Dagur - 29.03.1983, Blaðsíða 16
LiMUM BORÐA
RENNUM SKÁLAR
Siglufjörður:
Aðstoð
vegna
fasteigna-
gjalda
Bæjarráð Siglufjarðar hefur
ákveðið að fella niður og veita
afsiátt á fasteignaskatti til elli-
og örorkulífeyrisþega.
Þannig fær einstaklingur með
tekjur undir 59.290 krónum allan
fasteignaskattinn felldan niður og
hjón með tekjur undir 90.059
krónum. Einstaklingur með tekj-
ur yfir þessu marki og upp að
79.290 krónum fær tvo þriðju
hluta fellda niður og sama gildir
um hjón með allt að 122.059 krón-
ur og hjá einstaklingum með allt
að 83.290 krónur er fasteigna-
skattur fellur niður að einum
þriðja hluta og sama hjá hjónum
meðtekjur allt að 138.059.
Framboðslisti
Alþýðuflokksins
Framboðslisti Alþýðuflokksins
í alþingiskosningunum hefur
verið ákveðinn og skipa hann
cftirtaldir aðilar:
1. Árni Gunnarsson alþingis-
maður Akureyri. 2. Hreinn Páls-
son lögmaður Akureyri. 3. Arn-
ljótur Sigurjónsson rafvirkja-
meistari Húsavík. 4. Jónína Ósk-
arsdóttir aðstoðarráðskona Ól-
afsfirði. 5. Stefán Matthíasson
læknanemi Akureyri. 6. Alfreð
Gíslason sagnfræðinemi Akur-
eyri. 7. Hermann Grétar Guð-
mundsson bóndi Akurbakka
Grýtubakkahreppi. 8. Hallsteinn
Guðmundsson fiskiðnaðarmaður
Raufarhöfn. 9. Konráð Eggerts-
son bifreiðastjóri Húsavík. 10.
Jóhann Sigurðsson sjómaður
Hrísey. 11. Guðrún Sigbjörns-
dóttir tryggingafulltrúi Akureyri.
12. Jón Helgason formaður Ein-
ingar Akureyri.
Það var svo sannarlega iétt stemmning ■ Sjallanum um helgina en nýstofnaður Jazzklúbbur Akureyrar gekkst þar fyrir
jazzkvöldi. Fjórar jazzhljómsveitir allar skipaðar hljóðfæraleikurum frá Akureyri og nágrenni léku en auk þess tróð 18
manna Big Band undir stjóm Paul Weeden upp ■ fyrsta sinn. AUir hljóðfæraleikararnir eiga það sammerkt að hafa tek-
ið þátt í námskeiði því sem Weeden hefur leiðbeint á hér að undanfömu og hafa framfarir þeirra verið ótrúlegar.
Mynd: KGA.
Stokkfiskur:
Ný tegund harð-
fisks á markaðinn
Fyrirtækið Stokkfískur að
Laugum ■ Þingeyjarsýslu hefur
sett á markaðinn nýja tegund
harðfísks sem á án efa eftir að
vekja athygli.
Hér er um að ræða kolmunna
og hefur fyrstu framleiðslunni
BITAFISKUR
/, KOLMUNNI
r/O--
STOKKFISKUR
verið dreift í verslanir á Norður-
landi. Fisknum er pakkað í 70 g
öskjur og er verðið á þessum
harðfiski talsvert lægra en á öðr-
um bitafiski sem er á markaðnum,
en kolmunnaharðfiskurinn er
bitafiskur.
Að sögn Steingríms Ingvasonar
aðstoðarframkvæmdastjóra
Stokkfisks er kolmunninn sjó-
frystur þannig að tryggt er að um
fyrsta flokks hráefni sé að ræða.
Þeir hjá Stokkfisk hafa tryggt sér
hráefni til að geta haldið þessari
framleiðslu áfram ef hún líkar vel
og ef undirtektir verða almennt
jafngóðar og á ritstjórn Dags er
starfsmönnum þar var boðið að
smgkka er engin hætta á öðru en
að svo verði.
Sólbakur:
Vill
Sigurður
enn
kaupa?
Eins og Dagur skýrði frá á sín-
um tíma hugðist Sigurður Þor-
steinsson sem búsettur er í
Bandaríkjunum kaupa togar-
ann Sólbak af Útgerðarfélagi
Akureyringa hf.
Ekkert varð úr samningum
varðandi kaupin og var ástæðan
sú að sjóðir þeir er áttu að greiða
ÚA vegna úreldingar togarans
voru ekki tilbúnir til þess að af-
greiða þetta mál. Fór svo að Sig-
urður hélt utan án þess að gengið
hefði verið frá kaupunum, þrátt
fyrir að um þau hefði samist milli
hans og ÚA.
Dagur hefur nýlega skýrt frá
því að afgreiðsla sjóðanna vegna
bóta til ÚA væri loks tryggð. Þeg-
ar það gerðist var nokkur tími lið-
inn frá því Sigurður Þorsteinsson
fór utan og lá ekki fyrir hvort
hann hefði enn áhuga á að kaupa
skipið.
Gísli Konráðsson fram-
kvæmdastjóri ÚA tjáði Degi fyrir
helgina að ÚA hefði sent skeyti til
Sigurðar til að fá það staðfest
hvort hann vildi enn kaupa
Sólbak. Er nú beðið eftir svari frá
honum.
