Dagur - 29.03.1983, Page 3
Öm Ingl gengur frá verkum sínum áður en þau vora flutt til Noregs.
Mynd KGA.
Orn Ingi sýnir í
„Club 7“ í Osló
Örn Ingi Gíslason myndlist-
armaður frá Akureyri opnar í
dag sýningu á um 30 verkum
sínum í menningarmiðstöðinni
“Club 7“ í Osló.
Tildrögin að þessari sýningu
eru þau að Paul Weeden hljóm-
listarmaður sem Akureyringum
er að góðu kunnur kynntist Erni
Inga er hann var hér á ferð á sl.
ári. Weeden vakti athygli á Erni
Inga við forráðamenn “Club 7“
sem skrifuðu Erni Inga og eftir að
hann hafði sent þeim ljósmyndir
af verkum sínum var ákveðið að
hann héldi þarna sýningu.
í “Club 7“ eru margir salir þar
sem jafnan eru margar listsýning-
ar á boðstólum. Örn Ingi mun
sýna þar til 19. apríl. “Club 7“ er
staðsett í hjarta miðbæjar Osló
nærri ráðhúsinu þar, og þar hefur
einn íslendingur sýnt áður, Jó-
hanna Bogadóttir sem sýndi graf-
ikverk sín.
Örn Ingi sagði í samtali við Dag
áður en hann hélt utan að þessi
sýning væri sér að öllu kostnaðar-
laus fyrir utan flutnings- og far-
angurskostnað. „Club 7“ hefur
það að aðalmarkmiði að kynna
unga listamenn og sækist mjög
eftir því að fá til sín listamenn frá
sem flestum löndum. Örn Ingi
sýndi fyrst opinberlega fyrir 10
árum og sýningin í „Club 7“ er 10.
einkasýning hans.
Þessi sýning Arnar Inga mun
vera fyrsta málverkasýningin sem
farið er með frá Akureyri til út-
landa, en í þeim verkum sem
hann sýnir í Osló er viðfangsefni
hans íslenskt landslag og íslensk
náttúra.
í tilefni sýningarinnar hefur
Örn Ingi útbúið veggspjald og er
það til sölu í Kompunni á Akur-
eyri.
..adtffeilv*..
(JÍÍMiSi, .113’
Meistaramót
unglinga
á skíðum
Unglingameistaramót íslands á
skíðum verður haldið á Akur-
eyri 7.-10. apríl 1983. Dagskrá
verður sem hér segir:
Fimmtudagur 7. apríl: Móts-
setning kl. 20.00. Fararstjóra-
fundur kl. 21.00.
Föstudagur 8. apríl: Stórsvig
drengja 15-16 ára. Stórsvig
drengja 13-14 ára. Svig stúlkna
15-16 ára. Svig stúlkna 13-14 ára.
Ganga: 2,5 km stúlkur 13-15 ára.
5,0 km piltar 13-14 ára. 7,5 km
piltar 15-16 ára.
Laugardagur 9. apríl: Stórsvig
stúlkna 15-16 ára. Stórsvig
stúlkna 13-14 ára. Svig drengja
15-16 ára. Svig drengja 13-14 ára.
Stökk pilta 13-14 ára. Stökk pilta
15-16 ára. Fararstjórafundur.
Sunnudagur 10. apríl: Flokka-
svig stúlkna 13-14 ára og stúlkna
15-16 ára. Flokkasvig pilta 13-14
ára og pilta 15-16 ára. Boðganga
stúlkna 13-15 ára, 3x2,5 km. Boð-
ganga pilta 13-14 ára og 15-16
ára, 3x5 km.
Lokahóf og verðlaunaafhend-
ing kl. 16.00.
Þátttökutilkynningar berist
Skíðaráði Akureyrar, Ráðhús-
torgi 3, Akureyri, fyrir 27. mars
nk.
Óskað hefur verið eftir því að
útdráttur fari fram á Akureyri 28.
mars nk. að viðstöddum a.m.k.
tveim fulltrúum héraða. Ef ekki
berast athugasemdir við það fyrir
þann tíma lítur mótstjórn svo á að
það sé samþykkt.
Hópferðir sf. annast fólksflutn-
inga í fjallið, einnig að og frá flug-
velli ef þess er óskað.
Ef veður eða aðrar ástæður
hamla framkvæmd mótsins áskil-
ur mótstjórn sér rétt til breytinga
á dagskránni.
í mótstjórn unglingamótsins
eru: Hermann Sigtryggsson,
Þröstur Guðjónsson, Oðinn
Árnason, Sigurður Aðalsteinsson
og Magnús Gíslason.
Reynir
með sölu-
sýningu
Um páskana heldur Ung-
mennafélagið Reynir Ár-
skógsströnd sölusýningu á
250-300 keramik- og gipsmun-
um svo og hnýttum blóma-
hengjum sem handknattleiks-
konur í félaginu hafa unnið að í
vetur. Munirnir verða til sýnis á
páskadag milli kl. 14 og 17 í Ár-
skógi og síðan til sölu á sama
stað á annan í páskum milli kl.
15 og 18.
Það er annars í fréttum af
mannlífi á Árskógsströnd að afli
hefur verið tregur og bátar farnir
til róðra í öðrum landshlutum.
Knattspyrnumenn á Ströndinni
koma saman til æfinga tvisvar í
viku og frjálsíþróttafólk tvisvar
sinnum í viku.
Vegna fjölda áskorana verður
sala forsöluleyfa
í Laxá framlengd til 8. apríl.
sími25222
Eyfjörð
Hjalteyrargötu 4,
Höfum allt
til vaxtarræktar
frá Weider.
T.d. vaxtarmótarann, firmaloss
og margt fleira.
&
SPORT
VERSLUNARMIÐSTÖÐINNI SUNNUHLÍÐ
Sími 22146
Kæliskápa- og frystikistuviðgerðir
Önnumst allar viðgerðir á kæli- eða frystiskápum, frysti-
kistum og öðrum kælitækjum. Breytum gömlum kæli-
skápum í frystiskápa.
Varahlutir f allar gerðir kælitækja. Góð þjónusta.
Vönduð vinna.
Vélsmiðjan Oddi hf.,
Kælideild, Strandgötu 49, sfml 21244.
á morgun miðvikudag.
*E
Stórlækkaö verð á öllu fersku
29. mars 1983 - DAGUR - 3