Dagur - 18.07.1983, Blaðsíða 6
Þórsarar í toppbaráttuna
- Nú er ég ánægður. Þetta var
virkilega ánægjulegt. Strákarnir
spiludu eins og fyrir þá var lagt,
sérstaklega I fyrri hálfleik og við
uppskárum í samræmi við það og
unnum sanngjarnan sigur, sagði
Björn Árnason, þjálfari Þórs
eftir sigurleik Þórs gegn KR á
föstudagskvöldið. Og gamli KR-
ingurinn hafði sannarlega ástæðu
til að gleðjast. Fyrsti sigur Þórs
á heimavelli á keppnistímabilinu
í höfn og liðið hefur nú alvarlega
blandað sér í toppbaráttuna.
Sigur Pórsara í þessum leik var
eiginlega aldrei í hættu. Strax frá
fyrstu mínútu var ljóst að þeir ætl-
uðu að selja sig dýrt og börðust eins
og Ijón um hvern bolta. Jafnteflis-
kóngar KR máttu sætta sig við að
vera pressaðir í vörn af ákveðnum
sóknarmönnum Pórs sem voru vel
studdir af sterkri vörn með Porstein
Ólafsson eins og öryggið uppmálað
í markinu.
Varla er hægt að segja að KR-
ingar hafi átt færi í fyrri hálfleik en
Þórsarar áttu ein þrjú góð mark-
tækifæri.
Á 35. mínútu braust Helgi Bents-
son í gegn um vörn KR af miklu
harðfylgi og er inn í vítateiginn var
komið hrökk knötturinn í hendi
eins KR-ingsins. Þorvarður
Björnsson, dómari dæmdi þó að-
eins aukaspyrnu rétt fyrir utan teig,
líklega fyrir brot á Helga.
Það kom í hlut Guðjóns Guð-
mundssonar að taka spyrnuna og
gott jarðarskot hans smaug á milli
varnarmanna KR og eftir að Stefán
markvörður hafði haft hendur á
knettinum, hrökk hann í netið.
Sannarlega óvænt mark og fögnuð-
ur Þórsara og áhorfenda mikill.
Undir lok hálfleiks var hinn grófi
varnarmaður KR-inga, Sigurður
Indriðason, áminntur (gult spjald)
fyrir ítrekuð brot á Helga Bents-
syni, en Helgi lék Sigurð nánast
upp úr skónum í þessum leik.
I upphafi fyrri hálfleiks mættu
KR-ingar ákveðnir til leiks og á 51.
mínútu áttu þeir sitt hættulegasta
færi. Sæbjörn Guðmundsson,
hættulegasti framherji KR í leikn-
um einlék þá upp völlinn og gaf vel
fyrir markið þar sem Óskar Ingi-
mundarsson átti gott skot að marki.
Á 64. mínútu tók Helgi Bentsson
eina af sínum mörgu rispum í þess-
um leik og eftir að hann hafði leikið
á nokkra varnarmenn og KR mark-
vörðinn, átti hann gott skot að
marki sem Sigurður Indriðason
varði með höndum á marklínunni.
Vítaspyrna og Guðjón Guðmunds-
son gerði engin mistök við fram-
kvæmd hennar og annað mark
Þórsara og sjötta mark Guðjóns í
1. deild var staðreynd.
Undir lok leiksins var Þorsteinn
Ólafsson áminntur fyrir að segja
dómara leiksins til í knattspyrnu-
reglum og var þetta annað gula
spjaldið í röð sem Þorsteinn fær að
líta.
Áhorfendur á þessum leik voru
um 700 talsins og hefðu þeir að
ósekju mátt vera fleiri.
Skagamenn
á toppinn
ÍA - Víkingur 2:1
Skagamenn mættu mjög ákveðn-
ir til leiks er þeir mættu íslands-
meisturum Víkings á Laugardals-
vellinum. Höfðu ávallt undirtök-
in í fyrri hálfleik og yfirspiluðu
Vfkinga. ÍA komst í 2:0 með
mörkum Harðar Jóhannessonar
og Sigurðar jöpssonar en Ómar
Torfason minnkaði muninn í 2:1
er hann skoraði úr vítaspyrnu.
Undir lok Ieiksins sóttu Víkingar
ákaft og fengu m.a. tvö dauða-
færi en þcim Aðalsteini Aðal-
steinssyni og Óskari Tómassyni
brást skotfimin á markteig.
