Dagur - 21.10.1982, Side 8

Dagur - 21.10.1982, Side 8
Átjánda flokksþing framsóknar- manna Átjánda flokksþing framsóknar- manna hefst laugardginn 13. nóv- ember kl. 10 f.h. á Hótel Sögu, Reykjavík. Áætlað er að þingið standi í þrjá daga. Þau flokksfélög sem enn hafa ekki kjörið þingfull- trúa eru hvött til að gera það hið bráðasta og tilkynna þá til flokksskrifstofunnar. Síminn er 24480. Flugleiðir og Arnarflug hafa ákveðiðað gefa þingfulitrú um verulegan afslátt á fargjaldi, gegn framvísun kjörbréfs. Enn- fremur hafa Hótel Saga og ’hótel Hekla ákveðið að veita þingfull- trúm verulegan afslátt á gistingu meðan á þinginu stendur. Góð meðalþyngd Þórshöfn 22. nóvember. Slátrun er lokið á Þórshöfn. Alls var slátrað um 14.200 fjár. Talið er að fallþunginn sé rétt um 15 kíló, sem er mjög gott. Göngur gengu mjög vel. Veður var gott þegar leitarmenn fóru um heiðamar. Heimtur voru með al- besta móti. JJ Leikklúbburinn Saga í Danmerkurferð: „Anna Lísa“ fékk góða dóma Leikklúbburinn Saga á Akur- eyri fór í haust í leikferð til Danmerkur með leikritið „Anna Lísa“ eftir Helga Má Barðason. Hélt leikklúbburinn tvær sýningar í Humlebæk sem er um 8 þúsund manna bær. „Við fengum fullt hús á báðum sýningunum sem við héldum og þykir það víst mjög gott þarna,“ sgði Helgi Már Barðason, er við spjölluðum við hann. „Það var talsvert mikið fjallað um sýningu okkar, bæði fyrir hana og á eftir, í staðarblöðunum og sú gagnrýni sem skrifuð var eftir sýningarnar var okkur mjög vinsamleg og við vorum mjög ánægð með það. T.d. fjallaði „helsingör Dagblad“ um sýninguna og fór lofsamlegum orðum um hana en þetta er mjög útbreytt blað. Við vorum þarna í boði dansks unglingaleikklúbbs sem heitir „Ragnarock“. Þessi klúbbur er ásamt okkur og einum unglinga- leikklúbbi frá hinum Norðurlönd- unu aðili að norrænum leikhúsa- hring ef svo má segja og nokkur samskipti þar á milli. Allir klúbb- arnir samanstanda af leikurum innan við 25 ára aldur. Þetta eru fyrstu samskipti okk- ar á þessum vettvangi ef frá eru talin bréfaskipti og þess háttar. Þessi samskipti hafa helst verið við danska og finnska klúbbinn því klúbbarnir á hinum Norður- löndunum hafa ekki sýnt okkur mikinn áhuga enn sem komið er. Annars eru margir svona leik- húsahringir í gangi sem komið hefur verið á fót af norræna leik- húsráðinu en þessi er sá eini með unglingaleikhúsum. Það eru sennilega nokkuð mörg áhuga- leikhús hér á iandi sem eru aðilar að þessu samstarfi en ég veit ekki til þess að þau hafi farið utan í sýningarferðir.“ - Hvernig verður með fram- hald á þessu hvað ykkur í Leik- klúbbnum Sögu viðkemur? „Ég veit ekki hvað verður, við erum í miðju kafi að undirbúa vetrarstarfið hjá okkur og ekki víst að mikið verði hugsað um þau mál fyrr en líða tekur á veturinn. Það kemur til greina að fara í aðra leikferð eða taka á móti klúbbi er- lendis frá.“ - Er þetta fyrsta leikritið sem er sett á svið eftir þig? „Já, það er það. Eg hef dundað við að setja saman stutta grínþætti fyrir árshátíðir og þess háttar skemmtanir en þetta er það fyrsta sem ég skrifa af lengra taginu.