Dagur - 20.05.1983, Blaðsíða 5

Dagur - 20.05.1983, Blaðsíða 5
Kristján frá Djúpalæk — og hafa verið lengi þessi vara fæst ekki í KEA hvað sem veldur. Það væri fróðlegt að vita hve mikill hluti þessarar rándýru Alpafjallasýru liggur í umbúð- unum. Hvað kosta allar þessar plastdollur og allir pokarnir úr sama efni? Geta menn ekki komið með innkaupatösku í búðir lengur? En verst af öllu er að við erum ekki aðeins að eyða hráefnum og það dýrmætum eins og tré, og stórfé að auki, heldur veldur þetta mikilli fyrir- höfn að fjarlægja og óhemju sóðaskap um allar jarðir. Sparnaður og nýtni eru ekki úrelt hugtök heldur krefjandi nauðsyn enn í dag. Ég vona bara að járnbræðslan í Straumi fari að taka til starfa svo við get- um gefið þeim eitthvað af öllu því járna-, véla- og bíladrasli sem særir augu okkar og vex okkur brátt yfir höfuð. Endur- nýting hráefna er tímabært íhugunarefni, bráð nauðsyn. Ekki eingöngu í sparnaðarskyni heldur til að spara hráefni handa framtíð og firra okkur óþrifnaði. Geggjun Því hefur nýlega verið hreyft í sjónvarpi að veðráttan væri orð- in geggjuð. Það má nú kannski segja að hún hafi alltaf verið tæp á geðsmunum, a.m.k. hér á lslandi. En nú virðist út yfir taka víða um heim. Stórrigning- ar og ofsaþurrkar skiptast á svo heil þjóðlönd eru í voða. Haf- straumar breyta stefnu og stormar hvína. Mikið má vera ef allt þetta brölt okkar mann- anna út í geimnum truflar ekki geðsmuni þeirra guða sem hæð- um ráða og lægðum að viðbættu öllu því eiturlofti sem vélar okkar og verksmiðjur spú út í andrúmsloftið dag og nótt. En geggjun veðráttu veldur áhyggjum og kemur á óvart. Aftur á móti er öllum ljóst að mennirnir á jörðinni eru stórbil- aðir og hafa verið lengi. Myndlist Hér hafa verið sannkallaðar listahátíðir kringum vinnuhjúa- skildagann. Uppi í Iðnskóla hefur Bjarni Jónsson verið með stórsýningu en hann á engan sinn líka á sínum vettvangi. Ég hef sjaldan heyrt jafnmikla ánægju í röddum gesta á sýn- ingu og þar. Sjálfur hef ég lengi dáð handbragð þessa lista- manns og færi honum og frú kærar þakkir fyrir komuna. Þá er að nefna sýningu Mynd- listarskólans á verkum nema hans. Það var virkilega ánægju- legt að verða þess vísari að hér eru ótvíræðir listamenn í upp- vexti og einnig að skólinn er fyllilega vaxinn þeirri miklu ábyrgð sem á honum hvílir. Snilldarhandbragð, lita- og sköpunargleði lýsti þarna af mynd eftir mynd. Það eru svo sem ljósir punktar i lífinu þó vorið sé eitthvað áttavillt: Við eigum sumar innra, fyrir andann, sagði einn snillingur- inn. Kannski er okkar hlutverk ekki að draga fisk og framleiða kjöt og mjólk handa holdinu heldur list fyrir andann. Jón Bjamason kann fjandlnn* Eftirfarandi vísur lét Óli á Gunnarsstöðum fylgja skatt- framtali sínu 1980 um siglingu þjóðarskútunnar og fjárhags- ástandið, samkvæmt beiðni skattstjórans á Húsavík: Pungur sýnist Ragnars róður. Rýkur yfir - nokkur austur. Arfurinn varekkigóður eftir Kratans bull og flaustur. Flýtur allt að feigðarskerjum. Furðu oggeighvermaðursleginn. Þjóðin verst ei húmsins herjum, hún er plokkuð, rúin, flegin. Á síðastliðnum vetri óku nokkr- ir bændur í Þistilfirði vestur til Höfðahverfis og Svalbarðs- strandar að skoða loðdýrabú, hænsnabú og stór fjós. Þarna var Óli á Gunnarsstöðum með í för. í fjósinu á Svalbarði spurði hann Bjarna bónda hvernig honum gengi að útvega lið sér til aðstoðar að hirða allan þennan klaufpening. Það sagði bóndi auðvelt. „Ég læt tengdasynina vinna fyrir stelpunum“. „Hvað tekur það mörg ár?