Dagur - 21.12.1983, Page 9
21. desember 1983 - DAGUR - 9
Fréttaannáll 1983 - Fréttaannáll 1983 - Fréttaan
Janúar:
Nýja árið byrjaði stórtíðinda-
laust, þó svo að lögregla Akur-
eyrarbæjar hafi þurft að hafa af-
skipti af borgurunum á nýársnótt
vegna minni háttar atburða og
ölvunar. Hins vegar varð nýárs-
morgunn viðburðarríkur fyrir
hjónin Margréti Þorsteinsdóttur
og Guðmund Víði Gunnlaugs-
son, því þeim fæddist sonur kl.
11:29 og var það fyrsta barn árs-
ins á Akureyri.
í fyrsta tölublaði ársins segir
Dagur frá því að ung hjón sem
búa í Saltvík skammt frá Húsavík
hafi kært fimm unga menn fyrir
húsbrot og líkamsárás daginn
fyrir gamlársdag. Upphaf málsins
var rakið til eldra bruggmáls, sem
hjónin höfðu á sínum tíma kært.
Fimmmenningarnir mótmæltu
þessu eindregið og töldu mjög
hallað réttu máli í fréttaflutningi
af málinu, en það endaði hjá
saksóknara og ekki hefur frést af
neinum frekari aðgerðum í því.
Kona nokkur í Glerárhverfi
hringdi í Hitaveitu Akureyrar og
vildi fá lagfæringar á hitakerfinu
hjá sér vegna kulda í húsinu.
Gekk ekki né rak að fá menn á
staðinn og tók konan þá til þess
bragðs að kæra sjálfa sig fyrir
stuld á heitu vatni. Hitaveitumenn
komu með það sama, en konan út-
skýrði málið og fékk lausn sinna
mála - eða svo segir sagan. Hita-
veitan setti reglur um bætur vegna
tæringar á ofnum, sem gilda til 1.
jan. 1984.
Sigurður Þorsteinsson, búsett-
ur í Bandaríkjunum, hyggst
kaupa Sólbak sem hefur verið
lagt og nota hann sem móðurskip
við sverðfiskveiðar. Lengi stóð í
samningaþófi en endirinn varð
sá að nú, ári seinna liggur Sól-
bakur óhreyfður við Torfunefs-
bryggjuna og bíður örlaga sinna.
Gunnlaugur Konráðsson á
Særúnu frá Árskógsströnd skýrði
frá því í Degi 11. janúar að togar-
ar hafi farið inn í friðuð hólf og
togað yfir línuna hjá sér og eyði-
lagt 14 bjóð.
Baldvin Haraldsson á Stóru-
Hámundarstöðum á Árskógs-
strönd og félagar hans í Björgun-
arsveit Slysavarnarfélagsins unnu
mikið þrekvirki er þeir björguðu
9 hrossum úr sjálfheldu á
Hvammshnjúk f Arnarnes-
hreppi. Tvö hrossanna hröpuðu
og drápust. Björgunaraðgerðirn-
ar fóru fram í aftakaveðri.
Atvinnuleysi var á Dalvík {
byrjun mánaðarins en upp úr
miðjum mánuði fóru atvinnu-
hjólin að snúast á nýjan leik. Um
100 voru atvinnulausir vegna
uppsagnar kauptryggingar. Dauft
var einnig yfir atvinnulífi á Ólafs-
firði.
Hugmyndir komu upp um að
Nýja-bíó hætti rekstri. Ein af
ástæðunum var sú að sam-
keppnin var orðin gífurleg við
myndbandaleigurnar, ekki síst
við Myndbandaleigu kvikmynda-
húsanna, sem sendu nýjar
myndir á myndböndum norður
áður en kvikmyndahúsin fengu
þær til sýninga. Niðurstaðan varð
svo sú að Nýja-bíó hætti rekstri.
Hjá Hitaveitu Akureyrar kom-
ust menn að því að meira fór af
heitu vatni út á kerfið en greitt
var fyrir. Ákveðið var að láta
fara fram mælingar á vatns-
skammti, hitastigi og þrýstingi
hjá öllum notendum og endur-
stilla þar sem þörf væri á. Vél-
skólanemar frá Reykjavík voru
fengnir til verksins, sem skapaði
nokkra óánægju. í ljós kom um-
talsverð vanstilling á kerfunum.
