Dagur - 08.02.1984, Blaðsíða 5
8. febrúar 1984 - DAGUR - 5
Dóna-
skapur
við
áhorf-
endur
- Mynd og hljóð
passaði ekki saman
Bíógestur hringdi:
Ég fór í Borgarbíó sl. föstudags-
kvöld til að sjá íslensku kvik-
myndina „Skilaboð til Söndru“.
Raunar var það fyrir hreina til-
viljun, að ég vissi af því að mynd-
in var sýnd, því ekki var nú bíóið
að hafa fyrir því að auglýsa sýn-
ingarnar í bæjarblöðunum eða
þá að framleiðendurnir hefðu
fyrir því að koma þar fréttum á
framfæri. Það er annað mál, og
raunar furðulegt að Borgarbíó
skuli ekki notfæra sér þjónustu
bæjarblaðanna. Það gæti orðið til
að auka aðsóknina og hressa upp
á reksturinn.
En aðalástæðan til þess að ég
læt í mér heyra er sú, að mér of-
bauð sá dónaskapur sem áhorf-
endum og framleiðendum var
sýndur með sýningu myndarinnar
á föstudaginn. Sá dónaskapur
(vonandi ekki viljandi gerður)
fólst í því, að mynd og hljóð
passaði ekki saman. Þannig skall
hurð í lás samkvæmt hljóðinu,
þegar hún átti eftir háifa leið að
stöfum samkvæmt myndinni.
Svona var þetta frá upphafi til
loka og ekki varð ég var við nein-
ar aðgerðir sýningarstjórans, til
að lagfæra þetta. Auk þess var
hljóðið gróft, rétt eins og það
kæmi úr tómri fiskbolludós frá
Niðursuðunni. Ég ætlaði að
kvarta við sýningarstjóra mynd-
arinnar í hléinu, en þá bara var
ekkert hlé. Það hvarflaði því að
mér, að sýningarstjórinn hefði
sett vélarnar af stað, en farið síð-
an heim og beðið ræstingarkon-
urnar að slökkva á vélunum áður
en þær færu.
Hljóðupptaka hefur löngum
verið höfuðverkur íslenskra kvik-
mynda. En þrátt fyrir það vil ég
ekki trúa því að þarna hafi verið
um að kenna handvömm fram-
leiðenda, svo hroðalegt sem
þetta var. Kunnugir segja mér að
svonefndur „tónhaus" í sýningar-
tækjum Borgarbíós sé ónýtur.
Sé það rétt, þá er ekki að undra
þótt bíógestum á Akureyri fari
fækkandi.
Leiðrétting
í grein í Helgar-Degi þann 3.
febrúar sem bar heitið: „Trúlegt
þeir bæti bjórnum við viskíið"
urðu smámistök.
Fyrirsögnin á greininni var
ekki komin frá höfundi Birni S.
Stefánssyni, heldur var hún
blaðsins. Fyrirsögn höfundar sem
fylgdi greininni var hins vegar:
O, að Islendingar gætu verið eins
og . . .
Greinin hófst síðan á eftirfar-
andi setningu: „Jú, nú var það
eins og enskir þorpsbúar . . .“
Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
Akureyringar - Eyfirðingar
Tobacco Road
syningar í Freyvangi
föstudag 10. feb. ki. 20.30. (Jppselt.
iaugardag 11. feb. kl. 20.30.
sunnudag 12. feb. kl. 20.30.
Leikfélag Öngulsstaðahrepps U.M.F. Árroðinn.
LETTIR 1* Vakuhcyri/ Aðalfundur
Hestamannafélagsins Léttis
verður haldinn í félagsmiðstöð Lundarskóla sunnudaginn 12. febrúar 1984 kl. 14.00.
Fundarefni:
1. Inntaka nýrra félaga. 2. Venjuleg aðalfundarstörf. 3. Lagabreytingar. 4. Kosning stjórnar og nefnda. 5. Stofnun kvennadeildar. 6. Önnur mál.
Stjórnin.
Sk KLÚBBARNIR ÖRUGGUR AKSTUR
^FUNDARBOÐ
Akureyri - Eyjafirði
Fundarstaður að Hótel KEA laugardaginn 11.
febrúar 1984 klukkan 14.00.
Dagskrá:
Ökukennslan, m.a. kynnt ný lög um hana. Þór-
oddur Jóhannsson, förmaður Ökukennarafélags
Norðurlands.
Afhending viðurkenninga fyrir 5, 10 og 20 ára ör-
uggan akstur. Magnús Steinarsson, Samvinnu-
tryggingum g.t.
Erindi um umferðarmál. Baldvin Ottósson, for-
maður Landssamtaka klúbbanna öruggur akstur.
Fyrirspurnir - Umræður.
Kaffiveitingar í boði klúbbsins.
Mætum öll!
Rýmingarsalan
í fullum gangi
Ennþá er hægt að gera
mjög góð kaup
Opið laugardag 10-12
Eyfjörð
Hjalteyrargötu 4 sími 22275
Frá Kjörmarkaði
KEA Hrísalundi
Munið vinsælu
þorrabakkana
Afgreiðum einnig stærri
pantanir og þá með jafningi
og rófustöppu.
Opið til kl. 20 á fimmtudögum
og til hádegis á laugardögum.
Kjörmarkaður KEA
Hrísalundi
l:
illi
IIIIÍIIIlUiuiiii
L
Styrkur ★ Gæði ★ Spamaður ★ Tími
Við höfum yfirstigið framleiðsluvandamál, endurbætt og skipulagt
framleiðslu steyptra húseininga okkar.
Þess vegna getum við státað af stvrk. aæðum, soamaði og tíma
Höfum fyrirliggjandi um 40 teikningar af
einbýlishúsum með eða án bílskúrs
Leitið upplýsinga á skrifstofunni
ci
LLUlLUJfri
Sindrafell hf.
Draupnisgötu 1 - Símar (96)25700 og 25701 - P.O. Box 649 - 602 Akureyri.