Dagur - 15.10.1982, Síða 11
Páll Jóhannesson og undirleikari hans, Jónas lngímundarson.
Tónlelkar Páls
I Borgarbíó
Páll Jóhannesson, tenórsöngv-
ari, heldur þrenna tónleika á
næstunni. Hinir fyrstu verða
laugardaginn 16. október nk.
kl. 17.00 í Borgarbíói á Akur-
eyri, sunnudaginn 17. október
kl. 21.00 ■ félagsheimilinu Mið-
garði, Varmahlíð og sunnudag-
inn 24. október kl. 17.00 í sal
Hamrahlíðarskóla í Reykjavík.
Píanóleikari er Jónas Ingi-
mundarson.
Þetta eru fyrstu opinberu tón-
leikar Páls Jóhannessonar. Hann
er fæddur og alinn upp á Akureyri
og þar hóf hann söngnám hjá Sig-
urði Demenz Franzsyni, söng-
kennara. Síðan stundaði hann
nám við Söngskólann í Reykjavík
og var Magnús Jónsson, óperu-
söngvari, aðalkennari hans þar.
Páll stundar nú nám við tónlistar-
skólann í Fiorenzuola D’Arda á
Ítalíu, hjá hinni mikilhæfu óperu-
söngkonu professor Eugenia
Ratti.
Á efnisskránni verða m.a. verk
eftir Sigvalda Kaldalóns, Sigfús
Einarsson, Eyþór Stefánsson,
Pergolesi, F. Ciléa, Scarlatti,
Verdi og Donizetti.
Gítartóiileikar
Símon ívarsson og Siegfríed
Kobilza gítarleikarar hafa
verið á hljómleikaferðalagi
um landið að undanförnu, og
munu um helgina leika á
þremur stöðum á Norður-
landi.
Þeir verða með tónleika í Ak-
ureyrarkirkju kl. 20.30 í kvöld, í
Siglufjarðarkirkju kl. 16 á morg-
un og í Safnahúsinu á Sauðár-
króki kl. 16 á sunnudag.
Á efnisskránni er mjög at-
hyglisverð spönsk klassisk tón-
list og flamenco og er ætlunin að
sýna fram á þá möguleika, sem
hljóðfærið hefur upp á að bjóða,
t.d. ýmis tækniatriði, sem ekki
allir hafa yfir að ráða, eins og
tónleikagestir þeirra félaga frá
1979 muna sjálfsagt eftir. Símon
ívarsson er allflestum íslending-
um vel kunnur í gegnum margar
tónleikaferðir um landið. Hann
stundaði gítarnám hjá Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar -
en þar kennir hann nú - og síðar
við Tónlistarháskólann í Vínar-
borg.
Siegfried stundaði einnig
nám við Tónlistarháskólann í
Vínarborg, en hann er ekki með
öllu óþekktur hér á landi, eins
og áður hefur komið fram. Hann
hefur sem aðalstarf að leika á
tónleikum víða um lönd og hef-
ur nú þegar skapað sér fastan
sess sem þekkt nafn.
Á efnisskránni hjá þeim félög-
um er éins og áður segir spönsk
tónlist, klassisk og flamenco,
þ.á.m'. verk eftir I. Albéniz, M.
de Falla og J. Ibert.
Vefiiaðarsýnliig
í Amtsbókasafiimu
Nú stendur yfir í Amtsbóka-
safninu á Akureyri vefnaðar-
sýning á vegum Iðnaðardeild-
ar Sambandsins og fyrirtækis-
ins Epal hf. í Reykjavík.
Markmiðið með sýningunni
er að kynna almenningi fram-
leiðsluvörur Iðnaðardeildarinn-
ar á þessu sviði og að skapa
áhuga meðal íslenskra hönn-
uða á að hanna fyrir iðnaðarfyr-
irtæki.
Hér er um yfirlitssýningu að
ræða, en auk þess sem eldri
framleiðsla er sýnd eru þrjú ný
áklæði á sýningunni sem eru
kynnt í fyrsta skipti hérlendis en
hafa fengið góðar móttökur er-
lendis þar sem þau hafa verið
sýnd. Þá eru á sýningunni áklæði
og gluggatjöld sem hönnuð eru
og framleidd í sömu litum og
auk þess værðarvoðir sem eru í
sömu litum.
Samvinna Gefjunar og Epals
hf. hófst árið 1976, þegar sam-
starf Gefjunar og Kvadrat a/s í
Danmörku hófst. Kvadrat er eitt
þekktasta fyrirtæki á Norður-
löndum sem selur áklæði og
gluggatjöld. Epal hefur haft
einkaumboð fyrir Kvadrat hér á
landi frá upphafi. Kvadrat hefur
lagt metnað sinn í að bjóða við-
skiptavinum sínum vel hannað-
ar vörur og hefur fengið ýmis
verðlaun fyrir.
Samstarf Gefjunar og Kvad-
rats byggist á samvinnu um að
þróa og markaðssetja vörur sem
Kvadrat hannar en Gefjun fram-
leiðir. Árangurinn af þessu sam-
starfi er hluti af þeirri sýningu
sem hér um ræðir en auk þess
eru sýndar vörur sem Gefjun
hefur sjálf fengið innlenda og er-
lenda hönnuði til að hanna.
