Dagur - 21.12.1983, Síða 10

Dagur - 21.12.1983, Síða 10
10 DAGUR - 21. desember 1983 21. desember 1983 — DAGUR - 11 1100 minkar komu til Akureyrarflugvallar og fóru þeir á bú í Skagafirði. var að ræða. Frásögn af þessu var mótmælt af þeim sem hlut áttu að máli. Ný framboð til alþingiskosn- inga sáu dagsins Ijós, Kvennalisti og Bandalag jafnaðarmanna. Samþykkt var að listi „göngu- manna“ í Norðurlandskjördæmi vestra fengi að nota listabókstaf- ina BB, þar sem um framsóknar- lista væri að ræða. Banaslys varð að morgni 22. mars, þegar níu ára dengur varð fyrir olíubifreið á Tryggvabraut. Fimmtudaginn 25. mars var kveðinn upp dómur í Hæstarétti þar sem eigendum íbúðar að Þingvallastræti 22 á Akureyri var gert skylt að flytja úr íbúð sinni innan þriggja mánaða, vegna ná- búadeilna og klögumála sem engið höfðu um alllangan tíma. undirrétti náði útburðarkrafan ekki fram að ganga en HR breytti þeirri niðurstöðu. komu togarans Stakfells,“ sagði Jóhann Jónsson framkvæmda- stjóri Hraðfrystistöðvar Þórs- hafnar hf. Stakfellið kom með 970 tonn þrjá fyrstu mánuði árs- ins og hefur aflað vel á árinu eftir það. 1100 farþegar komu með flug- vél til Akureyrarflugvallar. Ekki voru þeir mennskir, heldur voru á ferðinni minkalæður á leið í Skagafjörðinn þar sem þær eru nú búsettar á Sauðárkróki og á Hólum í Hjaltadal. Fokker flugvél Flugleiða var að koma inn til lendingar á Akur- eyri er ljós í mælaborði sem sýna á að lendingarhjól hafi læst í Iend- ingarstöðu kviknaði ekki. Engin áhætta var tekin, vélinni snúið til Keflavíkurflugvallar þar sem lent var á kvoðuborinni braut en skelkaðir farþegar sluppu með skrekkinn þegar í ljós kom að það var einungis ljósið sem var bilað, ekki hjólaútbúnaðurinn. Sjö skólamenn vildu verða skólameistari við Verkmennta- skólann á Akureyri. „Ég veiti stöðuna að fenginni umsögn skólanefndar. Ég reikna- með að það verði eftir viku,“ sagði Ingv- ar Gíslason þáverandi mennta- málaráðherra. Skólanefndin mælti síðan með að Bernharð Haraldsson þá settur skólastjóri Gagnfræðaskóla Akureyrar fengi starfið og svo varð. Þann 23. apríl var kosið til Al- þingis á íslandi og sagði í forsíðu- frétt Dags eftir kosningarnar: „Nýju framboðin voru sigurveg- arar kosninganna“. Alþýðuflokk- ur hlaut 10 þingmenn, tapaði 4, Framsóknarflokkur hlaut 14 þingmenn í stað 17 áður, Sjálf- stæðisflokkur hlaut 23 þingmenn en hafði 22, Alþýðubandalag missti einn mann og hefur 10. Bandalag jafnaðarmanna sem bauð fram í fyrsta skipti hlaut 4 þingmenn og Samtök um kvenna- lista fékk þrjá þingmenn. Níu konur voru kjörnar á Alþingi og hafa aldrei verið fleiri þar. „Við stuðningsmenn áfengisút- sölu óskum andstæðingum henn- ar til hamingju með sigurinn. Sjáumst á pósthúsinu," sagði Pálmi Þorsteinsson á Húsavfk eftir að þar hafði verð fellt að opna áfengisútsölu. Apríl: „Við munum láta í okkur heyra, við munum láta til okkar sjást,“ sagði Bjarni Ólafsson, einn al stofnendum Samtaka forræðis- lausra feðra sem stofnuð voru á Akureyri í upphafi mánaðarins. „Við munum beita okkar áhrif- um til þess að nýju barnalögin