Um kl. 10 að morgni laugar-
dagsins 22. janúar drukknuðu um
Það var ljótt um að litast í svínabúinu á Lóni er vatn flæddi þar inn, og 50
grísir létu lífið.
50 grísir á svínabúinu að Lóni,
þegar flóð kom í lækinn sem þar
rennur framhjá og vatnsflaumur-
inn gekk í gegnum svínahúsið.
Aðkoman var mjög ljót og eig-
andi búsins, Benny Jensen, taldi
að beint tjón væri ekki undir 500
þúsund krónum, auk mikils
óbeins tjóns. Ekki tókst að fá
hjálp frá lögreglu eða slökkviliði
né bæjarstarfsmönnum við að
hleypa læknum fram.
nefndar skólans, sem afhenti
lykilinn Aðalgeiri Pálssyni,
skólastjóra Iðnskólans.
Frá því er sagt 27. janúar að
mest raforkuverðshækkun á
landinu á síðasta ári hafi verið
hjá Rafveitu Akureyrar. Smá-
söluverð á raforku hafi hækkað
um 132%, hjá RARIK um 125%
en minnst varð hækkunin á
Reyðarfirði 116%. Knútur Otter-
stedt, rafveitusjóri mótmælti
Febrúar:
Á kjördæmisþingi framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
vestra gekk um þriðjungur full-
trúa út af fundi vegna óánægju
með uppröðun á lista framsókn-
armanna við Alþingiskosningar.
Ingólfur Guðnason neitaði að
taka sæti á lista með Páli Péturs-
syni, sem síðar leiddi til tveggja
framsóknarlista í kjördæminu.
Rannsóknarlögreglan kom upp
um þjófaflokk unglinga sem
stundað hefur þjófnaði á vinnu-
stöðum frá þeim sem eru þar í
vinnu. Heimsóttu þeir 8-9 vinnu-
staði og er talið að þeir hafi haft
um 30 þúsund krónur upp úr
krafsinu.
Upp komst um fjármálamis-
ferli sem teygði anga sína til Ak-
ureyrar. Um var að ræða fulltrúa
fógeta í Kópavogi og lögfræðing-
ur á Akureyri blandaðist í málið.
Rannsóknarlögregla ríkisins yfir-
heyrði menn á Akureyri.
Boeing-þota Flugleiða þurfti
að lenda á Akureyrarflugvelli
vegna veðurs fyrir sunnan. Að-
eins var hægt að fá gistingu fyrir
rúmlega helming farþeganna, en
hinir urðu að sofa í flugvallar-
byggingunni og stór hluti í flug-
vélinni sjálfri. „Hótelmálin hér
eru orðin pirrandi vandamál,“
sagði Sveinn Kristinsson um-
dæmisstjóri Flugleiða.
Síðari hluta mánaðarins var
tekin í notkun ný 1000 númera
símstöð á Akureyri. Um 360 biðu
eftir að fá síma. Talið er að þessi
stækkun dugi í tvö ár.
Fimmtán íslendingar undirbúa
nú þátttöku í hinni frægu Vasa-
skíðagöngu í Svíþjóð. Þeirra á
meðal verða Sigurður Aðal-
steinsson frá Akureyri og Björn
Þór Ólafsson frá Ólafsfirði.
Þann 12. febrúar varð Dagur
65 ára, en hann var fyrst gefinn út
þann sama dag árið 1918. í leið-
ara afmælisblaðs sagði: „Dagur
hefur enn mikilvægu hlutverki að
gegna sem langstærsta blaðið sem
gefið er út utan Reykjavíkur og
nauðsynlegt mótvægi við þann
Gengið var til alþingiskosninga á árínu. Myndin sýnir er einn kjósenda skilar atkvæði sínu í kjörkassa í Oddeyrar-
skóla á Akureyri.
Föstudaginn 21. janúar var
fyrsti áfangi Verkmenntaskólans
afhentur Iðnskólanum til
rekstrar. í áfanganum er smiðja
fyrir málmiðnað. Það var Haukur
Árnason, formaður byggingar-
þessum útreikningi og sagði að
meðaltalshækkunin hefði numið
rúmlega 115%.
einhliða málflutning sem oft ein-
kennir fjölmiðlana syðra.“
Frá Sauðárkróki bárust þær
fréttir að lögreglan hafi haft
hendur í hári ungs manns sem
bruggaði og seldi landa. Síma-
kerfið angraði Krókara og var á
vissum tímum dagsins „algjör-
lega óvirkt“, að sögn bæjarstjór-
ans. Þá kvörtuðu þeir á Króknum
undan þjónustu Flugleiða, sem
þeim þótti slæleg.
