Dagur - 09.11.1982, Qupperneq 12
Fjölbreytt
dagskrá
Hrísey:
Hitaveitu-
framkvæmdir
inn. Ég vil endilega nota þetta
tækifæri til þess aö hvetja foreldra
til þess að sjá um að þessi mál séu í
lagi hjá bömum þeirra“, sagði
Björn.
fyrir 40 þús.
áhvert
heimili
8. nóvember.
Hitaveituframkvæmdir hafa verið
miklar í Hrísey í sumar og haust.
Eftir erfiðleika við borun tókst að
finna nægjanlega heitt vatn og er
endurlagning leiðslu á lokastigi.
Segja má að hreppsnefndin hafi
lyft Grettistaki í þessu þarfa
nauðsynjamáli sem kosta mun
Hríseyinga um 4 milljónir króna.
Hörður Snorrason hitaveitustjóri
hefur tjáð Degi að um miðja þessa
viku verði lokið tengingu nýrrar
dælu. Megi þá vænta að nægur
þrýstingur haldist í leiðslum eftir
það, en undanfarið hefur lágur
þrýstingur og loft í hitakerfi hrjáð
Hríseyinga.
Láta mun nærri að þessi auka-
kostnaður við endumýjun hita-
veitunnar sé um 40 þúsund krónur
á hvert heimili í Hrísey og er sá
kostnaður sambærilegur við það
sem hver Vestmannaeyingur varð
fyrir í náttúruhamfömnum í
Heimaey. S.A.
IT "P r
)li Æ <
Lofsvert
framtak
Flugleiðir, Ferðaskrifstofan
Útsýn, Ferðaskrifstofan
Úrval, Ferðaskrifstofa Akur-
eyrar og Sjallinn á Akureyri
eiga lof og hrós skilið fyrir
framtak sitt s.l. föstudag, en
þá buðu þessi fyrirtækí öllum
börnum á Akureyri á aldrinum
6-12 ára að koma í Sjallann og
skemmta sér þar nokkra
stund. í anddyri hússins var
tekið á móti börnunum og
þeim afhent sælgæti, blöðrur,
límmiðar og fleira og þegar
upp í salinn kom voru bingó-
spjöld til reiðu. Mikki refur
stjórnaði bingóinu af alkunnu
öryggi og fleiri skemmtiatriði
voru á dagskrá, s.s. skemmt-
un austurrískra listamanna.
Krakkarnir sýndu að þau
kunnu að meta þetta boð, þau
skiptu hundruðum í Sjallan-
um á föstudag og gleði og
ánægja skein úr hverju and-
liti. Þeir sem fyrir þessu stóðu
eiga svo sannarlega skilið rós
í hnappagatið.
• Allir vildu
koma og
skoða
Geysileg örtröð var við nýju
verslunarmiðstöðina Sunnu-
hlíð í Glerárþorpi s.l. fimmtu-
dag þegar hún var opnuð.
Strax um morguninn þegar
opnað var beið fólk eftir að
komast inn og líta dýrðina
augum, og alian daginn var
H ®í níl > - D “P
Ifl Sl JUU Liil
hálfgert umferðaröngþveiti f
nærliggjandi götum. Gekk
það svo langt að er líða tók á
daginn var fólk sem býr í
næsta nágrennf við versiun-
armiðstöðina í hálfgerðum
erfiðleikum að komast heim
til sín úr vinnu. - En um það
heldur sá er þetta skrifar að
allir séu sammála að hin nýja
verslunarmiðstöð er glæsi-
legt mannvirki sem bætir úr
brýnni þörf, og þá ekki hvað
síst fyrir íbúa Glerárþorps.
# Skóverslun
M.H. Lyngdal
í Sunnuhlíð
í síðasta tölublaði Dags láðist
að geta þess að Skóverslun
M.H. Lyngdal er meðal versl-
ananna í Sunnuhlíð. Láðist að
geta þessa í fréttatilkynningu
tii blaðanna en það er leiðrétt
hér með.
# Tveirbílar
til viðbótar
í síðasta blaði sagði (S&S að
hitaveitustjóri og vatnsveitu-
stjóri ækju um bæinn á bflum
í eigu hins opinbera - en sá
væri hængur á að hvorugur
bílanna væri merktur eins og
lög gera ráð fyrir. Nú hefur
S&S borist vitneskja um tvo
aðra bfla. Sá fyrri er í eigu
garðræktar bæjarins en hinn
er í traustum höndum mein-
dýraeyðis bæjarins.
„Við erum nú að hefja sölu
áskriftarkortanna og enginn
ætti að verða svikinn af því sem
í boði verður hjá Tónlistarfé-
lagi Akureyrar í vetur“, sagði
Jón Arnþórsson, nýkjörinn
formaður félagsins í viðtali við
Dag.
„Það má segja að áskriftarfél-
agarnir hafi verið sá grunnur scm
gert hefur félaginu kleift að leggja
sitt af mörkunum til að halda uppi
góðu og miklu framboði á lifandi
tónlist á Akureyri á undanförnum
árum. Akureyri hefurríkatónlist-
arhefð og við í Tónlistarfélaginu
viljum gera okkar besta til að við-
halda henni. Hins vegar er ljóst að
það gerist ekki nema með sam-
stilltu átaki margra. Því hvetjum
við alla áhugamenn um vandaða
tónlist til að gerast áskrifarfélag-
ar“, sagði Jón ennfremur.