“ „Þessar undirtektir eru óneit- anlega mjög hvetjandi en ég veit varla hvað verður." - Hvað eru margir starfandi í Leikklúbbnum Sögu? „Við erum 24 talsins og senni- lega fjölgar eitthvað í vetur vegna þess að það hafa borist talsvert af umsóknum frá krökkum sem vilja komast inn. Ég reikna með að flestir sem hafa verið með verði með áfram, þetta er orðinn mjög samstilltur hópur en það er reynd- ar alltaf pláss fyrir fleiri." Anna Lisa - en dejlig islandsk sag i Humlebæk _. a *<n tnn dHnne alder. HUMLBBÆK: Anna top denne alder. ^ Lisa blev en uforglem- ^ . Læic-folkene at melig opieveise. Tea- deen ’SSlaU i Sverige, 1 terstykket, der blev se«ki t Norge, Thor- fremfart af Det island ahavn pá Fsreerne og Van- nnirdnr— -anKdon,i- daiFinland. S. na at. ske .HPSÖuriy. 17 unge alderen fra 18 til 22 dr, der har været privat indkvarte- ret. 1 aftea opferte de for an- len og sldate gang derea itykjte, Anna Liaa, der handler om tien- Til trods for, at det ia- landske ungdomsteater op- farte deres stykke pá eget modersmál lykkedes det aí medrive publlkum sá meg- 6t, sá man kom ud over sprogbarrleren — og pá dep máde fik en helt ander- Húseiningar hf. á Siglufirði: Framleiðslan meiri en eitt hús á starfsmann Fyrirtækið Húseiningar hf. á Siglufírði varð 10 ára í júlí á þessu ári, en hluthafar fyrir- tækisins eru 105 talsins og stærsti hluthafí er Siglufjarð- arkaupstaður með um 30% hlutafjár. Nær allir hluthafar eru á Sigluflrði. Að sögn Þorsteins Jóhannes- sonar, framkvæmdastjóra fyrir- tækisins, hefur rekstur þess geng- ið vel. Á síðasta ári voru afhent 53 hús og á þessu ári er stefnt að því að afhenda um 60 hús. Hjá fyrir- tækinu starfa 35 manns og að auki 10 við uppsetningu húsanna. Má því segja að starfsmenn fyrirtæk- isins framleiði talsvert yfir eitt hús á mann á ári. Húseiningar hf. framleiða ein- ingahús úr timbri. Er bæði um að ræða einlyft hús sem eru frá 100 fermetrum og upp í rúmlega 200 fermetra og tvílyft hús frá um 160 fermetrum og allt upp í rúmlega 200 fermetra. Þá hefur fyrirtækið einnig framleitt leikskóla og.dag- heimili auk annarra sérhæfðra bygginga. íþróttahöllin á Akureyri: Lokaspretturinn er nú hafinn „Það má segja að við berjumst um hæl og hnakka þessa dag- ana, og það á að reyna að standa við þá áætlun sem gerð var að taka húsið í notkun um miðjan næsta mánuð,“ sagði Hermann Sigtryggsson, for- maður Bygginganefndar nýju íþróttahallarinnar á Akureyri í samtali við Dag. sé á flestum sviðum í húsinu þessa dagana." - Tilkoma hallarinnar hefur mikil áhrif á þann hátt að tímar losna mikið í Skemmunni og íþróttahúsinu við Glerárskóla. Én hvaða íþróttagreinar koma fyrst og fremst til með að fá æf- ingaaðstöðu í hinni nýju íþrótta- ihöll? einstaklinga og íþróttafélaganna um aukna æfingatíma. Annars hafa skólarnir forgang að húsinu að deginum, alveg fram til kl. 16. En það njóta að sjálfsögðu fleiri íþróttagreinar en handknattleik- ur og körfuknattleikur þess að komast í nýja húsið og má t.d. nefna að í húsinu verða 8 'badmintonvellir og þrír blakvell- ir.