sem tóku gildi um áramótin 1981-1982 verði virt á jafnréttis- grundvelli. „Ástæðan fyrir því að þessi húsgögn eru keypt erlendis frá er einfaldlega sú að þau eru ódýrust og best af því sem er á markaðn- um,“ sagði Haukur Árnason formaður byggingarnefndar Verk- menntaskólans á Akureyri, en at- hygli vakti að húsgögn til þess skóla skyldi vera keypt erlendis frá. Voru margir iðnaðarmenn mjög óánægðir með þessa ákvörðun og urðu blaðaskrif um málið. Einnig var deilt um leiktækja- staðinn Las Vegas á Akureyri. „Við skrifuðum eigendum Las Vegas og í því bréfi sagði að sú starfsemi sem þar er rekin skyldi lögð niður samkvæmt bókunum bygginganefndar og heilbrigðis- nefndar," sagði Jón Geir Ágústs- son byggingafulltrúi á Akureyri. Svo fór að Las Vegas var lokað og var „Iogn“ fram á haustið. „Það hefur verið næg atvinna hér í vetur og má þakka það til- -f Krístján Jóhannesson er sennilega afkastamesta rjúpnaskytta landsins. Hann hefur skotið mörg hundruð rjúpur í haust og sést hér með nokkrar þeirra. Maí: „Okkur hefur ekki tekist að virkja vindinn því það hefur hvert óhappið rekið annað með vindrelluna. Þegar eitt hefur komist í lag hefur annað bilað,“ sagði Bjarni Magnússon í Gríms- ey, og hefur síðan þetta var sagt í upphafi maímánaðar lítil breyt- ing orðið á. „Reksturinn viðunandi og traustur efnahagur," sagði í fyrir- sögn að frétt um aðalfund KEA. Rekstrarhagnaður kaupfélagsins var 1.831 þúsund krónur og var lagt til að honum yrði varið þann- ig að félagsmenn fengju arð af viðskiptum við Stjörnuapótek og að reiknaðir yrðu 5% viðbótar- vextir á stofnsjóð félagsmanna sem voru að meðaltali 35,3% en yrðu með þessari viðbót 47% á síðari hluta ársins 1982. Breyting var gerð á útgáfudög- um Dags. Blaðið fór að koma út á mánudögum og miðvikudögum í stað þriðjudaga og fimmtudaga áður en Helgar-Dagur kemur eftir sem áður út á föstudögum. Lögreglan á Akureyri tók fram radarinn sinn sem notaður er til þess að mæla ökuhraða bifreiða. Jafnframt hvatti lögreglan öku- menn til þess að aka varlega því hún hefði lítinn áhuga þrátt fyrir allt á því að þurfa að hafa afskipti af ökumönnum. - Ekki létu allir sér segjast við þetta, einn var tek- inn á 113 km hraða á Þingvalla- stræti og mátti hann skila inn ökuskírteini sínu til geymslu að því loknu. Gísli Jónsson menntaskóla- kennari sagði af sér störfum í bæjarstjórn þar sem hann hafði setið nær óslitið síðan 1958. Sæti hans í bæjarstjórninni tók Mar- grét Kristinsdóttir skólastjóri Hússtjórnarskólans. „Ég met stöðuna þannig að Framsóknarflokkur og Sjálfstæð- isflokkur geti náð samstöðu um myndun ríkisstjórnar fái þeir til þess tíma,“ sagði Stefán Val- geirsson alþingismaður. Lárus Jónsson alþingismaður sagði: „Ég vona að það náist samstaða um myndun þingræðisstjórnar næstu daga.