Dagur - 21.12.1982, Qupperneq 12

Dagur - 21.12.1982, Qupperneq 12
Rannsóknir á laxa- stofninum verði stórefldar Lögð hefur verið fram á Al- þingi tillaga til þingsályktunar um eflingu rannsókna á laxa- stofninum. Flutningsmenn eru þrír þingmenn Framsóknar- flokksins, Davíð Aðalsteins- son, Páll Pétursson og Guð- mundur Bjarnason. Lagt er til í tillögunni að ríkisstjórn verði falið að hlutast til um það nú þegar að rannsóknir á laxastofn- inum verði stórefldar, vegna aukinnar sjávarveiði Færeyinga á laxi. í greinagerð með tillögunni segir á þessa leið: „Alkunna er að sjávarveiði Færeyinga á laxi hel'ur stórauk- ist nú síðustu árin. Færeyingar hófu laxveiðar í sjó 1968. Árleg veiði þeirra fyrsta áratuginn var aö meðaltali 21 tonn. 1978 komst hún upp í 51 tonn og óx ört úr því. 1979 var hún 194 tonn, 1980 718 tonn, 1981 1027 tonn. Vciöikvótinn á síöustu vcrtíð var 750 tonn og umsam- inn kvóti á nýbyrjaðri vertíð er 625 tonn. Hinar auknu laxveiðar Fær- eyinga hafa átt sér stað samtím- is þvi að laxveiðar hér á landi hafa minnkað hvað tölu laxa snertir, þ.e. á árunum 1980, 1981 og 1982. Menn hafa viljað tengja þetta tvennt saman og hafa því kennt Færeyingum um veiðirýrnunina á laxi hér á landi þessi ár. Gögn eru ekki fyrir hendi sem sanna að svo sé. Ábending um, að íslenskur lax leiti á Færeyjamið, er fyrir hendi þar sem skilað hefur verið merkjum af þremur íslenskum löxum sem veiðst hafa í og við Færeyjar. Á hinn bóginnerekki vitað að hve miklu leyti laxinn leitar austur í haf frá lslandi og er veiddur á Færeyjarmiðum. Vitað er að laxinn okkar leitar einnig vestur fyrir Grænland og veiðist þar, en sjö íslenskum laxamerkjum hefur verið skilað frá Círænlandi. Auk þess hefur lax merktur við Vestur-Græn- land veiðst í I.axá í Dölum. Orsakir rýrnandi laxveiði hér á landi á árunum 1980, 1981 og 1982 hvað töluna snertir eru vafalaust margar. Þarbereinnig aö nefna að vetrar-, vor- og sumarkuldarnir 1979 og lágur sjávarhiti fyrir Norður- og Áusturlandi það ár ciga líklega sinn þátt í rýrnuninni. Afleiðingar kuldanna 1979, sem voru einir þeir mestu frá upphafi veðurathugana hér á landi, komu fram í tregari göngu laxaseiða til sjávar sum- arið 1979 en ella. Þá hafa skilyrði í sjónum vegna óvenju- legs kulda verið mjögóhagstæð fyrir seiðin. Vísbending um lélega afkomu sjógönguseiða kemur fram í því, að lítið er af eins árs laxi úr sjó (smálaxi) í veiðunum 1980 og lítið af tveggja ára laxi úr sjó í veiðun- um 1981. Orsakir veiðirýrnunar geta verið margar, eins og áður sagði, bæði heima fyrir, í hafinu og vegna veiða á fjarlægum haf- svæðum, og svo geta þær verið sambland af öllu þessu eins og helst er útlit fyrir hvað snertir veiðirýrnunina hér á landi þessi árin. Þekking á ferðum laxins um úthafið var mjög af skornum skammti þar til laxaveiðarnar við Vestur-Grænland hófust fyrir alvöru fyrir um tveim ára- tugum og síðar veiðar í Noregs- hafi og við Færeyjar. Rann- sóknir á laxi við Vestur-Græn- land hafa m.a. leitt í ljós að um helmingur laxins, sem þar veið- ist, er upprunninn í Ameríku, en hann er að langmestu leytí frá Kanada, og hinn helmingur- inn í laxalöndum Evrópu. Um uppruna laxins, sem veiðist við Færeyjar, er minna vitað með vissu. Mcrkingar á sjógöngu- seiðum í upprunalöndum laxins og merkingar á laxi veiddum og merktum á Færeyjarmiðum hafa hingað til gefið til kynna að langmestur hluti laxins, sem þar veiðist, sé upprunninn í Noregi, Skotlandi og Irlandi.