Dagur - 28.09.1983, Blaðsíða 8
Þingeyingar
Norðlendingar
DANSLEIKUR
verður í ÍDÖLUM
Næstkomandi laugardagskvöld 1. okt. kl. 22 - 02.
Af nýslátruðu
Hjörtu ★ Lifur ★ Nýru
Námskeið:
Teiknun og málun fyrir börn og ung-
linga.
1. fl. 5-6 ára. Einu sinni í viku.
2. fl. 6-7 ára. Einu sinni í viku.
3. fl. 8-9 ára. Einu sinni í viku.
4. fl. 10-11 ára. Tvisvar í viku.
5. fl. 12-13 ára. Tvisvar í viku.
6. fl. 13-14 ára. Tvisvar í viku.
Teiknun og málun fyrir fullorðna.
1. fl. Byrjendanámskeið I. Tvisvar í viku.
2. fl. Byrjendanámskeið II. Tvisvar í viku.
3. fl. Framhaldsnámskeið I. Tvisvar í viku.
4. fl. Framhaldsnámskeið II. Tvisvar í viku.
5. fl. Myndlistardeild. Tvisvar í viku.
6. fl. Myndlistardeild (frh). Tvisvar í viku.
Byggingarlist.
1. fl. Híbýlafræði. Tvisvar í viku.
2. fl. Byggingarlist og híbýlafr. Tvisvar í viku.
Grafík.
1. fl. Dúk-og trérista. Tvisvar í viku.
2. fl. Dúk- og trérista (frh). Tvisvar í viku.
Letrun.
1. fl. Skrift og leturgerð. Tvisvar í viku.
2. fl. Skrift og leturgerð (frh). Tvisvar í viku.
Listasaga.
1. fl. Listasaga. Einu sinni í viku.
2. fl. íslensk listasaga. Einu sinni í viku.
3. fl. Nútíma listasaga. Einu sinni í viku.
Modelteiknun.
1. fl. Teiknað eftir lifandi fyrirmynd. 2 í viku.
2. fl. Teikn. eftir lifandi fyrirmynd (frh) 2 í viku.
Texti'l.
1. fl. Myndvefnaður. Tvisvar í viku.
2. fl. Myndvefnaður (frh). Tvisvar í viku.
3. fl. Quilting (búta- og vattsaumur). Einu
sinni í viku.
4. fl. Quilting (búta- og vattsaumur). Einu
sinni í viku.
Allar nánari upplýsingar og innritun í síma 24958
kl. 13-18.
Námskeiðsgjald má greiða í tvennu lagi.
Síðustu innritunardagar.
Skólastjóri.
Minning
LÝÐUR SIGTRYGGSSON
Lýður Sigtryggsson er ekki leng-
ur á meðal vor. Með honum er
genginn gegn og góðviljaður
maður, dugandi starfsmaður,
sem kunni í öllu vel til verka, og
maður, sem bar hlýju til sam-
borgara sinna. Lýður varð aðeins
63 ára gamall. Eftir stendur opið
og ófyllt skarð öllum þeim, sem
kynntust honum og fengu tæki-
færi til að starfa með honum.
Lýður er fæddur í Hrísey 6.
júlí 1920 en flutti til Akureyrar á
barnsaldri með foreldrum sínum
Önnu Lýðsdóttur og Sigtryggi
Sigurðssyni. Þar ólst hann upp til
18 ára aldurs en þá fór hann til
náms við Musikkonservatoriet í
Osló í 4 ár. Lýður settist að hér í
Noregi og átti hér heima til
dauðadags.
Lýður Sigtryggsson fluttist frá
heimabæ sínum Akureyri til Nor-
egs árið 1939, þá aðeins 19 ára
gamall, og stundaði nám í fjögur
ár við Musikkonservatoriet í
Osló. Hann varð snemma kunnur
virtuós á hljóðfæri sitt, harmón-
ikuna, og voru það þá einkum
klassísk verk, sem hann lék. Árið
1946 varð hann Norðurlanda-
meistari í samkeppni, sem haldin
var í harmónikuleik, þar sem
komu þátttakendur frá öllum
Norðurlöndunum. Árin þar á
eftir ferðaðist Lýður víða og hélt
hljómleika og gat sér auk þess
gott orð sem frábær undirleikari
hjá kunnum norskum söngvur-
um.
