Dagur - 26.10.1982, Blaðsíða 6

Dagur - 26.10.1982, Blaðsíða 6
Svona var Leeds Vnited skipað þegarliðið var upp á sitt besta. Myndin var tekin árið 1971, en það ár sigraði liðið í European Fairs Cup. komið saman. Ég tel mig geta sagt eftir margra ára samstarf með ungu fólki að það kemur til móts við mann með jákvæðu hugarfari - ef þeir hinir full- orðnu gera slíkt hið sama. Á Húsavík eigum við mikið af efni- legu æskufólki. Svonaá að spyrja unglingana Að mínu mati eru boð og bönn ekki sú leið sem dugar. Pað verður miklu frekar að fá ung- lingana til þess að axla ákveðna ábyrgð. Það á ekki að segja við þá: Þú átt að gera þetta, þú átt að gera hitt. Okkur fullorðna fólkinu ber fremur að spyrja: Álítur þú ekki að við ættum að reyna að gera þettta saman, eig- um við að gera þetta svona. Komdu með þínar hugmyndir og ég skal koma með mínar. - Svona á að spyrja unglingana. - Hvernig hefur starfræksia dvalarheimiiis aldraðra Hvamms, gengið? Nú hefur þú haft nokkur kynni af því. - Þetta hefur gengið af- legt samfélag. Ég hef nokkrum sinnum stjórnað samkomum í Hvammi og unnið ögn með íbú- unum, sem eru jákvæðir og opnir. - Hvert fór gamalt fólk sem vildi eða þurfti að komast á dval- arheimili áður en Hvammur kom til sögunnar? - í þeim efnum var nánast neyðarástand áður en Hvammur var byggður. Þeir aðilar, sem hrundu þessu af stað og gerðu Hvamm að veruleika, eiga svo sannarlega ekkert lítil þakklæti skilið. Það hafa margir lagt hönd á plóginn svo Hvammur gæti orðið að veruleika. Vil að það komi inn nýtt blóð - Hvað um önnur afskipti af fé- lagsmálum? - Ég hef lengi starfað í stjórn Framsóknarfélagsins, en nú hef ég einnig dregið mig í hlé á þeim vígstöðvum. Ástæðan er sú að þar vil ég einnig að komi inn nýtt blóð. Þegar maður stendur upp - Já það er óhætt að fullyrða það. Hún er falleg og höfundi sínum til mikils sóma. Það var Rögnvaldur heitinn Ólafsson sem á heiðurinn af henni. Kirkj- an var tekin í notkun árið 1907. Ég hygg að þeir séu fáir sem koma sem gestir til Húsavíkur sem láta það undir höfuð leggj- ast að taka mynd af kirkjunni. Flestir fara líka inn í kirkjuna og skoða hana. Ég held að það sé samdóma álit þeirra sem það gera að þeir fyllist einhverri : ■ lotningu fyrir þessu húsi. Það er bnekki auðvelt að skýra þessa til- h finningu með orðum. Húsvíkingum þykir vænt um kirkjuna sína, en þó get ég látið það fylgja að þeir mættu koma oftar til guðsþjónustu. Þegar ég byrjaði að sækja messur fyrir nokkrum árum hélt ég að maður hefði ekki svo mikið upp úr því, en smám saman breyttist þessi skoðun og síðar æxlaðist það þannig að ég fór að syngja í kórnum. Ég get fullvissað þig um að í kirkju sækir maður eitt- hvað sem manni líður vel af á eftir. - Þar að auki eigið þið góðan prest þar sem er séra Björn Jónsson. - Já, séra Björn er afar al- þýðlegur maður. Hann kemur jafnt fram við alla - háa jaft sem Éghefhaft ómældar ánægju stundir af knattspymunni bragðsvel. Ég held líka að íbú- arnir í Hvammi hafi flestir öðlast nýtt mat á lífinu. Þeir eru á viss- an hátt sínir herrar, það er vel búið að fólkinu og starfsfólkið leggur sig fram um það að gera því til hæfis. Að mínu mati er þarna skemmtilegt og uppbyggi- eins og ég gerir maður það í trausti þess að inn komi eitthvað betra. Þar að auki starfa ég í kirkjukórnum og það hefur veitt mér mikla gleði og ánægju. - Má segja að Húsavíkur- kirkja sé eitt helsta stolt Húsvík- inga? Stoltur af því að vera Húsvíkingur - Á knattspyrnan mikil ítök í Húsvíkingum? - Já, hún er vinsæl meðai okkar og kvennaknattspyrnan er á uppleið. Við eigum mikið af efnilegum fótboltamönnum og höfum lagt til menn í erlend fót- boltalið. Það eru menn á heims- mælikvarða eins og t.d. Arnór Guðjónssen hjá Lokeren. Arn- ór er borinn og barnfæddur Hús- víkingur og lék t.d. með Völs- ungi. Hann heimsótti okkur t.d. í sumar og var verndari eins leiks. Þá sagði hann okkur að hann myndi aldrei gleyma þvi að hann væri Völsungur og að hann væri stoltur af því. Sömuleiðis er ég stoltur af því að vera Húsvíkingur. Hér er ég fæddur og hér hef ég alið allan minn aldur og mér finnst Húsa- vík vera góður staður. Bærinn hefur upp á marga möguleika að bjóða, sumir hafa verið nýttir að nokkru en aðrir eru í athugun. Framtíðin verður að sjálfsögðu að skera úr um það hvernig til tekst. • Ég segi alltaf þegar ég er spurður hvort Húsavík sé góður staður að hér búi duglegt og vel gert fólk og svo sé Samvinnu- hreyfingin sterk og eigi mikil ítök í hugum þess. Framsókn- armenn eru líka