Síðasta verkefni leikársins hjá LA:
Spékoppar“ frumsýndir
55
Leikfélag Akureyrar frumsýnir
gamanleikinn „Spékoppa“
eftir Georges Feydeau mið-
vikudaginn 30. mars kl. 20.30.
Flosi Ólafsson leikari og rithöf-
undur þýddi leikritið úr
frönsku og er jafnframt leik-
stjóri. Jón Þórisson hannar
leikmynd og búninga og Viðar
Garðarsson lýsinguna.
Leikritið „Spékoppar" eða
„Un purge bébé“ var skrifað 1910
og er nú álitið éitt af meistara-
verkum Frakkans Feydeau. Leik-
urinn gerist á heimili postulíns-
framleiðandans Flóvent í París.
Hann hefur fundið upp nýtt
postulín sem á að vera óbrjótandi
og látið steypa úr því næturgögn
sem hann ætlar að reyna að selja
franska hernum í stórum stíl. Af
því tilefni hefur hann boðið yfir-
manni í franska hermálaráðu-
neytinu, Kújón, í kvöldverð. En
þeir eiga báðir óstýrilátar eigin-
konur og auk þess er sonur Fló-
vents enn óþekkari svo heimboð-
ið fer öðruvísi en ætlað var.
Leikarar í „Spékoppum" eru:
Þráinn Karlsson (Flóvent), Sunna
Borg (frú Flóvent), Marinó Þor-
steinsson (Kújón), Ragnheiður'
Tryggvadóttir (Rósa), Gunnar
Ingi Gunnsteinsson (Dódó),
Kristjana Jónsdóttir (frú Kújón)
og Theodór Júlíusson (Frans).
Aðstoðarleikstjóri er Ragn-
heiður Tryggvadóttir, yfirsmiður
leikmyndar Bjarni Ingvarsson og
búningameistari Freygerður
Magnúsdóttir.
Ónnur sýning á „Spékoppum"
verður á annan í páskum og þriðj a
sýning fimmtudaginn 7. apríl.
RagnhildurTryggvadóttir og Flosi Ólafsson leikstjóri. Ljósm.: Páll Pálsson.
rr 11 1 FT? 0
Fjölmenni miðað við •
hvað?
Allaballar gengust á dögun-
um fyrir almennum fundl um
landbúnaðarmál á Akureyri.
Var ekkert til sparað í áróðrln-
um fyrir fundinn og átti nú að
taka bændur og fleiri með
áhlaupi. Og eftir fundinn stóð
ekki á stóru orðunum. Þjóð-
viljinn skýrði frá því að fund-
urinn hafi verið mjög fjöl-
mennur og meira bla, bla,
fylgdi í fréttinni. Staðreyndln
er hinsvegar sú að á fundinn
mættu um 20 manns. Ekki
mjög fjölmennt að mati S&S
en sennilega mikið fjölmenni
ef miðað er vlð hvað allaballar
reikna með að fá f komandi
kosningum í Norðurlands-
kjördæmi eystra.
# „Umfelgun“
Umsjónarmaður þáttarins
„Sviðsljós“ f þvf merka biaði
DV fer oft á kostum f greinum
sfnum og hikar ekki við að
fara ótroðnar slóðir í textan-
um. Okkur hefur borist til
eyrna nýjasta nýyrði hans en
það notaði hann f greln sinnl
um leikarann fræga Yul
Brynner. Skýrði umsjónar-
maðurinn frá þvf að leikarinn
væri búinn að skilja við konu
sína og fá sér nýja. Og hvað
skyldi hann hafa kallað þessa
„athöfn“ leikarans? Jú takk,
lesendur góðlr. Nú heitir það
að „umfelga“ þegar menn fá
sér nýja konu.
í „Krása-
deildinni“
Það er verið að hvetja fólk tll
að fara til Hrfseyjar og
smakka þar á galloway-kjöt-
inu góða. En hvernig væri að
skreppa til Færeyja og fá sér
fslenskt lambakjöt á við-
ráðanlegu verðl? - „Krása-
deildin“ í Þórshöfn auglýsir
grimmt f sfðasta tölublaði
Dimmalætning og eru hér
nokkrar glefsur úr auglýsing-
unni. - íslendskt lamb á 25,90
kr. New Zealandskt tjógv fyri
1/2 kg á 16,95 kr. og reyðkál á
25,95 kr. - Ekki slorlegir prfs-
ar þetta en reyndar mun vera
átt við danskar krónur.
# Að utan
eðainnan?
Steingrímur Sigurðsson list-
málari með melru er staddur á
Akureyri þessa dagana og er
aðalerindi hans að mála mynd
af Menntaskólanum. - Flosi
Ólafsson leikari og leikstjóri
með meiru erelnnig í bænum
eins og alþjóð veit. Það fór
ekki hjá þvf að leiðlr þessara
landsþekktu manna skærust
og að sjálfsögðu tóku þeir tal
saman. Talið barst að erindi
Steingrfms í bænum og hann
sagði Flosa að hann væri hér
til að mála Menntaskólann.
Og grfnistinn Flosi var ekki
seinn til og spurði illkvittnis-
lega: „Að utan eða innan?“