Dagur - 15.10.1982, Qupperneq 8
Örn Gústafsson
LEIKLIST
Uppfærsla LA á Atómstöðinm
Eftir sýningu Leikfélags Akur-
eyrar á Atómstöð Halldórs Lax-
ness síðastliðið sunnudags-
kvöld, flaug ég skyndilega 25 ár
aftur í tímann, til bernskunnar
og þeirra minninga, sem oftast
liggja rykfallnar í innstu hugar-
fylgsnum.
Það hefur löngum verið sagt,
að með hernáminu í sejnni
heimsstyrjöldinni hafi íslend-
ingar lært „menningu". Sagt er
að við höfum breyst úr bænda-
þjóð í velferðarríki á örskömm-
um tíma, með tilheyrandi vaxta-
verkjum og timburmönnum.
Sjálfur tilheyri ég kynslóðinni,
sem í heiminn var borin á þeim
umbrotatímum sem höfundui
velur leikritinu stað.
Hversu vel man maður ekk'
eftir kaldastríðstímanum og
skammaryrðunum „kommún-
isti“ og „kapitaiisti“. Einhvern
veginn virtist mér þegar ég lít til
baka að það hafi verið miklu
skarpari andstæður ríkjandi á
milli stétta þá en nú er. Þá geyst-
ust eldrauðir ofurhugar um og
voru að berjast fyrir alræði ör-
eiganna byggjandi æskulýðshall-
ir, nýkomnir úr pílagrímsferð-
um til Moskvu, á meðan vatns-
greiddir heildsalasynirnir fóru til
útlanda, að ná betri tökum á
tungu og siðum „vestrænnar
menningar“.
Af hvílíkri glöggsýni og fram-
sýni er ekki Atómstöðin rituð
þegar iitið er til nútímans, og
hann borinn saman við sviðs-
myndina seint á fjórða áratugn-
um sem við áhorfandanum
blasir. Eða hefur okkur ef til vill
ekki miðað neitt götuna fram
eftir síðan þetta verk var ritað?
Höfundurinn fjallar í verkinu
um sömu vandamál og við
fáumst við enn þann dag í dag,
enda þótt nöfnin sem notuð eru í
leiknum kunni að vera önnur en
nú eru í tísku. Nú heitir vöggu-
stofan í leikritinu „barnaheim-
ili“, táldregna vinnustúlkan
„Félag einstæðra foreldra", og
barátta Uglu fyrir mannréttind-
um sínum og skoðunum heitir
nú „kvennaframboð“.
Leikritið fjallar um mannlegt
eðli, breiskleika mannsins og til-
finningar og síðast en ekki síst
um freistinguna og spillinguna,
sem svo auðvelt er að falla í, ef
fólk uggir ekki að sér. Leikgerð
LA og sviðsmynd er í senn ein-
föld og skýr. Áhersla er lögð á
textann og innihald hans, sem
fær áhorfandann til að skyggnast
örlítið dýpra. Stéttaandstæður
eru túlkaðar á einfaldan hátt
með andstæðum gamals otto-
mans og kamínu annars vegar og
Chesterfield sófasetts og krist-
alsvasa hins vegar. Leikritið fell-
ur aldrei niður, þökk sé kænlegri
beitingu ljósabúnaðar, sem segir
meira en mörg orð. Athygli
áhorfandans er haldið allan
tímann.
Um frammistöðu leikara skal
ekki fjölyrt. Þeir skiluðu allir
hlutverkum sínum með sóma.
Sunna Borg var svo sannfærandi
í hlutverki frú Árdal, að ég mun
grennslast frekar fyrir um hvort
hún hafi skrökvað að mér um
æsku sína, uppvöxt og uppruna.
Frá sýningu LA.
Alténd vona ég að hún geri mér
ekki þann fjára, að láta sjá sig á
almannafæri í framtíðinni öðru-
vísi en uppáklædda.
Bjarni Ingvarsson „Landa-
ljómi“ lék sitt litla hlutverk á
sannfærandi hátt. Ég fékk á til-
finninguna að hann væri aiveg
kominn að því að kasta upp og
væri mjög hætt kominn af
drykkju. Maður bara vonar að
hann festist ekki í þessu hlut-
verki.
Guðbjörg Thoroddssen er
með sveitalegustu sveitastelpum
sem ég hef séð á sviði. Mér er
ekki örgrannt um að ég hafi
fundið keitulyktina kitla við
nasavængina þegar best lét.
Ekki fannst mér örla á jómfrú
Ragnheiði í þetta skiptið.
