Dagur - 27.07.1983, Síða 6
Pólitísku
- Heimsókn í Lystigarði
„Vildi frekar
vera í flekk
úti á túni“
- segir Óttar Viðar á Húsavík
Ég hef séð hann daglega
manninn með slátturofið.
Hann siær ýmiss opin svæði í
bænum með orfinu sinu.
Hann er einn af starfsmönn-
um bæjarins sem hefur það
hlutverk að gera Húsavík að
fallegri og snyrtilegri bæ.
Hann var að slá blettinn fyrir
norðan Mjólkursamlagið
þegar mig bar að.
- Óttar Viðar, hvert er þitt
starf?
„Það felst í því að fara með
slátturofið yfir þau svæði sem
venjulegar sláttuvélar ná ekki
til, t.d. á leikvöllum bæjarins.“
- Hvernig kanntu við þessa
vinnu?
„Æi, þetta er nú heldur
þreytandi að vera í þessu allan
daginn, ákaflega einhæf vinna
og tilbreytingarlaus. Annars er
þetta sjálfsagt ekkert verra en
hvað annað.“
- Hefur þú starfað lengi hjá
bænum Óttar?
„Nei, við hjónin erum nýflutt
hér í bæinn, eftir að hafa stund-
að búskap í aldarfjórðung."
- Eru ekki mikil viðbrigði
fyrir bændafólk að flytja í kaup-
stað eftir 25 ár í sveitinni?
„Jú, ekki get ég neitað því.
Lífsmátinn í þéttbýlinu er ger-
ólíkur því sem hann er í sveit-
inni. Hin vegar þurfum við ekk-
ert að kvarta. Við vorum hepp-
in með húsnæði, keyptum Ijóm-
andi gott hús. Konan er líka í
fastri vinnu og hvers getum við
óskað okkur frekar? Hitt er svo
annað mál að á þessari stundu
Þær voru önnum kafnar í lysti-
garðinum við Búðará þegar ég
átti þar leið um. Það var glaða
sólskin og heiður himinn og
vinnugleðin skein úr andlitum
þeirra. Ásta Jónsdóttir og
Guðný Jósepsdóttir, báðar í
kvenfélaginu. Það félag hefur
unnið mikla og fórnfúsa sjálf-
boðaliðsvinnu í lystigarðinum
enda lætur árangurinn ekki á sér
standa, því garðurinn er orðinn
mikið augnayndi. Ég settist niður
á grasbala og horfði á þær reyta
ara og aðra óáran sem gerir oft
skráveifur í svona görðum. Áður
en varir er ég farinn að spjalla við
þær og þær eru farnar að segja
mér eitt og annað um þennan fal-
lega garð. Ásta segir að fyrstu
plönturnar hafi verið settar niður
sumarið 1975. 300 fyrsta árið en
Þröstur Eysteinsson starfsmaður Lystigarðsins á Húsavík, ásamt Sóleyju
dóttur sinni.
Ásta Jónsdóttir og Guðný Jósefsdótt
Myndi
hefði ég óskað þess miklu frem-
ur að vera einhvers staðar í
flekk úti á túni heima í Kinn.“
- Saknarðu sveitalífsins?
„Já, það má eiginlega segja
það, þar á maður sínar rætur.
Samt sem áður líkar okkur vel
að búa á Húsavík. Fólkið hér er
gott og ég held að öllum líði
vel.“
Óttar Viðar saknar sveitarinnar.
síðan hefði árlega bæst mikið við.
„Rotary-menn hafa verið mjög
duglegir hérna í garðinum,“ segir
Ásta. „Á hverju ári hafa einn eða
fleiri fundir þeirra verið fólgnir í
allskyns vinnu í garðinum. Póli-
tísku flokkarnir voru líka með
garðrækt og gríðarmikinn um-
hverfisáhuga í fyrra fyrir kosn-
ingar, enda sendu þeir vaskar
sveitir hingað í garðyrkjuna.“
Ég spurði þær stöllur hver
hefði átt hugmyndina að þessum
lystigarði. Ásta sagði það ekki
ljóst en tilgreindi nokkra aðila
sem sýnt hefðu því máli áhuga á
árum áður. Guðný benti á að
enginn aðili hefði sýnt þessu máli
Ullen dúllen í Sjallanum
Revíuflokkurinn Úllen dúlien,
ásamt hljómsveit Björgvins
Halldórssonar verður í Sjallan-
um um næstu helgi, laugar-
dags-, sunnudags- og mánu-
dagskvöld.
Þessi sami flokkur fór um land-
ið þvert og endilangt í fyrra og
gerði stormandi lukku hvar sem
hann kom. í Úllen dúllen flokkn-
um eru Randver Þorláksson, Sig-
urður Sigurjónsson, Björgvin
Halldórsson, Magnús Kjartans-
son og Þórhallur Sigurðsson sem
betur er þekktur undir nafninu
„Laddi“.
Sýning Úllen dúllen byggist á
stuttum försum sem tvinnast
saman við tónlist af ýmsum toga.
Allir eiga að finna eitthvað við
sitt hæfi.
Að loknum sýningum um helg-
ar verður slegið upp dansleikjum
þar sem hljómsveit Björgvins
Halldórssonar sér um fjörið.
Hana skipa auk Björgvins og
Magnúsar Kjartanssonar þeir
Hjörtur Howser, Haraldur Þor-
steinsson og Smári Eiríksson.
Landsreisa þeirra félaga hefst
í Sjallanum um verslunarmanna-
helgina en síðan verða þeir á
Siglufirði 5. ágúst og í Miðgarði
6. ágúst. 7. ágúst verða kapparnir
í Sjallanum á ný en 11. ágúst
verða þeir á Húsavík.
6 - DAGUR - 27. júlí 1983