Dagur - 02.01.1984, Síða 3
Útburðarmálið:
„Guð og gaddurinn
600 Akureyri“
Ólafur Rafn segir málið fara alla leið fyrir Mannréttindadómstólinn
Bæjarfógetinn:
„Okkur liggur
ekkert á“
Enn hefur ekkert verið ákveð-
ið hjá bæjarfógetaembættinu
á Akureyri, hvenær dómi
Hæstaréttar í „útburðarmál-
inu“ verður fullnægt. Elías
Elíasson, bæjarfógeti sagði er
Dagur hafði samband við hann
að „ekkert lægi á“ og enginn
hefði rekið á eftir embættinu í
þessum efnum.
Elías Elíasson sagði að með
þessum síðasta Hæstaréttardómi
þá hefði fyrri úrskurður Hæsta-
réttar verið staðfestur og því liti
hann svo á að ekki þyrfti að birta
dóminn aftur. Birting dómsins
hefði verið lögleg og því óvíst um
hvaða frest fjölskyldan í Þing-
vallastræti fengi nú til að rýma
íbúðina, ef nokkurn. Sem kunn-
ugt er þá fékk fjölskyldan á sfn-
um tíma þriggja mánaða frest til
að hafa sig á brott úr íbúðinni. ese
Ólafur Rafn Jónsson, sem gert
hefur verið að rýma húsnæðið
að Þingvallastræti 22 ásamt
eiginkonu sinni og fimm
börnum, sagði í samtali við
blaðið rétt fyrir áramótin að
hann hefði engar upplýsingar
fengið um hvenær fógeti
hyggðist láta til skara skríða í
málinu.
- Það er þó tilbreyting að við
fengum að þessu sinni ekki frétt-
irnar um dóminn í blöðunum,
eins og þegar við vorum krossfest
fyrir páskana með fyrri dómi
Hæstaréttar. það er ljóst að nú
hefur Hæstiréttur gerst sekur um
stórkostleg juridisk mistök og
dæmt okkur út á Guð og
gaddinn. Hæstiréttur hefur kveð-
ið upp úrskurð um að við megum
ekki búa í eigin íbúð en það er
hvergi ákvæði um að við megum
ekki dvelja í íbúðinni eða koma
í hana um lengri eða skemmri
tíma, þrátt fyrir að okkur hafi
verið úthlutað heimilisfanginu:
Guð og gaddurinn, 600 Akur-
eyri, sagði Ólafur Rafn Jónsson.
Ekki sagðist Ólafur vita hvenær
mál þeirra hjóna yrði tekið
fyrir hjá Mannréttindadómstóln-
um en hann sagðist ekki í vafa
frekar en hinn belgíski lögfræð-
ingur þeirra hjóna að málið færi
alla leið eftir þennan „barbar-
isma“ hins íslenska dómskerfis,
eins og Ólafur orðaði það. ese
2. janúar 1984 - DAGUR - 3
Fagmannleg handtök. Nonni á „goggnum“ virðist vera útlærður í faginu.
Aðfásér
í gogginn
„Nafnið er komið til vegna
þess að það er alveg upplagt
fyrir fólk að skjótast hingað
inn af götunni og fá sér í
gogginn,“ sagði Jón Bjarnason
framkvæmdastjóri „Goggsins“,
en það er skyndibitastaður sem
opnaður var við Ráðhústorg á
Akureyri nýlega.
Það er hlutafélagið „Goggur
h.f.“ sem rekur staðinn og er
aðaláherslan lögð á pizzur þótt
einnig sé hægt að fá þar ham-
borgara og ýmislegt fleira í
goggmn.
„Við erum með sérstaka upp-
skrift af pizzunum sem við
vinnum eftir,“ sagði Jón. „Við
hnoðum deigið hér á staðnum og
fletjum það út og fullkominn
pizzuofn sér síðan um framhaldið
eftir að deigið er komið í hann
með öllu tilheyrandi."
- Jón sagði að það hefði alveg
vantað í bæinn stað eins og
þennan. „Það er staðreynd og
viðtökurnar sýna svo ekki verður
um villst að svo hefur verið,“
sagði hann.
HvaÖ gefu r
mioii
happdrætti
SÍBS?
Hann gefur þér gott tækifæri til að hreppa vinning allt upp í milljón
— eða einn þeirra mörgu sem eru lægri en munar þó um.
Og hver seldur miði á þátt í að gefa þúsundum betri tækifæri til að
endurheimta heilsu sína og þrek. Öllum ágóðanum er varið til að . .
byggja upp þá aðstöðu sem SÍBS hefur skapað til endurhæfingar m
og starfa við hæfi fólks sem hefur skert starfsþrek. ^^9.
| Happdrætti StBS
ii hagur þinrt og heildarinnar