Sem sagt. Það eina sem mér
fannst verulega neikvætt við
sýninguna var að sjá ekki fullset-
inn bekk áhorfenda á þriðju sýn-
ingu þessa verks. Ég trúi því
trauðla, að Norðlendingar sjái
ekki ástæðu til þess að fara í leik-
hús þegar boðið er upp á slíka
kvöldskemmtun. Til þeirra, sem
hafa hugsað sér að kaupa „helg-
arpakka“ suður á næstunni í
leikhúsferð, vil ég einungis segja
þetta:
„Látið ekki framhjá ykkur
fara þrælgóða leikhúsferð hér á
Akureyri, því þá leitið þið langt
yfir skammt.“
Ég þakka kærlega fyrir mig.
Akureyri, 12.10. 1982.
Öm Gústafsson.
Ætli við reynum ekld að
nýta trésmiðma til fulls
Rætt við Jón Odgeir Guðmundsson um platta sem KFUM og K gáfu út
Jón Oddgeir með plattann.
Einhvern næstu daga munu
félagar í KFUM&K ganga í
hús á Akureyri og bjóða fólki
„platta“ sem á er rituð bænin
Faðirvor. Að sjálfsögðu eru
félogin að afla sér fjár - þau
festu kaup á hluta af verslun-
armiðstöðinni við Sunnuhlíð
og ætla að hafa félagsheimili
sitt þar í framtíðinni. Jón
Oddgeir Guðmundsson er
einn þeirra sem standa í for-
svari fyrir KFUM og Dagur
ræddi við hann fyrir skömmu.
- Ætlun okkar er að ganga í
hús á Akureyri og bjóða þennan
platta til sölu. Einnig verður
hann seldur í Hljómveri og
Véla- og raftækjasölunni. Þessi
platti er gefinn út til fjáröflunar
vegna húsbyggingar við Sunnu-
hlíð 12. Um þessar mundir er
okkar hluti hússins tilbúinn
undir tréverk. Þegar plássið er
tilbúið verður þarna félagsheim-
ili okkar.
- Hvernig er ykkar húsnæð-
ismálum háttað í dag?
- Við eigum ekkert húsnæði.
Til langs tíma höfum við fengið
inni í Kristniboðshúsinu Zion, í
Glerárskóla og Lundarskóla.
Mestur hluti starfsins hefur ver-
ið í Zion. Ástæða þess að við
erum að flytja úteftir er ekki sú
að það sé verið að ýta okkur úr
umræddum húsum, þvert á móti
- okkur langar einfaldlega í eig-
ið húsnæði.
- Hvenær verður húsnæðið
tilbúið?
- Það er erfitt að segja nokk-
uð til um það. Þetta kostar háar
fjárhæðir og það er erfitt að
segja fyrirfram um það hvernig
fjáröflun gengur. Minn draumur
er þó sá að húsnæðið geti orðið
tilbúið eftir eitt og hálft ár. Fram
til þessa hefur vinnan einkum
legið í fjársöfnun, en ein helsta
leiðin hefur verið útgáfa á aug-
lýsingablöðum. Fram til þessa
höfum við gefið út þrjú blöð á
jafn mörgum árum, auk þess
höfum við gefið út jólakort,
staðið fyrir hlutaveltum og
svona mætti lengi telja. í stuttu
máli má segja að við höfum farið
hinar ólíklegustu leiðir og að
sjálfsögðu má ekki gleyma
frjálsum framlögum frá sjálfum
félögunum.
- Nánar um framkvæmdirn-
ar.
- Já um þessar mundir á að
fara að hlaða milliveggi og við
erum búnir að ráða múrara.
Auðvitað munum við aðstoða
hann eftir megni, en síðan byrj-
ar timburverkið. Sem betur fer
eigum við fjóra smiði í KFUM
og ætli við reynum ekki að nýta
þá til hins ýtrasta.
- Er mikill áhugi fyrir kristi-
legu starfi á Akureyri?
- Já ég tel að svo sé. Innan
KFUM og KFUK eru um 400
börn og unglingar. Unglinga-
starfið t.d. er gróskumikið. Ég
held að það séu rösklega 40 ung-
lingar á aldrinum 13 til 16 ára
innan þessara félaga. Þessirung-
lingar koma saman einu sinni í
viku. Sömu sögu er að segja um
yngri meðlimina.
- Hvað voru gefnir út margir
plattar?
- Alls voru gefin út 300 ein-
tök og ég vona að þau hverfi
fljótt. Verðið er kr. 250 fyrir
hvert stykki. Þessir plattar voru
framleiddir hjá Gler & postulín í
Kópavogi, en Bernharð Stein-
grímsson, auglýsingateiknari á
Akureyri, hannaði plattann.
-áþ.
8 - DÁGUR - i 5. október 1982