Dagur - 20.05.1983, Qupperneq 6
Dómarinn
drottins er
Stöðiuð
viðbragðsstaða
Þórarinn Sigurðsson
Skautafélag Akureyrar
hefur undanfarin ár verið
nær ósigrandi í blaki
öldunga. Öldungarnir úr
skautafélaginu hafa orðið
íslandsmeistarar tvö sl. ár
en allt í allt eru íslands-
meistaratitlarnir orðnir
þrír og auk þess hafa SA-
menn unnið til nokkurra
silfurverðlauna og fjölda
annarra titla: Ókunnugir
gætu haldið að þarna færi
því harðsnúið lið topp-
íþróttamanna sem aldrei
á ævinni hefði orðið mis-
dægurt en það er nú öðru
nær. Vitaskuld eru þetta
allt góðir íþróttamenn og
sannir heiðursmenn en
það sem flestir þeirra eiga
þó sameiginlegt er að þeir
byrjuðu í blakinu vegna
BAKVEIKI.
Til að forvitnast nánar
um þetta merkilega blak-
lið var rætt við Magnús
Ólafsson, sjúkraþjálfara
sem tók hina „bakveiku“
upp á arma sína fyrir
rúmum tíu árum og Hauk
Haraldsson sem mætti í
fyrsta íþróttatímann.
Teikningarnar af blak-
köppunum sem prýða
opnuna eru eftir Tómas
Inga Olrich, konrektor
Menntaskólans sem tekið
hefur virkan þátt í starfi
blakliðsins.
Haukur Haraldsson
Forlcikur
MA.RGFALDIR ISLANDSMEISTARAR I ÖED UNGAFEOKKI
Frjáls upphitun
Þetta byrjaði allt með því að
ég tók eftir því í starfí mínu
sem sjúkraþjálfari að það leit-
uðu margir til mín vegna bak-
veiki og ýmiss konar eymsla í
baki og ég brá því á það ráð -
þar sem ég er einnig íþrótta-
kennari - að auglýsa leikfimi-
tíma, ætlaða þessum bakveiku
mönnum. Við fórum hægt af
stað og ég byggði tímana upp
á styrkjandi æfingum en oftast
lékum við okkur svo smástund
með bolta í lok hvers tíma.
Þetta þróaðist svo smám
saman út í það að við fórum að
leika meira og meira blak og
þar kom að því að einhverjum
datt í hug að senda lið í fyrsta
íslandsmeistaramót öldunga í
blaki.
Magnús Ólafsson „vemdari“ blakliðsins ásamt nokkrum sjúkraþjálfaranna
í Bjargi, en þar hefur Magnús meðal annars byggt upp svokallaðan „Bak-
skóla“. Mynd: ESE.
„Við höfum ekki þurft
að hafa áhyggjum af bak-
verknum undanfarin ár“
Sá sem þetta mælir er Magnús
Ólafsson, yfirsjúkraþjálfari hjá
Sjálfsbjörg en hann má meö réttu
kalla verndara blakliðs Skauta-
félags Akureyrar. Að sögn
Magnúsar byrjuðu þessar æfingar
haustið 1972 eða fyrir rúmun tíu
árum en fáum hefði líklega dottið
í hug þá að hinir bakveiku yrðu
síðar margfaldir íslandsmeistarar
í blaki.
- Það voru einir 12 til 15 sem
mættu í fyrsta íþróttatímann og
þessi fjöldi hefur haldist nokkuð
jafn ölí árin. Ætli við höfum ekki
verið flestir 19 talsins, segir
Magnús, en getur þess jafnframt
að það sé ómögulegt að segja til
um það nákvæmlega hvenær hin-
ir bakveiku breyttust í blaklið.
