Dagur


Dagur - 26.04.1983, Qupperneq 10

Dagur - 26.04.1983, Qupperneq 10
Örtröð allan daginn — Vel heppnuð iðnkynning í Frostagötu í Vélsmiðju Steindórs voru margskonar leiktæki fyrir böm. „Það var örtröð hjá okkur allan daginn, ég giska á að það hafi komið 2-3 þúsund manns á svæðið, sem er meira en nokkur okkar þorði að vona,“ sagði Jónas Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Valsmíði sf. í samtali við Dag að aflokinni iðnkynningu í Frosta- götu á sumardaginn fyrsta. Akureyringar tóku fagnandi þeirri nýbreytni forráðamanna fyrirtækja við Frostagötu að kynna starfsemi fyrirtækjanna og þá framleiðslu sem þau láta frá sér fara. Fjölmenni var á sýning- arsvæðinu allan daginn, allt frá hádegi fram að kvöldmat. í tengslum við kynninguna var haldinn fundur um iðnaðar- og atvinnumál fyrir fullu húsi, sem þótti takast með eindæmum vel. Fyrir þá sem ekki komust á fundinn skulum við kíkja á fundargerðina, sem Sverrir Pálmason skráði. í framhaldi af iðnkynningu sem fyrirtækin Barð sf., Baugsbrot sf., Ýr hf., Eikin hf., Valsmíði Hér láta sýningargestir fara vel um sig á trésmíðaverkstæði hjá Eikinni. sf., Hellusteypan sf. og Vélsmiðja Steindórs hf. héldu hinn21.04.’83 í Frostagötu frá kl. 13.00 til 17.00 var haldinn opinn fundur um iðnaðar- og atvinnumál í vinnusal Ýr hf. Fundurinn hófst kl. 17.00. Fundarstjóri var Jónas Sigur- jónsson Valsmíði. Gerði hann grein fyrir tilhögun fundarins og hvatti menn til að kveða sér hljóðs. Fundarritari var Sverrir Pálmason Ýr. Framsögu hafði Steindór Steindórsson Vélsmiðju Stein- dórs. Áminnti hann frambjóð- endur og aðra ræðumenn um að vera málefnalega en aðeins um- ræður um atvinnu- og iðnaðarmál voru leyfðar. Birgir Stefánsson á Eikinni lét í ljós efasemdir sínar um þekk- ingu frambjóðenda og ráða- manna bæjarins á húsgagnaiðnaði í bænum. Steingrímur Sigfússon G-lista tók sem dæmi um erfiðleika í iðnaði Plastiðjuna Bjarg sem á í harðri samkeppni við innfluttar iðnaðarvörur sem eru ódýrari en verri. Lofaði hann aðgerðum fyrir hönd síns flokks til verndar íslenskum iðnaði í þeirri sam- keppni. Árni Gunnarsson A-lista vildi beita ýmsum hörðum aðgerðum gegn innflutningi á iðnaðarvörum til verndar íslenskum iðnaði. Halldór Blöndal D-lista talaði um hnignandi vöxt Akureyrar og erfiðleika iðnaðarins vegna rangr- ar gengisskráningar. Halldór vildi niðurfellingu tolla á aðföngum til iðnaðar. Stefán Matthíasson A-lista gerði samanburð á lánakjörum iðnfyrirtækja miðað við landbún- að og sjávarútveg. Vildi hann sporna við innflutningi. Níels Á. Lund B-lista talaði um geysilegan kostnað vegna atvinnu- uppbyggingar undanfarinna ára og að innlend iðnaðarvara væri ekki samkeppnisfær með verð. Þá ræddi hann um mikla þenslu samfara þessari hröðu uppbygg- ingu. Tryggvi Pálsson Smára talaði um ranga stjórnarstefnu og sér í lagi raunvaxtastefnu Alþýðu- flokksins sem væri