Dagur - 07.12.1982, Blaðsíða 12

Dagur - 07.12.1982, Blaðsíða 12
RAFGEYMAR í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉUNA VEUIÐ RÉTT MERKI Kemur ekki á óvart „Ég á nú eftir að kynna mér þessa skýrslu betur, en mér sýnist að niðurstaðan þurfi ekki að koma mönnum neitt á óvart. Það var vitað að lífríki Eyja- fjarðar væri fjölbreyt og að hér við fjörðinn væri búskapur með miklum blóma og töluverðir ónýttir ræktunarmöguleikar. Þetta kemur varla neinum á óvart,“ sagði Jón Sigurðarson, formaður atvinnumálanefndar Akureyrar í viðtali við Dag, þegar hann var inntur álits á niðurstöðum skýrslu Náttúru- gripasafnsins um náttúrufar við Eyjafjörð. „Ég vil vekja athygli á því að þessi skýrsla er aðeins fyrsta skrefið í viðamiklum umhverfis- rannsóknum sem gera þarf á hverjum þeim stað þar sem fyrir- hugað er að reisa stórt iðjuver. Þær rannsóknir ásamt með rann- sóknum á því hver mengun verð- ur frá hugsanlegu iðjuveri eru veigamikili þáttur við endanlega ákvörðun ásamt arðsemis- og byggðasjónarmiðum. Nýjustu fregnir herma að fljót- lega verði gerð opinber niður- staða arðsemisathugana sem gerðar hafa verið á vegum Iðnað- - segir Jón Sigurðarson um skýrslu Náttúru- gripasafnsins arráðuneytisins og umhverfis- og mengunarrannsóknum verður líklega lokið hér við Eyjafjörð að ári liðnu. Með allar þessar niður- stöður í höndunum getum við tek- ið fordómalausa afstöðu til þess- ara mála. Mér finnst nokkuð um það að þessar niðurstöður séu túlkaðar sem andstæðar stóriðjuverum við Eyjafjörð. Það eru þær alls ekki, en þær sýna aftur á móti að hluta til hverjar kröfur við þurfum að gera til slíkra fyrirtækja hvað mengun varðar,“ sagði Jón Sig- urðarson að lokum. Tveimur bílum stoliö Um helgina var tveimur bílum stolið á Akureyri. í öðru til- fellinu a.m.k. stóð kveikju- ly killinn á sínum stað svo þjóf- urinn átti ekki erfitt með að ræsa bifreiðina og halda af stað. Skátamir við æfíngar á Eyjafjarðará. Mynd: H.Sv. „Fjallhífar orðnar vinsælar“ Samkvæmt upplýsingum rannsóknarlögreglunnar er mikið um það á Akureyri að bifreiðaeigendur skilji lyklana ef'tir í bílunum er þeir yfirgefa þá. Næturhrafnar sem hafa í hyggju að stela bíl athuga ein- faldlega alla þá bíla sem þeir sjá og taka þann fyrsta sem bíður með lyklana í startaran- um. Öðrum bílnum varstoliðfrá Hótcl Varðborg en hinum var stolið á Eyrinni. Báðir bílarnir fundust óskemmdir og búið er að upplýsa hverjir það voru sem tóku bílana traustataki. Allar bækurnar komnar út Síðasta bókin frá Skjaldborg er nú komin í bókaverslanir. Það er bókin „Frá konu til konu“, eftir kvenlækninn Lucienne Lanson. Bókin fjallar um kyneðli og kynfæri konunnar og svarar fjölda fyrirspurna um kvensjúkdóma og annað sem tengist þessu efni. Fjölmargar skýringarmyndir eru í bókinni. Hún kom fyrst út árið 1975 og hefur notið sívaxandi vinsælda um allan heim og er ekki að efa að svo verður einnig hér á landi. Útgáfubækur Skjaldborgar fyrir þessi jól eru 24 að tölu. „Ég hef m.a. látið þetta hífa mig upp Kaldbak og Vaðlaheiði", sagði Ólafur Kjartansson, félags foringi hjá Skátafélagi Akureyr- ar í viðtali við Dag, en hann hafði frumkvæði að gerð ný- stárlegs tækis sem hægt er að láta draga mcnn á gönguskíðum upp um fjöll og firnindi ef skil- yrði eru góð, þ.e. nægur vindur. Á laugardag var hann ásamt nokkrum ungum skátum við æfingar á ís á Eyjafjarðará. Tækið sem um ræðir er eins konar fallhlíf, sem þeir kalla reyndar „fjallhíP'. Þetta hafa skátarnir saumað sjálfir og hafa verið að þreifa sig áfram með gerð og stærð. Yfir 50 „fjall- hífar“ eru nú í ,,smíðum“ogfjöl- margir hafa sýnt þessu áhuga. ,,Það er ekki nóg að beita kröftum í viðureign við íslenska náttúru, menn verða að nota höfuðið svolítið líka. Þetta getur auðveldað mönnum að ferðast á gönguskíðum og þar með útivist, sem er vel“, sagði Ólafur Kjartansson. Enginn getur byggt Eins og fram hefur komið i Degi ákvað Landssamband iðnaðar- manna og Meistarasamband byggingamanna í samráði við Meist- arafélag byggingamanna á Akureyri og önnur félög byggingameist- ara á Norðurlandi, að kynna sér atvinnuástand í byggingariðnaði á Norðurlandi. I greinargerð