En Lýður átti sér fjölmörg
áhugamál, og eitt af þessum
áhugamálum hans varð þess
valdandi að hann réðst starfs-
maður í sirkus, fyrst sem hljóm-
listarmaður en síðar sem fram-
kvæmdastjóri. í norskum sirkus-
heimi var hann eins og klettur úr
hafinu, styrkur og staðfastur, allt
frá því hann hóf þar störf um
1950 og þar til hann lést svo skyndi-
lega. Lýður miðlaði okkur sam-
starfsmönnum sínum af þekkingu
sinni og starfsvilja.
Þegar Cirkus Merano hóf starf
sitt fyrir níu árum vissi ég, að við
hiið mér hafði ég þann starfs-
mann sem fremstur var í grein
sinni í öllum Noregi, og ég fékk
notið þeirrar gleði að starfa með
honum allt til dauðadags. Hann
var helsti aðstoðarmaður minn
og hægri hönd en auk þess góður
vinur. Hann naut sannrar gleði í
öllu lífi sínu og einkum veitti
tónlistin honum mikla ánægju.
Sem ungur maður í heimalandi
sínu var hann dugandi íþrótta-
maður. Alla tíð var ísland hjarta
hans næst, þótt hann ynni hinu
nýja heimalandi sínu einnig.
Lýður bjó yfir mikilli þekkingu
um tónlist, sögu og menningu, og
þessi þekking hans og innsæi
gæddu sögu hans lífi og svip sem
aldrei gleymist.
Lýður Sigtryggsson var hvort
tveggja í senn, hugsjónamaður
og fjölskyldumaður, sem sinnti
fjölskyldu sinni af alúð en gaf sér
einnig tíma til að veita samferð-
armönnum sínum hvatningu og
umhyggju í daglegu stríði.
Lýður kvæntist eftirlifandi
konu sinni Klöru, fædd Strand, 1.
mars 1947 á Akureyri. Þau eign-
uðust eina dóttur Lill-Ann sem
nú býr í Noregi.
Allir sem þekktu Lýð Sig-
tryggsson, bæði vinir hans og ætt-
ingjar, munu sakna mannsins og
starfsbróðurins. Friður sé með
honum og minningunni um hann.
Knut Dahl, sirkusdirektör, Noregi
Við áttum saman fjóra dásam-
lega daga í nóvember síðastliðn-
um, er ég heimsótti hann og konu
hans eftir að ég hafði verið á
námskeiði lengra norður í Nor-
egi. Þetta var í níunda sinn sem
ég dvaldi hjá frænda en fremur
stutt í þetta sinn.
Ég var orðin 7 ára er ég sá Lýð
í fyrsta sinn, en þá kom hann í
fermingu systur minnar. Það er
ekki að orðlengja það að ég fékk
ofurást á þessum útlenda frænda
mínum og hvort sem honum lík-
aði betur eða verr þá sat daman
öllum stundum í fanginu á hon-
um eða hélt í hendina á honum.
Það liðu 5 ár þar til ég sá frænda
næst og allan þann tíma skrifaði
ég samviskusamlega mörg og
löng bréf til hans svo ég gæti ver-
ið viss um að hann gleymdi mér
ekki.
Bestu og skemmtilegustu
endurminningarnar í lífi mínu
eru frá sumrinu ’75, en þá var ég
þrjá og hálfan mánuð hjá frænda
í Cirkus Meranó og ferðaðist
með honum landið endilangt. Þá
breyttist álit mitt á Lýð í meira og
annað en bara góðan frænda.
Hann var strangur og ég komst
ekki upp með neitt, enda sá ég
fljótt að lífið í cirkus er enginn
leikur. Starfsfólki hélt hann vel
og fann ég að hann var vinsæll.
Við vorum á þönum út um allt
allan daginn en á kvöldin áttum
við oft góðar stundir saman
Klara, Lýður og ég. Hlýddi hann
mér þá yfir norskukunnáttu mína
eða sagði mér sögur. En þær voru
ófáar sögurnar sem hann kunni,
um gömlu Akureyri, fólk og at-
burði úr stríðinu. Efnið var
kannski nauðaómerkilegt en frá-
sögnin var oftast þannig að við
veltumst um af hlátri, og þá
spurði Klara hvað væri svona
fyndið og Lýður varð að endur-
taka allt á norsku aftur og ekki
varð sagan verri við það.
