Dagur - 14.10.1982, Side 8
Þeir sem taka þátt í sýningunni eru t.f.v. Guðmundur Ármann, Kristinn G., Helgi Vilberg, Öm Ingi, Óli G., Einar
Helgason og Aðalsteinn Vestmann, sem vantar á myndina. Mynd: KGA.
Sjö myndlistamenn frá Akureyri:
Ætla að seðja stór-
reykjavíkursál i na
Sjö listmálarar frá Akureyri
opna samsýningu á Kjarvals-
stöðum í Reykjavík á laugar-
dag 16. október klukkan 15.
Sýningin stendur til sunnudags-
ins 31. október.
Þeir sem taka þátt í sýningunni
eru Aðalsteinn Vestmann, Einar
Helgason, Guðmundur Ármann,
Helgi Vilberg, Kristinn G. Jó-
hannsson, Óli G. Jóhannsson og
Örn Ingi. Á sýningunni verða lið-
lega 100 verk, stór og smá, unnin
með akrýl, olíu og vatnslitum,
blýanti, kolum og blandaðri
tækni.
„Sýningin er ákaflega fjölbreytt
því á henni verður allt frá kúmen-
brauðum upp í stóra sjálfsmynda-
seríu og flest þar á milli. Þó hafa
allir sýnendur sameiginlegt
markmið, sem er að seðja stór-
reykjavíkursálina," sögðu þeir
Örn Ingi og Óli G. í viðtali við
Dag og kímdu við.
Þeir tóku fram að allt fólk
norðan heiða sem ferð ætti um
Reykjavík sýningardagana væri
innilega velkomið á sýningu
þeirra á Kjarvalsstöðum.
Atómstöðinni
vel tekið
í sumar var hafist handa við
byggingu nýs skóla að Sólgörð-
um í Fljótum. Vonast er til að
það takist að byggja húsið og
Ijúka við það á þremur árum. I
Sólgörðum er skóli fyrir Haga-
neshrepp og Holtshrepp.
Að sögn Reynis Pálssonar,
fréttaritara Dags í Fljótum,
stunda nú 20 börn nám í gamla
skólahúsinu í Sólgörðum. „Við
erum með gamlan og hrörlegan
skóla, sem stenst ekki kröfur
tírnans," sagði Reynir.
Reynir gerði ekki ráð fyrir að
nemendum fjölgaði í skólanum á
næstu árum nema að til kæmi ný
atvinnutækifæri í Fljótum. „Því
miður er það þannig að fólki hefur
frekar fækkað á þessum slóðum,“
sagði Reynir.
„Mér finnst undirtektir hafa
verið mjög góðar á þessum
þremur sýningum sem búnar
eru,“ sagði Þórey Aðalsteins-
dóttir, gjaldkeri Leikfélags Ak-
ureyrar í viðtali við Dag, en LA
sýnir nú Atómstöðina í nýrrí
leikgerð Bríetar Héðinsdóttur.
Að sögn þeirra sem til þekkja
er þessi leikgerð Bríetar mjög
frábrugðin þeirri sem áður hefur
verið sýnd í Reykjavík og gefin út
á bók undir nafninu „Norðan-
stúlkan". Er að sögn mjög fróð-
legt að bera þessa leikgerð saman
við þá fyrri og einnig saman við
sögu Halldórs Laxness.
Eins og áður sagði eru búnar
þrjár sýningar. Þórey gat þess að
aðsókn hefði mátt vera betri og
vildi hún sérstaklega koma á
framfæri hvatningu til íbúa nær-
sveita Akureyrar að drífa sig í
leikhúsið meðan veður og færð
gerði það auðvelt.
Nú er byrjað að æfa næsta verk,
sem er nýtt barnaleikrit, „Siggi
var úti“ eftir Signýju Pálsdóttur
leikhússtjóra.
Nýr
skóli
í bygg-
ingu í
Fljótum
Náttúrugripasafnið á Akureyri:
Lokið skýrslu um
áhrif stóriðju
við Eyjaf jörð
Starfsmenn Náttúrugripa-
safnsins á Akureyrí eru nú að
Ijúka við gerð skýrslu um áhrif
stóriðju á náttúrufar við Eyja-
fjörð. Nær könnunin allt frá
Akureyri til Dalvíkur og er
upp á um 200 blaðsíður.
