Dagur - 15.10.1982, Blaðsíða 12
—........BAUTINN - SMIÐJAN AUGLYSA:...........
í Smiðju sunnudag í hádeginu, heitir og kaldir veisluréttir á hlaðborði.
Verð kr. 180, frítt fyrir 6 ára og yngri, V2 verð fyrir 7-12 ára.
Sunnudagskvöldið 17. og fimmtudagskvöldið 21. októberfá
allir matargestir Smiðjunnar ávísun á miða í leikhúsið á
sýningu LA á Atömstöðinni.
oft j m
Jm*.
gömlum
Mmmm
Annar fannst sofandi
3. september. Um síðustu helgi varð gler einkum fyrir
barðinu á órólegum mönnum. Brotnar voru rúður á tveim
hæðum í Hafnarstræti 96 gler á bensíngeymi hjá Bifröst, 9
rúður í Skjaldborg og rúða í verslunarglugga Skemmunn-
ar. Voru þar tveir ölvaðir að verki og brutu rúðurnar í átök-
um sín á milli. Lögreglan faim annan þeirra sofandi og
blæðandi og flutti á sjúkrahús. Lögreglan biður þá sem
upplýsingar kunna að gefa um önnur rúðubrot að láta
hana vita.
Nýir framkvæmdastjórar
17. september. Ráðnir hafa verið tveir framkvæmda-
stjórar að Slippstöðinni hf. á Akureyri, þeir Gunnar Ragn-
ars og Hallgrímur Skaptason, en tekið er fram, að forstjóri
sé sem áður Skapti Áskelsson. Hér mun um að ræða ráð-
stöfun til skamms tíma. Slippstöðin á Akureyri hefur
undanfarin ár búið sór aðstöðu til skipasmíða, þá full-
komnustu hér á landi og hefur nú í smíðum tvö þúsund
tonna strandferðaskip fyrir Skipaútgerð ríkisins. En fjár-
hagserfiðleikar hafa ekki sneitt hjá garði þessa merka og
nauðsynlega fyrirtækis ...
Selur í heimsókn
24. september. Svo bar við á miðvikudagsmorguninn 17.
september nú í haust að selur var skotinn í Eyjafjarðará
hjá Hrísum í Saurbæjarhreppi, en það eru um 27 km frá sjó.
Var þetta kópur 22 kg að þyngd. Ráðunautur Búnaðar-
sambands Eyjafjarðar var á ferð ásamt búandmönnum að
athuga ræktunaraðstöðu á bökkum Eyjafjarðarár, er þeir
allt í einu sáu óvænta hreyfingu á ánni og hugðu að það
myndi lax á ferðinni og ekki smávaxinn. En þá rak kobbi
hausinn upp úr vatninu. Þar sem selir þykja óæskilegir í
lax- og silungsveiðiám var ákveðið að skjóta sel þennan.
Skaut Njáll Kristjánsson í Grænuhlíð hann með hagla-
byssu.
Og hvalur við Oddeyrartanga
8. október. Hvalur einn mikill synti inn á móts við Odd-
eyrartanga sl. mánudagsmorgun og með honum kálfur.
En þar sneru ferðalangarnir við og háir gufustrókar gáfu
til kynna hvar þeir fóru á leið norður fjörðinn. „Þetta gæti
verið svona 20 tonna hvalur," sagði sjómaður einn er á
horfði og gerði blaðinu aðvart.
Koparþjófar miklir
6. desember. íslendingar eru manna duglegastir að
stela kopar svo sem fregnir herma og eru koparþjófnaðir
ekki aðeins margir, heldur hafa koparþjófar verið furðu
stórtækir, meðal annars stolið háspennulínu sem frægt er
og sagað ótaldan fjölda skrúfublaða af bátum. Um síðustu
helgi var vélbáturinn Stígandi eltur af varðskipi er bátur-
inn var á leið í siglingu, því sá kvittur kom upp að þar
myndi að finna stolinn kopar. Varðskipsmerin fundu þýfið
og gerðu það upptækt en leyfðu bátnum síðan að halda
áfram för sinni. Mun koparinn nú kominn í hendur réttra
eigenda í Ólafsfirði.
Fyrirtæki sem blómstrar
17. desember. Ríkisfyrirtæki það sem kennt er við tóbak
og áfengi og skilar árlega hundruðum milljóna í ríkiskass-
ann, hefur flutt í ný hús, notar tækni, hefur sagt upp veru-
legum hluta starfsfólks, en býðst til að kosta þjálfun þess
við önnur störf. Þá hefur þetta fyrirtæki í hyggju að flytja
út brennivín í vaxandi mæli pg hugga aðrar þyrstar þjóðir.
