Dagur - 14.10.1982, Síða 5
til að skemmta sér. Á víxlverkun
þessara athafna byggist beinlínis
hugtakið „skipulagssvæði".
Áhríf ekki bundin
við hreppsmörk
- Fyrir skömmu skoraði bæjar-
stjóm Akureyrar á að unnið
væri að krafíi að rannsóknum á
forsendum iðnaðar við Eyja-
fjörð. Er svæðisskipulag ekki
einmitt nauðsynleg forsenda
slíkra rannsókna?
- Jú og það er engum blöðum
um það að fletta að komi til slíks
iðnaðar þá hefur hann ekki ein-
göngu áhrif á það sveitarfélag
sem hann er í heldur allt ná-
grennið. Þar að auki hefur hann
í för með sér félagslegar og efna-
hagslegar breytingar og tækni-
legar beytingar. Eg vil leggja á
það sérstaka áherslu að áhrif
iðnaðarins eru ekki bundin við
hreppamörk. Það er samasem
merki á milli hagsmuna Akur-
eyrar og annarra sveitarfélaga
við fjörðinn.
- Virðist ykkur sem starfið að
skipulagsmálum á Akureyri að
það ríki skilningur á þessu atriði
meðal sveitarstjórnarmanna
utan bæjarins?
- Ég veit ekki betur en sá
skilningur sé hvarvetna fyrir
hendi. Það er starfandi sam-
starfsnefnd um svæðisskipulag
við Eyjafjörð og þau sveitarfé-
lög sem ekki áttu fulltrúa í henni
á síðasta kjörtímabili hafa sótt
um aðild að henni í dag. Það tel
ég að beri ljósan vott um að
menn telji þetta nauðsynlegt
mál og vilji leggja hreppapólitík
á hilluna.
Á síðasta kjörtímabili kaus
samstarfsnefndin sér fram-
kvæmdastjórn og hún auglýsti
eftir starfsmanni í stöðu
skipulagsstjóra. Umsóknar-
fresturinn er nú útrunninn og
hafa fjórir sótt um stöðuna.
Framkvæmdastjórnin, sem
kemur saman innan skamms,
mun fjalla um þessar umsóknir
og ráða mann í starfið. Skipu-
lagsstjórinn verður starfsmaður
samstarfsnefndarinnar og þá
verður hægt að fara að vinna
markvisst að svæðisskipulagi
Eyjafjarðar.
- Eins og við vitum þá befur
ekki verið til svæðisskipulag
fyrir Eyjafjarðarsvæðið. Getur
verið aðþað hafi orðið til þess að
umrætt svæði hafi orðið á eftir
öðmm landshlutum í atvinnu-
legu tiUiti og O.?
- Það er ekki gott að fullyrða
um það en það má leiða að því
líkur að ef svæðisskipulag hefði
verið fyrir hendi, hefði ýmislegt
litið öðruvísi út. M.ö.o. þeir
hefðu beitt sér betur fyrir
-
því að fá atvinnufyrirtæki sem
voru að lokum sett niður annars-
staðar til að taka sér bólfestu við
Eyjafjörð.
- Ef við víkjum þá að skipu-
lagsmálum á Akureyri þá lang-
aði mig að spyrja þig um stöðu
þeirra mála í dag.
- Nýlega er búið að ganga frá
deiliskipulagi miðbæjarins og nú
er unnið að framkvæmd þess en
eins og bæjarbúum er kunnugt
er þar um að ræða gerð göngu-
götu í Hafnarstræti. Nú er unnið
að deiliskipulagi Giljahverfis
sem er vestan við Hlíðarbraut.
Ætlunin er að auglýsa lóðir í því
hverfi eftir áramótin.
Það er eftir að leysa mörg
verkefni í sambandi við aðal-
skipulag Akureyrar. Sem dæmi
má nefna að ekici er tilfullunnið
deiliskipulag af innbænum. Eftir
er að endurskoða aðalskipulagið
sem var gert árið 1971 og nær
fram til ársins 1995. Samkvæmt
lögum er gert ráð fyrir að aðal-
skipulagið sé tekið til endur-
skoðunar á fimm ára fresti. Þessi
endurskoðun er ákaflega brýn.
Ég get t.d. nefnt að í aðalskipu-
laginu er gert ráð fyrir að fólks-
fjölgun á skipulagstímabilinu sé
1,4 til 1,8% á ári. Reynslan er
hins vegar sú að fjölgunin er lið-
lega 2% á ári. Þetta hefur ein-
faldlega þýtt það að uppbygging
bæjarins hefur verið mun hráð-
ari en ráð var fyrir gert. Á sama
tíma hefur rúmmetratala mann-
virkja vaxið um nálega 4%.
Akureyringar mega
vel við una
- Er Akureyri vel skipulagður
bær?
- Auðvitað eru alltaf ein-
hverjir vankantar á skipulaginu
og alltaf er það svo að menn
koma fyrr auga á það sem betur
mætti fara, en þegar á heildina
er litið þá held ég að Akureyr-
ingar megi vel við una.
En það er stórt hagsmunamál
fyrir bæjarbúa að það sé ekki
unnið að gerð margra hverfa í
einu. Þetta er m.a. fjárhagsleg
spurning, en við uppbyggingu á
hverfi er t.d. lagt í mikinn kostn-
að við gatnagerð, lagnir o.fl. Ef
við erum t.d. með tvö hálfbyggð
hverfi þá hvílir tvöfaldur stofn-
kostnaður á bæjarbúum en við
getum ekki heldur neytt fólk til
að byggja á lóðum sem því þykir
slæmar á einn eða annan hátt.
Menn treysta sér t.d. ekki til að
byggja á lóðum þar sem djúpt er
niður á fast. Það er spurning
hvort hægt sé að gera slíkar lóðir
aðlaðandi með einhverjum hætti
þannig að menn séu fúsari til að
byggja á þeim.
