistímabili. Átti
sveit Skákfélags Akureyrar þar
við ramman reip að draga, enda
flestar 1. deildarsveitanna skip-
aðar mjög öflugum skákmönn-
um. Leiknarvorufjórarumferð-
ir og varð árangur SA sem hér
segir:
SA - Hafnarfjörður 2-6
SA - Vestfirðir 5-3
SA - Suðurland 5-3
SA - TR norðvesturbær 5-7.5
að þessum fjórum umferðum
loknum er SA í sjöunda sæti af
átta sveitum í 1. deild með 12.5
vinning. Sveit Skáksambands
Suðurlands er neðst með 7 v.,
þannig að falldraugurinn heldur
sig í hæfilegri fjarlægð. Hinsveg-
ar er stutt í liðin í 5. og 6. sæti.
Hafnarfjörður hefur 13.5 og
Vestfirðir 12.5 og er stefnt að
því að komast upp fyrir þessi fé-
lög þegar síðari hluti deildar-
keppninnar verður seinna í
vetur. Efst eftir 4 umferðir er
sveit Taflfélags Reykjavíkur -
norðvestur með 23 v. Bestum ár-
angri Akureyringa náði Halldór
Jónsson á 3. borði með 2.5 v. af
4.
-áskell
Lokaúrslit í hjólreiðakeppni:
Þrír Akureyringar
meðal níu efstu
Þriðjudaginn 5. október fóru
fram lokaúrslit í hjólreiða-
keppni milli þeirra 15 nemenda
sem bestum árangri náðu í
milliriðlum sl. vor. Þá var
keppt í tveimur riðlum, á Akur-
eyri og í Reykjavík.
Eins og undanfarin ár var úr-
slitakeppnin þríþætt, þ.e. spum-
Allar
tryggingar!
umboðið hf.
Radhustorgi 1 (2. hæð),
simi 21844, Akureyri.
ingar um umferðarmál, góðakstur
og hjólreiðaþrautir. Alls höfðu 16
keppendur áunnið sér rétt til þátt-
töku en 15 mættu til leiks.
í níu efstu sætum urðu:
1. Amar Freyr Jónsson, Garða-
skóla Garðabæ 393 stig, 2. Jón
Pétur Einarsson, Breiðholts-
skóla, Reykjavík 391 stig, 3. Jó-
hannes Vilbergsson, Gmnnskóla
Grindavfkur 383 stig, 4.-5. Gunn-
ar V. Gunnarsson, Oddeyrar-
skóla Akureyri 376 stig, 4.-5.
Hilmar Egill Sveinbjömsson,
Stóm-Vogaskóla Vog. 376 stig, 6.
Kári Ellertsson, Gagnfræðaskóla
Akureyrar, 374 stig, 7. Jón Auð-
unn Sigurjónsson, Víghólaskóla
Kópavogi 371 stig, 8.-9. Hildi-
gerðir M. Gunnarsdóttir, Gagn-
fræðaskóla Akureyrar 368 stig,
8.-9. Óskar Jónsson, Breiðholts-
skóla Reykjavík 368 stig.
Að þessu sinni vom keppendur
mjög jafnir og munur á stigum
mjög lítill. Þeir Arnar Freyr og
Borðapantanir í
síma 22200.
AKUREYRINGAR - BÆJARGESHR
Sértílboð í veitíngasal
laugardagskvöldið 16. november
Frönsk lauksúpa
Aliendurmeð appelsínusósu,
frönskum kartöflum og grænmeti eða
Nautalundir með béamaisesósu og
bökuðum kartöflum. kr. 215.-
Ferskt ávaxtasala t í líkjör kr. 30. -
Forréttur í stað súpu: Innbakaðar rækjur Orly, með Andalouse-
sósu ogristuðu brauði. Aukagjald kr. 50.-
Ingbnar Eydal leikur létta dinner-
músik og leikur síðan fyrir dansi
ásamt BiUa, Leibba og Ingu.
Súlnaberg:
Fjölskyldudlboð
sunnudaginn 17. október.
