Dagur - 21.12.1983, Side 12
12 - DAGUR - 21. desember 1983
Fréttaannáll 1983 - Fréttaannáll 1983 - Fréttaan
Nýr togarí bættist í flota Akureyringa. Hann hét áður Guðsteinn en eftir
miklar breytingar hjá Slippstöðinni þar sem honum var breytt í frystiskip
hlaut hann nafnið Akureyrin EA 10 og hefur hann nýlega haldið til veiða.
menn teknir meö 21 gramm af
hassi á Akureyrarflugvelli.
Höfðu þeir fengiö hassið sent frá
Reykjavík.
Laugardaginn 20. ágúst héldu
Sambandsverksmiðjurnar á Ak-
ureyri veglega hátíð í tilefni þess
að 60 ár voru liðin frá því að
Sambandsiðnaður hófst á Akur-
eyri. Margt var gert til skemmt-
unar og fór hátíðin vel fram,
enda veður hagstætt. Meðal dag-
skráratriða var vígsla „Þorsteins-
lundar“ til heiðurs Þorsteini
Davíðssyni, sem í áratugi vann á
Sambandsverksmiðjunum. Þar
var afhjúpaður koparskjöldur
Þorsteini og öðru starfsfólki
verksmiðjanna til heiðurs.
í lok ágúst gaf aldraður Akur-
eyringur tvær milljónir kr. til
heilsuhælisbyggingar Náttúru-
lækningafélagsins. Gjöf
mannsins, sem ekki vildi láta
nafns síns getið, dugir til að
byggja eina hæð hælisins, sem er
í Kjarnaskógi.
September:
„Það hefur komið í ljós að verð-
mæti þýfisins er á bilinu 130-140
þúsund krónur,“ sagði Pétur
Breiðfjörð gullsmiður á Akur-
eyri, en brotist var inn hjá gull-
smiðunum Sigtryggi og Pétri í
upphafi mánaðarins.
„Það skiptir ekki máli hver
skíturinn er,“ sögðu Halldór og
Auðbjörn Kristinssynir sem reka
eitt stærsta svínabú á landinu, í
Hraukbæ í Kræklingahlíð. Þeir
eru nú að vinna að merkilegri til-
raun, en hún felst í því að hita
upp svínaskítinn með sérstakri
aðferð og nota hann til orku-
vinnslu.
„Það kom eiginlega mest á
óvart að atvinnuþátttaka kvenna
á Akureyri er meiri en að meðal-
tali á landinu," sagði Karólína
Stefánsdóttir formaður jafnrétt-
isnefndar um könnun sem unnið
var að á þátttöku kynjanna í
atvinnulífi bæjarins.
„Við hættum við að taka hita-
veituna og munum áfram notast
við svartolíu og gufu. Ég kæri
mig ekki um að eiga viðskipti við
svona okurstarfsemi,“ sagði
Kristján Jónsson, verksmiðju-
stjóri hjá K. Jónsson og Co., en
til stóð að taka hitaveitu í notkun
í verksmiðjunni, en frá því var
horfið vegna þess hve hún þótti
dýr.
Hópur unglinga var með ólæti
í miðbæ Akureyrar. Klifruðu
unglingarnir utan á húsum í mið-
bænum og einn piltur lagði leið
sína upp í ljósastaur nokkurn.
Mátti lögreglan nota stiga til að
ná honum niður en síðan fékk
pilturinn ókeypis gistingu í fanga-
geymslu.
„Það er mikill misskilningur og
fljótfærni að ætla að stimpla trjá-
kvoðuverksmiðjuna á Húsavík
dauðadæmt fyrirtæki,“ sagði
Arnljótur Sigurjónsson eftir að
kanadískur ráðgjafi hafði sagt álit
sitt á verksmiðjunni. í niðurstöð-
um ráðgjafans sagði nánast að
verksmiðjan væri fyrirfram dauða-
dæmt fyrirtæki miðað við upp-
haflegar forsendur.
Hátt í fimm þúsund laxaseiði
drápust í eldistöð Veiðifélags
Ólafsfjarðar er vinnuvél tók í
sundur kaldavatnslögn til stöðv-
arinnar. í stöðinni voru um 30
þúsund seiði sem höfðu verið þar
í eldi síðan í júní en þeim á að
sleppa í sjó í vor.
„Gamla kjötið rennur út en
nýja kjötið hreyfist ekki,“ sagði
Jens Ólafsson útibússtjóri Kjör-
markaðar KEA í Hrísalundi
skömmu eftir að útsala á gömlu
kindakjöti hófst. Mjög mikil
kjötsala var á meðan útsalan stóð
yfir, enda nóg til af kjöti á gamla
verðinu.
