Dagur - 21.12.1983, Síða 19
21. desember 1983 - DAGUR -19
„Þaö veröur ekkert til
sparað að gera þessa há-
tíð sem veglegasta bæði í
mat, drykk og öðru,“
sagði Sigurður Þ. Sig-
urðsson veitingamaður í
Sjallanum er Dagur
ræddi við hann um „ný-
árshátíð Sjallans" sem
haldin verður að kvöldi
nýársdags.
„Við opnum húsið kl.
19 og kl. 19.30 hefst
borðhald. Við bjóðum
upp á 4 rétta hátíðarmat-
seðil sem samanstendur
af krabbasúpu með hvít-
lauksbrauði, grillsteikt-
um hörpufisk á teini, ofn-
steiktri aligæs með lyng-
sósu og koníakslegnum
fíkjum með rjóma í eftir-
rétt,“ sagði Sigurður.
Á meðan gestir sitja að
snæðingi leika þau Krist-
inn Örn Kristinsson og
Lilja Hjaltadóttir á
píanó og fiðlu létt klass-
isk lög og ragtimetónlist.
in í Sjallanum
Þá skemmta félagar úr
Passíukórnum, en þeir
syngja lagasyrpu úr söng-
leiknum sívinsæla My fair
Lady.
Af öðrum skemmtiat-
riðum má nefna að dans-
arar frá Dansstúdíó Alic-
ar sýna og leikarar Leik-
félags Akureyrar iáta
gamminn geysa og
skemmta með léttum at-
riðum sem svíkja ekki ef
að líkum lætur.
Þegar þessu öllu er lok-
ið tekur Ingimar Eydal til
við tónlistina ásamt
hljómsveit sinni. Sérstak-
ir hátíðagestir Ingimars
Eydal verða söngvararnir
Erla Stefánsdóttir, Bjarki
Tryggvason, Sólvegi
Birgisdóttir, Helena Ey-
jólfsdóttir og þá mætir
Finnur Eydal á sviðið.
Það verður sem sagt
reynt að skapa hina einu
sönnu „gömlu og góðu
Sjallastemmningu" á
þessu mikla skemmti-
kvöldi.'
„Við leggjum allt í söl-
urnar til þess að þesi há-
tíð verði sem glæsilegust
á allan hátt,“ sagði Sig-
urður Sigurðsson veitingE
maður, og er ætlunin að
hátíð sem þessi verði ár-
legur viðburður að kvöldi
nýársdags í framtíðinni.
Aðgöngumiðasala og
borðapantanir eru alla
daga í Sjallanum til kl.
20, síminn 22970.
Á annan dag jóla verð-
ur Ingimar Eydal í há-
tíðaskapi með hljómsveit
sína í Sjallanum á dúndr-
andi jóladansleik. Síðan
verður diskótek á þriðju-
dag og fimmtudag á milli
jóla og nýárs og Ingimar
aftur á ferðinni föstudag-
inn 30. desember og hitar
upp fyrir nýárshátíðina. -
En á nýársnótt verður
opið í Sjallanum kl. 24-
04 og nýju ári fagnað.
Kylfingar fagna nýju ári
Kylfingar hjá Golfklúbbi
Akureyrar eru vanir því
að byrja hvert ár á þann
hátt að hittast í golfskála
sínum á nýársnótt og svo
verður einnig nú.
Söfnunarbíll
í Hafnarstræti
Til þess að auðvelda
Akureyringum og nær-
sveitamönnum að koma
gjöfum sínum á framfæri
í söfnun Hjálparstofnun-
ar kirkjunnar mun söfn-
unarbíll verða staðsettur
í Hafnarstræti á Þorláks-
messu frá klukkan 4-10
e.h. Þarna gefst fólki
tækifæri til þess að leggja
sitt af mörkum til bjargar
mannslífum. Minnumst
orða frelsarans: Það sem
þér hafið gjört einum
þessara minna minnstu
bræðra það hafið þér
gjört mér.
Guð blessi glaðan gjaf-
ara.
Þar mæta þeir galvask-
ir og yljasér við minning-
ar frá liðnu ári og taka
dansspor af mikilli list inn
á milli. Hafa þessar sam-
komur jafnan verið vel
sóttar og mikið fjör.
Skemmtinefnd Golf-
klúbbsins hefur nú boðað
til nýársfagnaðar og hefst
hann kl. 01 eða skömmu
eftir miðnætti á gamlárs-
dagskvöld. Nefndin mun
að sögn hafa eitthvað
skemmtilegt í pokahorn-
inu og er ekki að efa að
glaumur og gleði mun
verða í golfskálanum að
þessu sinni sem endra-
nær.
Skemmtinefndin skor-
ar á félagsmenn að fjöl-
menna og taka með sér
gesti, en fyrirhugað er
fjörugt félagslíf í vetur á
vegum nefndarinnar.
Jólatrésskemmtun
Knattspyrnudeild KA
gengst fyrir jólatrés-
skemmtun fyrir börn á 2.
dag jóla og veður hún
haldin í Sjallanum og
hefst kl. 15.
Þar verður margt til
skemmtunar og má m.a.
nefna að fimm jólasvein-
ar koma í heimsókn og
sjá um að gleðja börnin
og stjórna dansinum í
kring um jólatréð.
