Dagur - 14.11.1983, Page 7
Getraunaseðillinn litur þannig
út að þessu sinni:
Coventry - QPR 1
Everton - Nott. Forest 1
Ipswich - Arsenal I
Leieester - Man. Utd X
Luton - Birmingham X
Notts C. - Norwich X
Southumpton - WBA 1
Sunderland - Watford 1
Tottenham - Liverpool X
Wolves - Vest Ham 2
Chelsea - Newcastle 1
Derby - Middlesb. 1
Nú í vikunni munu félagar úr hand-
knattleiksdeild KA ganga í hús í
bænum og selja pakka meö jóla-
kortum, umbúöapappír og merki-
miða til fjáröflunar starfi deildar-
innar. Pakkarnir kosta 150 kr.
stykkið sent þykir mjög ódýrt. Eru
bæjarbúar beðnir um að taka sölu-
mönnum vel og styrkja þannig 1.
deiidarlið KA og handknattleiks-
starfið I bænum.
Kristján
þjálfar
Völsung?
Birgir Skúlason
til ÍA
- I»að hefur engin endanleg
ákvörðun verið tekin ennþá en
ég á von á því að við göngum frá
þessu máli fyrir mánaðamótin,
sagði Guðlaugur Bessason, hjá
knattspyrnuráöi Völsungs er
hann var spurður að því hvort
Völsungar væru búnir að ráða
þjálfara fyrir næsta ár.
Eftir því sem Dagur kemst næst
þá mun Kristján Olgeirsson sem
þjálfaði liðið sl. sumar ásamt Helga
Helgasyni, vera „heitasti“ kandi-
datinn í þjálfarastöðuna og Guð-
laugur sagði þaö rétt að Kristján
kæmi sterklega til greina. Önnur
nöfn hefðu einnig verið nefnd en
þetta skýrðist allt á næstunni, sagði
Guölaugur.
Helgi Helgason, meðþjálfari
Kristjáns frá því í sumar mun ekki
hafa áhuga á þjálfun en hann mun
þó leika áfram með liðinu. Einu
mannabreytingarnar sem vitað er
um hjá Völsungum eru að Birgir
Skúlason er fluttur til Akraness.
þar sem hann mun væntanlejga
reyna að komast í lið íslandsmeist-
aranna.
-ESE.
Létt hjá Þórsurum
unnu öruggan 27:16 sigur á slökum Keflvíkingum
Eg vona bara að þessi leikur hafí losað um taugaspennuna
hjá okkur. Annað er ekki um leikinn að segja, sagði Guðjón
Magnússon, þjálfari Þórs í handknattleik eftir leik Þórsara
og IBK á föstudagskvöldið. Og það er vel hægt að taka undir
orð Guðjóns. Leikurinn var ekkert augnayndi en Þórsarar
unnu þó öruggan sigur 27:16
inga.
í byrjun mátti vart á milli sjá
hvort liðið var slakara. Sigurður
Sigurður Pálsson
á afspyrnuslöku liði Keflvík-
Pálsson skoraði fyrsta markið
fyrir Pór og Björgvin Björgvins-
son jafnaði fyrir ÍBK. Þórsarar
náðu svo fljótlega tveggja marka
forystu og henni héldu þeir út
fyrri hálfleikinn. Staðan 11:9 í
hálfleik og þá hafði Sigurður
skorað fimm mörk fyrir Þór og
Björgvin einu betur fyrir ÍBK.
Keflvíkingar skoruðu svo
fyrsta mark síðari hálfleiks en
eftir það var bara eitt lið á vellin-
um. Þórsarar röðuðu mörkunum
og komust í 15:11 og nokkru
síðar í 23:13. Lokatölur urðu
síðan 27:16.
Um lið Keflvíkinga er ekki
mikið að segja. Liðið leikur ákaf-
lega einhæfan handknattleik,
engar langskyttur og þess í stað
er reynt að hnoða boítanum inn
á línuna. Besti maður liðsins var
umræddur Björgvin sem skoraði
átta mörk og hvað gerst hefði ef
Þórsarar hefðu tekið hann úr um-
ferð er ekki gott að segja.
Þósarar léku þennan leik hálf-
klaufalega svo ekki sé meira sagt.
Léku langtímum saman á sama
plani og ÍBK og það var ekki fyrr
en undir lokin, eftir að Guðjón
Magnússon kom inn á að strák-
arnir sýndu hvað í þeim býr.
Einna bestan leik átti Sigurður
Pálsson, sem skoraði níu mörk úr
alltof mörgum skottilraunum. En
Sigurður hefur gott auga fyrir
samleik og átti margar snjallar
línusendingar.
Mörkin: Sigurður 9 (2), Gunnar
M. Gunnarsson 5, Guðjón 4,
Gunnar Gunnarsson 4, Ingólfur
Samúelsson 2, Baldvin Hreiðars-
son 1, Aðalbjörn Svanlaugsson 1
og Davíð markvörður 1 (úr vfti).
