Dagur - 29.03.1983, Page 13
íslandsmót í lyftingum:
Fimm gull
til
Akureyrar
Um helgina var haldið ís-
landsmót í lyftingum, bæði
unglinga og fullorðinna. Að
venju sendu Akureyringar
sveit vaskra manna á þetta
mót og komu þeir flestir heim
með meistaratitla og verð-
laun.
Haraldur Ólafsson varð ís-
landsmeistari í 75 kg flokki en
hann snaraði 115 kg og jafnhatt-
aði 140 og átti einnig mjög góða
tilraun við 150 kg.
í unglingaflokki sigraði lítt
þekktur lyftingamaður frá Ak-
ureyri Bjarni Snorrason en hann
var að keppa á sínu fyrsta ís-
landsmóti. Hann snaraði 70 kg
og jafnhattaði 95. Þá varð hann
einnig þriðji í flokki fullorðinna.
í 90 kg flokki varð Gylfi Gísla-
son óheppinn en hann byrjaði á
að snara 130 kg, en missti tvíveg-
is 137 kg í jafnhendingu. í sinni
síðustu tilraun lét hann þyngja
lóðin í 144 kg og freistaði þess að
setja nýtt met, en það gekk ekki
þannig að hann féll úr keppni.
Ólafur Ólafsson varð íslands-
meistari í 82,5 kg flokki en hann
snaraði 140 kg og jafnhattaði
160. Þá átti hann góða tilraun
við 170 kg.
Akureyringarnir urðu aðrir í
stigakeppni, rétt á eftir KR-
ingum.
Jakob valinn í
UL-landslið
Jakob Jónsson leikmaður hjá
KA hefur undanfarið æft með
unglingalandsliðinu í hand-
bolta. Nú um helgina voru þeir
leikmenn valdir sem leika eiga á
Norðurlandamótinu sem fram
fer í Færeyjum í næsta mánuði.
Jakob var einn þeirra sem val-
inn var og óskar íþróttasíðan
honum velfarnaðar í landsleikj-
um sínum.
Dalvík vann Þór
Á föstudagskvöldið var einn
leikur háður í þriðju deild
karla í handbolta. Þór og
Dalvík léku ■ íþróttahöllinni.
Dalvíkingar sigruðu með 24
mörkum gegn 21, eftir að
staðan I hálfleik haffði verið
12 mörk gegn 10, Þór í vil.
Leikurinn var hins vegar
hnífjafn og Dalvíkingar voru
oft einu til þremur mörkum
yfir en Þórsarar voru harðari á
endasprettinum og sigruðu.
Sigurður gerði flest mörk Þórs
eða 7 og Júlíus var marka-
hæstur hjá Dalvík með 6
mörk.
Tvíburabræðumir Gylfi og Garðar Gíslasynir og Haraldur Ólafsson voru í sviðsljósinu um helgina
Úrslitakeppni 2. deildar handboltans:
KA fékk aðeins einn
sigur um helgina
Þriðja umferð úrslitariðils
annarrar deildar var leikinn
um helgina. Þá var lcikið í
Hafnarfírði, heimavelli
Hauka. ekki batnaði staða
KA í þessari umferð. Svo
virðist sem lið Breiðabliks
eflist með hverri umferð og
eru þeir nú mjög alvarlega að
blanda sér í röð tveggja efstu
liða.
KA lék sinn leik gegn Hauk-
um á föstudagskvöldið. Leikur-
inn var jafn framan af og Hauk-
arnir höfðu eins marks forustu í
leikhléi. KA náði síðan að jafna
og komast í tveggja marka mun,
en á síðustu mínútu hrundi leik-
ur þeirra og Haukar sigruðu
með 28 mörkum gegn 23.
Síðan lék KA við Breiðablik
daginn eftir, en þessi leikur var
mjög mikilvægur fyrir bæði
liðin. Blikarnir höfðu yfir í hálf-
leik 9 gegn 5, en smám saman
minnkaði KA muninn og náði
honum niður í eitt mark. A síð-
ustu sekúndum leiksins fengu
KA menn vítakast og þá um leið
gullið tækifæri til að jafna.
Markvörður Blikanna varði hins
vegar skotið frá Flemming.
Síðasti leikurinn var svo við
Gróttu og þar sigruðu KA menn
með þó aðeins einu marki, 24
gegn' 23, en höfðu þó örugga
forustu allan tímann.
Á þriðjudags- og miðvikudags-
kvöldið eiga Akureyringar þess
kost að sjá nokkra af bestu
handknattleiksmönnum lands-
ins leika í Höllinni. Þá koma
KR-ingar með sitt sterkasta lið
og leika tvo æfingaleiki við KA.
Báðir leikirnir hefjast kl. 20.15.
Fyrir síðustu umferðina sem
leikin verður hér á Akureyri
eftir páskana, er staðan þannig
að Haukar eru efstir, hafa þrem-
ur stigum meira en KA. Síðan
kemur Breiðablik með einu stigi
minna en KA og Grótta er lang
neðst með aðeins einn leik sigr-
aðan í úrslitakeppninni.
Bæði félögin þurfa á góðum
æfingaleikjum að halda fyrir
áframhald úrslitakeppninnar en
þau berjast á toppi deildanna.
Það verður fróðlegt að sjá
hvernig KA tekst gegn Alla,
Gunna, Andres Dal o.fl.
Stórleikur
í Höllinni
Boltinn er farinn að rúlla.
Knattspyrnan af stað:
Þórsarar
unnu KA
Akureyrarliðin Þór og KA
eru nú sem óðast að búa sig
undir átök sumarsins. Nokkr-
ir nýir leikmenn munu klæð-
ast búningum þeirra næsta
keppnistímabil og hefur áður
verið sagt frá flestum þeirra.
Nú um helgina bættist Þórsur-
um einn nýr leikmaður og eru
miklar líkur á því að hann ílend-
ist hjá félaginu. Það er
Víkingurinn, Aðalsteinn Aðal-
steinsson, sem hefur m.a. leikið
með unglingalandsliðinu. Þessi
lið léku æfingaleik á sunnudags-
morguninn og er það fyrsti leik-
ur þeirra. Leikið var á snævi
drifnum Sanavellinum. Þórsarar
sigruðu með 3 mörkum gegn
einu. Þórsarar halda suður á
þriðjudaginn og leika þá um
kvöldið einn æfingaleik við FH.
Þeir fara síðan til Danmerkur á
miðvikudaginn og leika þar
nokkra æfingaleiki um páskana.
Lið KA fer suður um páskana
og hittir þar þjálfara sinn og þar
munu þeir leika nokkra æfinga-
leiki.