ÍBK vann / Eyjum
IBV - IBK 1:2
Keflvíkingar unnu nú sinn annan
leik í röð og hafa því lagað stöðu
sína verulega. Freyr Sverrisson
skoraði fyrir ÍBK á 18. mínútu en
Kári Þorleifsson jafnaði metin á
73. mínútu. Það var svo Einar
Ásbjörn Ólafsson sem skoraði
sigurmarkið á 79. mínútu og
Keflvíkingar fögnuðu ákaft í
Ieikslok.
Próttur af botninum
Þróttur - ÍBÍ 1:0
Það má segja að Þróttarar hafi
gert tvennt í senn er þeir sigruðu
IBÍ á Laugardalsvelli. Þeir komu
sér af botninum og blönduðu sér
í toppbaráttuna um leið. Ótrú-
legt en satt og sýnir vel hve
keppnin er jöfn í ár.
Það var Páll Ólafsson sem
skoraði sigurmark Þróttara á 38.
mfnútu leiksins en þetta er jafn-
framt þriðja mark Páls í ár.
Enn eitt jafnteffið
UBK - Valur 2:2
Breiðablik og Valur gerðu enn
eitt jafnteflið í 1. deild er liðin
mættust f Kópavogi í gærkvöld.
Guðni Bergs skoraði fyrir Val á
2. mín. leiksins en Hákon Gunn-
arsson jafnaði fyrir Blikana. Þeir
tóku svo forystuna með marki
Sigurðar Grétarssonar en marka-
kóngurinn Ingi Björn Albcrtsson
tryggði svo Valsmönnum annað
stigið.
Reynir tapar enn
Reynir - UMFN 0:1
Njarðvíkingar tóku bæði stigin cr
iið þeirra mætti Reyni í Sand-
gerði í gærkvöldi. Njarðvfk vann
1:0 og skoraði Haukur Jóhanns-
son sigurmarkið.
KA vann Fylki 1:0
Heimildamaður blaðsins, sem
sá leik Fylkis og KA í Reykja-
vík, sagði að leikurinn hefði
einkennst af baráttu á báða
bóga. KA-menn sóttu mun
meira í fyrri hálfleik þó án þess
að skapa sér veruleg mark-
tækifæri. Dómarinn sleppti
augljósri vítaspyrnu á Fylki í
fyrri hálfleik.
í þeim síðari snerist dæmið við
því þá sóttu Fylkismenn meira en
það var sama sagan, án þess að
skapa sér færi. Það var ekki fyrr
en á 42. mín. sem KA-menn
sendu tuðruna í netið hjá Fylki
og var það úr vítaspyrnu sem
Hinrik skoraði örugglega úr. .
Með þessum sigri eru KA-
menn á toppi 1. deildar
Austri styrkti stöðuna
Stríðsgæfan snerist
Magni - Austri 1:4
Þctta var skringilegur leikur.
Staðan í hálfleik var 0:0 og höfðu
Magnamenn átt allan fyrri hálf-
leikinn og að sögn Kristleifs
Meldal, formanns Magna, þá
áttu heimamenn helst von á því
að þeirra menn myndu raða
mörkum í seinni hálfleik.
Svo fór þó ekki því að í seinni
hálfleiknum snerist dæmið alveg
við og nú voru það Austramenn
sem sóttu og óðu í færum. Bjarni
Kristjánsson skoraði tvö mörk
fyrir Austra en þeir Hjörtur Jó-
hannsson og Sófus Hákonarson
sitt markið hvor. Heimir Ingólfs-
son skoraði fyrir Magna.
Gott hjá HSÞ
Valur - HSÞ 2:3
Þingeyingar gerðu sér lítið fyrir
og sóttu tvö stig til Reyðarfjarðar
á laugardag. Að sögn Róberts
Agnarssonar, þjálfara HSÞ, þá
var þessi leikur ágætlega leikinn
af þeirra hálfu og staða liðsins
nú bærileg.
Staðan í hálfleik var 3:1 HSÞ í
vil. Ari Hallgrímsson skoraði
tvívegis og Þórhallur Guðmunds-
son einu sinni. Óli Sigmarsson
skoraði bæði mörk heimamanna,
sitt í hvorum hálfleik.
HSÞ er nú komið með sex stig
og á næsta vís tvö stig til viðbótar
úr kæruleik gegn Magna. Magni
vann þann leik en héraðsdóm-
stóll dæmdi HSÞ stigin en málinu
hefur nú verið áfrýjað.
Sindri enn stigalaus
Sindri - Huginn 0:2
Það gengur allt á afturfótunum
hjá Sindra frá Hornafirði þessa
dagana og liðið er enn ekki kom-
ið á blað í þriðju deild B.
