Dagur - 21.10.1983, Blaðsíða 9
Nýtt frá
Jóni sjö-
volta
Hin nýja kvikmynd Travolta “Stayin’
alive“ hefur nú verið frumsýnd í Bretlandi
og víðar og hefur myndin að vonum feng-
ið misjafna dóma. Tíðindamaður Dags
átti þess kost að sjá myndina í Lundúnum
fyrir skömmu og út frá hreinu skemmt-
analegu sjónarmiði er alveg óhætt að
mæla með þessu “Broadway-stykki" Jóns
sjövolta.
Að vísu fer ekki mikið fyrir söguþræði
í myndinni en leikstjórinn Sylvester
Stallone (Rocky) og Travolta hafa þarna
gert mynd sem trúlega gefur nokkuð
raunsanna mynd af því sem gerist bakatil
á Broadway. Ekkert er til sparað til að
gera allt sem glæsilegast og tónlist og
sprikl falla eins og flís við rass hvort að
öðru. Vert er að gefa leigubílstjóradóttur-
inni Finolu Hughes gaum í þessari mynd -
en kunnugir telja hana vinna meiriháttar
leiksigur. A.m.k. er öruggt að útlitið á
ekkert eftir að þvælast fyrir henni á refil-
stigum kvikmyndagerðarinnar.
Húðmálun! !
Ekki er öll vitleysan eins hefur verið kjörorð þess-
arar síðu og það nýjasta sem við höfum frétt af á
„vitleysisvettvangi" er húðmálum sem farið hefur
eins og eldur í sinu um heldrimannabyggðir í St.
Tropez þeim ljúfa sumardvalrastað.
Pað er Denis Saint Seauvage sem hrundið hefur
þessari húðmálunaröldu af stað og nú þykir eng-
inn maður með mönnum, né skvísa með skvísum,
nema viðkomandi hafi komist í kynni við pensil-
inn hans Denis.
Til að gefa smá hugmynd um það um hvað
húðmálun snýst þá eru hér nokkur sýnishorn og
ekki er annað að sjá en að listin mæli með sér
sjálf.
Hún er hrærivél, hakkavél, kvörn, rifjárn,
ávaxta- og grænmetiskvörn og hristari og
það er hreint ótrúlegt hvað hún getur.
BRflUn Multipractic Plus
Þetta er „allt í einni“
eldhúsvélin frá Braun.
Bókin „Ljóðþrá“
úrval Ijóða og sálma eftir föður minn Valdemar
Snævarr, fyrrverandi skólastjóra, fæst hjá undirrituð-
um og kostar hún kr. 400.00 innbundin. Góð bók og
tilvalin til tækifærisgjafa.
Stefán Snævarr, Hólavegi 17, Dalvík. Sími: 61350,
Ragnhei&ur Steindórsdóttir í My fair Lady.
Leikfélag Akureyrar frumsýnir
My fair Lady
21. október kl. 20.30. UPPSELT.
Leikstjóri: Þórhildur Þorleifsdóttir.
Hljómsveitarstjórn: Roar Kvam.
Leikmynd: Jón Þórisson.
Búningar: Una Collins.
Lýsing: Vi&ar Garðarsson.
í a&alhlutverkum: Ragnheiður Steindórsdóttir
og Arnar Jónsson.
Önnur sýning sunnudag 23. okt. UPPSELT.
Þriðja sýning þriðjudag 25. okt.
Fjórða sýning fimmtudag 27. okt.
Fimmta sýning föstudag 28. okt.
Sjötta sýning laugardag 29. okt.
Sjöunda sýning sunnudag 30. okt.
Athugið. Börn og ellilífeyrisþegar fá 50% afslátt á
miðaverði.
Miðasala opin alla virka daga kl. 16-19. Sýningar-
daga kl. 16-20.30. Sími: 24073.
Leikfélag Akureyrar.
21. október 1983 - DAGUR - 9