- Þetta var ákaflega hæg þróun
og þetta kom svona hægt og síg-
andi. Fyrst kunnum við sama og
ekkert að spila og það er ekki fjarri
því að ætla að það hafi tekið okkur
svona þrjú ár að verða sæmilega
færir. Það var einmitt um svipað
leyti sem fyrsta öldungakeppnin í
blaki var haldin og við ákváðum að
senda lið. Okkur vegnaði þó ekki
vel í þessu fyrsta móti enda vorum
við slegnir út af þeim sem nú eru
hörðustu keppinautar okkar, Sund-
félaginu Óðni.
- Af hverju keppið þið fyrir
Skautafélag Akureyrar?
- Það er nú eiginlega þannig til-
komið að við urðum að keppa
undir einhverju félagsmerki í þess-
um mótúm og innan okkar raða
voru að sjálfsögðu harðir KA-menn
sem vildu keppa fyrir KA og harðir
Þórsarar sem vildu keppa undir
merkjum Þórs. Til að forðast tog-
streitu af þessu tagi þá ákváðum við
að keppa fyrir eitthvert lítið félag
og þar sem nokkrir af félögum okk-
ar höfðu verið einir af allra bestu
skautamönnum sem Akureyringar
hafa átt, þá ákváðum við að keppa
fyrir Skautafélagið.
Þó ekki hafi blásið byrlega fyrir
„öldungunum“ úr Skautafélaginu
fyrsta árið í blakkeppninni, þá
mættu þeir tvíefldir til leiks árið
eftir og höfnuðu þá í öðru sæti á
eftir ísfirðingum. Þriðja árið slógu
Íieir svo loks í gegn og unnu fyrsta
slandsmeistaratitilinn. Næstu ár á
eftir mátti SA sætta sig við annað
sætið en síðast liðin tvö ár hefur fé-
lagið svo unnið íslandsmeistaratitil-
inn eftir harða keppni m.a. við fé-
lagana úr Sundfélaginu Óðni á Ak-
ureyri.
- Við höfum undanfarin ár sent tvö
lið í mótið og B-liðið okkar hafnaði
nú í neðsta sæti fyrstu deildarinnar.
Það má því vel vera að það lið falli
í aðra deild en eins gæti hent að við
héldum okkur uppi ef það verður
fjölgað í deildinni, segir Magnús en
— segir
Magnús
Ólafsson
tekur skýrt fram að það sé ekki
keppnin eða sigurviljinn sem reki
þá áfram - númer eitt sé að hafa
gaman að þessu. Þetta sé skemmti-
legt og gott trimm og félagsskapur-
inn sé góður.
- Þetta hefur reyndar orðið til þess
að þessi „bakveiki" hópur er orðinn
að góðum og samhentum félags-
skap og við gerum mikið meira en
bara að spila blak saman tvisvar í
viku. Við komum saman á sumrin,
förum í stuttar skemmtiferðir og
grillum saman með fjölskyldunum,
segir Magnús.
- En hvernig skyldi svo bakverkur-
inn vera. Eru allir orðnir góðir í
bakinu?
- Við höfum ekki þurft að hafa
áhyggjur af bakverknum undanfar-
in ár en samt sem áður höfum við
verið dálítið kærulausir í vetur og
ég vil endilega að við tökum þetta
fastari tökum í framtíðinni. Það
verður ekki aftur tekið ef liðið
leggst í bakveiki, sagði Magnús
Ólafsson „verndari öldunganna“ í
blakliði Skautafélags Akureyrar að
lokum.
Fyrst gekk allt á afturfótunum
og sumum var Illa viö blakidu
— segir Haukur Haraldsson
- Upphaf þessa ævintýris fyrir
mér var það að ég las auglýsingu
í Degi um leikfimitíma fyrir bak-
veika. Ég hafði átt í erfiðleikum
með bakið vegna hryggskekkju
og ekki bætti úr skák að ég var
kyrrsetumaður og vann langan
vinnudag. Mér þóttu því þessir
leikfimitímar sem auglýstir voru
í blaðinu gullið tækifæri til þess
að ráða a.m.k. einhverja bót á
þessum vanda, segir Haukur
Haraldsson en hann er einn
þeirra sem verið hafa með í blak-
liði Skautafélags Akureyrar frá
upphafi.