“ I Allar tryggingar! umboðið hf. Ráðhústorgi 1 (2. hæö), sími 21844, Akureyri. Innanhússknattspyrna Nú á milli hátíða gengst Knatt- spyrnuráð Akureyrar fyrir Ak- ureyrarmóti í innanhúsknatt- spyrnu. Keppt verður tvo daga og miðvikudaginn 29. des- ember hefst keppnin kl. 16. Þá keppa Akureyrarfélögin Þór og KÁ í yngri flokkum og verður byrjað á 6. flokk. Þann dag verður einnig keppt í 5., 4. Björn Arnason þjálfar Þór Þórsarar hafa ráðið þj álfara fyrir fyrstu deildar lið sitt í knatt- spyrnu fyrir næsta keppnistíma- bil. Þeir gerðu eins og svo mörg önnur fyrstu deildar félög og réðu íslenskan þjálfara. Það er Björn Árnason, sem um árabil var leikmaður með fyrstu deild- ar liði KR. Undanfarin ár hefur hann þjálfað með mjög góðum árangri í Færeyjum. Samkvæmt þeim upplýsingum sem íþróttasíðan hefur aflað sér er Björn góður þjálfari sem á létt með að umgangast félaga sína. Það er því ánægjulegt að hann skuli nú fá tækifæri til að sína kunnáttu sfna með fyrstu deildar lið hér heima. Hann mun hefja æfingar um miðjan janúar, en nauðsynlegt er að byrja æfingar snemma í erfiðri keppni deildarinnar. og 3. flokk. Fimmtudaginn 30. des. hefst keppnin kl. 19,30 og þá verður keppt í meistaraflokki og fyrsta flokki með þátttöku Þórs, KA og Vasks. Þá verður einnig keppt í öðrum flokki og kvenna- flokki á milli Þórs og KA. Akureyringar eru hvattir til að fjölmenna í höllina þessa daga, en innanhúsknattspyrna er mjög skemmtileg á að horfa, þannig að þetta er góð tilbreyt- ing í öllu jólahaldinu. Hátíð hjá KA Knattspyrnufélag Akureyr- ar er 55 ára þann 8. janúar n.k. og einmitt þann dag er fyrirhugað að halda veglega afmælis- og árshátíð í Sjallan- um“, sagði Jón Arnþórsson formaður KA í stuttu spjalli við Dag í gær. „Það er ætlun okkar að halda hátíð svo um munar og það verður margt til skemmtunar í Sjallanum þetta kvöld. KA- kvartettinn og Ómar Ragnars- son fara í fararbroddi skemmti- krafta og ekki má gleyma öllu því sem Sjallinn hefur upp á að bjóða á laugardagskvöldi. Við hyggjumst auglýsa þessa hátíð betur síðar en viljum koma þessu á framfæri núna fyrir jólin svo menn geti merkt við þann 8. janúar á almanakinu sínu“, sagði Jón Arnþórsson. Fyrirjólin: Vorum að taka upp mikið úrval afsmávöru úr furu: M.a. Brauðkassa á kr. 340, uppvöskurtargrindur á kr. 170, furuspegla, margar gerðir, verð frá kr. 520, diskarekka, margar gerðir, verð frá kr. 360, blaðagrindur kr. 350 og margt fleira. Tilvalið til jólagjafa. Nýkomnar margar gerðir af speglum og kommóðum í forstofu, verð frákr. 1.370, settið. Viðartegundir: Fura, dökk eik og mahogny. Áxivöruboert' l HÚSGAGNAVERSLUN TRYGGVABRAUT 24 AKUREYRI SÍMI (96)21410 Vorum að taka upp: Hnepptar og heilar peysur, trefla og kápur. Köflóttar, röndóttar og einlitar blússur. Verð frá kr. 298. ollt til sctuma emman SKIPAGATA 14 B - SÍMI 96-23504 PÓSTHÓLF 84 - 602 AKUREYRI John Wayne skyrturnar koma á morg- un, einnig klukkuprjónspeysurnar og buxur úr rúskinnslíki. Maóskyrtur, stærðir 2-8. Höfum einnig úrval af blússum, peysum, buxum og margt fleira. Skinanötn 10 cími 99171 Arskort í skíðalyfturnar í Hlíðarfjalli er tilvalin jólagjöf. Þau eru seld á Ferðaskrifstofu Akureyrar. 12 - DAGUR - 21. desember 1982

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.