Ingimar Eydal verður
að sjálfsögðu á svæðinu
enda ómissandi maður ef
eitthvað er um að vera í
Sjallanum hvort sem er
að degi eða kvöldi. Þá
má geta þess að diskótek
verður er líða fer á
skemmtunina svo sjá má
að það er boðið upp á
eitthvað fyrir alla aldurs-
hópa barnanna.
Kiwanis-menn
selja hagnýta
skotpalla
„Þessi skotpallur er hið
mesta þarfaþing og á ör-
ugglega eftir að koma sér
vel víða,“ sagði Hall-
grímur Arason formaður
Kiwanisklúbbsins Kald-
baks á Akureyri, en
klúbburinn býður nú sér-
staka „skotpalla“ til sölu
fyrir gamlárskvöld.
„Skotpallar" þessir eru
skemmtilega hannaðir og
henta einnig vel fyrir blys
og þess háttar auk þes
sem þeir sóma sér prýði-
lega sem veggskraut að
notkun lokinni. Með
notkun þeirra losna
menn við hinn leiðinlega
flöskuburð, en „skotpall-
ar“ þessir eru mun hent-
ugri sem slíkir en tómar
gosflöskur.
„Skotpallarnir" verða
seldir í flugeldamörkuð-
um skáta á Akureyri og
hjá versluninni Eyfjörð
og kosta þeir 200 krónur.
Bautmn-Smiðjan
Veitingastaðirnir Baut-
inn og Smiðjan verða
opin sem hér segir um jól
og áramót:
Bautinn: Opið verður
á aðfangadag til kl. 13, og
síðan verður lokað fram
til 29. desember vegna
lagfæringa. Á gamlársdag
verður opið til kl. 13 en
síðan lokað á nýársdag.
Smiðjan: Smiðjan
verður lokuð á aðfanga-
dag, jóladag og 2. dag
jóla, og einnig á gamlárs-
dag og nýársdag.
/
Imyndun -
arveikin
Leikklúbburinn Saga á
Akureyri, æfir nú um
þessar mundir, gleðileik-
inn ímyndunarveikina
eftir Moliére, undir
stjórn Þrastar Guð-
bjartssonar. Frumsýning
er fyrirhuguð 30. des. í
Dynheimum kl. 21.00.
Þrettán manns taka
þátt í sýningunni og með
helstu hlutverk fara:
Magnús Sigurólason,
Erna Hrönn Magnúsdótt-
ir, Anna Jóna Vigfús-
dóttir, Inga Vala Jóns-
dóttir og Ölafur Hilmars-
son.
Leikritið gerist í París
1673, og er skopleg
ádeila á læknastéttina.
Það fjallar í stuttu máli
um aldraðan auðkýfing,
Argan að nafni, og sam-
skipti hans við lækna og
lyfsala. Einnig fléttast inn
í leikinn ástarmál eldri
dóttur hans, en Argan er
staðráðinn í að gifta hana
ríkum lækni, þvert ofan í
vilja hennar.
Flugelda-
sala
Hjálparsveit skáta verður
með flugeldasölu í Al-
þýðuhúsinu á Akureyri,
eins og undanfarin ár.
Auk þess verður sveitin
með útibú hjá Hagkaup,
Kjörmarkaði KEA við
Hrísalund og verslun-
armiðstöðinni Sunnu-
hlíð. Flugeldasalan er
nánast eina tekjulind
Hjálparsveitarinnar og
rennur ágóðinn til tækja-
kaupa. Næst á döfinni í
þeim efnum hjá sveitinni
eru kaup á dráttarvél-
sleða og auknum fjar-
skiptabúnaði frá því sem
hún hefur nú yfir að ráða.
Krítarkort Eurocard
gilda á flugeldamarkaði
sveitarinnar. Hjálpar-
sveitarmenn báðu blaðið
fyrir þakkir til bæjarbúa
fyrir stuðninginn undan-
farin ár, jafnframt því
sem þeir óskuðu bæjar-
búum gleðilegra jóla og
slysalausra áramóta.
Frá tannlæknum
Akureyrar:
Neyðarvaktir um jól og áramót:
24. des. milli kl. 11 og 12 Egili Jónsson sími 24440.
25. des. milli kl. 3 og 4 Kristján Víkingsson sími 24440.
26. des. milli kl. 3 og 4 Jóhann Benediktsson sími 24440.
31. des. milli kl. 11 og 12 Steinar Þorsteinsson sími 22242.
1. jan. milli ki. 3 og 4 Ragnheiður Hansdóttir sími 25811.
Dansleikur
verður haldinn í Árskógi þriðjudaginn 27. des.
og hefst kl. 22.00 með því að Samkór Árskógs-
strandar undir stjórn Guðmundar Þorsteinssonar
syngur nokkur lög og fer með glens og grín.
Síðan leikur Hljómsveit Ingimars Eydal fyrir
dansi.
Allur ágóða rennur til Stærri-Árskógskirkju.
Nefndin.
Hjálmar, skíða-, vélsleða- og vélhjólahjálmar.
Leðurjakkar og -buxur, unglingastærðir.
Leðurhanskar og -lúffur, margar gerðir.
Armbandsúr, tölvuúr, margar gerðir.
Varahlutir fyrir Yamaha, Suzuki og Hondur.
■Opið milli kl. 5 og 7, Þorláksmessu frá kl. 13-23.
Póstsendum um allt land.
ÚTGARÐUR
FROSTAGATA 6, SÍMI 96-23650, AKUREYRI, PÓSTHÓLF 12 í HÚSI VÉLSMIÐJU STEINDÓRS HF.