Dagur - 07.04.1983, Page 13
Hagleiksmenn á Hofsstöðum:
Hita húsið
upp með
varmadælu
Á Hofsstöðum í Mývatnssveit búa
bræður tveir, Ásmundur og Guð-
mundur Jónssynir, miklir hagleiks-
menn. Ég hef heyrt því fleygt að það
sem þeir ætli sér að gera það geri þeir
hversu vonlaust sem það virðist í
fyrstu. Einn Mývetningur sagði mér að
þeir léku sér að því að flytja vélar úr
einum bíl í annan án teljandi örðug-
leika. Auðvitað passa þessar vélar ekki
alltaf en þeir láta þær bara passa.
Margt fleira í líkum dúr hef ég heyrt
um þá bræður. Hafi ég velkst í vafa um
hæfileika þeirra sannfærðist ég um
þeirra snilli er ég staldraði við á Hofs-
stöðum um daginn. Guðmundur var
að vísu ekki heima en Ásmundur tók
mér af mikilli ljúfmennsku. Þeirri ljúf-
mennsku sem maður finnur svo vel til
sveita þar sem lífsgæðakapphlaupið og
stressið er ekki búið að ná tökum á
fólkinu.
Ég var drifinn inn í bæ í angandi
kaffi og brauð. Ég ber upp erind-
ið: Hvernig er það Ásmundur, þú
hitar upp hús þitt á nokkuð sér-
stakan hátt, er ekki svo? Jú, rétt
var nú það. Húsið er hitað upp
með svonefndri varmadælu.
Ásmundur dregur fram mikinn
pappírsbunka og sýnir mér um
leið og hann útskýrir fyrirbærið
varmadæla. Þar sem mér þótti
þetta merkilegur hlutur og trúlega
er ég ekki einn um það ætla ég nú
að lýsa í sem stystu máli hvað
þarna er á ferðinni. Með aðstoð
Ásmundar og pappíranna sem
eru frá Landsvirkjun er sagan á
þessa leið:
Sérkennileg
upphitun
„Varmadæla er í raun og veru
frystivél. Frystivélar eru notaðar
til þess að flytja óæskilegan hita úr
húsum og sleppa honum út,
venjulega með slöngum sem
kældar eru með vatni. Varmadæl-
an vinnur þannig öfugt, hún flytur
hitann að utan og inn. Varmadæl-
an er byggð upp úr þremur aðal-
hlutum sem eru uppgufari,
þjappa og þéttir. Efnið sem notað
er til að flytja varmann er freon. í
uppgufaranum gufar freonið upp.
Til þess þarf það utanaðkomandi
varma. Þjappan er notuð til þess
að þjappa freoninu saman og við
það hækkar hitastig freonsins.
Þetta heita samþjappaða freon fer
inn í þéttinn og þar þéttist það í
vökva og gefur um leið frá sér
varma til þess hitakerfis sem valið
hefur verið. Milli þéttis og upp-
gufara er hafður þrýstijöfnunar-
loki til þess að halda uppi þrýst-
ingnum (hærri þrýstingur þéttis-
megin, lægri uppgufunarmegin).
Þegar freonið er búið að fara í
gegnum þrýstijafnarann þá er það
tilbúið til nýrrar hringrásar.
Rafmótor er notaður til að
knýja þjöppuna. Rafmagnið sem
notað er til þess er helmingur til
einn sjötti af þeirri orku sem fæst
út úr varmadælunni. Hlutfallið á
milli þeirrar orku sem fæst úr
varmadælunni og þeirrar orku
sem fer til þess að knýja þjöppu-
mótorinn er kallað nýtnistuðull.
Hlutfallið er alltaf stærri en 1.
Vatnið sem Ásmundur hefurinn á
kerfið hjá sér er 16-18 gráður
(ylur í jörð) og nýtnistuðullinn er
3“.
Nýjar leiðir í
upphitunarmálum
Hvernig stóð á því að þú fórst að
kynda upp með þessum hætti?