“ spurði Óli af vaknandi áhuga. „Segjum svona fimm,“ svar- aði bóndi. Þetta varð Óla að vísu á leiðinni heim: Laban forðum lét hann vinna Leu fyrir árin sjö. Bjami sættirsig við minna. Segir að dugi þrjú og tvö. Jón Bjarnason Herra ritstjóri. í fimmtugasta tölublaði blaðs þíns „Dagur“ á Akureyri, dag- sett hinn 6. maí sl. birtist vísnaþáttur búinn til prentunar af Jóni skáldi og rithöfundi frá Garðsvík, búsettum á Akureyri. Þar er meðal annars vísa eftir Steingrím Baldvinsson frá Nesi í Aðaldal. Þessi vtsa er ekki rétt f þættinum og illa úr lagi færð og virðist svo sem Jón skáld leiti ekki mikilla upplýsinga um það er hann lætur frá sér fara í þessum efnum. Þessi vísa sem hér um ræðir er í þættinum á þcssa leið: ..Styttist skeið híns skamma dags. skuggará leiðum flakka. Vindur greiðir fanna fax. fram af heiðar makka ". Vísuna lærði ég af vörum Steingríms sjálfs fvrir mörgum árum, eins og margar at hans ágætu. bæði alvöru og gaman vfsum, því við vorum nijög nánir vinit' um áratuga skeið. Ég hrökk því við er ég sá vísuna t blaöinu og fann strax að hún var ekki rétt. En til frekara öryggis fletti ég upp f Ijóðabók Stein- gríms, „Heiðmyrkur" heitir bókin og þar er vísan birt, eftir handriti höfundar og er svona: ..Hafið er skeið hins skamma dags, skuggar leiðir flakka. Vindargreiða fanna fax, fram afheiðar makka “. Það er ekki vandvirkni þegar birta skal vísur eða sagnir annarra, hvort heldur er í bókum eða blöðum, að leita sér ekki meiri og betri heimilda um hvað er rétt, cn Jón hefur gert f þctta sinn ok ég vcit um fleiri dærni í bókum hans. Þessa umræddu vísu sagðist Steingrímur hafa gert snemma morguns í skammdegi, - ekki oröið fullbjart er hann leit út og gáði til veðurs eins og menn yfirleitt gera. Sá hann þá skafrenning fram af brúnum Hvammsheiðar og niður í brekkur heiðarinnar, austan Laxár. Þá varð kveikjan til að, vísunni: „Hafið er skcið hins skamma dags.o.s.frv." En ekki eins og Jón segir: ..Styttist skeið hins skamnm dags, skuggará leiðum flakka". Mér finnst það ckki fyrirgeían- iegt hroðvírkni að birta eftir aðra hvort heldur eru vísur eða frásagnir án þess aö afla sér upplýsinga um það hvað rétt er þegar þess er ckki lengra að leita en t.d. í þessu tilviki. En Jón Bjarnason heldur víst að hann viti allt og honum sé allt leyfilegt. En það vil ég segja honum að lokum að það er ekki heiglum hent aö breýta - til bóta - Wsum Steingríms Baldvinssonar frá Ncsi í Aðaldal. Egill Jónasson Bjöm Sigurðsson, Baldursbrekku 7, símar 41534 & 41666. Sérleyfisferðir. Hóplerðir. Sælaferðir Vöruflutningar Húsavík - Akureyri - Húsavík Breytt áætlun um hvítasunnu. Sunnudagur 22. maí (hvítasunnudagur): Eng- in ferð. Mánudagur 23. maí (annar hvítasunnudagur): Frá Húsavík ki. 11.00, frá Akureyri kl. 23.30. Þriðjudagur 24. maí: Frá Húsavík kl. 8.00 og frá Akureyri kl. 16.00. Síðan venjuleg vetraráætlun til 15. júní. Sérleyfishafi. Reiðskóli fyrir böm og unglinga verður rekinn að Aðalbóli, Aðaldal í sumar. 8 daga námskeið. Heimavist fyrir þátttakendur. Fyrsta námskeið byrjar 5.-12. júní. Upplýsingar gefur Höskuldur Þráinsson, Aðalbóli, Aðaldal sími 96-43529. Fyrirtæki á Akureyri vantar góðan og reglusaman mann við afgreiðslustörf á lager. Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf leggist inn á afgreiðslu Dags merkt: „Trúnaður'1. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri óskar eftir að ráða læknaritara á Bæklunardeild sjúkrahússins. Um heils dags starf er að ræða. Góð íslenskukunnátta og vélritunarkunnátta nauðsynleg. Upplýsingar veitir læknafulltrúi Bæklunardeildar, Kolbrún Magnúsdóttir (sími 96-25064). Umsóknum sé skilað til fulltrúa framkvæmda- stjóra eigi síðar en 10. júní nk. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri Staða yfirlæknis á Svæfinga- og Gjörgæsludeild FSA er laus til umsóknar. Umsóknir er greini námsferil og fyrri störf sendist framkvæmdastjóra FSA, sem gefur nánari upp- lýsingar. Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 1983. Fjörðungssjúkrahúsið á Akureyri. Vélstjóra vantar á Særúnu EA 251 Litla-Árskógssandi. Upplýsingar í síma 63146. AKUREYRARBÆR Fóstrur - Fóstrur Forstöðumann vantar á dagheimilið Pálmholt Ak- ureyri frá 1. ágúst 1983. Umsóknarfrestur til 15. júní. Allar nánari upplýsingar veittar á Félagsmála- stofnun alla virka daga frá kl. 10-15 sími 96- 25880. Dagvistarfulltrúi. 20. maí 1983 - DAGUR - 5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.