Þórsstúlkur
á sigurbraut
Þórsstúlkurnar í handknattleik
virðast staðráðnar í að endur-
heimta sæti sitt í 1. deild og lið
ÍBK var engin fyrirstaða á
þeirri leið, er liðin mættust á
föstudagskvöldið.
Þór vann öruggan sigur 18:9 en
það var samt ekki fyrr en í síðari
hálfleik sem Þórsstúlkurnar
gerðu út um leikinn.
- Þær léku hálf furðulega
Keflvíkingarnir, tóku tvær og
þrjár úr umferð í einu og þetta
sló okkur alveg út af laginu til að
byrja með, sagði Sólveig Birgis-
dóttir í samtali við Dag.
í síðari hálfleik var síðan um
einstefnu að ræða að marki ÍBK
og lokatölur 18:9. Hanna Rún var
atkvæðamest í Þórsliðinu en hjá
ÍBK stóð engin upp úr,- ESE
Allt fór í
baklás
— og Fram sigraði Þór
„Fyrrí hálfleikurinn hjá okkur var hörmulegur. Menn fóru með aUt
púður í það að rífast út í dómara, andstæðinga og jafnvel innbyrðis og
skapið gaf sig strax og á móti blés. Þetta gátum við lagað í leikhlé enda
unnum við síðari hálfleikinn. Við skoruðum 17 stig í fyrri hálfleik á
móti 45 í þeim síðari, og það segir reyndar allt sem segja þarf,“ sagði
Gylfi Kristjánsson þjálfari Þórs í körfuknattleik eftir leik Fram og Þórs
um helgina.
Það voru Þórsarar sem skor-
uðu fyrstu körfu leiksins og var
Konráð Óskarsson þar að verki.
Fram kemst í 3:2 en Eiríkur Sig-
urðsson jafnar úr vítaskoti. Síðan
síga Framarar heldur fram úr en
þegar 10 mínútur eru liðnar af
leiknum er allt í járnum og stað-
an 9:8 Fram í vil. En nú sögðu
Framarar: Hingað og ekki lengra
og næstu sjö mínúturnar skoruðu
þeir 22 stig gegn aðeins tveim
stigum Þórsara. Staðan allt í einu
orðin 31:10 og útlitið allt annað
en bjart. Það sem eftir lifði hálf-
leiksins skiptust liðin á að skora
og staðan í hálfleik var 37:17.
Þórsarar mættu grimmir til
leiks í síðari hálfleik og eftir 15
mínútna leik höfðu þeir minnkað
muninn í 11 stig, 51:62. Þrátt
fyrir góða viðleitni tókst leik-
mönnum Þórs ekki að saxa frekar
á forskotið og þó þeir ynnu hálf-
leikinn 45:43, dugði það ekki til
og öruggur sigur Fram 80:62 var
í höfn.
Þess má geta að Þórsarar léku
án eins af sínum sterkustu
mönnum, Jóns Héðinssonar og
hafði það sitt að segja . Ekki
bætti úr skák að Þórsarar misstu
þrjá menn út af með fimm villur,
þar á meðal besta mann liðsins í
þessum leik, Eirík Sigurðsson.
Stig Þórs í þessum leik skor-
uðu: Eiríkur 18, Björn Sveinsson
16, Ingvar Jóhannsson 11, Kon-
ráð 8, Einar Áskelsson 4, Jóhann
Sigurðsson 2, Stefán Friðleifsson
2 og Hrafnkell Túliníus 1 stig.
Fyrir Fram skoruðu: Davíð Arn-
ar 18, Ómar Þráinsson 17, Þor-
valdur Geirsson 13, Guðmundur
Hallgrímsson 7 og Lárus Thor-
lacius 7 stig.
-ESE
Bjöm Sveinsson stóð sig vel í síðari hálfleik.
í * ^beS'
' ^ fV f s's
Ql Bg M # ^
Dómara hneyksli!
— Þórsarar fóru fýluferð til Selfoss
Þegar körfuknattleikslið Þórs
kom í íþróttahúsið á Selfossi sl.
laugardag til að leika gegn
UMFL í 1. deildinni voru engir
dómarar mættir. Tíminn leið,
klukkan varð þrjú og leikurinn
átti að hefjast, en þegar hana
vantaði 15 mínútur I fjögur
ákváðu Þórsarar að bíða ekki
lengur, enda ekki eftir neinu
að bíða.
Framkoma dómaranna sem
mæta áttu er fyrir neðan allar
hellur, enda á hún eftir að koma
þeim í koll. Ferð Þórsarar leikina
tvo kostaði um 30 þúsund með
gistingu og bílakostnaði, en ferð-
irnar eru alltaf miðaðar við tvo
leiki. Það að dómararnir mættu
ekki kostar aukaferð á Selfoss,
og hafa Þórsarar þegar gert þá
kröfu til KKl að það greiði hana.