- Það voru mættir einir 15 menn
á fyrstu æfinguna hjá Magnúsi og
ég man það að fyrstu tímarnir fóru
allir í ýmiss konar þrekæfingar og
styrkjandi æfingar fyrir bakið. í
þessum tímum fann ég glögglega
hve ég var orðinn illa haldinn lík-
amlega og hve þörfin fyrir hreyf-
ingu af þessu tagi var orðin mikil,
segir Haukur og getur þess enn-
fremur að fljótlega hafi þeir einnig
farið að leika sér með bolta í lok
æfingatímanna - svona rétt til að
auka fjölbreytnina.
- Við byrjuðum að leika blak en
ég held að enginn okkar hafi kunn-
að neitt fyrir sér í þessari íþrótt.
Mörgum dauðleiddist þetta sprikl
og allt gekk á afturfótunum til að
byrja með. Menn voru einnig mis-
jafnlega góðir í íþróttinni enda
höfðu sumir okkar ekki komið ná-
lægt bolta áður. Það var því ekki
laust við að þetta reyndi á þolrifin
til að byrja með og ég held jafnvel
að stundum hafi menn skammast
hver út í annan, segir Haukur og
hlær.
Það er rétt að geta þess að eftir
því sem árin hafa liðið hefur sam-
heldni hópsins vaxið mjög og m.a.
koma félagarnir reglulega saman
og ræða leikinn. Brjóta blakið til
mergjar, ef svo má að orði komast
og njóta við það aðstoðar fagmanns
í íþróttasálarfræði. Niðurstaða
þessara umræðna og vangaveltna er
sú að fyrsta boðorðið í leik sé:
„Aldrei að skammast“ - því eins og
Haukur Haraldsson virðir fyrir sér teikningar Tómasar Inga Olrich af „blak-
liðinu bakveika“. Mynd: ESE.
Haukur segir þá skammast sá sem
mistökin gerir sín alveg nægilega,
þó ekki sé verið að bæta þar um.
Það eru því félagslega þenkjandi
menn sem skipa blaklið Skautafé-
lagsins en gefum nú Hauki aftur
orðið:
- Þessi leikfimi sem hófst þarna
fyrir rúmum tíu árum hefur þróast
á ákaflega skemmtilegan hátt. Það
tók okkur ein tvö til þrjú ár að
kynnast almennilega og þegar sá
tími var liðinn þá fórum við að hitt-
ast reglulega til að ræða ýmis
vandamál, bæði utan blaksins og
innan og eins gerðum við okkur
ýmislegt til skemmtunar. Við höld-
um nú árshátíð á hverju ári, förum
einnig reglulega einu sinni á ári
með fjölskyldurnar í Vaglaskóg og
svo tökum við þátt í afmælisveislum
hver hjá öðrum. Ég tel að við séum
orðnir mjög félagslega þroskaðir og
það sem kannski er mest um vert
við höfum eignast marga mjög
góða vini, segir Haukur.
- En hvað með blakkeppnina?
Hvenær byrjuðuð þið að taka þátt
í keppnum?
- Þetta kom svona smátt og
smátt. Við vorum búnir að leika
okkur með bolta í nokkur ár og var
farið að langa til að spreyta okkur
gegn öðrum. Fyrstu leikirnir hafa
líklega verið gegn Sundfélaginu
Óðni, en þeir höfðu þá æft um
nokkurra ára skeið og voru mikið
betri en við. Við töpuðum því alltaf
fyrir þeim til að byrja með en nú
hefur þetta breyst og má vart á mili
sjá hvorir hafa betur. Fyrsta alvöru-
keppnin var hins vegar á íslands-
móti öldunga 1978 en það var jafn-
framt fyrsta alvöruíþróttakeppnin
sem ég tók þátt í. Ég þarf varla að
taka það fram að það var undarleg
og skrýtin tilfinning að vera staddur
þarna inni á vellinum, innan um
dómara og áhorfendur - en þetta
gekk samt allt saman ágætlega þó
svo að við kæmumst ekki í úrslita-
keppnina.