“ Þetta gekk eftir og flokkarnir tveir hófu stjórnar- samstarf skömmu síðar. „Hundur réðist á bíl“ sagði í fyrirsögn. Þar var að verki nokk- uð kjarkmikill hundur í Glerár- hverfi og tókst honum að rispa hann dálítið. Eigandi. hundsins tók þessu með jafnaðargeði, sagðist vera tryggður fyrir svona nokkru og myndi tryggingarfé- lagið borga brúsann. Útibú ÁTVR var opnað á Sauðárkróki og höfðu margir áhuga á að veita því forstöðu. Alls bárust 29 umsóknir um stöðu forstöðumanns útsölunnar en svo fór að Ragnar Arnalds þáverandi fjármálaráðherra veitti Stefáni Guðmundssyni á Sauðár- króki þessa eftirsóttu stöðu. Ekki var minni ásókn í starf „Ráðhúsherra“ á Akureyri því þar voru 31 umsækjandi. Margir þeirra voru iðnaðarmenn og var einn úr þeirra röðum, Guðmund- ur Pétursson sá er hnossið hlaut að lokum. „Veðrið batnar á laugardag,“ sagði Jón P. Jónsson á Húsavík. Hann gengur undir nafninu „Drauma-Jón“ sökum þess að hann er kunnur fyrir að geta sagt fyrir um óorðna hluti. Ekki mun- um við hvort veðurspá hans gekk eftir, en hann sagði einnig að það mætti búst við snjókomu í hverjum mánuði ársins. Úm hina nýmynd- uðu ríkisstjórn sagði Jón: „Hún verður getulítil og lifir stutt.“ Söngleikurínn My fair Lady hefur svo sannariega slegið í gegn hjá Leikfélagi Akureyrar. Upphaflega átti að sýna verkið fram í desember en nú er fyrirsjáanlegt að sýningum lýkur ekki fyrr en í febrúar eða mars. Söngvararnir Dorriét Kavanna og Kristján Jóhannsson voru gef- in saman í hjónaband af sr. Sig- urði Guðmundssyni, vígslu- biskupi, í Grenjaðarstaðarkirkju á brúðkaupsafmæli foreldra Kristjáns, þeirra Fanneyjar Oddgeirsdóttur og Jóhanns Kon- ráðssonar. Sauðkrækingar fengu óvænta búbót. Var það bleikja sem gekk í tonnatali með fjörum við bæinn og voru ungir sem gamlir iðnir við dorgið og veiddu sumir geysi- Iega vel. Júní: „Neyðarástand" sagði í forsíðu- fyrirsögn þann 1. júní. Þetta ástand var tilkomið vegna snjó- komu víða um Norðurland og voru margir bændur orðnir hey- litlir eða heylausir. Mannhæð- arháir skaflar voru víða heima við bæi og var þetta með verstu vor- um sem komið hafa í langan tíma á Norðurlandi. Beina flugið frá Akureyri til Kaupmannahafnar var að hefjast. Upphaflega átti að fljúga einu sinni í viku en vegna mun minni aðsóknar en reiknað hafði verið með urðu ferðirnar mun færri. Þrír ungir Akureyringar keyptu togarann Guðstein og fluttu hann norður. Hjá Slipp- stöðinni var honum síðan breytt, hann útbúinn sem frystiskip og er nýlega farinn á veiðar undir nafn- inu Akureyrin. „Ég gleymi þessum degi ekki alveg á næstunni,“ sagði ungur Akureyringur, Einar L. Arason. Hann útskrifaðist sem húsasmið- ur og sama dag slasaðist hann illa í knattspyrnuleik og þurfti að verma rúm á Sjúkrahúsinu á Ak- ureyri í einhverjar vikur. „Það hefur allt verið gert til þess að reyna að eyðileggja hljómburðinn í húsinu. Höllin er fyrst og fremst íþróttahús og gott íþróttahús er vel hljóðeinangrað og allt hefur verið gert til þess að dempa hávaða þar inni.