Dagur - 14.11.1983, Side 3
01 og gosdrykkir frá Sana
á mun hagstæðara verði
„Okkur fínnst full ástæða til
þess að vekja enn betur en gert
hefur verið athygli á þeim
mikla verðmun sem er á öli og
gosdrykkjum hér á Norður-
landi frá Sana og frá öðrum
framleiðendum,“ sagði Ragn-
ar Birgisson forstjóri Sana/
Sanitas á blaðamannafundi
sem fyrirtækið boðaði til fyrir
helgina.
Tilefni fundarins var að nú er
lokið framkvæmdum við hina
nýju viðbyggingu Sana á Akur-
eyri, einnig að vekja athygli á
nýju maltöli og pepsi og ekki síst
verðmun drykkjanna frá Sana
miðað við drykki frá öðrum gos-
drykkjaframleiðendum hér-
lendis.
„Það er sláandi munur á
verði,“ sagði Ragnar. „Ef við
miðum við lítra af gosdrykkjum
frá okkur þá kosta þeir t.d. á Ak-
ureyri 36,50 kr., kók kostar hér
47,40 kr. og drykkir frá Öl-
gerðinni kosta 50,20 kr. Eg held
að fólk hafi ekki gert sér þetta
nægjanlega ljóst, en ástæðan er
sú að hér á Akureyri starfar fólk
að þessari framleiðslu og við get-
um því boðið lægra verð en
keppinautarnir. Það má setja
dæmið þannig fram að ef við ber-
um saman verð á pepsi og kók
þá fær viðskiptavinurinn eina litla
pepsiflösku í kaupbæti er hann
kaupir lítra af pepsi miðað við að
kaupa lítra af kók.
Úr átöppunarsalnum í Sana.
Það er jafnvel meiri munur á
maltölinu og pilsnernum. Flask-
an af þessum drykkjum kostar
frá okkur 17,00 kr. hér á Akur-
eyri en 22,15 frá Ölgerðinni. Ég
held að Akureyringar og Norð-
lendingar yfir höfuð ættu að gefa
þessu meiri gaum en verið
hefur.“
- Ragnar sagði frá því á fund-
inum að þeir hefðu aukið talsvert
kolsýrumagn í pepsi, sem gerði
það að verkum að drykkurinn
væri mun ferskari og frískari en
áður var. Þá hefur framleiðslan
á maltöli verið stórlega endur-
bætt, og mætti segja að um gjör-
breyttan drykk væri að ræða.
Annars var Ragnari tíðrætt um
verðmuninn sem vissulega er
mikill. Þannig munar 10,90 kr.
hvað pepsi er ódýrara á Norður-
landi en kók, og á gosdrykkjum
frá Sana og Agli Skallagrímssyni
er þessi munur 13,70 kr. á lítra
Sana í vil. Munurinn á flösku af
maltöli og pilsner frá Sana og
Ölgerðinni er 5,50 kr. á flösku
Sana í vil. Þessar tölur eiga við
Akureyri en á öðrum stöðum
norðanlands er munurinn sam-
bærilegur.
Framkvæmdum við nýbygg-
ingu Sana á Akureyri er nú lokið
innanhúss og komin upp þar
mjög góð aðstaða fyrir starfsem-
ina í rúmgóðu og vel búnu hús-
næði og þar starfa um 30 manns.
HAGKAUP
Reykjavík
Akureyri
Njarðvík
14. nóvember 1983 - DAGUR - 3