Dagur - 02.01.1984, Blaðsíða 5
4 - DAGUB - 2. janúar 1984
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SfMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 130 Á MÁNUÐI - LAUSASÖLUVERÐ 18 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÓRNSSON
FRÉTTASTJÓRI: GlSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN: EIRlKUR ST. EIRlKSSON, GYLFI KRISTJÁNSSON,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Sjálfstæðisbarátta
á nýju ári
í greinargerð með þingsályktunartillögu um
kennslu í íslandssögu, sem lögð var fram á
Alþingi fyrir þinghlé segir meðal annars:
„Margt hefur verið rætt og ritað um
kennsluhætti og menntastefnu að því er varð-
ar kennslu á grunnskólastigi í íslandssögu.
Svo sem eðlilegt hlýtur að teljast hafa þar
komið fram ýmis sjónarmið, býsna ólík. Því er
ekki að neita að ýmsir hafa af því verulegar
áhyggjur að nemendur sem ljúka grunnskóla-
prófi séu í sumum tilvikum næsta fáfróðir um
sögu þjóðar sinnar, sem hlýtur þó ásamt móð-
urmálsnámi að teljast einn af veigamestu
grundvallarþáttum menntakerfisins á ís-
landi. “
í greinargerðinni er síðan vitnað í blaða-
grein eftir Arnór Hannibalsson, lektor við
Heimspekideild Háskóla íslands, þar sem
sagði meðal annars á þessa leið:
„Frumgrunnur og tilveruforsenda smáríkis
er ævarandi barátta þess fyrir fullveldi og
sjálfstæði. Höfuðverkefni ríkisins er að skapa
samstöðu allrar þjóðarinnar í þeirri baráttu.
Ríkið hlýtur að beina orku sinni að því að ís-
lendingar öðlist ekki aðeins þekkingu og
skilning á þjóðarsögunni heldur og að þeir
hafi vilja til að varðveita það menningarsam-
félag sem við höfum komið okkur upp. Sjálf-
stæðisbaráttunni lýkur aldrei. Smáþjóðin á
ætíð undir högg að sækja. Við ráðum því ekki
hvað stórveldin telja sér í hag.
Líf okkar hér á íslandi ber að skoða í ljósi
baráttu okkar fyrir þjóðarréttindum, bæði í for-
tíð og nútíð. Sé á því slakað, hvort heldur er í
stjórnmálum, söguritun eða skólastarfi, erum
við að svíkja sjálfa okkur.“
Þó að ofangreindar tilvitnanir hafi komið til
vegna umræðna um íslandssögukennslu í
skólum og endurskoðunar námsefnis, má líta
á þær í víðara samhengi.
Nú á nýbyrjuðu ári standa íslendingar
frammi fyrir stórkostlegri baráttu fyrir efna-
hagslegu sjálfstæði sínu. Margt kemur þar til,
m.a. ýmiss konar óáran af völdum minnkandi
auðlinda, sem að sumu leyti stafar af manna-
völdum en að öðru leyti af óblíðri náttúru og
afleitum ytri skilyrðum. Þá má nefna eyðslu
umfram efni undanfarin ár, sem er afleiðing
óðaverðbólgunnar sem ríkt hefur í efnahags-
lífi þjóðarinnar.
Sjálfstæðisbaráttan fer einnig fram í smærri
stíl, en ekki endilega ómerkari. Landsbyggðin
hefur lengi reynt að berjast fyrir auknu sjálf-
stæði á fjölmörgum sviðum, sem er öllum
þegnum þessa lands fyrir bestu. Þar hefur
verið við ramman reip að draga — skilningslítil
stjórnvöld og sjálfvirkt miðsóknarafl.
í von um að sjálfstæðisbarátta íslendinga á
öllum sviðum fái farsælan framgang á þessu
nýbyrjaða ári óskar Dagur öllum landsmönn-
um árs og friðar.
„Lestrarkennsla er
lykill að málfarinu“
- Kennslugögn Jóns Júlíusar Þorsteinssonar
í lestri með hljóðstöðumyndum komin út
Minningarsjóður um Jón Júl.