Stofnuð voru landssamtök um
jafnrétti milli landshluta. Að
þeim standa menn með ólíkar
stjórnmálaskoðanir en sem allir
telja að einhlít breyting á kosn-
ingalögum og vægi atkvæða við
alþingiskosningar muni skapa
óréttlæti og vilja að slík breyting
verði ekki gerð á meðan annað
misrétti viðgengst í landinu.
Pappírskvoðuverksmiðja á
Húsavík er mjög til umræðu en
hún er talin geta orðið með álit-
legri iðnaðarkostum sem völ er á
hér á landi. Árið leið án þess að
niðurstaða fengist í þetta mál. Á
Húsavík hrjáði aflaleysi menn og
fjórir bátar fóru á aðrar verstöðv-
ar af þessum sökum.
Mars:
Iðnaðardeild Sambandsins hefur
gert stórsamning um sölu á
mokkaskinnskápum til Sovétríkj-
anna, samtals 10 þúsund kápur.
Samningurinn hljóðar upp á 36
milljónir króna. Skinnin verða
sútuð heima en þar sem iðnaðar-
deildin ræður ekki við svo stóra
samninga verða kápurnar saum-
aðar erlendis.
Hilmar Daníelsson á Dalvík
vakti athygli á hugmyndum sem
hann hefur um að hér verði kom-
ið upp eins konar aðstöðuvísi-
tölu, sem hefði áhrif á skattavísi-
töluna og yrði til þess að bæta
landsbyggðafólki upp þann
ójöfnuð sem það býr við á ýms-
um sviðum opinberrar þjónustu.
Á aðalfundi KEA kom fram að
þrátt fyrir verðbólgu og samdrátt
í þjóðfélaginu hafi félagið staðið
fyrir miklum framkvæmdum og
fjárfestingum. Heildarvelta varð
1.2 milljarðar á árinu 1982,
launagreiðslur námu 165 milljón-
um og nettófjárfestingar námu
yfir 30 milljónum króna.
Sinfóníuhljómsveitin ásamt
Kristjáni Jóhannssyni og fleirum
ætluðu að flytja óperuna Tosca
laugardaginn 12. mars og var
búið að gera allt klárt, en ekki
var unnt að fljúga með lista-
mennina að sunnan og varð að
fresta tónleikunum af þeim
sökum. Um 1400 manns höfðu
keypt sér miða f nýju íþrótta-
höllina, þar sem tónleikamir áttu
að fara fram.
Verkalýðsfélögin afhentu Fé-
lagi aldraðra á Akureyri Alþýðu-
húsið að gjöf sunnudaginn 13.
mars.
Ekið var á kyrrstæða bifreið,
ökumaður flúði af vettvangi en á
staðnum fannst listi sem losnað
hafði af bíl hans. Árvökulir lög-
reglumenn ráku síðar augun í bíl
sem bar merki eftir árekstur og
mátuðu listann við - og viti
menn, hann passaði. Eigandi
bílsins játaði við yfirheyrslu.
Milljónatjón varð á bílum og
tækjum hjá verkstæði Bílaleigu
Akureyrar þegar þakið á húsinu
fauk af í hvassviðri að kvöldi 19.
mars. Fimmtán bílar voru á stæð-
inu auk ýmiss tækjabúnaðar.
Vindhraðinn náði 62 hnútum eða
115 km hraða á klukkustund.
Fólk lenti í erfiðleikum á leið
milli Dalvíkur og Akureyrar og
varð að yfirgefa bíla sína.
Vegna gruns um að hassplönt-
ur væru ræktaðar í heimavist
Fjölbrautaskólans á Sauðár-
króki gerðu yfirmenn skólans all-
ar plöntur upptækar, sem grun-
samlegar þóttu. í ljós kom að um
hið algenga blóm „Heimilisfrið"
Fréttaannáll 1983 - Fréttaannáll 1983