Dagur - 21.12.1982, Blaðsíða 5
Skíðadrottningin Nanna Leifsdóttir
gerði það gott á árinu.
lét heldur betur að sér kveða,
skoraði 21 mark í leiknum og varð
markakóngur íslandsmótsins.
Stelpurnar í handboltanum í
Þór létu hinsvegar ekki slá sig út
af laginu og tryggðu sér sæti í 1.
deild með þvf að bera sigur úr být-
um í 2. deildinni.
Akureyrarmótið í lyftingum
var mót mikilla afreka. Par settu
Akureyringarnir sterku alls 7 ís-
landsmet og þar af átti Haraldur
Ólafsson þrjú.
Norðlenskir unglingar voru at-
kvæðamiklir í Unglingameistara-
móti íslands á skíðum sem fram
fór á ísafirði. Hirtu unglingarnir
frá Akureyri, Siglufirði, Ölafs-
firði og Húsavík nær öll þau gull
sem um var keppt.
Apríl:
Haraldur Ólafsson var kjörinn
„íþróttamaður Akureyrar“ fyrir
árið 1981. Hlaut Haraldur 95 at-
kvæði af 100 mögulegum í at-
kvæðagreiðslunni og var þetta
annað árið í röð sem hann hlaut
þetta sæmdarheiti.
Ólafsfirðingar, Siglfirðingar og
Akureyringar hlutu alls 15 af
þeim gullverðlaunum sem um var
keppt á Skíðamóti íslands.
KA og Þór hófu knattspyrnu-
vertíðina formlega með innbyrð-
isleik, og var það fyrri leikurinn í
Bikarkeppni KRA. Leiknum
lauk með jafntefli 1:1.
Skíðakrakkar frá Akureyri
voru atkvæðamiklir á Andrésar-
Andar leikunum. Hlutu þau 13
gullverðlaun eða rétt tæplega
helming allra gullverðlauna sem í
boði voru.
Maí:
íslandsmót „öldunga" í blaki var
háð á Akureyri og heimamenn
voru ekkert á því að láta gullverð-
launin fara úr bænum. Kvennalið
Eikar sigraði örugglega og það
sama gerðu íshokkýmenn Skauta-
félags Akureyrar í karlaflokki.
Nanna Leifsdóttir varð „Skíða-
drottning íslands" í alpagreinum
eftir síðasta stigamót vetrarins.
Hafði hún umtalsverða yfirburði
og engin ógnaði sigri hennar í
stigakeppninni.
Þórsarar urðu Bikarmeistarar
Akureyrar í knattspyrnu er þeir
báru sigur af KA í síðari leik lið-
anna með 2:1.
Á íslandsmótinu í kraftlyfting-
um var mikið metaregn. Akureyr-
ingurinn Kári Elísson stóð fram-
arlega í flokki þeirra sem létu að
sér kveða því hann setti alls 8 ís-
landsmet.
KA lék sinn fyrsta leik í 1. deild
knattspyrnunnar gegn Val í
Reykjavík. Jafntefli varð 2:2 og
skoraði Ásbjörn Bjömsson bæði
mörk KA. Þórsarar héldu hins-
vegar til Neskaupstaðar þar sem
þeir mættu Þrótti, og sigraði Þór
með marki Jónasar Róberts-
sonar.
Júní:
í knattspyrnuleik í Eyjafjarðar-
móti á milli Dagsbrúnar og UMF
Þorsteins Svörfuðar sem lauk
með 12:1 sigri Dagsbrúnar skor-
aði einn og sami maðurinn 8
mörk. Valdimar Júlíusson var því
á skotskónum f þessum leik, svo
mikið er víst.
Nýtt knattspyrnufélag, Vaskur,
var stofnað á Ákureyri og lék í 4.
deild. í fyrsta leik sínum, sem var
gegn Hvöt frá Blönduósi, tapaði
Vaskur 1:3.
Ungur piltur, Hermann Har-
aldsson, sem var áður markvörð-
ur með KA vakti mikla athygli í
leik í 3. deild handboltans gegn
Akranesliðinu en KA fagnaði
sigri gegn Haukum í hörkuleik á
Akureyri.