forystuafl í bæjarfélaginu og uppbygging þess ber það líka með sér að framsóknarmenn hafa staðið þannig að verki að það er þeim til sóma. Ég tel að margir líti líka til Húsavíkur sem góðs bæjarfé- lags. Það er þó aldrei svo að það sé ekki eitthvað sem má finna að, en aðalatriði er samt sem áður það að þessum bæ er vel stjórnað. áþ. BILLY BREIVINER BUfy Bremner - (yrirmynd HaiMða í Imattapymn. Hailiði Jósteinsson. WBm Fyrir röskum áratug kom danskt fótboltalið, A varta, til Húsa víkur og lék tvo ieiki við Völsung. Heimamenn sigruðu í báðum leikjunum. Hafliði er 3. maður frá hægri í aftari röð. M: Páll A. Pálsson. Hafíiði Jósteinsson: Éger stoltur af því að vera Húsvíkingur - Já, ég fór snemma að spila fótbolta. Gárungarnir segja að ég hafi byrjað heima á eldhúsgólfinu sex eða sjö ára. Ég get ekki fært neinar sönnur á þetta, en það er eigi að síður líka stóra fjölskyldu og mig langar til þess að helga henni meiri tíma. Hafliði Jósteinsson samsvarar sér -vel og er greinilega í góðri líkamsþjálfun. Ég er hræddur Komdu með þínar hugmyndir og ég skal koma með mínar staðreynd að ég er búinn að vera viðloðandi fótbolta í ein 25 ár. Frá því að ég varð 15 ára hefur ekkert einasta heilt ár fallið úr og ég stundum æft allt árið. Ég hef haft ómældar ánægjustundir af knatt- spyrnunni - bæði sem leik- maður og sem stjómarmaður í Völsungi. Fyrst var ég með- stjórnandi í Völsungi og síðar varaformaður. Núna hef ég dregið mig í hlé í stjórn félagsins til þess að gefa yngri mönnum kost á því að koma þangað með sínar hugmyndir. Það kann að vera að það sé óvanalegt að menn standi á fætur og hætti til þess að hleypa nýju blóði í félag eins og Völsung. Oft hefur það verið þannig að hafí menn komist einhversstaðar inn í stjórnir eða ráð þá hafa þeir setið til eilífðarnóns, en ég hef um aö margir jafnaldrar hans megi öfunda hann af miklu út- haldi og þreki. Hafliði er Hús- víkingur í húð og hár og einn af þeim mönnum sem eru boðnir og búnir til að starfa að félags- málum. Húsvíkingur nokkur sagði mér að Hafliði væri einn af fáum mönnum sem leggðu nótt við dag í þágu annarra ef því væri að skipta - það sönnuðu störf hans að félagsmálum svo sannarlega. Mikið af efnilegu æskufólki - Ég get vel viðurkennt að ég hefði átt að sinna fjölskyldunni meira undanfarin ár, en konan mín hefur sýnt mér ótrúlega þol- inmæði, hetur aldrei sett mér stólinn fyrir dyrnar þegar áhuga- málin eru annarsvegar. - Ertu ánægður með árangur Völsungs í sumar? - Ég er það á margan hátt. Þetta er samhentur og góður hópur og við vorum heppnir með þjálfara. Ég tel að í aðallið- inu sé komin ákveðin kjölfesta, sem ég held að muni skila sér á næstu árum ef Hörður Helgason heldur áfram að þjálfa hjá Völs- ungi. - Nú situr þú í tómstundaráði Húsavíkurbæjar. Hvað getur þú sagt mér af því? - Eins og fram hefur komið hef ég verið mikið viðloða starf- semina hjá Völsungi og ég sit í tómstundaráði sem fulltrúi fé- lagsins. Þar eiga einnig sæti full- trúar frá nemendaráði Gagn- fræðaskólans, æskulýðsfélagi kirkjunnar, skátum, kvenfélag- inu, auk fulltrúa frá stjórnmála- flokkunum. Það má e.t.v. segja að ég hafi starfað á tvennum víg- stöðvum í tómstundaráði. Ann- arsvegar fyrir unga fólkið og hinsvegar fyrir eldri borgarana. Hvað unga fólkið varðar þá tel ég mig hafa nokkra innsýn í hug- arheim þess, störf þess og leiki. Verkefni tómstundaráðs eru nokkuð víðtæk eins og sést á því að það hefur með að gera þessa tvo aldurshópa. - Ef við víkjum fyrst að unga fólkinu langaði mig til að spyrja þig hvort mikið sé gert fyrir það á Húsavík og sýna unglingarnir áhuga á því sem er geri? - Á síðasta ári var nýr sama- staður fyrir unglingana tekinn í notkun. Hann er í félagsheimil- inu. Það sýndi sig strax að þegar var kominn samastaður fyrir þá með þónokkrum leiktækjum og fleiru að unglingarnir komu. Það er þeim mikils virði að eiga sér húsnæði þar sem þeir geta lága. Hann getur farið úr prest- skrúðanum og hreinsað timbur í byggingavinnu eða brugðið sér í afgreiðslustörf í fiskbúðinni. Hann tekur þátt í störfum fólks- ins - er ekki fjarri því. - En svo eruð þið líka að gera við kirkjuna. Er þeim fram- kvæmdum að ljúka? - Já, það vantar lítið á það og kirkjan hefur tekið gífurlegum stakkaskiptum. Þetta var bæði erfitt verk og tímafrekt, en menn hafa lagt sig alla fram um að vinna verk sitt vel. Eftir lag- færingarnar er kirkjan allt annað hús. 6 - DAGUR - 26. október 1982 26. október 1982 - DAGUR - 7

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.