Dagur - 07.04.1983, Blaðsíða 11
Hörður Áskelsson,
Hörður heldur
orgeltónleika
— í Akureyrarkirkju í kvöld
Hörður Áskelsson orgelieikari
heldur tónleika í Akureyrar-
kirkju í kvöld kl. 20.30.
Á efnisskránni verða verk eftir:
Cesar Franck, Oliver Messiaen,
Pál fsólfsson, Þorkel Sigurbjörns-
son og einnig flytjandann - Hörð
Áskelsson.
Hörður hefur þegið boð um að
halda tónleika við Postula-
kirkjuna í Köln í Þýskalandi og
leikur hann sömu tónverkin á Ak-
ureyri og í Þýskalandi einnig viku
síðar.
Orgel Akureyrarkirkju er
stærsta pípuorgel landsins og
kemst næst þeim orgelum sem
Hörður mun leika á í Þýskalandi.
Stærð hljóðfærisins og það að
Hörður er fæddur og uppalinn á
Akureyri ræður vali á Akureyrar-
kirkju fyrir tónleikana. Það er
mikill heiður fyrir Hörð að hafa
fengið slíkt boð frá Köln, því á
þeim 4 aðaltónleikum sem organ-
istum er boðið að halda, leika auk
Harðar organistarnir Rudolf
Heinemann og Michael Schnei-
der, en þeir eru báðir heims-
þekktir.
Hörður hóf orgelnám á Akur-
eyri hjá Gígju Kjartansdóttur við
Tónlistarskólann á Akureyri.
Síðar við Tónlistarskólann í
Reykjavík, þar sem hann lauk
tónmenntarkennaraprófi og ári
síðar B lokaprófi í orgelleik og
var Marteinn Hunger Friðriksson
orgelkennari hans þar. Síðan
stundaði hann framhaldsnám við
tónlistarháskólann í Dusseldorf í
Þýskalandi og lauk þaðan æðsta
prófi í kirkjutónlist og orgelleik,
þ.e. A prófi vorið 1981 sem eini
nemandinn er því prófi lauk það
árið og jafnframt með hæsta
vitnisburð sem veittur er við skól-
ann, þ.e. meðaleinkun A úr öllum
greinum.
Honum bauðst starf í eitt ár við
Neanderkirkjuna í Diisseldorf
sem er helsta tónlistarkirkja
Dusseldorf og auk einleiks á orgel
flutti hann þar sem stjórnandi
nokkur stórverk fyrir kór og
hljómsveit. Hann starfar nú sem
organisti við Hallgrímskirkju og
var aðalhvatamaður að stofnun
listvinafélags við kirkjuna, sem
stendur að flutningi og sýningu
kirkjulegrar listar. Hann stofnaði
einnig mótettukór við kirkjuna,
sem flutt hefur tónlist við ýmis
tækifæri.
Hörður hefur veriuð aðstoðar-
stjórnandi Pólýfonkórsins og var
aðalstjórnandi á jólatónleikum
hans. Hann hélt orgeltónleika í
boði dómkirkju Þrándheims á
tónlistarhátíð þar árið 1982 og lék
á Spáni á sl. sumri.
LEIKFELAG ^ AKUREYRAR
—
Leikstjórn og þýðing:
Flosi Olafsson.
Þriðja sýning
fimmtudag 7. apríl kl. 20.30.
Fjórða sýning
föstudag 8. apríl kl. 20.30.
Fimmta sýning
sunnudag 10. apríl kl. 20.30.
Miðasala opin alla daga frá
k|. 17.00-19.00.
Sýningardaga frá kl. 17.00-
20.30.
Miðapantanir í síma 24073.
Er þetta Feydeau
eða Flosa að kenna?
Leikfélag Akureyrar:
„Spékoppar“ eftir
Georges Feydeau.
Leikstjóri og þýðandi:
Flosi Ólafsson.
Leikmynd og búningar:
Jón Þórisson.
Lýsing: Viðar Garðarsson.
Það var ekki laust við að nokk-
ur eftirvænting væri ríkjandi
frumsýningarkvöldið f fyrri viku.
Bæði er að Georges Feydeau er
vel þekktur farsahöfundur hér á
landi sem annars staðar og er
skemmst að minnast þess er Leik-
félag Reykjavíkur sýndi „Fló á
skinni“ eftir hann við metaðsókn.
Hitt var að „grínarinn" Flosi
Ólafsson sem af mörgum er talinn
með meiriháttar húmoristum
okkar hafði þýtt verkið og var
jafnframt leikstjóri. Ég er einn
þeirra sem hef oft hrifist af ærslum
Flosa jafnt er hann hefur sjálfur
brugðið sér á svið eða farið ham-
förum með penna sinn í hárbeittu
háði og ætti það sem að framan er
nefnt ekki að nægja til þess að
tryggja góða sýningu?
En ég varð fyrir vonbrigðum og
mér segir svo hugur um að það
hafi farið svo fyrir fleiri frum-
sýningargestum. Verkið er allt of
langdregið og oft af þeim sökum
hreinlega þreytandi að sitja undir
því. Þannig eru þau tvö ein á svið-
inu fyrstu 45 mínútur leikritsins
Þráinn Karlsson og Sunna Borg
og það er því miður ekki mikið
sem gerist á þessum mínútum
þrátt fyrir góða frammistöðu
Þráins og Sunnu.
Efni farsa af þessu tagi þarf
ekki að vera merkilegt ef verkið
býður að öðru leyti upp á hraða,
óvæntar uppákomur og annað
slíkt sem getur kitlað hláturtaugar
áhorfandans. í „Spékoppum“
vantar þetta flest og þetta „meist-
arastykki" Feydeau nær aldrei
þeim tökum á leikhúsgestinum
sem góður farsi á að gera. Kemúr
fyrir ekki þótt þau Sunna Borg og
Þráinn Karlsson fari á kostum á
köflum í leik sínum en þau tvö
bera þetta verk algjörlega uppi og
bjarga því sem bjargað verður.
Sunna hreint óborganleg þegar
henni tekst best upp og Þráinn
heldur sínu striki allan tímann.
Önnur hlutverk eru í höndum
Ragnheiðar Tryggvadóttur
(Rósa), Gunnars Inga Gunn-
steinssonar (Dódó), Marinós Þor-
steinssonar (Kújón), Kristjönu
Jónsdóttur (frú Kújón) og Theó-
dórs Júlíussonar (Franz). Ekkert
af þessum hlutverkum gefur til-
efni til mikilla afreka. Þó vakti
Marinó Þorsteinsson kátínu með
spjátrungslegum töktum sínum
og hlátur hans uppgerðarlegur og
tilgerðin uppmálið var fyndin.
Þegar á heildina er Iitið er óhætt
að segja að varla verður þessa
verks minnst í sögu Leikfélags
Akureyrar sem eins þess merki-
legasta er félagið hefur flutt. Góð-
ur farsi þarf að hafa ýmislegt til að
bera sem „Spékoppar" Feydeau
hafa ekki og einungis góð frammi-
staða Þráins og Sunnu bjargaði
kvöldinu að þessu sinni. G.K.
^SERRETTIR
MEGRUNARFÆÐI
í öllum matvöruverslunum
7. ápríl 1ð83 - DAGUR -11