Þorsteinsson, kennara frá Ól-
afsfirði, sem starfaði við
Barnaskóla Akureyrar á árun-
um 1944-1969 hefur geftð út
fjórar möppur og þrjár hljóð-
snældur með kennsluaðferðum
Jóns í lestri, hljóðmyndun og
söng. Umsjón með útgáfunni
hafði Erla Kristjánsdóttir,
fósturdóttir Jóns.
Minningarsjóðurinn var stofn-
aður 28. nóvember 1982 og til-
gangur hans er fyrst og fremst að
gefa út kennslugögn fyrir hljóð-
lestrartal og söngkennslu. Fyrsta
verkefni sjóðsins eru kennslu-
gögn eftir Jón, þ.e. Hljóðstöðu-
myndir, íslensk málhljóð og
Lestrarkennsla, hljóðlestrarað-
ferð. Árni Böðvarsson, cand.
mag., hefur gert viðbæti við
myndir Jóns og samið skýringar
við allar myndirnar. í formála
Árna Böðvarssonar segir meðal
annars:
„Myndir þær sem hér birtast
eru hinar fyrstu sem birtar eru á
þennan hátt af íslenskum
hljóðum. Þær eiga að vera gagn-
legar við hvers konar kennslu í
íslenskum framburði eða hljóð-
myndun. Þær eru því ætlaðar
lestrarkennurum, framsagnar-
kennurum, söngkennurum, tal-
meinafræðingum og raunar öllum
sem þurfa að leiðbeina um rétta
og eðlilega hljóðmyndun í ís-
lensku.
Myndir Jóns eru meðal annars
byggðar á röntgenmyndum sem
hann fékk teknar á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri árið
1965. Myndirnar eru alls 83,
prentaðar í 4 litum og er hver
mynd í sérstöku plasthylki, frá-
gengnum í 3 plastmöppum. Sam-
tímis kemur út fjórða mappan
með texta þeim prentuðum sem
Jón notaði við lestrarkennsluna,
ásamt þrem snældum með upp-
töku á kennslu hans.“
í eftirmála Erlu Kristjánsdótt-
ur segir m.a.:
„Hér eru gefnar út kennslu-
stundir í lestri sem Jón Júlíus
Þorsteinsson, kennari, samdi og
las inn á segulband árið 1976.
Kemur skýrt fram aðferð sú sem
hann notaði með mjög góðum ár-
angri við hljóðlestrarkennsluna.
Rétt þykir að kynna þessa aðferð
ef vera mætti að hún kæmi öðrum
að gagni við lestrar- og framburð-
arkennslu í íslcnsku."
Indriði Úlfsson, skólastjóri á
Akureyri, segir m.a. um Jón:
„Okkur sem þekktum Jón J. Þor-
steinsson var ljóst að hann var
vísindamaður á sviði lestrar-
kennslunnar og þar höfðu fáir
tærnar þar sem hann hafði hæl-
ana. Þó að tímar séu breyttir læra
börnin lestur á svipaðan hátt og
áður. Mér þykir því líklegt að
hljóðstöðumyndir þær sem hér
fylgja, eigi eftir að létta ungum
nemendum iestrarnámið og auð-
velda lestrarkennurum vanda-
samt verk.“
í einni möppunni er að finna
ýmis ummæli Jóns sjálfs um lestr-
arkennsluna. Þar segir á einum
stað: „Ég hef alla tíð litið svo á
að lestrarkennslan væri lykillinn
að málfari mannsins, auk þess
sem hún lýkur upp undra- og
töfraheimi þeirra sagna og alls
þess fróðleiks sem barnið lærir af
bók.“ Og á öðrum stað segir:
„Lestrarkennslan er undirstaða
þess að við eignumst vald yfir
framburði okkar í daglegum sam-
skiptum."
Þess má geta að Einar Helga-
son, myndmenntakennari á Ak-
ureyri, teiknaði myndirnar fyrir
Jón á sínum tíma, en Erla Krist-
jánsdóttir hefur litgreint þær.
Úrvinnsla á hljóðupptöku fór
fram í Studio Stemmu í Reykja-
vík, en á snældunum er einnig
söngur sérhljóðanna, sem þrjár
ungar stúlkur annast, þær Hrund
og Sigurbjörg Hlöðversdætur og
Guðrún Hrund Harðardóttir.
