Dagur - 02.11.1983, Blaðsíða 7
A flugvellinum var tekið á móti gestunum og hér sjást m.a. Jón G. Sólnes og kona hans heilsa forsetahjonunum.
Gunnar Ragnars, forstjóri
Slippstöövarinnar sagði m.a. í
ræðu sem hann hélt við sjósetn-
inguna:
„Og nú er komið að því að láta
þetta skip fljóta og innan tíðar
verður það fullbúið og reynt fyrir
eigin vélarafli. Við höfum þá trú
hér uppi á íslandi, að skipin hafi
sál og okkur finnst það, sem við
skipasmíðarnar fáumst, að þessi
sál lifni, þegar skipinu er gefið
nafn og því fleytt til sjávar. Þess
vegna er þetta mikil hátíðarstund
fyrir okkur og hvert skip, sem
verður þannig að eins konar lif-
andi verki í höndum okkar er
stolt okkar og við umgöngumst
það sem eigin afkvæmi. Rithöf-
undar sjá verk sín í glæstum
bókum, leikritaskáldin sjá verk
sín á sviði leikhúsanna og það er
með þeirri sömu tilfinningu, sem
við starfsmenn þessa fyrirtækis
sjáum verk okkar, þegar þau
vagga á því stóra sviði, sem fjörð-
urinn okkar hér fyrir utan er, því
það er eiginlega fyrst þá, sem við
sjáum hverju við höfum áorkað.
Ég vil endurtaka ánægju okkar
með það, góðir gestir, að þið
skulið vera hér með okkur í dag
og taka þátt í þessari hátíðar-
stund. Fyrir hönd okkar allra,
sem að þessari skipasmíði höfum
unnið vil ég biðja þessu skipi
blessunar guðs og við óskum
þess, að það skili sér og áhöfn
sinni ætíð farsællega til hafnar.
Megi það gefa íbúum Græn-
höfðaeyja aukna trú á fiskveiðum
og megi það verða til þess að þær
eflist og blómgist til hagsbóta
fyrir efnahag eyjanna.“
Fengur er hinn glæsilegasti, 140 rúmlestir að stærð og mjög fullkominn til
ýmissa veiða, m.a. túnfiskveiða með lifandi beitu.
Áður en hinir tignu gestir komu í Slippstöðina var allt fágað og hreinsað.
Hjá Útgerðarfélagi Akureyringa vann fólk sín störf að mestu óáreitt af hinum mikla fjölda sem var í för með Græn-
höfðingjunum.
Nú erum við tilbúin
Vorum að taka upp:
Ullarefni í jólafatnaðinn í mörgum mynstrum
og falleg efni í telpnakjóla.
Einnig bætist stöðugt við indversku bómullina
ath. salt og pipar komið aftur.
Erum að taka upp gardínur í úrvali.
Indverskir púðar og teppi á einstaklings- og hjónarúm.
Einnig dúkar, svuntur, dagatöl ’84,
jóladúkar og renningar í metratali.
Södahl steintau í úrvali, einnig pottaleppar, diskamottur
grillhanskar, dúkar og renningar, allt í stíl.
Ótrúlegt úrval af smávöru.
Ein glæsilegasta verslun sinnar tegundar,
tryggir gott úrval og góða þjónustu.
Opið á
laugardögum
alkitlsauma
íemman
SKIPAGATA 14 B - SÍMI 96-23504
PÓSTHÓLF 84 - 602 AKUREYRI
Leikfélag Akureyrar
Myfair Lady
Sýningar:
Sjöunda sýning fimmtudaginn 3. nóv. Uppselt.
Áttunda sýning föstudaginn 4. nóv. Uppselt.
Níunda sýning laugardaginn 5. nóv. Uppselt.
Tíunda sýning sunnudaginn 6. nóv.
Ellefta sýning þriðjudaginn 8. nóv.
Hópar utan Akureyrar fá afslátt á miðaverði.
Börn og ellilífeyrisþegarfá 50% afslátt á miðaverði.
Miðasala opin alla virka daga kl. 16-19. Sýningar-
daga kl. 16-20.30. Sími: 24073.
Leikfélag Akureyrar.
Ragnheiður Steindórsdóttir í My fair Lady.
Oskum eftir nema
í framreiðslu
á Hótel KEA.
Upplýsingar gefnar á hótelinu.
Hótel KEA, Akureyri.
Sími 96-22200.
2. nóvember 1983 - DAGUR - 7