„Árið 1980 auglýsti orkusparn-
aðarnefnd éftir bændum til þess
að reyna nýjar leiðir í upphitun-
armálum. Nokkrir aðilar gáfu sig
Mynd og texti:
Þorkell Björnsson
Ásmundur Jónsson á Hofsstöðum við varmadæluna og hitakútinn sem hann setti upp hjá sér.
fram og þar á meðal ég. Athugan-
ir fóru fram á Þórgautsstöðum á
Hvítársíðu og skýrsla um það mál
er í þann veginn að koma út.“
Ég spyr Ásmund hvort hann
hafi einhverja hugmynd um
hvernig þessi nýja upphitunarað-
ferð standi fjárhagslega gagnvart
öðrum valkostum, þ.e. olíu og
rafhitun. Auðvitað hafði hann
reiknað það út. Hann sýnir mér
útreikninga sína þessu til stað-
festu. Þó gat hann þess að erfitt
væri að fá upplýsingar í sambandi
við orkuverðið en eftir því sem
hann kæmist næst liti dæmið
þannig út:
Hofsstaðir íbúð 400 m’ upphit-
unarkostnaður með: l.a. Olía
7000 lítrar á ári á 7 kr/ltr. 49.000
kr. l.b. Olía m/olíustyrk 2 pers.
6.720 á ári 42.280 kr. 2.a. Rafhit-
un húshit.taxti C i 42.000 kwh/ár
23.930 kr. 2.b. Rafhitun mark-
mæling A 5 29.400 kr. 3.a.
Varmadæla nýtnihlutf. 3 C i
14.000 kwh/ár 7.980 kr. 3.b.
Varmadæla nýtnihlutf. 3 A 5
14.000 kwh/ár 9.800 kr.
Það fer ekkert milli mála að
varmadælan er mjög hagkvæmur
kostur eins og verð á olíu og raf-
hitun er í dag. Ásmundur sýndi
mér líka útreikninga sína pr.
kílówattstund með þessum þrem-
ur valkostum:
Olía óniðurgreidd 116 aurar
kwh. Rafmagn marktaxti A 5 70
aurar kwh. Rafmagn marktaxti C
i 57 aurar kwh. Varmadæla A 5 23
aurar kwh. Varmadæla C i 19 aur-
ar kwh. Stofnkostnaður ekki
reiknaður með. Miðað við 6 kwh
móti 1 lítra olíu.
Ég spurði Ásmund hvort þetta
væri það sem koma skyldi.
„Ég álít það já þar sem ekki er
hægt að koma hitaveitu við og
miðað við orkuverð í dag. Það
væri eðlilegast að hita beint upp
með raforku en til þess þarf hún
að vera á skikkanlegu verði. Það
er eðlilegast að nýta raflögnina,
hún þarf jú alls staðar að vera.“
Vorverk
Fræðslufundur í Lundarskóla þriðjudaginn 12. apríl kl. 8 e.h.
Heimilisgróðurhúsið, ræktun og umhirða.
Laugardaginn 6. apríl kl. 2-4 sýnikennsla í trjáklippingum í
Gróðrarstöðinni.
Garðyrkjufélag Akureyrar.
Bifreiðaeigendur
athugið
í íscross akstri er gífurlegt álag á vélum keppenda og mikið
í húfi að þær þoli álagið. í íslandsmeistarakeppninni 20.
mars sl. komu Norðlendingamir Auðunn Þorsteinsson og
Erik Carlsen mjög á óvart með þvi að hreppa annað og
þriðja sætið í keppninni. Með því skutu þeir aftur fyrir sig
bæði íslandsmeistaranum og þeim bíl sem hæstur er að
stigum nú. Þessir ökuþórar nota báðir SLICK-50 til að
vernda vélarnar í bílum sínum undir hinu gífurlega álagi.
Hvað gerir þú fyrir vélina í þínum bíl?
Útsölustaðir SLICK-50 á Norðurlandi:
Smurstöð Þórshamars, Akureyri.
Foss, Húsavík.
Varmadælunni er haganlega
komið fyrir niðri í kjallara. Henni
fylgir hitakútur sem rúmar 250
lítra, þannig að alltaf er til nóg af
heitu vatni á Hofsstöðum. Ás-
mundur setti tækin upp sjálfur og
annaðist allar pípulagnir og sann-
arlega mætti sérhver pípulagn-
ingameistari vera ánægður með
frágang á borð við þennan. Hita-
kerfið var tekið í notkun þann 9.
mars sl. og var Ásmundur mjög
ánægður með þá litlu reynslu sem
þegar var komin af því.
Kæli- og frysti-
vélaþjónusta
Tökum að okkur hönnun, ráðgjöf,
uppsetningar, viðgerðir og eftirlit á
öllum gerðum kæli- og frystikerfa.
Gerum verðáætlanir eða tilboð.
Góð þjónusta. Vönduð vinna.
Vélsmiðjan Oddi,
Kælideild, sími 21244.
Utan vinnutíma: Elias Þorsteinsson,
simi 22853