- .......................• - ' .................
Hann safhar pijón-
merkjum og húfumerkj um
Pils
jr
1
úrvali
Hæfilega
síð
fyrir
augað
Ʊ3Em,3&ss<5}
Á sameiginlegri sýningu Félags
frímerkjasafnara á Akureyri og
Myntsafnarafélags íslands sem
haldin var á Akureyri á dögun-
um vakti talsverða athygli safn
Páls A. Pálssonar en hann fæst
við söfnun á íslenskum prjón-
merkjum og húfumerkjum. Er
greinilegt að Páll hefur lagt
mikla rækt við að gera safn sitt
sem best úr garði og var það
mjög smekklega upp sett á sýn-
ingunni. Okkur lék forvitni á
að vita hvað byggi að baki slíkri
söfnun og spurðum Pál fyrst
hvenær hann hafí fyrst byrjað
að safna hlutum sem þessum.
„Ég var smápolli þegar ég
byrjaði að fást við söfnun og var
þá einnig með frímerki. Þetta lá
síðan niðri um nokkurt skeið,
áður en ég tók til við þetta af full-
um krafti. Frímerkjasöfnuninni
er ég hættur, þótt ég geti aldrei
hentfrímerki.“
- Hvað eru prjónmerkin orðin
mörg?
„Eg á orðið hátt á sjöunda
hundrað prjónmerkja en til gam-
ans má geta þess að það hafa kom-
ið út hérlendis 11-1200 prjón-
merki. Merkin eignast ég aðallega
á þann hátt að kaupa þau af stærri
söfnurum og verslunum í Reykja-
vík sem eru söfnurum innan
handar í þessum efnum.“
- Hver voru fyrstu merkin sem
þú eignaðist?
„Ætki það hafi ekki verið merki
íþróttafélaganna hér á Akureyri,
KA og Þórs. Það er svo skemmti-
legt með merki þessara félaga að
þau hafa komið út í mörgum út-
gáfum, KA-merkið t.d. í einum
10 gerðum og á ég 9 þeirra. Þórs-
merkið hefur komið út í fimm út-
gáfum og ég á fjögur þeirra. Þótl
þetta séu merki félaga þá hafa þau
tekið talsverðum breytingum og
ég get nefnt sem dæmi að Þórs-
merkið hefur ekki alltaf verið
rautt, það hefur einnig verið
svart, grænt og appelsínugult og
hendin í merkinu sem heldur á
hamrinum ýmist hvít eða bleik.“
- Hvað gefur söfnun sem þessi
í aðra hönd?
„Hún gefur eingöngu ánægju,
því hér er ekki um verðmætasöfn-
un að ræða. Þetta eru litlir
skemmtilegir hlutir sem gaman er
að dunda sér við. Þetta er fyrst og
fremst tómstundastarf og tíman-
um er ekki eytt í reiðileysi eða
sjónvarpsgláp á meðan.“
- Páll safnar ekki einungis
prjónmerkjum, heldur leggur
hann líka stund á svokölluð húfu-
og einkennismerki sem eru þá oft-
ast merki hinna ýmsu félaga og
félagasamtaka.
„Það eru tvö eða þrjú ár síðan
ég fór að fást við þessa söfnun og
hún hefur gengið ágætlega. Ef
maður getur sýnt fram á að merk-
in eigi ekki að misnota, heldur
setja þau í safn, þá er ijianni nær
undantekningarlaust vel tekið og
það er vissulega gaman að fást við
þetta. Ég held að ég eigi núorðið á
milli 60 og 70 slík merki.“
- Það er greinilegt að Páll er
safnari sem tekur söfnun sína
alvarlega. Hann sagði enda að
þetta væri mjög skemmtilegt tóm-
stundargaman og sýningin á dög-
unum var ekki hvað síst haldin til
þess að reyna að glæða áhuga al-
mennings á þessari tómstunda-
iðju að hans sögn.
„Ég veit að það eru til prjón-
merki og húfumerki í heimahús-
um hjá fólki sem ekkert hirðir um
þau, þetta liggur í krukkum og
dollum. Ég hefði mjög mikinn
áhuga á að komast í samband við
sem flesta sem eiga eitthvað
slíkt,“ sagði Páll.
- Þess má að lokum geta að vit-
að er um á Akureyri og í ná-
grannasveitarfélögunum fólk sem
fæst við söfnun á hinum ýmsu
hlutum. Má í því sambandi nefna
söfnun á skíðum, könnum, vasa-
hnífum, steinum, tréverkfærum,
skothylkjum, vindlamerkjum,
spilum, flöskum og flöskumerkj-
um, póstkortum og lengi mætti
áfram telja.