Dagur - 21.12.1982, Side 3

Dagur - 21.12.1982, Side 3
Þankar formanns „Lítum björtum augum til næsta sumars' Með útgáfu þessa blaðs viljum við leitast við að kynna fyrir iesendum starfsemi knattspyrnudeildar Þórs. Nú er nýkjörin stjórn deildarinnar sem óðast að undirbúa næsta keppnistímabil. Sífellt lengri tími ársins er nú notaður til iðkunar knattspyrnu, en áður. I lok keppnis- tímabilsins í september taka Þórs- arar sér u.þ.b. mánaðarfrí, en byrja síðan léitar æfingar innanhúss. Strax upp úr áramótum er síðan farið að taka hlutina með fullri alvöru og æft markvisst til vors. Við höfum ástæðu til að líta björtum augum til næsta sumars. Margra ára öflugt unglingastarf knattspyrnudeildar Þórs er nú farið að skila árangri. Við erum nú farnir að gera raunhæfar kröfur til þessara leikmanna og víst er það að við þurfum ekki að hafa neina minnimáttarkennd gagnvart þekktum knattspyrnufélögum Ný stjórn tekin við Aðalfundur knattspyrnudeildar Þórs var nýlega haldinn og var þar kjörin ný stjórn. Gömlu refirnir Guðmundur Sigurbjörnsson og Hallgrímur Skaptason eru nú komnir til starfa aftureftirstutt hlé, og er Guðmundur fromaður hinnar nýju stjórnar, en Hallgrimur fékk það „eftirsótta" hlutskipti að sjá um tékkheftið. Aðrir í stjórninni eru Arnar Guðlaugsson, sem er varaformaður, Sigurður Hermannsson, ritari, Oddur Oskarsson, Orn Gústavs- son, Gunnar Kjartansson og Ragn- ar Þorvaldsson. utan af landi, til dæmis af Reykja- víkursvæðinu. Við þurfum að hafa leikgleðina og sigurviljann og þá er ég óhræddur við næsta sumar. Eins og fram kemur hér í blaðinu eru burtfluttir Þórsarar sem nú búa í Reykjavík og nágrenni að stofna með sér klúbb til að standa við bakið á sínu gamla félagi og bindum við miklar vonir við starf þeirra. Ég hef nú ekkert minnst á fjár- málahliðina og ætla ekki mikið út í þá sálma hér, þó að það sé út af fyrir sig efni í heilt blað. Eitt er það þó sem ég get ekki stillt mig um að nefna, en þaðeru þær frábæru móttökur sem við höfum fengið í sambandi við upp- gjör liðins sumars. Það er engin ástæða til að draga dul á það að í lok síðasta keppnistímabils var fjárhagsstaðan nokkuð dökk, en með samstilltu átaki hefur okkur • Guðmundur Sigurbjörnsson tekist að rétta úr okkur á ný og vil ég nota tækifærið til að flytja öllum þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem hafa stutt okkur í formi vinnuframlags eða fjárfram- laga okkar innilegustu þakkir. Að lokum vil ég segja það að stjórn og leikmenn munu nú vinna ötullega að því að árangur næsta sumars verði sem bestur og í því sambandi bindum við miklar vonir við það að með tilkomu nýju Iþróttahallarinnar munurn við fá bætta aðstöðu til að þjálfa leik- menn okkar í knatttækni sem er undirstaða góðrar knattspyrnu. Þessa aðstöðu hefur tilfinnanlega skort hér í bæ því í hinni hörðu keppni sem nú er orðin þarf að halda sig við efnið allt árið og nota veturinn til knattæfinga. Við sjáumst svo öll á knatt- spyrnuvellinum að vori og hvetj- um okkar menn til dáða. Afram Þór! Guðmundur Sigurbjörnsson formaður knattspyrnudeildar Þórs • Ný kjörin stjórn knattspyrnudeidlarinnar, talið frá vinstri: aftari röö: Ragnar Þorvaldsson, Gunnar Kjartansson, örn Gústafsson, Arnar Guölaugsson, fremri röö: Oddur Óskarsson, Hallgrimur Skaptason, Guömundur Sigurbjörnsson, Siguröur Hermannsson.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.