- Hvað hefur þetta keppnisblak
fært ykkur?
- Það er auðvitað skemmtileg
spenna sem fylgir keppninni en það
er ekki minna atriði að við höfum
farið víða og kynnst fjöldanum öll-
um af fólki og eignast marga góða
vini. Það hefur til dæmis skapast
ákveðið samband milli okkar og
blaköldunga á Siglufirði og við eig-
um gagnkvæmar heimsóknir við
þá á hverju ári.
- Hvað með konurnar og fjöl-
skyldurnar?
- Já, konurnar, segir Haukur og
dregur seiminn. Jú, fyrst í stað sát-
um við mikið til að þessu sjálfir en
þetta hefur þróast eins og annað og
við höfum tekið fjölskyldurnar
mikið inn í þennan félagsskap.
Konurnar fara með okkur í
keppnisferðir og eins hafa sumar
þeirra byrjað að leika blak og börn-
in hafa einnig orðið fyrir áhrifum
og byrjað í íþróttinni. Það verður
að segjast að við höfum allir mjög
mikinn áhuga á blakinu og a.m.k.
ég Iegg mikla áherslu á að missa
ekki af æfingum eða keppni. Þetta
hefur vafalaust að einhverju leyti
komið niður á fjölskyldunni en mér
er sérstaklega minnisstætt að einu
sinni kom ég heldur seint heim í
mitt eigið postulinsbrúðkaup. Ég
lofaði því víst að láta þetta aldrei
koma fyrir aftur og mér var fyrir-
gefið en á næsta brúðkaupsafmæli
þá lenti ég í því ásamt félögunum
að taka þátt í niu tíma blakmóti á
vegum KA. Við unnum að vísu
gullið en þetta hefur kennt mér að
lofa ekki of miklu og helst ekki
meiru en maður getur staðið við,
segir Haukur og brosir.
- Áttu einhver heilræði til þeirra
sem enn hafa ekki uppgötvað
blakið?
- Ég er a.m.k. þeirrar skoðunar
að það verði að örva fólk til þess að
taka þátt í almenningsíþróttum.
Blakið er skemmtileg íþrótt sem
veitir líkamlega þjálfun og hefur
jákvæð áhrif á andlega heilsu og ég
vona bara að ég geti leikið blak í
a.m.k. 30 til 40 ár til viðbótar, segir
Haukur Haraldsson.
Tómas Ingi Olrich og
Guðmundur Pétursson
Gult spjald:
Ólögleg hressing
í leikhléi
\ \ / Seiling og net
Ágústsson > ^ (Smiðshögg)
Ásgrimur
Löggild alda-
mótastaða við
afhendingu
gullverðlauna
Ámi Garðarsson
Gunnar
Jónsson
/'Villingadals-
lauma
o
* 'P
Skilyrðislaus
uppgjöf
Þórhallur Bragason og
Magnús Ólafsson
Fleygur
prússneska
afbrigðið
Guðjón Guðmundsson
„Fimma“ =
Varnarmaður í
lögmætu
frumhlaupi við
sóknarteig
Brynjólfur Ingvarsson
Ólöglegur
snertiflötur
við net
Löglegur
snertiflötur qO>
við net
Hreiðar Aðalsteinsson
o
Þóroddur
Jóhannesson
Sá þvær best sem
síðast þvær
Fleygur,
Hríseyjarafbrigði
Steinar Þorsteinsson
Sæmundur
Gauti Friðbjarnarson
Wilhelm Arthúrsson
Uppspil
Reynir
Sveinsson
Andstæðingurinn
veginn og
léttvægur
fundinn Örn Indriðason
6 - DAGUR - 20. maí 1983
20. maí 1983 - DAGUR - 7