Studio Bimbó á Akureyri annað-
ist upptökur á söngnum. Mifa
tónbönd sáu um fjölföldun.
Prentsmiðjan Oddi sá um setn-
ingu, filmuvinnu og prentun en
möppurnar eru frá Múlalundi.
Prófarkir hafa Árni Böðvarsson,
cand. mag., Oddur Sigurðsson,
jarðfræðingur, og Þóra Kristins-
dóttir, sérkennari, lesið. Pantanir
er hægt að leggja inn hjá Bóka-
búð Jónasar á Akureyri og af-
greiðslu Bókmenntafélagsins í
Reykjavík, svo einhverjir staðir
séu nefndir. Möppurnar eru
gefnar út í 1001 eintaki og eru
þau númeruð.
Úr
moppunni.
mynd: hsv
Jón Júlíus Þorsteinsson.
mynd: hsv
Erla Kristjánsdóttir með kennslugögnin.
2. janúar 1984 - DAGUR - 5
ívar Bjarklind hefur jafnað fyrir KA geg n Þór í 6. flokki. Þetta mark kom í framlengingu og síðan sigraði Þór í
spennandi vitaspymukeppni. mynd kga
Körfuknattleikur:
Fyrsti Akur-
eyringurinn
í landslið
Guðmundur Björnsson körfu-
knattleiksmaður úr Þór er
fyrsti Akureyringurinn sem
valinn hefur verið til að leika
með landsliði íslands í körfu-
knattleik. Guðmundur heldur
utan með unglingalandsliðinu
til Kentucky í Bandaríkjunum
í dag en unglingalandsliðið
mun leika þar nokkra leiki.
kostnað sjálfir. Er full ástæða til
að þakka þeim aðilum fyrir
stuðninginn.
ÞOR MEÐ 6
Mikið fjör var í Akureyrar-
mótinu í innanhússknattspyrnu
sem fram fór rétt fyrir áramót-
in. Þar voru leiknir 23 leikir í
hinum ýmsu flokkum, og
keppt um Akureyrarmeistara-
titla í 9 flokkum og fór svo að
Þór hlaut 6 þeirra en KA 3.
6. flokkur:
Hér var hörkukeppni. KA vann
í leikjum b- og c-liða 2:1 en í
keppni a-liðanna sigraði Þór 5:4
eftir framlengingu og vítaspyrnu-
keppni. Þór er því Akureyrar-
meistari.
5. flokkur:
Hér vann Þór alla leiki. í keppni
c-liða Þórs og KA sigraði Þór
2:0, í leik b-liðanna vann Þór 3:0
og í leik a-liðanna vann Þór 4:3.
Þór Akureyrarmeistari.
4. flokkur:
KA vann auðvelda sigra í keppni
b- og c-liða gegn Þór. Sigraði 4:0
í leik c-liðanna, 5:1 í leik b-liða
en Þór sneri dæminu við er a-lið-
in mættust og vann 5:4 en reynd-
ar ekki fyrr en eftir framlengingu
og vítaspyrnukeppni. Þór Akur-
eyrarmeistari.
3. flokkur:
Hér vann Þór þrefalt. f leik c-liða
KA og Þórs með 5:2, í leik b-liða
4:0 og í leik a-liðanna með 7
mörkum gegn 4. Þór Akureyr-
armeistari.
2. flokkur:
Hér áttust KA og Þór við en að-
eins í einum leik og var ekki teflt
fram b- og c-liðum. KA tryggði
sér sigur með 5 mörkum gegn 4.
KA Akureyrarmeistari.
1. flokkur:
Sömuleiðis um einn leik að ræða
TITLA
á milli Þórs og KA og sigraði Þór
með 3:1. Þór Akureyrarmeistari.
M.fl. karla:
Hér mættust 3 lið því Vaskur
keppti ásamt KA og Þór. Úrslitin
urðu þau að KA sigraði Vask
10:0, Þór sigraði Vask 8:0 og KA
sigraði Þór í úrslitaleik með 6:5 í
skemmtilegri viðureign. í keppni
b-liða vann Þór hins vegar KA í
úrslitum 2:0. KA Akureyrar-
meistari.
