Dagur - 04.01.1983, Qupperneq 8
Akureyri, þriðjudagur 4. janúar 1983
RAFGEYMAR
I BfUNN, BÁTINN, VINNUVÉUNA
VEUIÐ RÉTT
MERKI
Vindmyllan
gengur
brösulega
„Það var búið að hleypa heitu
vatni á kerfí nokkurra húsa og
þetta virtist allta ganga mjög
vel þar til fyrir jólin að það bil-
aði pakkdós og eftir það hefur
vindmyllan verið stopp“, sagði
Hafliði Guðmundsson í Gríms-
ey er við spjölluðum við hann I
gær.
Hafliði sagði að ekkert hefði
bent til annars en að þessi vind-
mylla þeirra ætlaði að skila því
sem búist hefði verið og að dæmið
myndi ganga upp. „Þaö eru vænt-
anlegir menn að sunnan í lok vik-
unnar eða um helgina til að gera
við þetta og þá fer þetta vonandi
allt að ganga betur“, sagði
Hafliði.
Tjónvaldur
ók á brott
Fimmtudagskvöldið 23. des-
ember, á Þorláksmessu, var
ekið á bifreiðina A-5633, sem
er rauður Daihatsu Charade,
þar sem hún stóð á bifreiða-
stæði sunnan við útibúið í Hrísa
lundi.
Tjónvaldur ók á brott án þess
að tilkynna um óhappið, en bif-
reiðin er mikið skemmd. Þeir sem
geta gefið upplýsingar eru beðnir
að hafa samband við rannsóknar-
lögregluna á Akureyri.
Reglur
um
bætur
vegna
tæringar
Stjórn Hitaveitu Akureyrar
hefur ákveðið að koma til móts
við þá sem orðið hafa fyrir tjóni
af völdum þeirrar miklu tæring-
ar sem fram kom á efra þrýsti-
svæði hitaveitunnar s.l. sumar,
eins og áður hefur verið greint
frá í blaðinu.
Reglurnar sem farið verður
eftir eru þær, að komi gat á ofn af
völdum þessarar tæringar verður
greitt kaupverð á nýjum ofni
sömu gerðar hinum skemmda, að
frádregnum afskriftum miðað við
aldur ofnsins og 15 ára afskriftar-
tíma, sem þýðir 6,7% afskrift á
ári.
Þá verða greiddar 400 krónur
fyrir hvern ofn sem endurnýjaður
verður vegna vinnu við að fjar-
lægja hinn skemmda ofn og koma
nýjum fyrir. Þessi upphæð miðast
við vísitölu byggingakostnaðar 1.
október 1982 og afskrifast á sama
hátt og ofnverðið.
Þessi ákvörðun stjórnar hita-
veitunnar gildir til 1. janúar 1984
og verður þá tekin til endurskoð-
unar.
Það var stuð í Sjallanum á sunnudagskvöldið, á hljómleikum Stuðmanna. Húsið var troðfullt og kunnu Akureyringar
heldur betur vel að meta heimsóknina. Kvikmyndin Með allt á hreinu er sýnd í Borgarbíói þessa dagana, en þar leika
Stuðmenn aðalhlutverk ásamt Grýlunum. Leikstjóri er Ágúst Guðmundsson. í kvikmyndinni er meðal annars lagið
um Sigurjón digra, og sá var ekki of hress með að hljómsveitin óð á skónum yfir nýbónað gólfið hjá honum og bað þá
vinsamlega að taka af sér skóna. Ljósmynd: KGA.
Flugið gekk vel
„Þrátt fyrir erfitt veðurfar er
óhætt að segja að flug til staða á
Norðurlandi hafí gengið vel hjá
okkur“, sagði Sæmundur Guð-
vinsson fréttafulltrúi Flugleiða
í samtali við Dag í gær.
Sæmundur sagði að fyrir jól
hefði tekist að koma öllum á milli
staða sem leituðu til félagsins. S.l.
mánudag var svo hægt að fljúga
fjórar ferðir til Akureyrar og
einnig til Húsavíkur og Sauðár-
króks. Áfram gaf til flugs norður í
gær og átti Sæmundur ekki von á
öðru en að í gærkvöldi hefðu allir
verið komnir á áfangastað.
Flug hefur hinsvegar gengið illa
til Vestmannaeyja og Vestfjarða
og biðu margir flugs þangað í gær.
Að sögn Sæmundar fluttu Flug-
leiðir tæplega 13 þúsund farþega
innanlands í desember sem er
svipað og í desember 1981.
Þó nokkuð um ölvun
við akstur og árekstra
Fremur rólegt var hjá lögregl-
unni á Akureyri um jól og ára-
mót. Þó sátu lögreglumenn
ekki aðgerðarlausir og þurftu
þeir að hafa afskipti af ýmsum
málum þótt engin stórvægileg
kæmu á borðið til þeirra.
Varðstjóri hjá lögreglunni upp-
lýsti að talsvert hefði verið um
árekstra, en engir þeirra voru
stórvægilegir né urðu meiðsli á
fólki. Nokkrir voru teknir ölvaðir
við akstur og einn þeirra náði að
valda miklu tjóni. Ók hann fyrst á
ljósastaur við gatnamót Glerár-
götu og Tryggvabrautar og síðan
á gangbrautarljós á móts við húsið
Ás á Hörgárbraut í Glerárhverfi.
Var bifreið hans nær ónýt eftir en
ökumaðurinn ómeiddur.
Mikil ölvun var á Akureyri á
nýársnótt, sérstaklega eftir að
dansleikjum lauk. Var ölvun
áberandi á götum úti, og einnig
þurfti lögreglan að skakka leikinn
í nokkrum heimahúsum. En þeg-
ar á heildina er litið má segja að
ekkert stórvægilegt hafi komið
upp á um jól og áramót að sögn
lögreglunnar.
