Dagur - 07.12.1982, Blaðsíða 8

Dagur - 07.12.1982, Blaðsíða 8
Jólabingó Bingó að Hótel Varðborg föstudaginn 10. des. kl. 8.30 e.h. Vinningar: Flugfar Ak-Rvík-Ak, svínakjöt, hangi- kjöt og m.fl. Stjórnandi: Sveinn Kristjánsson. Systrafélagið Gyðja. Kostaboð í dýrtíðinni Sparíð krónuna og verslið ódýrt Tilboð þessa viku DÖmuflauelsbUXUr 2 litirst. 28-36, verð kr. 235 Barnaflauels- og gallabuxur, fóðraðar, verð kr. 235. Vinnuskyrtur, áðurkr 230-nú kr 185 ^ Útsalanerí fullum gangi UI Eyfjörð Hjalteyrargötu 4, simi 25222 Verslunartími í desember 1982 Verslanir á Akureyri verða opnar utan venju- legs verslunartíma í desember sem hér segir: laugardaginn 12. desemberfrá kl. 10-18, laugardaginn 18. desemberfrá kl. 10-22, fimmtudaginn 23. desemberfrá kl. 9-23. Kaupfélag Eyfirðinga, Kaupmannafélag Akureyrar. ATH.: Sjá þó auglýsingu annars staðar um verslunartíma matvöruverslana. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 3., 8. og 12. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á fasteigninni Króksstaðir í Öngulsstaðahreppi, þingl. eign Her- berts Ólasonar, fer fram eftir kröfu Lífeyrissjóðs verslunar- manna, Ásmundar S. Jóhannssonar hdl., Jóns Oddssonar, hrl., Ragnars Steinbergssonar hrl., innheimtu ríkissjóðs, Björns J. Arnviðarsonar hdl., Árna Guðjónssonar, hrl., Hreins Pálssonar, hdl., Gunnars Sóles hrl. og Brynjólfs Kjartanssonar, hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 10. desember 1982 kl. 14.00. Sýsluma&urinn í Eyjafjarðarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 36., 39. og 43. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á fasteigninni Grundargerði 7d, Akureyri, þingl. eign Ingva Óð- inssonar, fer fram eftir kröfu innheimtu ríkissjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 10. desember 1982 kl. 13.30. Bæjarfógetinn á Akureyri. t Brynhildur Olafsdóttir Fædd 23. janúar 1919 - Dáin 7. september 1982 Brynhildur Ólafsdóttir er látin, langri og harðri orrustu er lokið með þeim úrslitum sem hvorki verða kennd við sigur eða ósigur heldur að- eins ferðalok - eða nýjan áfanga. Það stríð var háð með þeim kjarki og þrautseigju sem stendur meðan stætt er og víkur ekki af vettvangi lífsins fyrr en saman skellur. 16. september sl. kvöddum við Brynhildi er lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri að kveldi hins 7. september. Upp í huga minn koma hálf- gleymdar minningar frá samveruár- um okkar er við bjuggum í sama húsi í rúmlega sjö ár, hún þá með fimm böm og ég með mín tvö börn og aldrei kom til árekstrar eða leiðinda í öll þessi ár þótt böm mín væru þar daglega og þægju ekki ófáar brauð- sneiðar með hennar bömum, þótt efnin væru ekki alltaf mikil í þá daga. Ég man hvað mér fannst Brynhildur falleg ung kona, með brún tindrandi augu og þykkt liðað dökkjarpt hár og hvað hún gat alltaf verið í góðu skapi á hverju sem gekk. Það má segja að lífsgleði hennar hafi hjálpað henni til að bera öll vonbrigði lífsins sem hún fór ekki varhluta af. Ég man hana leiða telpukorn, bera lítinn dreng á armi er hún gekk með sitt fjórða bam, en alltaf jafn glöð og kát. Ekki vom húsakynnin heldur stór eða há- reist en oft var þar gestkvæmt og öll- um tekið með hlýju, jafnt háum sem lágum. Brynhildur fæddist 23. janúar 1919 í Brekku í Glerárhverfi, dóttir hjónanna Kristbjargar Jónsdóttur og Ólafs Jakobssonar er þar bjuggu um árabil. Hún var yngst af systrunum, þær voru fimm er upp komust og fjórir bræður og eru þrír látnir, Ingvar, Haraldur og Jón en á lífi eru Sigríður, Bjargey, Guðrún, Snjó- laug og Sigtryggur. Brynhildur giftist Sveini Jónassyni frá Bandagerði og Minning: Þórdís Ellertsdóttir Fædd 24. janúar 1924 Dáin 18. nóvember 1982 Hún Þórdís mágkona mín er látin um aldur fram. Mig langar til að minnast hennar með nokkrum kveðjuorðum. Ævi hennar var ekki ætíð dans á rósum, því heilsa hennar var á stundum ekki eins og best var á kosið. Ung missti hún föður sinn og ólst upp með móður sinni og eldri systur á árum kreppunnar. Mun hún snemma hafa þurft að sjá sér farborða, þar sem