Þetta sumar var landsleikur
milli Norðmanna og íslendinga
og frændi vissi ekki með hvoru lið-
inu hann átti að halda, frekar
þó Norðmönnum af gömlum
vana. Við límdum okkur fyrir
framan sjónvarpið þennan dag
vel birg af góðgæti og ekki leið á
löngu þar til fólk í næstu hús-
vögnum var farið að gægjast út til
að athuga hvað gengi á. Þið hefð-
uð átt að sjá hann og trúðaatriðið
í cirkusnum fannst mér lélegt
eftir þetta.
Eftir þetta sumar fór ég nærri
ár hvert til Noregs og dvaldi alltaf
eitthvað hjá þeim hjónum eða
Lill-Ann dóttur þeirra. Það verð-
ur tómlegt næst, en þá fyrst held
ég að ég uppgötvi að elsku frændi
er farinn og kemur aldrei aftur.
Ég á mjög erfitt með að sætta mig
við þá hugsun.
En nú vona ég bara heitt og
innilega að minn góði og elsku-
legi frændi sé á góðum stað og að
honum líði vel og að það sé til
annað líf svo við getum hist aftur
og hlegið að nokkrum góðum
sögum.
Edda Herniannsdóttir.
Nauðungaruppboð.
Laugardaginn 8. október 1983 kl. 14.00 verður selt
á nauðungaruppðboði við lögreglustöðina í Þór-
unnarstræti á Akureyri, eftir kröfu innheimtu-
manns ríkissjóðs, Gjaldheimtunnar í Reykjavík,
bæjarfógetans á Húsavík og ýmissa lögmanna,
iausafé sem hér segir:
Bifreiðarnar: A-2737, A-8736, A-2120, A-1547,
A-4821. A-1058, A-4297, A-6440, A-6109, A-4950,
A-5035, A-4020, A-8216, A-6007, A-8385, Ö-1147,
A-8315, A-5549, A-8225. A-8747, A-1226, A-5742.
A-8580, A-7145, A-2894, A-4675, A-§397, G-13353,
A-2068, A-5568, A-5465, A-5042, A-8038, A-3948,
A-1139, A-2183, A-6973, A-4668, A-761, A-8215,
A-5715, A-3467, A-7232, R-38599, A-4801,
A-5434, A-7528, A-3840, A-8281, A-3341, A-6574,
A-8532, A-5673, A-4150, A-5361, A-945, A-7069,
A-2660, A-4869, A-8545, A-440, A-7374, A-5877,
A-2006, A-4465, A-5659.
Þá verður selt: Videótæki Toshiba Beta, Ritsafn Hall-
dórs Laxness 46 bindi, Ritsafn Þórbergs Þórðarsonar
13 bindi, Krafa Malar- og steypustöðvarinnar hf. á
hendur Söltunarfélagi Dalvíkur 30,000.- krónur, Tölva
commedore, Vinnuskúr I0m2, litasjónvarp 22” Philips,
hornsófasett 7 manna Ijósgrænt, hægindastóll með
brúnu leðurlíki, brúnt sófaborð, hljómflutningstæki
Yamaha auk 2ja hátalara, tölvuorgel „Coscoe“, lita-
sjónvarp Loewe, sófasett brúnt 6 manna, hljómflutn-
ingstæki Sharp, sófasett Onassis, víraþrykkivél Nike
Type 35 HMP-3, kasettusegulband Marantz 5120 og
Dual plötuspilari með tveimur hátölurum, þvottavél
„Lavalux", sófasett og stóll með brúnu plusáklæði,
borðstofuborð og sex stólar, stereosamstæða „Ken-
wood“ magnari útvarp og tveir hátalarar, málverk eftir
Óla G. Jóhannsson ca. 1.50X1 m. hvít hillusamstæða
og fleira.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema
með samþykki uppboðshaldara.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn Akureyri.
0 - D'AGUFT - 28.' sepféhibér Í983