Dagur - 21.10.1982, Side 5
Akureyri:
jjörgæslu-
ísnæði
um tveimur árum. Ásgeir Hösk-
uldsson sagði að vonað væri til að
allt húsnæði í hinni nýju sjúkra-
byggingu yrði komið í notkun
innan þriggja ára. „Pað fer þá
eftir því hvort nægjanlegar fjár-
veitingar fást til verksins. Þá verð-
ur ástand orðið gott líka hvað
varðar aðstöður fyrir slysa- og
göngudeild og fyrir röntgendeild.
En það hefur þá ekkert bæst við
aðstöðu fyrir eldhús, borðsal
starfsfólks, þvottahús og fjöl-
margt annað,“ sagði Ásgeir.
Þórsarar eru í sjöunda himni yfir Robert McField, hinum stórgóða
liðsauka, sem þeir hafa fengið í körfuboltanum. Hér sjáum við
McField senda knöttinn í körfuna. Ljósm. KGA
Knattspyrnudeild Þórs:
Stjórnin
hætti öll
Aðalfundur knattspyrnudeildar
Þórs var haldinn fyrir skömmu.
Fráfarandi formaður, Karl Lár-
usson, gerði grein fyrir starfi
deildarinnar sl. keppnistímabil.
Knattspyrnumönnum hjá Þór
vegnar vel og varð meistara-
flokkur félagsins í öðru sæti í
annarri deild og vann því til
keppni í fyrstu deild næsta
keppnistímabil.
Fráfarandi stjórn gaf ekki
kost á sér til endurkjörs og var
því kosin ný stjórn fyrir næsta
keppnistímabil. Formaður
hennar er Guðmundur Sigur-
björnsson, hafnarstjóri, en
Guðmundur hefur áður starfað
sem formaður deildarinnar og
einnig sem formaður KRA.
Með honum í stjórn er Hall-
grímur Skaptason, sem verður
gjaldkeri, en Hallgrímur hefur
einnig áður starfað um árabil
sem gjaldkeri knattspyrnudeild-
ar. Aðrir í stjórn eru Sigurður
Hermannsson, Oddur Oskars-
son, Gunnar Kjartansson og
Örn Gústafsson.
Handboltinn
um helgina
Enginn leikur verður hér á Ak-
ureyri þessa helgi en Þór og
Dalvíkingar verða f eldlínunni
fyrir sunnan. Á föstudagskvöld-
ið leika Þórsstúlkur við Víkinga
í 1. deild kvenna í Laugardals-
höll, en á laugardaginn leika þær
síðan við Val. Þetta verða erfiðir
leikir en vonandi tekst valkyrj-
um Þórs að krækja sér í stig.
Á föstudagskvöldið leika síð-
an Dalvíkingar við Ögra í 3.
deild karla og á laugardaginn
leika þeir síðan við Fylki. Dal-
víkingar ættu að vera nokkuð
öryggir með Ögra en Fylkir hef-
ur engum leik tapað til þessa í
Tekst
Þórs-
urum
að
stöðva
Bock?
1. deildar lið Þórs í körfuknatt-
leik leggur land undir fót um
helgina og leikur tvo leiki syðra.
Sá fyrri er gegn Grindavík á
föstudagskvöldið og fer hann
fram í „Ljónagryfjunni“ í
Njarðvík. Síðari leikurinn fer
fram í Hagaskóla í Reykjavík á
laugardag og þá verða andstæð-
ingarnir lið IS.
Hætt er við að sá leikur verði
Þórsurum erfiður því lið ÍS sem
féll úr Úrvalsdeildinni í vor
hyggst sennilega ekki stoppa
lengi í 1. deild. í liðinu leikur
Bandaríkjamaðurinn Pat Bock
sem er talsvert á þriðja metra á
hæð og vegur eitthvað á annað
hundrað kg. Er þessi „hlunkur"
ekki stöðvaður svo auðveldlega
ef hann læsir krumlunum um
boltann undir körfunum.
Helgi
gengur
í Þór
Þórsurum hefur bæst góður liðs-
styrkur í fótboltann, en það er
Víkingurinn Helgi Helgason.
Hann lék hér á árum áður með
Völsungi en hefur um árabil
leikið með Víkingi. Helgi mun
koma til með að styrkja Þórslið-
ið vel og býður íþróttasíðan
hann velkominn í bæinn.
Helgi er bróðir Hafþórs
Helgasonar sem undanfarið hef-
ur leikið með Þór.
Staðan í
handboltanum
þriðju deildinni en ef til vill tekst
Dalvíkingum að stöðva sigur-
göngu þeirra.
Á laugardaginn fer þriðju
deildar lið Þórs til Vestmanna-
eyja og leikur þar við Tý. Týrar-
ar eru taldir sterkir og sérstak-
lega er heimavöllurinn þeim
sterkur, þannig að róðurinn fyrir
Þór verður eflaust erfiður.
Ef þeim tekst að sigra verður
staða þeirra í deildinni orðin
ágæt að loknum fimm umferð-
um.
Annarar deildar lið KA leikur
ekkert um þessa helgi.
2. DEILD:
KA
Grótta
Þór V.
Breiðablik
Ármann
Afturelding
HK
Haukar
3. DEILD:
Fylkir
Þór Ak.
ReynirS.
Týr
Keflavík
Akranes
Skallagrímur
Dalvík
Ögri
156-134
125-123
105-103
100-97
120-126
89-97
98-104
104-102
3 0 0
2 1 1
2 1 1
2 0 1
2 0 2
1 0 1
1 0 1
0 0 3
0 0 3
69-49
90-76
89-82
72-45
83-65
44-48
65-73
56-73
34-92
21. október 1982 - DAGUR - 5