Dagur - 14.12.1982, Page 12
RAFGEYMAR
í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉUNA
VELJIÐ RÉTT
MERKI
Hljómsveitin á æfingu undir stjórn Michaels Clarke
Sinfóníuhljómsveit Tón-
listarskólans með tónleika
Sinfóníuhljómsveit Tónlistar-
skólans á Akureyri heldur
hljómleika í Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 16. desember og
hefjast þeir klukkan 20.30.
Hljómsveit þessi er fullskipuð
og telur 40 manns. Uppistaðan
í henni eru nemendur skólans
og kennarar. Stjórnandi er
Michael J. Clarke.
Að sögn Atla Guðlaugssonar,
skólastjóra Tónlistarskólans,
þurfti nú aðeins að fá þrjá hljóð-
færaleikara utan Akureyrar til að
hægt væri að fullskipa hljómsveit-
ina, enda eru nú 110 nemendur í
blásaradeild skólans og um 60
nemendur á strokhljóðfæri. Ak-
ureyringar fara því senn að vera
sjálfbjarga í þessum efnum, ef að
líkum lætur.
Á efnisskrá verða létt klassísk
verk eftir m.a. Grieg, Strauss og
Sullivan.
Dagana 2.-5. des. sl. hélt Sig-
urður Hallmarsson, skólastjóri
Barnaskóla Húsavíkur, mál-
verkasýningu í Safnahúsinu.
Sigurði er margt til lista lagt.
Auk þess að vera leikari frábær
og leikstjóri er hann liðtækur
tónlistarmaður og þessi mál-
verkasýning sannar það að
maðurinn er einnig á „heima-
velli“ í þeim efnum.
Á sýningunni voru 37 verk, 19
vatnslitamyndir og 18 olíumál-
verk. Sigurður hefur áður haldið
tvær einkasýningar á Húsavík og
auk þess hefur hann tekið þátt í
samsýningum. Hann er með
kennarapróf í myndlist frá Mynd-
lista- og handíðaskólanum og hef-
ur auk þess notið tilsagnar Péturs
Friðriks, myndlistamanns. Flest-
ar myndirnar eru frá nágrenni
Húsavíkur, frá Aðaldalshrauni og
víðar. Einnig myndir frá Þingvöll-
um, Jökulsá á Dal, Svarfaðardal
og frá fleiri stöðum. Mjög mikil
aðsókn var að sýningunni, um 500
manns, og seldust 30 myndir.
Allt að 100%
verðhækkun
— verð bóka hefur hækkað mun minna
Samkvæmt þeim heimildum
sem Dagur hefur fengið, eru
þess dæmi að vörur hafl hækk-
að um eða yfir 100% milli ára.
Þetta mun t.d. eiga við um sum
matvæli og er þá miðað við
verð á sendingum frá því fyrir
jólin í fyrra. Þetta mun einnig
eiga við um jólatrésseríur, sem
Dagur hefur fengið dæmi um,
og sjálfsagt fleiri vöruflokka.
Líklegt er að meðaltalshækkun
algengustu neysluvöruflokka
sé 80-90%, samkvæmt þeim
heimildum sem blaðið hefur
aflað.
Nokkuð aðra sögu er að segja
af mjög vinsælum vöruflokki fyrir
hver jól, bækurnar. Að sögn
Aðalsteins Jósepssonar, bóksala,
hafa bækur ekki hækkað um
nema 50% að jafnaði milli ára.
Svo hafi raunar verið undanfarin
ár, að bækur hafi hækkað tiltölu-
lega minna en flest annað.
Hjá hljómdeild KEA sagði
Pórður Helgason að meðaltals-
hækkun á hljómplötum væri um
80% og lægi á bilinu 75-83% eftir
flokkum. Þessar tölur eru miðað-
ar við 13 mánaða tímabil.
Mesta hækkun á launum mun
vera um 80%, en meðaltalshækk-
un þeirra nemur 45-47%.
Grímsey:
Mikill ufsi
í aflanum
Afli Grímseyjarbáta hefur ver-
ið með minnsta móti að undan-
förnu. Mikill ufsi hefur verið í
aflanum og sakna Grímseying-
ar þorsksins.