Helgi Hallgrímsson, for-
stöðumaður safnsins, sagði í við-
tali við Dag, að skýrslan væri
gerð fyrir staðarvalsnefnd um
orkufrekan iðnað og yrði gengið
frá skýrslunni í hendur nefndar-
innar um helgina. Hugmyndin
er að gefa hana út.
Helgi sagðist búast við því að
ef alvara færðist í þetta mál yrði
væntanlega gerð ítarlegri skýrsla
og þá um afmarkaðra svæði.
Hætta við að
gefa út bók um
verkalýðshreyfinguna
„Þessi viðbrögð forlagsins sýna
að það er ansi mikið rétt I þess-
ari bók,“ sagði Guðmundur
Sæmundsson, en á dögunum
ákvað bókaforiagið Öm og
Örlygur að hætta við útgáfu
bókar um verkalýðshreyfíng-
una, sem Guðmundur skrifaði.
Bókin var komin langt í vinnslu
og það var ekki fyrr en Örlygur
Hálfdánarson las hana að þessi
ákvörðun var tekin.
Guðmundur sagðist hafa hug á
að kaupa þau eintök, sem búið er
að vinna, skipta um fyrstu próförk
og láta ljúka við bókina svo hún
geti komist sem fyrst á markað-
inn. Hinsvegar hefur forlagið rétt
á að liggja með bókina í tvo mán-
uði, en þá fær Guðmundur hand-
ritið til baka og verður að byrja
upp á nýtt. Guðmundur sagðist
ekki geta gefið ákveðna skýringu
á ákvörðun forlagsins - aðra en þá
að það óttaðist hefndaraðgerðir
af hálfu afla innan verkalýðs-
hreyfingarinnar, ef bókin yrði
gefin út af Erni og Örlygi.
# Valdimar
stöðvaði
Getur það verið að hann
Valdimar Halldórsson hafi
ekið yfir gangbraut á rauðu
Ijósi? Svo virðist sem margir
hafi spurt sig þessarar spurn-
ingar eftir að hafa séð for-
síðumynd Dags sl. þriðjudag.
Á þeirri mynd sást vöruflutn-
ingabíll frá KEA og mátti þar
þekkja Valdimar Halldórsson
á ferð. Einhverjir hringdu
helm til Valdimars og ætluðu
að skamma hann fyrir að aka
yfir á rauða ijósinul tll að fyrir-
byggja frekari misskllning
skal það tekið fram að Valdi-
mar stöðvaði bflinn meðan
börnin gengu yf ir götuna. Satt
best að segja þá er furðulegt
að fólk skuli geta lesið annað
út úr f réttinni.
• Keypti 24 lítra
Og svo var það húsráðandinn
sem fór út í búð sl. mánudag
og keypti 24 lítra af mjólk.
Eftir því sem S&S kemst næst
er búið að ákveða á því heimlli
að hafa mjólkurgraut í hvert
mál næstu daga.
# Ennerdeilt
á Þelamörk
Svo sem flestum mun kunn-
ugt hefur staðið yfir deila milli
starfsmanna Þelamerkur-
skóla. Á við um það mál eins
og mörg önnur viðkvæm
deilumál að sjaldan veldur
efnn þá tveir deila. Deila þessi
olli því að kennsla gat ekki
hafist á réttum tíma. Enn er
ekki um heilt gróið í samskipt-
um starfsmanna skólans því
nú er deilt um það hverjir skuli
annast gæslustörf, en slík
störf hafa gefið verulega
launauppbót til viðbótar við
kién kennaralaun. Það versta
við þetta allt saman er að
sjálfsögðu það að svona dell-
ur hljóta að skaða þá sem síst
skyldi, nefnilega nemendurna
og kennsluna. En er það ekki
ævinlega svo um dellur?
• Æðri(?)
menntun og
kennaralaun
Af því að minnst var á laun
kemmara er ekki úr vegi að
halda örlítið áfram. Þeir sem
til kennarastarfa þekkja, beint
eða óbeint, gera sér greln fyrir
því að laun fyrir þessi störf
eru ekki í neinu samræmi við
þá ábyrgð sem á kennurum
hvílir. Þeir sem kenna á efri
(æðri?) menntunarstigum fá
hærri laun en þeir sem kenna
ungviðinu. Ef máliðerskoðað
vlrðast Iftil rök llggja til þess
að málum skuli þannig
háttað. Uppeldisleg áhrif
barna- og unglingakennara
eru mikil og þvi er mikilvægt
að vel takist til.