“ Þetta sagði Hermann Sigtryggsson formaður byggingarnefndar íþróttahallarinnar á Akureyri, en flytjendur óperunnar Tosca voru mjög óhressir með hljómburðinn í hinu mikla mannvirki. „Nú segja bændur bara pass, það er ekki annað hægt þegar gerir alhvíta jörð þannig að taka verður fé á hús og konið fram í miðjan júní,“ sagði Stefán Skaftason ráðunautur í Straum- nesi í Aðaldal. Minkur nokkur var ráðinn sem starfsminkur hjá Pósti og síma. Starfsmenn fyrirtækisins þurftu að draga símakapal í gegn um þrjú löng rör við nýju Dalvíkur- brúna en tókst ekki fyrr en mink- urinn kom til starfa. Hann fór með línu í gegn um tvö röranna en síðan tók frændi hans við og sá um þriðja rörið. Ekki er vitað um eftir hvaða taxta minkarnir tóku laun sín, en þeir skiluðu verki sínu vel og það var engin minnkun að því hvernig þeir unnu þetta erfiða starf. Júlí: í byrjun júlí skilaði samstarfs- nefnd um iðnþróun á Eyjafjarð- arsvæðinu sinni lokaskýrslu. Nefndarmenn komust að þeirri niðurstöðu, að þrátt fyrir að reiknað sé með aukningu í þeim atvinnugreinum sem fyrir eru á Eyjafjarðarsvæðinu, þá sé fyrir- sjáanlegt að skapa þurfi um 700 manns atvinnu í nýjum atvinnu- greinum, ef ekki eigi að koma til fólksflótti frá svæðinu. Nefnd- armenn reiknuðu með að skapa þyrfti um 1.720 manns á Eyja- fjarðarsvæðinu atvinnu fram til ársins 1990. Er þá miðað við að fólksfjölgun á svæðinu verði 1,4% að jafnaði, en á síðasta ára- tug var fjölgunin 1,7%. Hins veg- ar hefur fólksfjölgunin staðið í stað það sem af er þessum áratug vegna óvissu í atvinnumálum. I byrjun júlí voru opnuð tilboð í smíði á nýjum togara fyrir Út- gerðarfélag Akureyringa hf. Tuttugu tilboð bárust, þ'að hag- stæðasta frá Japan upp á rúmar 126 m.kr. Tilboð Slippstöðvar- innar var um 36 m.kr. hærra. Framkvæmdastjórar Útgerðarfé- lagsins vildu taka lægsta tilboð- inu, en stjórn félagsins ákvað að ganga til viðræðna við Slippstöð- ina, til að kanna hvort hægt væri að brúa bilið frá lægsta tilboði að tilboði Slippstöðvarinnar. Ekki hefur það gengið þegar þetta er skrifað, en nú er japanska tilboð- ið út úr myndinni, en norskt til- boð er haft til hliðsjónar í samn- ingaviðræðum Slippstöðvarinnar og Útgerðarfélagsins. Munurinn er 23 m.kr., sem felst að stærst- um hluta í ríkisstyrk, sem norska skipasmíðastöðin nýtur. Nú er bæjarstjórn Akureyrar komin inn í viðræður fyrirtækjanna, en að mati þeirra sem til þekkja er óhugsandi að þetta bil verði brúað, nema ríkissjóður komi einnig inn í myndina. Um mánaðamótin júní-júlí sameinaðist Laxárvirkjun Lands- virkjun, samkvæmt sameignar- samningi Akureyrarbæjar, Reykjavíkurborgar og ríkisins. Samkvæmt honum er eignarhlut- ur Akureyrarbæjar í Landsvirkj- un 5,475%, Reykjavíkurborgar 44,525% og ríkissjóður á 50%. „Við norðanmenn göngum heils hugar til þessa samstarfs, enda teljum við þetta hagkvæmustu og tryggustu leiðina við öflun orku og dreifingu hennar um landið, þegar til framtíðarinnar er litið,“ sagði Valur Arnþórsson um þetta samstarf, en hann er fulltrúi Ak- ureyrar í nýrri stjórn Landsvirkj- unar. Knútur Otterstedt, sem verið hefur framkvæmdastjóri Laxár- virkjunar og framkvæmdastjóri Rafveitu Akureyrar, var ráðinn svæðisstjóri Landsvirkjunar á Norðurlandi. Hann hefur því sagt upp störfum hjá Rafveitu Akureyrar og hættir þar um ára- mótin eftir rúmlega 30 ára starf. Þar með er lokið rúmlega 60 ára giftusamri stjórn Otterstedt-feðg- anna á Rafveitu