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar:
Fundur með verktökum
og iðnfyrirtækjum
— vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Blönduvirkjun
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar
liefur ákveðið að boða til fund-
ar föstudaginn 7. janúar n.k.
með fulltrúum verktaka og iðn-
fyrirtækja á Eyjafjarðarsvæð-
inu. Fundurinn verður haldinn
að Hótel KEA og hefst kl. 10.
Einn megintilgangur fundarins
er að kynna fyrirhugaðar fram-
kvæmdir við Blönduvirkjun og
þau verkefni sem skapast muni í
tengslum við virkjunarfram-
kvæmdirnar á sviði byggingariðn-
aðar, málmiðnaðar og rafiðnað-
ar.
Fulltrúar frá Landsvirkjun
munu flytja erindi um áformaðar
virkj unarframkvæmdir og reynslu
af fyrri framkvæmdum, og full-
trúar frá samtökum raftækja-
framleiðenda (SRF) og samtök-
um málm- og skipasmiða (SMS)
munu ræða möguleika á aukinni
þátttöku raf- og málmiðnaðarfyr-
irtækja í verkframkvæmdum á
sviði virkjana.
Arinar megintilgangur fundar-
ins er að ræða með hvaða hætti
fyrirtækin geta undirbúið sig til að
vera sem best í stakk búin til að
taka þátt í fyrirhuguðum fram-
kvæmdum.
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar er
hlutafélag sem stofnað var á síð-
asta ári og mun félagið hefja störf
af fullum krafti strax í upphafi
nýbyrjaðs árs. Hluthafar eru 28
og þar er einkum um að ræða
sveitarfélög á svæðinu, kaupfélög
og verkalýðsfélög. Stærstu hlut-
hafarnir eru Akureyrarbær og
Kaupfélag Eyfirðinga með
samanlagt um 60% hlutafjárins.
Tilgangur félagsins er iðnþróun
og eflingu iðnaðar í byggðum
Eyjafjarðar og hyggst félagið ná
þeim tilgangi sínum með skipu-
lagðri leit að hagkvæmum fjárfest-
ingartækifærum á sviði iðnaðar og
frumkvæði að stofnun nýiðnað-
arfyrirtækja, eitt eða í samvinnu
við aðra.
Framkvæmdastjóri félagsins er
Finnbogi Jónsson, verkfræðing-
ur, áður deildarstjóri í Iðnaðar-
ráðuneytinu. Skrifstofa félagsins
er til húsa að Glerárgötu 36 á Ak-
ureyri.
# Mauno
Kovisto og
Ágúst á
Brúnastöðum
í síðasta tölublaði Freys má
lesa eftirfarandi: Þegar forseti
Finnlands, Mauno Kovisto,
ásamt fylgdarliði kom í opin-
bera heimsókn til íslands á sl.
hausti, fór hann í heimsókn
að Brúnastöðum í Hraun-
gerðishreppi, til Ágústs Þor-
valdssonar, bónda og fyrrver-
andi alþingismanns og konu
hans Ingveldar Ásgeirsdótt-
ur... Þessi atburður rifjaði
upp frásögn Ágústs af æsku
hans og uppvexti sem birtist í
ritsafninu „Aldnir hafa orðið“,
7. bindi, 1978. Ólíklegt er að
um það leyti hafi samtíma-
menn drengsins séð fyrir
móttökurnar á Brúnastöðum
það herrans ár 1982. Ágúst
segir frá þvi að þeir strákarnír
á Eyrarbakka, þar sem hann
ólst upp, hafi vitað af grútar-
tunnunum með sjálfunnu lýsi
sem þeir laumuðust í, en gef-
um honum sjálfum orðið:
# Haugaraf
dauðum
flugum
„Þessar grútartunnur voru
alveg lausar við fínheitin, því
skán af óhreinindum og haug-
ar af dauðum flugum flutu
ofan á lýsinu. En við bjuggum
okkur til kringlótt gat með
fingrunum og supum svo á
lýsinu. Við fundum ekki til
sultar þá dagana og það held
ég að lýsið hafi gert manni
gott, komið kannski einhverri
döngun í mann og veitti ekki
af“. Síðan geta menn velt því
fyrir sér hvort forseti Finn-
lands hefði átt sama erindi að
Brúnastöðum árið 1982 ef
Ágúst hefði ekki komist í grút-
artunnurnar fyrir rúmum 60
árum.
# Lýstyfir
gagnkvæmum
stuðningi
Prófkjör Sjálfstæðismanna í
Norðurlandskjördæmi eystra
er nú á næstu grösum. Sér-
staka athygli hefur vakið
skreiðarbandalag þingmanna
flokksins ( kjördæminu, Lár-
usar og Halldórs, en þeir
ganga samspyrtir til próf-
kjörsins. Fyrst byrjaði Halldór
á því að lýsa yfir stuðningi við
Lárus í fyrsta sætið í Morgun-
blaðinu og rétt fyrir jólin lýsti
Lárus yfir stuðningi við Hall-
dór í annað sætið. Hvort hér
er á ferðinni þessi umrædda
samtrygging skal ósagt látið,
en vissulega kemur þetta
svolítið kjánalega út og óvfst
að það verði þeim féiögum til
framdráttar, ef sjálfstæðið er
eitthvað meira en orðið tómt.
Heyrst hefur að Júlíus Sólnes
og Björn Dagbjartsson ætli
sér jafnvel einhverja sam-
vinnu til að klekkja veldi þing-
mannanna.