Það sem boðið verður uppá í
vetur er ekki af verri endanum.
Byrjað verður á tónleikum Jónas-
ar Ingimundarsonar, píanóleik-
ara, laugardaginn 20. nóvember
n.k. í janúar koma óperusöngvar-
arnir Sieglinde Kahmann og
Sgurður Björnsson, en þau eru
þekkt fyrir léttan ljóða- og óperu-
söng. Febrúar býður uppá fram-
hald glæsilegrar jassvakningar frá
fyrra ári með Trio Paul Wiedens í
fararbroddi, í mars verða fjöl-
breyttir tónleikar með tónlistar-
kennurum Tónlistarskólans á Ak-
ureyri og punkturinn yfir i-ið
verða svo tónleikar hinnar nýju
íslensku hljómsveitar með Guð-
mund Emilsson sem stjórnanda
og hina kornungu og stórefnilegu
Sigrúnu Eðvaldsdóttur sem
konsertmeistara. Þá má geta
þeirrar nýjungar að Jónas Ingi-
mundarson mun leika og halda
tónlistarkynningu í Gagnfræða-
skólanum og Menntaskólanum
daginn fyrir tónleika sína.
Björn Mikaelsson lögregluþjónn ásamt unglingum í 9. bekk.
Umferðarfræðsla
í Glerárskólanum
„Þaö er langt frá því að ég geti
kvartað undan móttökunum
sem ég fæ hjá krökkunum, þær
eru mjög góðar og þau fylgjast
vel með því sem ég er að segja
þeim og spyrja talsvert“, sagði
Bjöm Mikaelsson lögreglu-
þjónn, en við litum inn hjá hon-
um morgun einn í síðustu viku.
Björn var þá með umferða-
fræðslu hjá 9. bekk í Glerárskóla
og var ekki annað að sjá en að
krakkarnir sýndu því áhuga sem
hann var að sýna þeim, enda
skemmtilegt að geta hvílt sig á
skruddunum smástund.
Björn fór yfir undirstöðuatriði í
umferðinni, ræddi um endur-
skinsmerki, bílbelti, öryggis-
hjálma „skellinöðrutöffaranna“
og margt, margt fleira. Þá ræddi
hann um öryggisútbúnað reið-
hjóla. „Ég reyni að leggja
áherslu á að reiðhjólum sé
lagt strax og fyrstu snjóar koma á
haustin en það gengur misjafn-
lega að fá krakkana til að fylgja
því.
Þá er ekki um annað að ræða
- en að leggja áherslu á að öryggis-
tæki hjólanna séu í lagi og þá á ég
ekki hvað síst við ljósaútbúnað-
Það var stór stund í lífi hús-
vískra sjómanna s.l. miðviku-
dag. Reyndar má segja í tilveru
allra Húsvíkinga. Hinn lang-
þráði draumur um dráttarbraut
í bænum var loksins orðinn
veruleiki. Allmargir „fjörulall-
ar“ voru saman komnir fyrir
neðan bakka þennan dag og
biðu spenntir eftir því að fyrsti
báturinn, Kristbjörg Þ.H. 44,
yrði dreginn upp í nýja
slippinn.
Olli útgerðarmaður spígspor-
aði í fjöruborðinu, greinilega
mjög spenntur. Hann átti jú einu
sinni fyrsta bátinn sem færi upp.
Það var því ekki laust við að kall-
inn væri dulítið stoltur á svip.
Samt örlaði á áhyggjuglampa er
hann horfði haukfránum augum á
„Kibbuna" sína, þegar hún þok-
aðist upp sleðann. Það fylgir því
ábyrgð að eiga fyrsta bátinn sem
dreginn verður upp. En allt gekk
þetta eins og í sögu. Kristbjörgin
komst alla leið og áhyggjuglamp-
inn í augum útgerðarmannsins
slokknaði.
Framkvæmdir við dráttarbraut-
ina hófust í fyrra haust. Umsjón
með verkinu hafði Þórður Har-
aldsson, bátasmiður, fram-
kvæmdastjóri Nausta h.f., sem
mun annast reksturinn og fram-
kvæmdir við önnur mannvirki
tengd dráttarbrautinni. í bygg-
ingu er 480 fermetra stálgrinda-
hús við hlið dráttarbrautarinnar
og verður það verkstæði. Hægt er
að taka upp 200 tonna báta, þann-
ig að nýja stöðin getur þjónað öll-
um bátaflota Húsvíkinga, nema
togurunum. Fyrst í stað er aðeins
hægt að taka upp einn bát í einu,
en þegar stöðin er fullsmíðuð
verða stæði fyrir 4-5 báta.
Um tíu starfsmenn vinna í
dráttarbrautinni.
Krístbjörg Þ.H.-44 komin í slipp. Á innfelldu myndinni er Olgeir Sieurceirs-
son (Olli).
Ný dráttarbraut
tekin í notkun
L