Akureyrar. Fjórðungsmót norðlenskra hestamanna var haldið á Mel- gerðismelum fyrstu dagana í júlí. Akureyrskir og eyfirskir hestar voru sigursælir á mótinu. Þorri Sigurðar Snæbjörnssonar á Höskuldsstöðum, undir styrkri stjórn Ragnars Ingólfssonar, varð hlutskarpastur í flokki al- hliða gæðinga, en Kristall Harð- arson frá Kolkuósi fór á kostum í klárhestakeppninni undir stjórn eiganda síns, Gylfa Gunnars- sonar. Mótið tókst vel og var fjölsótt, en mótsgestir fengu að kynnast margbreytilegu veður- fari. Mikil vinna var lögð í móts- svæðið á Melgerðismelum fyrir mótið og Þorkell Bjarnason, hrossaræktarráðunautur, taldi ekki annað mótssvæði betra hér á landi. Sú harmafregn barst frá Grímsey föstudaginn 1. júlí, að Konráð Gylfason, einn af þríbur- unum í Grímsey, hefði hrapað fram af bakkanum fyrir framan heimili sitt og síðan látist af völd- smiðjuna en leigi húsnæðið, því það getur enginn keypt þetta bákn, ekki einu sinni Samband- ið,“ sagði Eyþór Tómasson, for- stjóri Lindu, í samtali við Dag í byrjun júlí. „Ég er ákveðinn í að hætta. Ég er orðinn þreyttur á þessu. Maður sem er orðinn 77 ára, hvað á hann að vera að djöfl- ast svona? Mér dettur það bara ekki í hug,“ sagði Eyþór enn- fremur. Miklar umræður urðu um atvinnumál á Eyjafjarðarsvæðinu á árinu. Ýmsir möguleikar voru nefndir í því sambandi, en oftast bar þó stóriðju á góma. Um þann möguleika sagði Sverrir Her- mannsson, iðnaðarráðherra, í samtali við Dag: „Að mínum dómi verður ekki vel séð fyrir atvinnumálum á Eyjafjarðar- svæðinu nema við komum þar upp stóriðju. Hún er að vísu ekki mannfrek, stóriðja er orkufrek en ekki mannfrek, en hún mundi skjóta fótum undir aðrar greinar sem mundu áreiðanlega sjá vel fyrir nægri atvinnu." Akureyringar og Norðlending- ar settu sig ekki úr færi sl. sumar, að koma af stað umræðum um veðrið, ef þeir hittu mann af Reykjavíkursvæðinu. Sumarið var nefnilega vætusamt syðra, en nokkuð gott nyrðra og einstak- lega gott þegar lýsingar á veður- farinu voru komnar suður yfir fjöll. Þetta kom fram í veður- dálki Dags. Þar segir Hafliði Jónsson í byrjun júlí: „Það er svo gott þarna hjá ykkur fyrir norðan, að það væri góður meiri- hluti fyrir því á veðurstofunni að flytja hana norður til ykkar.“ Hjá Slippstöðinni á AJcureyri lauk smíði sidps fyrir Grænhöfðaeyjar. Á mynd- inni sést forsetafrú Grænhöfðaeyja gefa skipinu nafnið „Fengur“. um áverka þeirra sem hann hlaut í fallinu á sjúkrahúsi í Reykjavík. Konráð heitinn var 5 ára gamall. „Ég vil selja og hugsanlega verður fyrirtækið auglýst í næsta mánuði, en það er hugsanlegt að þetta verði tvískipt; ég selji verk- Jóhann Konráð Birgisson 10 ára og Börkur Hólmgeirsson 7 ára björguðu Kristni Þór Ingi- björnssyni 4ra ára frá drukknun í byrjun júlí. Kristinn Þór hafði fallið í tjörn sem myndast hafði í húsagrunni í Glerárþorpi. Sann- kölluð slysagildra, en tjörnin var ræst fram eftir þennan atburð. Banaslys varð í Grímsey að- faranótt 12. júlí þegar kanadísk stúlka hrapaði þar til bana í fall- hlífarstökki. Konan hét Rosmary Abilson og var þrjátíu og sex ára gömul. Hún var