að leggja allt í rúst. Helgi Guðmundsson G-lista ræddi um vannýtta möguleika á framleiðslu iðnaðarvara, tók sér- staklega fyrir skipasmíðar, þá ræddi hann innkaup á húsgögnum fyrir Verkmenntaskólann. Helgi vakti athygli á sambandsleysi milli einstakra iðngreina. Árni Gunnarsson svaraði Tryggva Pálssyni og sagði að verðbólgan væri að drepa niður iðnaðinn, ekki raunvextir. Síðan talaði hann um fólksfækkun í hinum ýmsu kaupstöðum í kjör- dæminu og að fólksfjöldi stæði í stað á Húsavík og Akureyri. Gunnar Ragnars sagði að við hefðum flotið að feigðarósi vegna andvaraleysis á undanförnum árum við að skapa ný atvinnu- NÁMSKEIÐ í JAPANSKRI STJÓRNUN FYRIR STJÓRNENDUR FYRIRTÆKJA OG STOFNANA — HYGGINDISEM í HAG KOMA — Lærum af forystuþjóð á sviði stjórnunar. Veist þú: • Hvað núllgallastefna er? • Hvers vegna aukin gæði leiða til lægri framleiðslukostn- aðar? • Hvað er Poka Yoke? • Hvers vegna blönduð framleiðsla er hagkvæmari en fjölda- framleiðsla? • Af hverju verkföll eru nær óþekkt í stærri iðnfyrirtækjum í Japan? • Hvernig staðið er að starfsmenntun í Japan? • Hvernig unnt er að ná og viðhalda miklum afköstum? • Hvað núllbirgðastefna er? • Hver eru tengsl iðnfyrirtækja og banka í Japan? • Er allt sem sýnist? í samvinnu við Stjórnunarfélag norðurlands verður námskeiðið haldið þriðjudaginn 3. maí n.k. í Sjálfstæðishúsinu kl. 10.00 til kl. 17.00. Þátttökugjald kr. 2800.- Námskeiðsgögn, matur og kaffi innifalið. Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélags norðurlands í síma 96 - 21820. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku sem fyrst. Fjöldi takmarkaður. Ráðgjafaþjónusta Stjórnun — Skipulag Skipulagning — Vinnurannsóknir Flutningataekni — Birgðahald Upplýsingakerfi — Tölvuráðgjöf Markaðs- og söluráðgjöt Stjórnenda- og starfsþjálfun REKSTRARSTOFAN — Samstarf sjálfstæóra rekstrarráðgjafa á mismunandi sviöum — Hamraborg 1 202 Kópavogi Sími 91 -44033 J. INGIMAR HANSSON Fyrirlesari Ingimar fór nýlega í námsferð til Japan. Ferðin var skipulögð af Bandaríska Iðnaðar- verkfræðingafólaginu. Auk námskeiða í japanskri stjórnun var farið í heimsóknir til iðnfyrirtækja. J. Ingimar Hansson er rekstrarverkfraBðingur að mennt og stofnaði Rekstrarstofuna 1974. GUNNAR H. GUÐMUNDSSON Fyrirlesari Gunnar hefur annast athuganir þær sem Rekstrarstofan hefur staðið fyrir á japanskri iðnaðaruppbyggingu og áhrifum hennar í Bandaríkjunum og á vesturlöndum. Gunnar H. Guðmundsson er rekstrarverk- fræðingur að mennt og er ráðgjafi á sviði stjórnunar, skipulags, upplýsingakerfa og tölvumála. BOLLI MAGNÚSSON Fundarstjóri Bolli starfaði um skeið í Japan sem fulltrúi togarakaupenda og kynntist starfsháttum við skipasmíðar þar í landi. Bolli Magnússon er skipatæknifræðingur að mennt og er ráðgjafi á sviði skipasmíða og útgerðar. 1Ó-DAÍGljft-26. aþrfl'1Ö83,;

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.