„Ég taidi ekki skynsamlegt að
ráða Ormar,“ sagði Ragnhildur
Helgadóttir menntamáiaráð-
herra, en mikill styr stóð um þá
ákvörðun hennar að ráða ekki
Ormar Snæbjörnsson sem
kennara að Þelamerkurskóla.
Kennarasambandið hótaði að
fara í mál við Ragnhildi fyrir
hönd Ormars.
Dr. Gunnar Thoroddsen lést í
Reykjavík 72 ára að aldri.
„Leyfið er á leiðinni," sagði
Kristín Jónsdóttir sem ráðin
hafði verið útibússtjóri Alþýðu-
bankans á Akureyri. „Leyfisum-
sóknin er hér í bankanum en hef-
ur ekki verið tekin fyrir og ég veit
ekki hvenær það verður gert,“
sagði talsmaður Seðlabankans og
þess má geta að leyfið hefur enn
ekki verið veitt fyrir opnun
bankans.
„Kjötkrókur" kom í heimsókn
í hús í Skarðshlíð á Akureyri.
Stal hann kjötlæri sem fjölskylda
í húsinu ætlaði að fara að hita
upp og gæða sér á. Sást til „Kjöt-
króksins" halda á brott með lærið
í Range Rover jeppabifreið.
Umferðarvika var haldin á Ak-
ureyri. - „Umferðarvikan byrjar
ekki vel,“ sagði í fyrirsögn Dags,
en tveir árekstrar urðu strax
fyrsta morgun vikunnar og eitt-
hváð var um það að bílþjófar
væru á ferðinni.
Kynferðisafbrotamaður var
handtekinn á Akureyri, en sá
hafði verið með áreitni við ungan
pilt í Lundahverfi.
Október:
Alvarlegt vinnuslys varð á Heklu
fyrsta dag mánaðarins. Ung kona
lenti þá með hendi í bandhníf og
slasaðist mikið. Var hún flutt á
Borgarspítalann þar sem hún
gekkst undir átta tíma skurðað-
gerð og tókst læknum að bjarga
hendinni.
Menntaskólinn á Akureyri er
settur í 104. sinn. í ræðu skóla-
meistara kom fram að 60% nem-
enda við skólann eru stúlkur.
í verðkönnun Verðlagsstofn-
unar kemur fram að lægsta vöru-
verð á Akureyri er sama og með-
altalsverð í Reykjavík.
Hróður íslenskrar leiklistar
berst víða í sambandi við upp-
setningu LA á My fair Lady.
Sænska, finnska og norska sjón-
varpið mynduðu æfingar leikar-
anna.
Dagur kemst að því að „gull- og
piparskipið“ á Skeiðarársandi, er
í raun kryddsíldarskip en þetta
skýrir áhuga Morgunblaðsins,
blaðs allra gullskipsleitarmanna
á málinu (Smátt og stórt).
Ofnasmiðja Norðurlands flytur
til Reykjavíkur. Enn eitt fyrir-
tækið fer úr bænum. Guðrún
Einarsdóttir eigandi fyrirtækisins
segir ástæðuna stafa af samdrætti
og „óeðlilegum undirboðum“
kaupfélagsins.
Loksins loksins, segja sumir
þegar frétt birtist um að reglu-
gerð sé komin um leiktækjasali.
Þessi minkur kom óboðinn í heimsókn í sláturhús Kaupfélags Svalbarðseyr-
ar. Menn þar undu þessari heimsókn illa og unnu á minknum sem var svartur
að Ut og því kominn frá einhverju minkabúi.
Síðar kemur í ljós að engar reglu-
gerðir ná yfir salina.
Sauðkrækingar huga að vatns-
pökkunarverksmiðju með út-
flutning í huga.
Alþýðubankinn vill opna úti-
bú og allt er klárt en þá er búið
að stinga umsókninni undir stól
og í árslok hefur leyfið enn ekki
fengist.
Umræður verða um varaflug-
völl á Akureyri fyrir millilanda-
flugið. Síðar kemur í ljós að eng-
ar líkur eru á slíkum velli þar sem
stórar þotur geta ekki athafnað
sig í Eyjafirði.
Gunnar Ragnars fer við annan
mann til Marokkó til þess að leita
verkefna fyrir Slippstöðina.
Samningar tókust ekki í fyrstu
lotu en önnur ferð er síðan ráð-
gerð í árslok en enn er allt á
huldu.
Sverrir Hermannsson lýsir því
yfir að hann vilji fremur sjá álver
við Eyjafjörð en á SV-horninu.
Fógeti vísar upplýsingarrits-
málinu frá. Akureyringar fá því
að halda símaskrá sinni enn um
sinn en villurnar í skránni eru
samt aldrei fleiri.
Illa horfir um byggingarfram-
kvæmdir við Verkmenntaskól-
ann. Pennastrik og niðurskurður
verða þess valdandi að aðeins
fjórðungi þeirrar upphæðar sem
óskað var eftir, er veitt til
verksins.