Nú síðast töpuðu Sindramenn
0:2 gegn Huginsmönnum frá
Seyðisfirði. Leikmenn Hugins
mættu ákveðnari til leiks og á 15.
mínútu skoraði Sveinbjörn Jó-
hannsson fyrir Hugin úr víti.
Leikmenn Sindra komu meira
inn í leikinn í seinni hálfleik en
eftir að Kristján Jónsson skoraði
fyrir Hugin á 70. mínútu var all-
ur vindur úr heimamönnum og
Huginn hefði átt að geta bætt við
mörkum.
Leiftur með sex mörk
4. deild:
Skyttur á glóðum
Glóðafeykir - Skytturnar 3:1
Skytturnar frá Siglufirði eru
greinilega ekki búnar að gull-
fægja skotskóna því liðið gerði
aðeins eitt mark í leiknum gegn
Glóðafeyki í Skagafirði á laugar-
dag.
I byrjun leit þó allt ljóst út fyrir
Skytturnar því Guðbrandur
Ólafsson þrumaði knettinum í
netið strax í byrjun. En Glóða-
feykismenn létu það ekki á sig fá
og Árni Lárusson jafnaði metin
tyrir leikhlé. Kári Marísson,
körfuknattleiksmaðurinn kunni,
kom Glóðafeyki svo yfir og Gylfi
Halldórsson „glóðaði" svo Skytt-
urnar er hann bætti þriðja mark-
inu við.
fyrir að leikurinn væri nokkuð
jafn tókst HSS ekki að jafna.
Annars setti rokið og rigningin
svip á leikinn og varð hann aldrei
mjög skemmtilegur á að horfa.
Hvatarmenn sigruðu
Hvöt - HSS 1:0
Tvö stig í vaskinn
Vaskur - Leiftur 0:6
Hinir vösku sveinar í Vaski frá
Akureyri áttu aldrei hina
minnstu möguleika gegn Leiftri
frá Ólafsfirði er liðin mættust á
Akureyri.
Lokatölur urðu 6:0 Leiftri í vil
eftir að staðan hafði verið 4:0 í
hálfleik. Halldór Guðmundsson
og Hafsteinn Jakobsson gerðu
tvö mörk hvor og þeir Geir
Hörður Ágústsson og Helgi Jó-
hannsson sitt hvort markið.
Það má því segja að tvö stig
hafi farið í vaskinn að þessu sinni
hjá Vaski.
um leik er hann skoraði í fyrri
hálfleik.
Leikurinn var annars í jafn-
vægi allan tímann og ef eitthvað
er þá sóttu Vorboðar meira í fyrri
hálfleik en Árroðar í þeim seinni.
En það voru sem sagt Vorborðar
sem roðnuðu að lokum og töp-
uðu leiknum 0:1.
Leikmenn Hvatar tóku illa á móti
nágrönnum sínum úr HSS og
sendu þá heim stigalausa.
Ellert Svansson skoraði fyrir
Hvöt í síðari hálfleik og þrátt
Roðinn sigraði
Boðinn
Árroðinn - Vorboðinn 1:0
Það var Rúnar Arason sem
tryggði Árroðanum sigur í þess-
Svarfdælir með sigur
„sjálfs(ímark
Reynir - Svarfdælir 2:1
Albert Ágústsson var í sviðsljós-
inu er Reynir sigraði Svarfdæli
með 2:1 í fjórðu deildinni. Albert
gerði sér nefnilega lítið fyrir og
skoraði með þrumuskoti en það
versta við þetta mark var að það
var skorað í eigið mark.
Svarfdælir voru annars fyrri til
að skora í leiknum. Jón Gunn-
laugsson skoraði gott mark en
Reynir náði að jafna skömmu
síðar. Síðan kom sjálfsmarkið
góða og reyndist það sigurmark
Reynis. Reynismenn fengu þó
tækifæri til að auka muninn en
Sigurvin Jónsson, markvörður,
gerði sér lítið fyrir og varði víta-
spyrnu Reynismanna.
Fjölmargir kylfingar af öllum
flokkum gæða tóku þátt í Akur-
eyrarmótinu í golfi sent lauk á
Jaðarsvelli á laugardag. Mæðgin-
in Inga Magnúsdóttir og Magnús
Birgisson sigruðu í mcistara-
ílokkunum vcrðskuldað en keppt
var í einum flokki kvcnna, þrem-
ur flokkum karla og drengja-
flokki. Efstu menn urðu þessir:
Konur:
Inga Magnúsdóttir
Jónína Pálsdóttir
Auður Aðalsteinsdottir
365
382
413
6 - DAGUR - 18. júlí 1983