M.fl. kvenna:
Hér komst KA í 2:0 strax í upp-
hafi en Þórsstelpurnar gáfust
ekki upp, þær jöfnuðu og unnu
3:2. í keppni b-Iiða vann Þór
einnig 3:1 eftir framlengingu. Þór
Akurey rarmeistari.
Eldri flokkur:
KA komst í 3:0 og tryggði sér sig-
ur og Akureyrarmeistaratitil með
3:1 sigri.
Þeir leikir eru undirbúningur
unglingalandsliðsins fyrir
Evrópukeppni unglingaland'sliða
sem fram fer í Þýskalandi í vor,
en þar er ísland í riðli með V-
Þýskalandi, Skotlandi, ísrael og
Portugal eftir því sem við vitum
best.
12 manna liðið sem fer til
Bandaríkjanna í dag var valið úr
um 25 manna hópi sem hóf æfing-
ar í haust. Upphaflega voru tveir
piltar frá Akureyri í hópnum,
Guðmundur og Konráð Oskars-
son, en Konráð hætti áður en lið-
ið var valið vegna náms síns.
Guðmundur hóf að leika með
meistaraflokki Þórs 1981, þá að-
eins 16 ára og hefur síðan verið
fastur maður í liði félagsins.
Nokkur fyrirtæki í bænum hafa
orðið til þess að styrkja för hans
til Bandaríkjanna sem er kostn-
aðarsöm en piltarnir sem fóru
utan hafa orðið að leggja fram
um 20 þúsund krónur í ferða-
Guðmundur skorar gegn ÍS.
Baldur hlaut
Ýlisbikarinn
„KA liðið mun betra
en við áttum von á“
- sagði fyrirliði FH eftir að KA hafði veitt FH mestu keppni
sem liðið hefur fengið í vetur
KA-Iiðið kom heldur betur á
óvart í leik sínum gegn FH sem
leikinn var sl. miðvikudags-
kvöld í íþróttahöllinni Akur-
eyri. FH-ingar, sem hafa unnið
alla Ieiki sína í mótinu með
miklum yfirburðum (8-15
mörkum) lentu þar í mildum
vandræðum og um tíma í síðari
hálfleik virtist sigur í leiknum
geta fallið hvoru megin sem
var. Langbesti leikur KA í vet-
ur setti leikmenn FH út af lag-
inu, en þeir stóðu samt uppi
sem sigurvegarar í lokin, úrslit-
in 21:18.
Birgir Björnsson þjálfari KA
var því að vonum kátur eftir leik-
inn. „Þetta var tvímælalaust besti
leikur okkar í vetur bæði í vörn
og sókn og varnarleikurinn var
sérstaklega góður. Við erum í
framför og það er góður stígandi
í þessu hjá okkur. Þá sáu áhorf-
endur að við erum að eignast
stórspilara þar sem Jón Kristjáns-
son er, og er vonandi að við fáum
að hafa hann eitthvað áfram.“ -
Birgir á hér væntanlega við það
að vonandi verði það ekki alveg
á næstunni að KR-ingar reyni að
lokka Jón til sín!
Þar sem nokkuð er um liðið síð-
an leikurinn fór fram er óþarfi að
fara náið út í gang hans, það hef-
ur verið gert í öðrum fjölmiðlum.
Er skemmst frá því að segja að
KA hafði yfirleitt frumkvæðið,
staðan 9:9 í hálfleik og KA komst
síðan í 11:9. Eftir að FH komst
loks yfir og náði 17:14 jafnaði
KA 18:18 er stutt var tií leiks-
loka, en á þeim tíma náðu FH-
ingar að tryggja sér sigurinn.