- Hvað líður langur tími þar
tíl Akureyringar sjá miðbæinn
eins og deiliskipulagið gerir ráð
fyrir?
- Miðbærinn byggist ekki
upp á skömmum tíma, en ég
treysti mér ekki til að spá neinu
um hvenær verkinu verður
lokið. Miðbæjarskipulagið er
ekki byggingaráætlun. það er
fyrst og fremst leiðbeining um
það hvernig miðbærinn á að
verða.
Þá megum við ekki gleyma
lagningu vegar yfir Torfunefs-
bryggjuna, en lagning hans er
ein af frumforsendum þess að
uppbygging miðbæjarins geti
hafist fyrir alvöru. Hinsvegar
veltur það á fjárframlögum og
fleiru hvenær sá vegur verður
tekinn í notkun.
- Þegar kemur að skipulags-
málum þá virðist mér að verk-
efnin séu óþrjótandi.
- Já, ég held að sé óhætt að
fullyrða það. Við getum alltaf
endurskoðað og bætt um betur.
-áþ
Stórleikur
i korfunni
Tvö taplaus llð í 1. deildinni í
körfuknattleik, Þór og Hauk-
ar úr Hafnarfirði, mætast í 1.
deild íslandsmótsins í körfu-
knattleik á Akureyri um helg-
ina.
Þetta er þriðji leikur Þórs í
mótinu, en um síðustu helgi
vann liðið tvo auðvelda sigra
gegn UMFG. Róðurinn verður
án efa þyngri um helgina, því
Haukarnir eru með „sputniklið“
í körfuboltanum um þessar
mundir, lið sem margir spá sigri í
1. deild að þessu sinni.
í liðinu er bandarískur
blökkumaður sem er vel yfir 2
metra á hæð, Dakarsta Webster,
og ungir og bráðskemmtilegir
Ieikmenn við hlið hans. Þjálfari
liðsins er Einar Bollason sem
leiðir nú lærisveina sína gegn
sínu gamla félagi Þór.
Lið Þórs átti ágæta kafla í
síðari leik sínum gegn UMFG
um síðustu helgi. Nú verður
áhersla lögð á að stöðva Webst-
er undir körfunni, og einnig þarf
að gefa Pálmari bakverði Hauka
sérstakar gætur því hann er
sagður með albestu bakvörðum
í íslenskum körfuknattleik í
dag.
Vangaveltum um væntanleg
úrslit verður sleppt hér. Leikur
liðanna fer fram í Skemmunni
kl. 14 á laugardag, og er vonast
til þess í herbúðum Þórsara að
Úr leik Þórs og UMFG um síðustu
helgi.
fólk fjölmenna í Skemmuna og
styðji þannig við bakið á þeim í
þessum tvísýna leik.
Handknattleikur:
KAgegn
Aftur-
eldingu
Þór og
Dalvík
gegn
Reyni
Þrír leikir verða í handknattleik
hérna á Akureyri um helgina. Á
föstudagskvöld kl. 20.00 leika í
íþróttaskemmunni KA og
Áfturelding í annarri deild
karla. Ef marka má stöðu lið-
anna í deildinni ætti KA að geta
unnið þennan leik. Síðasti
heimaleikur liðsins var æsi-
spennandi frá upphafi til enda,
og því ættu áhorfendur að fjöl-
menna og hvetja KA til sigurs.
Strax að þeim leik loknum leikur
Dalvík og Reynir Sandgerði í
þriðju deild karla.
Álaugardaginnkl. 14.00 leika
síðan Þórsarar gegn Reyni
Sandgerði í þriðju deild karla.
Aðalfundur
Knattspyrnu-
deildar Þórs
Aðalfundur knattspyrnudeildar
Þórs verður haldinn í kvöld kl.
20.30 í Glerárskóla. Venjuleg
aðalfundarstörf.
Friðjón Jónsson verðnr í eldlínunni er KA mætir Aftureldingu.
Hver veröur knatt-
spyrnumaður
Akureyrar?
Knattspyrnuráð Akureyrar
gengst fyrir verðlaunaafhend-
ingu til sigurvegara í Akureyrar-
móti hinna ýmsu flokka nk.
laugardag 16. októberkl. 14.00 í
Borgarbíói. Auk þess sem lýst
verður kjöri Knattspyrnumanns
ársins á Akureyri og Marka-
kóngur hlýtur verðlaun.
Allir þeir er unnu Akureyrar-
móti með sínum liðum eru sér-
staklega hvattir til að mæta, auk
annarra er að sjálfsögðu eru
velkomnir.
Handboltinn hjá KA
6. flokkur karla:
Mánud. kl. 17
íþróttaskemman.
Laugard. kl. 9.30
íþróttaskemman.
2. og 3. flokkar karla:
Mánud. kl. 21
íþróttaskemman.
Miðvikud. kl. 21
íþróttaskemman.
Laugard. kl. 10.15
íþróttaskemman.
Mfl. karla:
Mánud. kl. 19.30
íþróttaskemman.
Miðvikud. kl. 19.20
íþróttaskemman.
Fimmtud. kl. 21
íþróttaskemman.
5. flokkur karla:
Miðvikud. kl. 17.45
íþröttaskemman.
Sunnud. kl. 11
íþróttaskemman.
4. flokkur karla:
Mánud. kl. 18.30
íþróttaskemman.
Miðvikud. kl. 18.30
íþróttaskemman.
1. flokkur karla:
Mánud. kl. 22
f þróttaskemmman.
Kvennafl.:
Mánud. kl. 17.45
íþróttaskemman.
Sunnud. kl. 12
íþróttaskemman.
14. október 1982 - DAGUR - 5