móðir hennar tók að sér það stóra hlutverk að sjá heimil- inu farborða af eigin rammleik. Dísa, eins og hún var ætíð kölluð innan fjölskyldunnar, giftist bróður mínum Kristjáni. Gengu þau í hjónaband að vori árið 1952. Hefur heimili þeirra ætíð verið að Brekkugötu 15 hér í bæ. Þau hjón eignuðust tvö börn, son er andaðist nokkurra daga gamall, sem nú fagnar móður sinni og dóttur sem er 19 ára og hefur átt heimili sitt hjá foreldr- um sínum alla tíð. Faðir okkar systkina hefur einnig átt heimili sitt hjá þeim hjónum mörg hin síðari ár og var sambýli þeirra ætíð hið besta. Kveður hann Dísu með þökk. Hún annaðist heimili sitt af alúð og var Kristjáni bróður styrkur og stoð í hans umfangs- mikla starfi. Var hún jöfnum höndum við heimilisstörfin og á vinnustað þeirra hjóna. Helgaði hún heimili sínu og fjölskyldu starfskrafta sína, en sótti lítt á náðir skemmtanaiðnaðarins. Er þau hjón eignuðust sinn fyrsta bíl, tók Dísa bílpróf og ók ætíð síðan vegna fötlunar manns síns. Er fjölskylduferðir okkar hófust, fórum við vítt um landið. Oft sat ég í bílnum þar sem Dísa var við stjórn og fórst henni það vel úr hendi á löngum leiðum og misjöfnum vegum, en er saman var safnast að kveldi á áfangastað var oft glatt á hjalla og gamanyrði látin fjúka. Átt- um við saman á þessum ferðum margar góðar stundir og minn- ist ég þeirra með þakklæti. Sumarhús reistu þau hjón sér í fögrum hvammi við ljúfan læk. Þar undu þau sér best í kyrrð og útiveru er hún kunni vel að meta. Þar munu þau hafa best fundið hvort annað og notið þess að hvílast frá erli daganna með augasteininum sínum henni Öldu. Er leið okkar lá um ströndina var stundum komið við í sumarbústaðnum. Fylgdi því sérstakur hugblær að setjast niður í stofunni eða hvammin- um og njóta kyrðarinnar, heyra lækinn hjala og finna gestrisni þeirra hjóna Dísu og Kidda. Oft lá leiðin í Brekkugötuna er farið var í bæinn og það brást ekki að ætíð var heitt á könnunni hjá henni Dísu. Fyrir allt þetta og göngu hennar við hlið bróður míns sendi ég henni hjartans þakkir. Eins og fyrr segir gekk hún ekki ætíð heil til skógar, en sjálfsmeðaunkun var ekki til á hennar vörum, annaðist heimili sitt fjölskyldu og vann sín störf á hljóðlátan hátt og stóð meðan stætt var. Sjúkdómur sá er lagði hana að velli er með verstu óvin- um mannkyns, einnig hann bar hún með æðruleysi þess er trúir á bjartari tilvist handan tjalds- ins er skilur að heimana. Kveð ég hana og óska henni góðrar heimkomu á landi ljósins. Öldu og Kidda bróður bið ég blessun- ar Guðs. Laufey. eignuðust þau 8 börn, eitt barnið misstu þau, dreng eftir langvarandi veikindi. Elsta bamið Guðrún Sóley ólst upp hjá föðurforeldrum sínum eins og þeirra eigið bam, nú hús- freyja í Fellum S.-Múlasýslu, þá Björg húsfrú á Seltjarnamesi, Jónas býr á Eskifirði, Víglundur búsettur í Njarðvíkum, Sverrir búsettur hér á Akureyri, Sigurveig býr á Grenivík og yngst er Hafdís búsett á Akureyri. Öll eru börnin duglegt og efnilegt fólk, ölí gift og barnabörnin eru orð- in um þrjátíu. Sveinn og Brynhildur slitu samvistum fyrir allmörgum ámm. Brynhildur dóttir Hafdísar ólst að mestu upp hjá ömmu sinni og nöfnu og var hún sá sólargeisli er lýsti upp döpur ár Brynhildar þegar heilsan tók að bila og hún orðin ein, öll bömin búin að stofna sín heimili og var nú öll hugsun hennar bundin þessari dótturdóttur, er hún hlúði að sem besta móðir. Snemma á síðast- liðnu sumri varð Brynhildur að fara á sjúkrahús og þaðan átti hún ekki afturkvæmt. Miklu og erfiðu stríði er lokið. Ég sendi börnum Brynhildar, tengdabörnum, barnabörnum og systkinum mínar innilegustu samúð- arkveðjur og bið þeim öllum bless- unarguðs. HG. AFGREIÐUM MEÐ STUTTUM FYRIRVARA A H'X DENISON Vökvadælur og ventla Elnfaldar Tvöfaldar Þrefaldar Hljóðlátar - endingargóðar. Hagstætt verð - varahluta- þjónusta. Hönnum og byggjum upp vökvakerfl. Sendum myndabæklinga VÉLAVERKSTÆÐI SIG. SVEINBJÖRNSSON HF. Arnarvogl, Garðabæ símar 52850 - 52661 8 DAGUR - 7. desemtoer 1982

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.