Þá lék Þór sína fyrstu leiki í 1.
deild körfuboltans og vann tvo
yfirburðasigra gegn Grindvíking-
um.
Landsliðsmaðurinn, Gunnar
Gíslason úr KA, var kjörinn
„Knattspyrnumaður Akureyrar
1982“ og hlaut hann 21 atkvæði af
25 mögulegum.
Helgi Helgason, knattspyrnu-
maður frá Húsavík, sem hefur
undanfarið leikið með Víking í
Reykjavík tilkynnti félagaskipti
yfir í Þór. Stuttu síðar breytti
hann ákvörðun sinni og tók að sér
að þjálfa lið Völsunga á Húsavík
ásamt Kristjáni Olgeirssyni, sem
hefur undanfarin ár leikið með
Skagamönnum.
Nóvember:
Körfuknattleiksmenn Þórs lögðu
land undir fót og léku tvo leiki
gegn heimamönnum í Borgar-
nesi. Þórsarar unnu mikinn yfir-
burðasigur og Bandaríkjamaður-
inn McField skoraði hvorki fleiri
eða færri en 110 stig í þessum
tveimur leikjum.
Lið Víkings í 1. deild karla í
blaki hélt til Norðurlands og lék
tvo leiki. Sá fyrri var gegn nýlið-
um Bjarma en hinn síðari gegn
UMSE. Norðanmenn unnu sigra í
báðum þessum leikjum og sendu
Víkinga heim á stiga.
KA-piltar komu mjög á óvart í
íslandsmóti 2. flokks í handknatt-
leik er 7 lið víðsvegar af landinu
léku fyrstu umferð mótsins. Eftir
þá leiki er KA í efsta sæti og Þórs-
arar verma þriðj a sætið. Óvænt og
glæsileg frammistaða Akureyr-
arpiltanna.
KA-menn tilkynntu að þeir
hefðu ráðið Þjóðverjann Fritz
Kissing til þess að þjálfa 2. deildar
lið félagsins í knattspyrnu á næsta
keppnistfmabili. Þórsarar hafa
hinsvegar samið við við KR-ing-
inn fyrrverandi, Björn Árnason,
sem hefur þjálfað undanfarið í
Færeyjum.
Desember:
Hin nýja og stórglæsilega íþrótta-
höll á Akureyri var tekin í
notkun. Ekki er höllin þó fullklár-
uð enn, en orðin keppnishæf og
var mikill fjöldi fólks við opnun-
arhátíðina. Höllin verður þó ekki
formlega vígð fyrr en síðar.
Þórsarar fengu körfuknatt-
leiksmenn ÍS í heimsókn og sigr-
uðu þá. Eru Þórsarar nú í 2. sæti í
1. deild. í handboltanum er KA í
efsta sæti í 2. deild og Þórsarar eru
nálægt toppnum í 3. deildinni.
Blakmenn UMSE og Bjarma í
karlaflokki hafa staðið vel fyrir
sínu og stefna bæði liðin á það að
halda sætum sínum í deildinni.
(Byggt á íþróttafréttum Dags 1982)
gk--
Héðinn Gunnarsson fagnar sigri í Akureyrarmótinu ■ golfi ásamt móður sinni
Jónínu Pálsdóttur.
Danmörku. Þar lék hann með
danska liðinu Næstved og átti
hvern leikinn öðrum betri. Var
mikið fjallað um frammistöðu
hans í dönskum blöðum.
KA-menn gerðu mjög góða
ferð til ísafjarðar og sigruðu
heimamenn þar með tveimur
mörkum gegn einu. Hinrik Þór-
hallsson skoraði bæði mörk KA.
Á sama tíma sóttu Þórsarar gegn
Einherja á Vopnafirði en höfðu
ekki erindi sem erfiði því leiknum
lauk með jafntefli 1:1.
Jón Þór Gunnarsson GA varð
hinn öruggi sigurvegari í Saab-
Toyota golfmótinu sem fram fór á
Jaðarsvelli á Akureyri. Leiknar
voru 36 holur og kom Jón Þór inn
á 154 höggum og va'r 13 höggum
betri en næsti maður.