ein af 10 fallhlíf- arstökkvurum, sem stukku úr 14 þúsund feta hæð yfir eynni og var ætlunin að mynda 10 manna „rós“ í fallinu. Slíkt hafði aldrei verið gert norðan heimskauts- baugs. En eitthvað fór úrskeiðis, því stökkvarana bar af leið. Fimm þeirra lentu í sjónum eða fjörunni við suð-vestanverða eyna. Aðrir náðu bjargbrúninni, nema Rosmary, sem skall utan í klettana og hrapaði niður í grýtta fjöruna og lést samstundis. í júlí var hafin bygging húss við Skipagötu, sem verkalýðsfélögin á Ákureyri standa að og í dag- legu tali hefur fengið nafnið „Verkalýðshöllin“. Smári hf. sér um bygginguna samkvæmt til- boði og var það 67.3% af áætluðu kostnaðarverði. 8. júlí var stofnað á Akureyri hlutafélagið Gúmmívinnslan hf. Starfssvið félagsins verður að endurvinna gúmmíúrgang ásamt sólningu á hjólbörðum og tilheyr- andi þjónustu. Stofnendur félags- ins eru Þórarinn Kristjánsson, Birgir Eiríksson, Iðnþróunarfé- lag Eyjafjarðar, Möl og sandur hf. og Bandag hf. í Reykjavík. 18. júlí segir Dagur frá fyrir- sjáanlegum kvennameirihluta í bæjarstjórn Akureyrar, sem nú er orðinn að veruleika, þó ekki hafi sá meirihluti hrifsað völdin af meirihluta Framsóknarflokks- ins, Kvennaframboðsins og Al- þýðubandalagsins. Kvennameiri- hlutinn er þannig tilkominn, að bæjarfulltrúarnir Helgi Guð- mundsson og Freyr Ófeigsson eru fjarverandi um tíma, en vara- menn þeirra eru konur, þær Jór- unn Sæmundsdóttir og Sigríður Stefánsdóttir. Auk þeirra eru í bæjarstjórninni konurnar Úlf- hildur Rögnvaldsdóttir, Valgerð- ur Bjarnadóttir, Sigfríður Þor- steinsdóttir og Margrét Kristins- dóttir. Húnn Snædal, flugumferðar- stjóri með meiru og Bragi bróðir hans nauðlentu lítilli eins hreyfils flugvél við Brúnalaug í Eyjafirði laugardaginn 16. júlí. Lendingin tókst vel og Húnn hafði á orði í samtali við Dag, að kaffi væri gott hjá Jóhanni í Brúnalaug. Síðar nauðlenti Húnn „Kaupfé- laginu“ sínu TF KEA, heima- smíðaðri eins hreyfils vél, austur í Öxarfirði. Magnús Stefánsson, læknir á Akureyri, var sá sem hæstu gjöldin bar við álagningu í Norðurlandskjördæmi eystra 1983. Næstur honum kom Ólafur Ólafsson lyfsali á Húsavík og Teitur Jónsson, tannlæknir á Ak- ureyri hafnaði í þriðja sæti. Ágúst: Þriðjudaginn 2. ágúst samþykkti sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu að selja Öngulsstaðahreppi sinn hluta í húsmæðraskólanum á Laugalandi. Þar með á hreppur- inn 30% í skólahúsinu, en ríkið afganginn. Húsið verður notað fyrir barnaskóla hreppsins. í byrjun ágúst hófust æfingar hjá Leikfélagi Akureyrar á My fair Lady. Verkið var síðan frum- sýnt í byrjun október og gerði mikla lukku og er enn sýnt fyrir fullu húsi. í aðalhlutverkum eru Arnar 'Jónsson og Ragnheiður Steindórsdóttir, en leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir. Úm miðjan ágúst voru tveir - Fréttaannáll 1983 - Fréttaannáll 1983 - Fréttaannáll 1983 - Fréttaannáll 1983 - Fréttaannáll 1983 - - Fréttaannáll 1983 - Fréttaannáll 1983 - Fréttaannáll 1983 - Fréttaannáll 1983 - Fréttaannáll 1983 -

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.