Vilyrði hefur þegar fengist hjá
forráðamönnum KKÍ fyrir því að
svo verði. Hins vegar má telja
víst að dómaranefnd KKÍ sem er
með sjálfstæðan fjárhag muni
þurfa að borga brúsann.
Hins vegar virðist liggja bein-
ast við að gefa þeim sem áttu að
dæma frí. Ákvæði eru um það í
reglugerð um körfuknattleiksmót
að lið sem ekki mætir til leiks hafi
fyrirgert rétti sínum til frekari
þátttöku og því á ekki það sama
að gilda um dómarana?
Skortur á lcikskipulagi og lcik-
gleði varð til þess að KA tap-
aði fyrir slöku Stjörnuliði í I.
dcildurkcppninni í handknatt-
leik í íþróttahöllinni á Akureyri
á laugardag. I stað þess að
leika yfírvegað og blokkera
fyrir skytturnar, leystist leikur-
inn upp í hnoð og vitleysu og
leikmönnum Stjörnunnar
veittist þvi létt að innbyrða sig-
urinn.
Það var Eyjóifur Bragason,
stórskytta Stjörnunnar sem skor-
aði tvö fyrstu mörkin í ieiknum
en Magnús Birgisson svaraði með
tveim mörkum úr víturn. Á 12.
mínútu kom Jóhann Einarsson
KA yfir með góðu marki en Eyj-
ólfur jafnaði. KA náði tveggja
marka forystu með mörkum
Kristjáns og Erlings en aftur jafn-
aði Stjarnan. Á þessu tímabili
misnotuðu KA-menn tvö víta-
köst sem Brynjar markvörður
Stjörnunnar átti létt með að
verja. Staðan þvi 5:5. Staðan í
háifleik 8:7.
Þorleifur skoraði fyrir KA í
upphafi síðari hálfleiks en síðan
komu fjögur Stjörnu-mörk í röð.
Erlingur Kristjánsson fékk nú
loks hjálp frá samherjum sínum
og skorar með þrumulangskoti.
Staðan 11:10 Stjörnunni í vil en
Magnús Teitsson eykur muninn
með marki úr hraðaupphlaupi.
Aftur cr blokkerað fyrir Erling í
næstu sókn og það var ekki að
sökurn að spyrja þrumuskot hans
hafnaði í netinu.
Þegar 15 mínútur voru tii leiks-
Þorlcifur
loka var staðan 13:12 Stjörnunni
f hag en á þessum tínia var tveim
KA-mönnum vikið af leikvelli
með stuttu millibili. Þetta not-
færði Stjarnan sér og staðan
breyttist í 15:12. Áhugi KA-
manna á leiknum virtist cinnig
dofna um svipað ieyti og Garð-
bæíngar gengu á lagiö. Komust í
21:15 en lokatöiur urðu 22:17
fyrir Stjörnuna.
Liö Stjörnunnar hefur komið
gífurlega á óvart fyrir slappleika
í ár. Á pappírunum er iiðið geysi-
sterkt. Brynjar landsliðsmark-
vörður í markinu, Eyjólfur
Bragason, Magnus Teitsson.
Guðmundur Þórðarson og Gunn-
ar Einarsson (þjálfari sem kom
að vísu ekki inn á) eru allt nöfn
sem skjöta andstæðingnuni skelk
t bringu og auk þess skarta Garð-
bæingar tveint nýjum stjörnum
Bjarna Bessasyni, fyrrum stór-
skyttu úr ÍR og Hannesi Leifssyni
stórskyttu úr Fram. Miðað við
þetta mannval er árangur liðsins
vægast sagt dápur og liðið lék
ömurlega á köfium gegn KA.
En því miður fyrir KA, þá voru
þeir ekkj menn til að nýta sér
dapran dag Stjörnunnar og það
sem fyrst vekur athygli er að leik-
skipulag liðsins virðist í molurn.
Sóknarleikurinn er fálmkenndur
og það er f hæsta máta óskiljan-
legt að lítið sem ekkert er gert af
þvi' að hjáipa Erlingi sem er eina
frambærilega skytta liðsins. { þau
fáu skipti sem Erlingur fékk hjálp
þá átti liann ekki í neinum vand-
ræðum með að skora. Vörn KA
var þokkaieg til að byrja með en
markverðirnir áttu ekki góðan
dag, sem hefur mikið að segja í
liði sem KA. Þá átti Sigurður Sig-
urðsson einu af máttarstólpum
liðsins, ömurlegan dag. Eini
maðurinn sem barðist af einhverju
viti var fyrirliðinn Þorieifur
Ananíasson en það þykja ekki
fréttir lengur.