Kryddlegið lambalæri.
Ferskt ávaxtasalat.
Kaffi.
HÓTEL KEA AKUREYRI ASetaskr.90.-
SIMI: 96-22 200
Hálft gjald fyrir böm 6-12 ára og
ókeypis fyrir yngri í fylgd með fullorðnum.
—Skotfærí—
í mjög góðu úrvali.
Verslið hjá fagmanninum.
Opið laugardaga frá kl. 9-12.
Eyfjörð,
Hjalteyrargötu 4,
sími 25222, Akureyri.
••
vorur
voruin
Vorum að fá mikið af prjónafatnaði,
svo sem kjóla, pils, peysur og vesti.
Mikið úrval af öðrum fatnaði
Kaupangi. 0j)jð á tougm|8gum y io_j2.
sérverslun ® 24ou
meó kvenfatnaó
Jón Pétur sem urðu í 1. og 2. sæti
keppninnar fara sem fulltrúar ís-
lands í hjólreiðakeppni á vegum
PRI - alþjóða samtaka umferðar-
ráða, en hún verður væntanlega
haldin í Egyptalandi í maímánuði
nk. Þar munu ennfremur 2 vél-
hjólapiltar, þeir Örn Jónsson og
Svavar Þorsteinsson, báðir úr
Hafnarfirði, keppa í vélhjóla-
akstri (góðakstri og þrautum), en
þeir sigruðu í úrslitakeppni vél-
hjólapilta sem haldin var í
Reykjavík, 25. september sl. á
vegum Bindindisfélags öku-
manna o.fl. í samráði við Um-
ferðarráð.
Umferðarráð óskar fyrmefnd-
um fulltrúum og væntan legum
keppendum til hamingju með
góðan árangur og þakkar enn-
fremur öllum sem þátt tóku í
keppnunum og veittu aðstoð við
framkvæmd þeirra.
(F réttatilky nning)
Félagsstarf
aldraðra
Félagsstarfi aldraðra verður hagað sem
hér segir fyrrí hluta vetrar 1982/83.
Skemmtanir í Sjallanum verða með sama hætti og
verið hefur sunnudagana 7. nóv. og 5. des. Þeir
sem óska eftir akstri heiman og heim hringi í síma
22770 kl. 13-14 samdægurs.
Handíðahópurinn mun koma saman á laugar-
dögum kl. 15-18, í fyrsta sinn 16. okt. í Hús-
mæðraskólanum með sama hætti og síðasta ár.
Óskum um þátttöku og akstur skal koma á fram-
færi við Helgu Frímannsdóttur, föstudaginn 15.
okt. í síma 25880 kl. 13-15.
Leikfimihópurinn kemur saman í Laxagötu 5,
húsi Slysavarnafélagsins á mánudögum og
fimmtudögum kl. 14,30. Óskum um þátttöku skal
koma á framfæri við Félagsmálastofnun sími
25880.
Annar handíðahópur (bókband, málun, tága-
vinna) verður starfræktur á miðvikudögum í Laxa-
götu 5, kl. 15-18, í fyrsta sinn miðvikudaginn 20.
okt. Umsjón: Helga Frímannsdóttir.
Félag aldraðra á Akureyri mun gangast fyrir
„Opnu húsi“ á fimmtudögum kl. 15.30-18, að
Laxagötu 5. Sjá auglýsingu frá félaginu síðar.
Félagsmálastofnun Akureyrar
Forstöðumaður
skóladagheimilis á Akureyri
Auglýst er eftir fóstru - þroskaþjálfa - kennara eða
starfskrafti með hliðstæða uppeldismenntun til að
gegna forstöðu skóladagheimilisins Brekkukotsfrá
1. janúar 1983. Upplýsingar um starfið eru veittar á
Félagsmálastofnun Akureyrar, Strandgötu 19b,
sími 25880 frá 10-15 alla virka daga. Skriflegar
umsóknir þurfa að berast fyrir 1. desember 1982.
Dagvistarfulltrúí.
14. október 1982 - DAGUR - 7