sem Degi hefur borist frá Landsam- bandi byggingamanna kemur í ljós að menn töldu sig hafa verkefni til áramóta, en lítið eða ekkert að gera upp úr því. Tvær ástæður voru einkum að máli þær breytingar, sem tilgreindar fyrir óvissum at- vinnuhorfum. í fyrsta lagi var bent á þann mikla samdrátt, sem nú hefur orðið í atvinnu- lífi og tekjum landsmanna og þá almennu óvissu í fjármálumsem þessum samdrætti fylgir. í öðru lagi var nefnd sú staðreynd, að íbúðabyggingar hafa ’dregist verulega saman, og var það álit flestra, að þar ættu ekki síst hlut orðið liafa á lánamarkaðnum á undanförnum árum, þ.e. að þrátt fyrir rnjög hert lánakjör hefði framboð af lánsfé til alntennra húsbyggjenda ekki aukist, ogværi núsvo komið,að engir gætu byggt, nema stjórnir verkamannabústaða. Innan skamms verður nánar fjallað um þessa greinargerð í Dcgi. Jón Sólnes í ham. Mynd: KGA Málverka- og bókauppboð: „Menn gerðu reyfarakaup“ „Þetta gekk bara vel og það var virkilega gaman að þessu. Menn gerðu reyfarakaup, sérstaklega í málverkum og það seldist allt saman“, sagði Jón G. Sólnes, uppboðshaldari á Akureyri í viðtali við Dag, en hann ásamt Bárði Halldórssyni hélt mál- verka- og bókauppboð í Sjallan- um á laugardag. „Yfirleitt fór þetta á lágu verði og menn gerðu því góð kaup. Sem dæmi get ég nefnt að mynd eftir Gunnlaug Scheving seldist á 13 þúsund krónur. Það var verulega gaman að þessu og skapaðist skemmtileg stemmn- ing. Við stefnum að því að halda svona uppboð mánaðarlega, fyrsta laugardag í hverjum mánuði fram á vor, að undan- skildum janúar, því að þá eru allir blankir hvort eð er eftir jólin. Við vonumst til að þetta geti sett svolítinn svip á bæjar- braginn í framtíðinni. Hugsan- legt er að útvíkka þetta og selja eitthvað fleira en málverk og bækur t.d. listmuni. Þetta þarf að þróast svolítið, menn eru óvanir þessu ennþá“, sagði Jón G. Sólnes að lokum. [T H (1 TTT qJ 11 J/ll LU 1 s_ 1 JU_ # Hættuað reykja Fyrir nokkrum dögum hækk- aði ÁTVR verð á sígarettum. S&S hefur frétt af tveimur bæjarbúum sem hættu sam- stundis að reykja og vonandi hefur svo verið um fleiri. í þessu sambandi er ekki úr vegi að rifja örlítið upp um sígarettur og það sem þeím fylgir. Samkvæmt bandarískri rannsókn er munurinn á tíðni sjúkdóma meðal þeirra sem reykja sígarettur og þeirra sem reykja ekki, mestur á aldursbilinu 45 til 64 ára hjá körlum og 17 til 44 ára hjá konum. Á þessum árum er af- kastageta mánna ( hámarki og á þessum tíma hafa flestir mestum skyldum að gegna sem fyrirvinna heimilis og for- eldrar. Eins og vænta má hef- ur komið í Ijós að veikindafor- föll eru algengari meðal þeirra sem reykja sígaretturen sam- svarandi hópa sem reykja ekki. Það hefur verið reiknað út að 81 milljón vinnudaga tapast á ári í Bandaríkjunum (miðað við árfð 1979) vegna þess hve sígarettureykinga- menn veikjast oftar en aðrir. • Öruggt orsaka- samband Sýnt hefur verið fram á öruggt orsakasamband milli sígar- ettureykinga og lungnakrabb- ameins. Gera má ráð fyrir, samkvæmt rannsóknum sem gerðar hafa verið, að komast hefðl mátt hjá 70 til 90% af öllum dauðsföllum vegna lungnakrabbamelns ef eng- inn hefði reykt sígarettur. Skýrslur um reykingar sína að hættan á heilsutjóni eykst ef menn byrja að reykja ungir, borið saman við þá sem byrja seinna. Karlmenn á aldrinum 45 til 54 ára, sem byrjuðu að reykja daglega áður en þeir urðu 15 ára, hafa þrefaldar heildardánarlíkur árlega á vlð þá sem reykja ekki. # Ólíku saman að jafna Töluverðar umræður hafa orðið um nýjasta skuttogara okkar, Hólmavíkurtogarann. Hann er talinn kosta „með öllu“ upp undir 130 milljónir króna og vera dýrasta skip ís- lenska flotans. Umræðurnar og áróðurinn gegn þessu skipi hafa þó ekki verið í neinni líkingu við áróðurinn gegn Þórshafnartogaranum á sínum tíma. Það hefur reynd- ar komið í Ijós að það var vitur lega að málum staðið, enda togarinn hræódýr. Ef verðið í Stakfellinu er reiknað tíl verð- lags í dag þá lætur nærri að hann kosti um 60 milljónir króna, meira en helmingi minna en Hólmavíkurtogar- inn. Þarna er því grelnilega ólíku saman að jafna.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.