Mörkin: Erlingur 4, Þorleifur
4, Magnús B. 4 (2), Kristján 3
(2), Sæmundur 1 (1) og Jóhann
Einarsson i
Stjarnan: Eyjólfur 9 (1),
Hannes 4 (1), Guðmundur 4 (4),
Hermundur Sigmundsson 2,
Gunnlaugur Jónasson 2, Magnús
Teitsson 1.
Dómarar voru Þorgeir Pálsson
og Guðmundur Koibeinsson og
dæmdu þeir sæmilega og KA
siöur en svo í óhag.
-ESE
Jóhann Einarsson og félagar hans i KA-liöinu attu frekar dapran leik gcgn Stjörnunm.
Siglufjörður:
Biðstaða í
þjálfaramálum
Allt er í biðstöðu varðandi
þjálfaramál KS á Siglufírði.
Siglfirðingar hafa áhuga á að
endurráða Billy Hodgson, frá
Skotlandi sem þjálfað hefur
liðið undanfarin tvö ár en
svara þar að Iútandi er ekki að
vænta fyrr en í desember.
Að sögn Runólfs Birgissonar,
formanns KS varð það að sam-
komulagi að bíða fram í desem-
ber og ræða þá við Hodgson en
hann og fjölskylda hans eru bú-
sett í Edinborg í Skotlandi. Á
Siglufirði er nú mikið rætt um að
Hodgson hafi boðist atvinna í
Skotlandi og komi því alls ekkert
til Siglufjarðar í sumar. Ef svo er
þá standa KS-menn uppi
þjálfaralausir í desember, þegar
öll önnur félög verða búin að
ráða sér þjálfara.
-ESE
Enn eitt áfall-
ið hjá KS
Björn Ingimundarson fluttur suður
Helstu mannabreytingar hjá
liði KS sem nú er vitað um, eru
þær að Hafþór Kolbeinsson fer
til KA og Siglfírðingar missa
einnig hinn sterka leikmann,
Bjöm Ingimundarson sem er
fluttur til Reykjavíkur.
- Það er mikið áfall að missa
Björn, sagði Runólfur Birgisson,
formaður KS í samtali við Dag og
víst er að Reykjavíkurliðin koma
til með að slást um þennan mark-
heppna leikmann.
- Fáið þið einhvern mannskap
í staðinn?
- Það eru nokkrir inni í mynd-
inni og m.a. hefur Jón Örvar,
markvörður Reynis úr Sandgerði
lýst yfir áhuga sínum á að koma.
Óg svo er aldrei að vita nema
okkur takist að krækja í ein-
hverja úr KA í staðinn fyrir alla
þá sem þeir hafa fengið frá
okkur, sagði Runólfur Birgisson.
-ESE
Firmakeppni Þórs:
A-lið Slipp-
stöðvarinnar
sigraði
A-lið Slippstöðvarinnar náði
að tryggja sér sigur í fírma-
keppni Þórs í innanhússknatt-
spyrnu en úrslitakeppnin fór
fram nú um helgina. Keppnin
var æsispennandi og svo fór að
lokum að þrjú lið voru jöfn að
stigum en Slippstöðvarmenn
sigruðu á markahlutfalli.
Liðin sem þátt tóku í úrslitun-
um voru Slippstöðin A og B-lið,
Sambandið og Póstiaog sími. B-
lið Slippstöðvarinnar tapaði öll-
um sínum leikjum en fyrir síðasta
leikinn sem var á milli Slippstöð-
var A og Sambandsins, var stað-
an þannig að Póstur og sími var
með 4 stig, unnu m.a. A-lið
Slippsins, Sambandið var með 4
stig, unnu PS og A-lið Slippsins
var með 2 stig. Þeir urðu því að
sigra Sambandið stórt til að
tryggja sér sigur á mótinu og það
gerðu þeir. Unnu 8:4 og þar með
var sigurinn þeirra.
Sigurlaunin voru veglegur
bikar og verðlaunapeningar og
þóttu Þórsarar standa sig mjög
vel varðandi skipulag og fram-
kvæmd þessa móts.
-ESE
Mjólkurbikarinn:
Sambandið
sigraði ÚA
Keppni í hinum svokallaða
„Mjólkurbikar“ er enn í fullum
gangi, þó langt sé milli leikja en
keppt er í leikhléi í heimaleikjum
KÁ í 1. deildinni.
Á föstudag áttust Sambandið
og Útgerðarféiagið við og sigr-
uðu Sambandsmenn örugglega
3:0. Áttu ÚA-menn ekki glætu í
leiknum og SÍS-arar voru nær
því að bæta við mörkum en ÚA
að skora sitt fyrsta.
6 - DAGUR - 14. nóvember 1983
14. nóvember 1983 - DAGUR - 7