“ „Núna er verið að klæða gafla hússins að innanverðu, mála í sal, unnið er við hitalagnir og Ioft- ræstikerfi, verið að leggja flísar á gólf, setja upp ljós og um mán- aðamótin verður farið í það að ganga endanlega frá gólfi hússins. Það er því óhætt að segja að unnið „Það fer að öllum líkindum talsvert af meistaraflokkum í keppnisíþróttunum í nýja húsið, s.s. deildarliðin í handknattleik og körfuknattleik. Þetta þýðir að um leið losna tímar í hinum hús- unum og ætti þá að vera hægt að koma til móts við óskir félaga, íþróttaráð Akureyrar gerði á fundi sínum sl. mánudag tillögu um að fjórir ákveðnir starfsmenn yrðu ráðnir að húsinu og fer sú til- laga fyrir fund bæjarstjórnar. Staða forstöðumanns hússins verður hins vegar ekki auglýst fyrr en á næsta ári. # ÞjóðarátaK gegn krabbameini Það fer væntanlega ekki framhjá fólki að nú stendur yfir fræðsla um krabbamein að undirlagi Landráðs gegn krabbameinl sem stefnir að meiriháttar landssöfnun 30. október nk. til þess að koma á fót bættrl aðstöðu til leitar að krabbameini á byrjunarstigi í senn til að leitast við að út- rýma dauðsföllum af völdum leghálskrabbameins og að koma á fót leitarþjónustu að brjóstakrabbameini og krabbameini í meltingarvegi og þvagfærum. Landsráð gegn krabbameini var stofnað á sl. vori fyrir for- göngu forseta íslands, for- sætisráðherra og biskupsins yfir íslandi. Skipa nú lands- ráðið fiest helstu samtök þjóðarinnar á öllum sviðum þjóðlífsins. Megintilgangur Landsráðsins er að styðja merkilegt starf Krabbameinsfélags Islands og koma upp aðstöðu fyrir starfsemi þess í þeim tilgangi að efla leitarþjónustu þess sem nær til landsins alls. # Sjúkrastöð SÁÁ í sumar tók frú Vigdfs Finn- bogadóttir forseti íslands fyrstu skóflustunguna að nýrrl sjúkrastöð SÁA, sem rísa ÍÍm ííT 1717 yu sfl Sl JUU liill mun við Grafarvog f Reykja- vík. Sjúkrastöðin á að vera fullbúin hinn 1. október 1983. í henni verða 60 sjúkrarúm og leysir hún af hólmi stöðina á Silungapolli, þar sem eru 30 rúm. Það kemur fram f nýút- komnu tfmariti SÁÁ að löng- um hafa verið langir biðlistar á Sllungapolli og þvf kemur þessi fjölgun sjúkrarúma í góðar þarfir. Húsið verður um 2000 fermetrar að stærð og er áætlaður byggingakostnaður um þrjátfu mllljónir króna. # Fjórar milljón- ir í byggingar- sjóði' Um fjórar milljónir eru nú f byggingarsjóði sjúkrastöðvar- innar. Þetta fé er að stærstum hluta hagnaður af happdrættf SÁÁ, sem gekk mjög vel. Reikningur byggingarsjóðs- ins er hlaupareikningur nr. 353 f Útvegsbanka fslands, Laugavegi 105, Reykjavfk. # Eitt víðlesn- asta tímaritið Tfmarlt SÁÁ er eitt vfðlesn- asta tímarit landsins. Þvf er dreift til allra félagsmanna f samtökunum og er auk þess sent auglýsendum, ýmsum stofnunum, styrktarmönnum, biðstofum og fleiri aðilum. Samtals fer ritið þvf milli átta og nfu þúsund aðila.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.