Þáttur Epals er fyrst og fremst
fólginn í því að kynna og selja
þann hluta framleiðslu Gefjunar
sem hannaður er af Kvadrat.
Sýningin í Amtsbókasafninu er
opin frá kl. 13-19 á virkum dög-
um og kl. 10-16 á laugardögum.
Sýningunni lýkur 22. október.
Skák tíl stuðn-
íngs firam-
boði Fríðriks
Skákmenn - Skákáhugafólk!
í tilefni af fjársöfnun sem nú fer
fram um land allt til stuðnings
kosningabaráttu Friðriks Ólafs-
sonar, sem nú leitar eftir endur-
kjöri sem forseti Alþjóðaskák-
sambandsins, hefur Skákfélag
Akureyrar ákveðið að efna til
sérstaks Friðriksmóts, sunnu-
daginn 17. október kl. 14.00 í
skákheimilinu Strandgötu 19.
Tefld verður hraðskák og
þátttökugjöld nokkru hærri en
tíðkast: 50 kr. fyrir fullorðna og
25 kr. fyrir unglinga. Áhorfend-
ur og aðrir gestir munu einnig
eiga þess kost að leggja fram fé
til styrktar Friðriki.
Allt sem inn kemur á mótinu,
þátttökugjöld og frjáls framlög,
mun renna beint í Friðrikssjóð.
Allir velunnarar skákíþróttar-
innar eru hvattir til þess að
mæta.
Skákfélag Akureyrar.
íþróttír
ii m helgína
Fyrsti íþróttaviðburðurinn á
Akureyri um helgina verður
leikur KA og Aftureldingar í 2.
deild handknattleiksins í
Skemmunni annað kvöld kl. 20.
Eftir slaka byrjun KA í mótinu
vann liðið tvo útisigra gegn
tveimur af bestu liðum deildar-
innar um síðustu helgi, og er sig-
urstranglegra liðið annað kvöld.
Að loknum þessum leik eigast
svo við Dalvík og Reynir frá
Sandgerði í 3. deild. - Reynis-
menn mæta svo í Skemmuna
aftur á laugardag kl. 14 og leika
þá gegn Þór.
Körfubolti
Einn leikur verður í Skemmunni
um helgina, viðureign Þórs og
Hauka í 1. deild. Bæði liðin eru
taplaus í deildinni, og má búast
við fjörugri viðureign þar sem
ekkert verður gefið eftir. Þór
sigraði UMFG tvívegis um síð-
ustu helgi, og Haukarnir hafa
„afgreitt“ UMFG álíka mun fyrr
í mótinu. Leikur liðanna á
morgun hefst kl. 15.30.
Aðalfundur ÆSK
Um næstu helgi verður 21. aðal-
fundur Æskulýðssambands
kirkjunnar í Hólastifti haldinn á
Akureyri. Hefst fundurinn í
kapellu Akureyrarkirkju kl. 13
laugardaginn 16. október og
honum lýkur með guðsþjónustu
í Akureyrarkirkju kl. 14 á
sunnudag.
Aðalmál fundarins verður
Fjölskyldan og helgihald kirkj-
unnar. Munu bæði lærðir og
leikir flytja framsöguerindi um
þetta mál, en síðan munu hópar
starfa og loks verða almennar
umræður.
Setu á aðalfundi ÆSK eiga
allir þjónandi prestar í Hólastifti
auk leikmanna úr hverju presta-
kalli, sem starfa við barna- og
unglingastarf kirkjunnar og ým-
issa fleiri sem eru í nefndum á
vegum sambandsins.
Vefrarstarfið
að hefjast
Tónlistarfélag Akureyrar er einnig eru þeir velkomnir sem
nú að heQa vetrarstarfið og gerast vilja áskrifendur að tón-
heldur nú aðalfund sinn á leikum vetrarins.
morgun, laugardaginn 16. Á aðalfundi verðurfjallað um
október, kl. 17.00 í sal Tón- fyrirhugaða tónleika og aðra
listarskólans á Akureyri, þætti í starfi félagsins.
Hafnarstræti 81. Verulegur afsláttur er veittur
Félagar eru allir þeir sem af veröi aðgöngumiða ef keypt
keyptu fasta áskriftarmiða að er f°st áskrift.
tönleikum félagsins á sl. vetri og
Leikhúsmiði
f kaupbæti
Þeir sem snæða í Smiðjunni á
Akureyri á sunnudag og á
fhpmtudag í næstu viku munu
fá óvæma uppbót á veislumat-
inn sem boðið verður upp á.
Forráðamenn Smiðjunnar
hafa ákveðið að allir þeir sem
verða matargestir hjá þeim um-
rædda daga fái ávísun á að-
göngumiða á sýningu Leikfélags
Akureyrar á leikritinu „Atóm-
stöðin“ sem Leikfélagið sýnir
um þessar mundir við miklar
vinsældir, og verður að telja lík-
legt að tilvonandi matargestir
Smiðjunnar þessa daga kunni
vel að meta.
Þá bjóða forráðamenn Smiðj-
unnar gestum sínum í hádegi á
sunnudag heita og kalda veislu-
rétti á hlaðborði. Verðið er 180
krónur, hálft verð fyrir 7-12 ára
og frítt fyrir 6 ára og yngri.
15. október 1982 - DAGUR -11