Atvinna hefur þó verið næg en
nú er unnið við að pakka saltfiski
sem verður skipað út innan
Dómur
Dómur hefur fallið í máli Akur-
eyrarbæjar og eigenda Skipaaf-
greiðslu Jakobs Karlssonar við
Skipagötu. Það var Ásgeir Pét-
ur Ásgeirsson, lögfræðingur
hjá bæjarfógetaembættinu,
sem dæmdi í málinu, en niður-
staða dómsins er sú að eigend-
um hússins ber að fjarlægja það
af Ióðinni. í vikunni mun máls-
aðilum berast forsendur dóms-
ins og í framhaldi af því munu
eigendur ákveða hvort málinu
verði áfrýjað til hæstaréttar.
skamms. Búið er að steypa í gólf í
fiskhúsinu og laga gamla frysti-
húsið. Tíð hefur verið góð en þó
nógu hvasst til þess að ekki var
hægt að fljúga í tæpa viku. Flugvél
kom til Grímseyjarsl. föstudag og
hafði þá flug legið niðri frá laugar-
degi.
fallinn
í forsendum dómsins kemur
fram að dómarinn, Ásgeir Pétur
Ásgeirsson, byggir niðurstöðu
sfna m.a. á samþykkt hafnarnefnd-
ar frá 1928 um leigukjör, þar sem
leigt var til „lífstíðar“. Ásgeir
taldi að við lát Jakobs Karlssonar
hefði bænum í sjálfu sér verið
heimilt að segja upp lóðarafnot-
unum með hæfilegum fyrirvara.
Ásgeir taldi ekki skilyrði fyrir því
að það hefði unnist hefð í málinu
eins og til réttindanna hafi verið
stofnað. Málskostnaður var lát-
inn falla niður.
m
Itl
# Brot á jafnrétt-
islögunum?
Verslun ein í Reykjavík aug-
lýsir oft dúkkuhús i sjónvarp-
inu. Það hefur stundum
hvarflað að S&S þegar það
hefur horft á þessa auglýs-
ingu hvort hún sé ekki hálf-
gert brot á jafnréttislögunum,
en í henni er talað um að
pabbi sé að fara á fund en
mamma að svæfa blessað
barnið. Hví skyldi ekki
mamma fara á fundinn og
pabbi annast heimilisstörfin?
I gamla daga hefði svona
auglýsing þótt meira en sjálf-
sögð en í dag eru konur farnar
að taka þátt í félags- og
stjórnmálavafstri af engu
minni áhuga, krafti og kunn-
áttu en karlmennirnir.
# Vídeó
drepur...
Getur verið að vídeóið sé
gengið í lið með íslenska
sjónvarpinu og að þessi tvö
fyrirbæri hafi í hyggju að
drepa síðustu leifar frjálsrar
félagsstarfsemi í landinu?
Það er ekki nema von að
menn spyrji. Forráðamenn
félaga hafa sagt S&S að fund-
arsókn dvíni stöðugt og það
sé einungis tímaspursmál
hvenær sum þeirra lognist út
af. Auðvitað er þægilegra að
setjast niður í dúnmjúkan stól
og kveikja á kassanum, en við
skulum þó minnast þess að
maður er manns gaman. Það
er heillavænlegra sé til lengri
tíma litið að blanda geði við
vini og kunningja en að sitja
sem límdur fyrir framan
sjónvarp.
Nýjar
tegundir
Það er ekki ýkja langt síðan
S&S sagði frá spilasöfnun
barna og ungiinga á Akureyri.
Krakkarnir safna einu eintaki
af öllum þeim spilum sem þau
komast yfir og þeir dugleg-
ustu eiga hundruð ef ekki
þúsundir mismunandi teg-
unda. í síðustu viku frétti S&S
af því að krakkar í einum
skóla bæjarins hefðu komist
yfir spil með klámmyndum af
svæsnustu gerð. Að sögn
ganga þau á firnaháu verði -
þ.e. það þarf mörg venjuleg
spil fyrir eitt klámspil.
# Júlíus,
Gunnar og
Sverrir í
prófkjörið
Nú hefur Júíus Sólnes verk-
fræðingur ákveðið að gefa
kost á sér í prófkjör Sjálf-
stæðismanna, en faðir hans
Jón Sólnes, mun eflaust sitja
á kosningakontór Júíusar.
Síðustu fréttir herma að
Gunnar Ragnars sé að hug-
leiða að gefa einnig kost á sér.
Þá þykir einnig nærfullvístað
Sverrir Leósson ætli að skella
sér í slaginn.