„Við höfum aldrei í vetur verið
undir í leikjum okkar eftir að
komið hefur verið fram í síðari
hálfleik,“ sagði Guðmundur
Magnússon fyrirliði FH eftir leik-
inn. „Það var aðeins í leik okkar
gegn Val sem við höfum verið
undir, og þá var það bara í upp-
hafi leiksins. KA-liðið lék mun
betur en við áttum von á og sér-
staklega var markvörðurinn góð-
ur hjá þeim.“
Já, Gauti í marki KA varði
eins og berserkur og hefur varla
átt annan eins stórleik í langan
tíma. Hann lokaði markinu á
köflum og var sama hvort um var
að ræða langskot, línuskot eða
vítaskot, allt varði hann. Hann
stóð á bak við bestu vörn KA í
langan tíma og sóknarleikur liðs-
ins var mun yfirvegaðri en áður,
ekki skotið nema í góðum
færum. Yfir höfuð mjög góður
leikur hjá KA sem hefði nægt til
sigurs gegn flestum öðrum liðum
en FH. Jón Kristjánsson kom
mjög vel út og einnig Erlingur
Kristjánsson en annars var liðið
mjög jafnt. Þá vakti athygli stór-
leikur Ragnars Gunnarssonar í
vörninni og baráttan var í iagi
þar.
FH-liðið án Kristjáns Ara-
sonar var slakara en menn áttu
von á, en það breytir því ekki að
KA-liðið var bara mjög gott. FH-
liðið er einfaldlega gæðaflokkum
betra en önnur íslensk lið undir
venjulegum kringumstæðum.
Mörx KA: Jón Kristjánsson
4, Sigurður Sigurðsson og Jó-
hannes Bjarnason 3 hvor, Erling-
ur Kristjánsson, Þorleifur Anan-
íasson og Jóhann Einarsson 2
hver, Logi Einarsson og Magnús
Birgisson 1 hvor.
Atli Hilmarsson var langbestur
FH-inga í þessum leik og hann
skoraði einnig meira en helming
marka liðsins eða 11.
Föstudaginn 16. desember var
haldið á Akureyri hið árlega ÝIis-
mót Júdóráðs Akureyrar. Ýlis-
mótið er innanfélagsmót. Kepp-
endur voru 50. Til gamans má
geta þess að á fyrsta Ylismótinu,
sem haldið var 1978 voru sjö
keppendur svo Ijóst er að vin-
sældir íþróttarinnar eru stöðugt
að aukast. Á mótinu var keppt í
sex þyngdarflokkum karla og
tveimur þyngdarflokkum
kvenna.
Margir ungir og efnilegir
júdómenn komu fram á mótinu
og var keppnin oft jöfn og hörð.
Þó tel ég ekki á neinn keppanda
hallað þó ég nefni Baldur Stef-
ánsson fremstan meðal jafningja.
Hann sýndi góða tækni ásamt
snerpu og krafti. Baldur hlaut Ýl-
isbikarinn og er hann mjög vel að
honum kominn. Ýlisbikarinn er
farandgripur, sem veittur er fyrir
flesta Ippon sigra en það er að
vinna glímur á 10 stigum, sem er
fullt hús stiga.
Karlar:
- 30 kg fl.
1. Elvar Birgisson KA
2. Gunnlaugur Sigurjónsson Þór
3. Kristófer Einarsson KA
3. Rúnar S. Jósefsson KA
30-35 kg 11.
1. Jón Ámason KA
2. Kristján Ólafsson KA
3. Júlíus Bjömsson Þór
3. Reynir Þórðarson KA
35-40 kg fl.
1. Baldur Stefánsson Þór
2. Tryggvi Heimisson KA
3. Stefán Bjamason KA
40-50 kg fl.
1. Hjálmar Hauksson Þór
2. Vemharður Þorleifsson KA
3. Jón Heiðar Rúnarsson Þór
3. Ólafur Herbertsson Þór
50-60 kgfl.
1. Árni Ólafsson Þór
2. Jón Ingason Þór
3. Jóhann Sigurðsson Þór
3. Trausti Harðarson Þór
+ 60 kg fl.
1. Benedikt Ingólfsson KA
2. Adam Traustason KA
3. Amar Harðarson KA
Konur:
50 kg fl.
1. Helena Friðriksdóttir Þór
2. Guðrún Þorsteinsdóttir Þór
3. Dagrún Jónsdóttir Þór
+ 50 kgfl.
1. Jóhanna Bergsdóttir Þór
2. Kristín Magnúsdóttir KA
3. Andrea Waage Þór