Að venju gekk mikið á er KA
og Þór mættust í fyrri leik sínum í
Akureyrarmótinu í knattspyrnu.
Eftir mikinn hörkuleik hafði Þór
það af að knýja fram 3:2 sigur.
Fimmtán ára piltur, Héðinn
Gunnarsson, sló öllum við í Ak-
ureyrarmótinu í golfi. Leiknar
voru 72 holur í þessu móti að
venj u og það var á síðustu holunni
að Héðinn tryggði sér Akureyrar-
meistaratitilinn.
Kristján Hjálmarsson GH og
Inga Magnúsdóttir sigruðu í opna
Húsavíkurmótinu í golfi. Mikill
fjöldi golfleikara mætti til keppni
á Húsavík og sigruðu þau Inga og
Kristján nokkuð örugglega.
✓
Agúst:
mundarmóti í golfi á Jaðarsvelli á
Akureyri. Hann vann sigur með
einu höggi yfir Gunnar Sólnes og
Héðinn Gunnarsson varð þriðji.
Inga Magnúsdóttir GA og
Kristján Hjálmarsson GH endur-
tóku afrek sitt frá Húsavíkurmót-
inu í golfi er Norðurlandsmótið
fór fram á Ólafsfirði. Þau báru þar
sigur úr býtum en í unglingaflokki
sigraði 11 ára piltur úr GA, Krist-
ján Gylfason.
September:
Þórsarar tilkynntu að þeir hefðu
ráðið bandarískan blökkumann,
Robert McField, til að leika með
mfl. liði félagsins í 1. deild ívetur,
og myndi hann jafnframt sjá um
þjálfun allra flokka félagsins.
í síðustu umferð 1. deildarinn-
ar í knattspyrnunni tapaði KA
fyrir Breiðablik eftir mikla bar-
áttu og féll þar með í 2. deild.
Þórsarar fögnuðu hinsvegar sigri
yfir Skallagrími úr Borgarnesi og
tóku sæti KA í 1. deildinni.
Ekki er víst að knattspyrnu-
menn Siglufjarðar geti tekið undir
máltækið sem segir: „Allt er þeg-
ar þrennt er“. Þeir höfðu nefni-
lega leikið 10 sinnum í úrslitum í
3. deild án þess að komast í 2.
deild en það hafði loksins í haust.
Október:
Lyftingamenn voru komnir af
stað eftir stutt sumarfrí og á fyrsta
móti vetrarins „fuku“ fimm ís-
landsmet er þeir Haraldur Ólafs-
son, Gylfi Gíslason og Garðar
Gíslason tóku á lóðunum.
Þórsarar töpuðu sínum fyrsta
Páll Ketilsson, frá Golfklúbbi
Suðurnesja, varði titil sinn frá
fyrra ári er Jaðarsmótið í golfi fór
fram á Akureyri. Á sama tíma var
tilkynnt að knattspyrnusnillingur-
inn heimsþekkti, George Best,
væri væntanlegur til Akureyrar
með enska liðinu Manchester
United.
Nú var farið að syrta í álinn hjá
knattspyrnumönnum KA. Þeir
töpuðu 2:3 á heimavelli fyrir ís-
firðingum, en á sama tíma sigraði
Þór lið Reynis frá Sandgerði 3:1 í
2. deildinni og voru Þórsarar
komnir á þröskuld 1. deildar og
tilbúnir að stíga yfir hann.
Danski handknattleiksþjálfar-
inn, Jan Larsen, mætti til Akur-
eyrar til að taka við hjá KA. Með
sér hafði hann tvo danska leik-
menn sem hafa leikið í liðinu í
vetur. Á sama tíma tilkynntu
Þórsarar að þeir hefðu ráðið
gamla Víkinginn, Guðjón Magn-
ússon, til að þjálfa 3. deildar lið
félagsins í handknattleik.
Gunnar Þórðarson varð sigur-
vegari í mjög fjölmennu Ingi-
Blakmenn gerðu það gott á árinu. UMFE og Bjarmi eru í 1. deild karla og
lið Eikar og Skautafélags Akureyrarurðu íslandsmeistarar í blaki „öldunga“
21. desember 1982 - DAGUR - 5