Dagur - 26.11.1982, Blaðsíða 8

Dagur - 26.11.1982, Blaðsíða 8
BARNA VAGNINN Heiðdís Norðfjörð Bréf úr sveiumn Góðan og blessaðan daginn. Hvernig væri að fá bréf úr sveitinni? Ég heiti Guðrún Hulda, eftir ömmu- og afasystrum mínum, og þetta eru ágæt nöfn en samt er ég alltaf köll- uð Gunna og mér líkar það vel. Við eruni fimm systkinin, pabbi, mamma og Þórður ömmubróðir minn, sem eig- um heima á bænum. Já kött- urinn og hundurinn ekki má gleyma þeim. Kindurnar eru um 280. Ég á sjálf nokkrar. Þær heita: Frú, Síða, Opna, Þrenna, Skrudda, Pumpa, Tepra og tvær í viðbót, sem eru langskemmtilegastar, Fema hún er dálítið frek. Þeg- ar ég fer upp í fjárhús kemur hún æðandi og heimtar brauð- bita hjá mér. Sú verður móðg- uð þegar ég gleymi henni. Hin er Gjöf. Eg fékk hana þegar ég fæddist. Hún er svo gæf og vill láta klappa sér og strjúka. Hún hefur þrisvar komið þrí- lembd og þá hef ég nú verið hreykin og glöð. Ég varð 7 ára fyrir mánuði síðan og byrjaði í skóla í haust. Við förum 3 systkinin með skólabíl á morgnana kl. 8.15 og komum heim kl. GUBth WW " / ERUM V>Ð OU t oumn HULVft' J 14.00-16.00. Á miðvikudög- um á ég frí. Það er gaman í skólanum, en það er einnig gott að eiga frí. í dag er miðvikudagur og í morgun fór ég út með Þórði bróður mínum. Hann er þriggja ára. Við voram að leika okkur í snjónum og bjuggum til litla snjókarla, snjóketti og hunda. Það var virkilega gaman. Þegar við vorum orðin þreytt, fórum við KA TIR KRAKKAR FORNIOG FELAGAR T GETUR ÞÚ SAGT MÉR HVER ER MUNURINNÁFlL...? JÁ ÞAÐ VEIT ÉG. HANN GETUR HVORKI HJÓLAÐ... Og þá getur eldamennskan hafist. Ég fæ nú stundum að elda í alvörunni hjá mömmu. inn og borðuðum hádegismat. Eftir matinn var búleikur næst á dagskránni hjá okkur. Fyrst fengum við mjólkurkassa hjá mömmu og úr honum gerðum við eldavél. Það er ákaflega einfalt. Við teiknum þrjá hringi ofan á kassann, það eru hellurnar. Ekki má vanta klukkuna eða takkana, já og ofninn, því að það þarf að vera hægt að steikja og baka. Framan á kassann skeram við með borðhníf ofnhurðina og þá er komin þessi líka fina eldavél. Sjáðu: Hér kemur mynd af eldavél- inni: - jEt-PAV£L - Það er fjarskalega gaman. Um daginn bjó ég til osta- brauð, það er svona: Fyrst smyr ég brauðið, set ostsneið ofan á og ef tU vill lika tómatsneiðar. Þá setur mamma brauðið á plötu og lætur inn í heitan ofninn. Eftir smástund er osturinn bráðinn og brauðið tilbúið. Verði ykk- ur að góðu. Ég er að Iæra á blokkflautu í skólanum og kann að spila „Góða mamma“. Vísurnar eru víst meira en hundrað ára. Ég kann þrjár, ætli að þær séu fleiri? Þær sem ég kann era svona: Góða mamma gefðu mér góða mjólk að drekka ég skal vera aftur þér elsku barnið þekka. Farðu að skammta, mamma mín mér er kalt á tánum askur, diskur, ausan þín eru á drykkjarsánum. Innan sleiki ég askinn minn ekki fyllist maginn kannast ég við kreistinginn kóngs á bænadaginn. Að lokum sendi ég nokkrar gátur, ekki kíkja strax á svörin. 1. Hvar sló Nói fyrsta nagl- ann í örkina sína? 2. Hvers vegna er gölturinn aldrei í buxum? 3. Hvaða réttur er óætur? 4. Hvers vegna lokar haninn augunum þegar hann galar? 5. Hvers vegna lyftir storkur- inn upp öðrum fæti? Svör: 1. Á höfuðið. 2. Gyltan kann ekki að sauma. 3. Hæstiréttur. 4. Hann kann það utanað. 5. Hann getur ekki lyft báðum. Hæ, hæ, þetta gekk vel. Ég skrifa aftur þegar jólin nálgast, ef þú vilt. Bið að heilsa öllum krökkum. Bless, ykkar Gunna í sveit- inni. LALLILIRFA - Og hvar hefur svo vagga þín staðið, spurði Gunna frænka ungan frænda sinn svona rétt til að halda uppi sam- ræðum. - Tja, síðustu 18 árin hefur hún nú staðið uppi á háalofti... ☆ ☆ ☆ - Er það virkilega satt að hvalir lifi á sardínum? - Já, drengurminn. - Hvernig íósköpunumgetaþeirtekið uppdósirnar...? ☆ ☆☆ - Hvernig er það, ríkir ekki fullkom- ið jafnrétti kynjanna í nafnalögun- um? - Jú, auðvitað. - Hvers vegna má þá dóttir mín ekki heita Jón Þór? 8r- QAGUR - 26i'rtóvember 1982::

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.