Dagur - 20.02.1984, Qupperneq 9
20. febrúar 1984 - DAGUR - 9
Þóroddur F. Þóroddsson:
Mengunarefni og
mengunarvarnir álvers
Pað er víða rætt um álver við
Eyjafjörð í dag og málið skoðað
frá ýmsum hliðum. Leysir bygg-
ing þess atvinnuvandamál hér-
aðsins? veldur það röskun á bú-
setu? eða ómetanlegu tjóni á um-
hverfinu? Þetta eru dæmi um
spurningar sem fram koma í um-
ræðum og reynt er að leita svara
við. Nokkuð áberandi er að al-
menning vantar upplýsingar,
skýrslur koma út öðru hverju en
þær lenda gjarnan í hillum skrif-
stofa og hinn almenni borgari
veit ekki hvar á að leita þeirra.
Ein af þessum skýrslum er
áfangaskýrsla Staðarvalsnefndar:
Staðarval álvers, er út kom í júlí
1982. í skýrslu þessari er mikill
fróðleikur og styðst ég við hana í
eftirfarandi pistli, beinar tilvitn-
anir eru innan gæsalappa.
Helstu mengunarefni:
Flúor:
í útblæstri álvers kemur flúor
bæði fyrir sem flúorvetni og sem
flúorsambönd í ryki. Við fram-
leiðslu á 1 tonni á áli losna 16-20
kg af flúor og er u.þ.b. helming-
urinn flúorvetni.
(1) Hér á landi eru þekkt eitur-
áhrif flúors á búfénað sem hefur
étið gras eða hey sem mengast
hefur af eldfjallaösku.
(2) Plöntur geta einnig orðið
fyrir skaða af flúor (barrtré eru
sérstaklega viðkvæm), þótt styrk-
ur þess sé mjög lítill („á bilinu
hlutar í þúsund milljón eða jafn-
vel hlutar í tíu þúsund milljón“).
(3) Annar mjög mikilvægur
eiginleiki flúors er, að hann safn-
ast fyrir í plöntum, þannig að
styrkur hans þar getur orðið
mjög mikill þótt styrkur í and-
rúmsloftinu sé lágur.
(4) „Mjög erfitt er að áætla
fyrirfram hversu mikil flúor-
mengun verður þótt styrkur í
andrúmslofti sé þekktur.“ Það er
háð mörgum þáttum svo sem í
hvaða sambandi flúorinn kemur
fyrir, hvernig plantan verður fyrir
menguninni, hve lengi og með
hvaða styrk, loftraka, hitastigi,
tegund og aldri plöntunnar, svo
eitthvað sé nefnt.
(5) Nautgripir eru taldir við-
kvæmastir grasæta fyrir flúor-
mengun og eru 25-40 ppm (hlut-
ar í milljón) í þurrefni fóðurs tal-
in vera þolmörk.
Ryk:
Rykið getur verið mjög breytilegt
að samsetningu, en aðallega er
um að ræða áloxíð, flúo'rsam-
bönd af áli og natríum og lífræn
sambönd (tjara).
(1) Talið er að nokkur þessara
lífrænu sambanda geti verið
krabbameinsvaldandi.
(2) Líklegt er að flúor sé 10-
20% af rykinu.
(3) Rykmengun verður einnig
við alla meðhöndlun hráefnis.
Brennisteinsdíoxíð:
Forskautin sem brenna við raf-
greininguna innihalda alltaf
eitthvað af brennisteini sem
breytist við brunann í brenni-
steinsdíoxíð, en algengt er að
það sé um 40 kg fyrir hvert tonn
af áli sem framleitt er.
(1) Efnið er mikill mengunar-
valdur og talið ein aðal ástæðan
fyrir súru regnvatni því oxíðið
myndar brennisteinssýru (H2S04)
- SKtRIHGARMYND AF MUJGUJAMrNUM OC HREINSUN
Htgn mr uppqcfið i kq/t af áli negu Annað m tckið f
með vetni. Súrnun regnvatns get-
ur haft mikil áhrif á lífríki vatna,
raskað jafnvægi í jarðvegi, og
eykur hættu á tæringu.
Koldíoxíð:
Við framleiðslu á 1 tonni af áli
myndast u.þ.b. 1,8 tonn af koldí-
oxíði.
(1) Staðbundin mengunaráhrif
þess eru ekki teljandi. (Ýmsir
telja að styrkur þess fari vaxandi
í andrúmsloftinu einkum vegna
bruna á kolum og olíu og þar sem
það hleypir illa í gegnum sig inn-
rauðum geislum er hugsanlegt að
það valdi auknum hita á jörðinni
(gróðurhúsaáhrif)).
Kerbrot:
Efnasamsetning kerbrota getur
verið mjög mismunandi en aðal-
lega er um að ræða kolefni,
flúorsambönd og cyaníð („gera
má ráð fyrir að flúor sé í kringum
20% en cyaníð 0,05-0,2%“).
(1) Úrgangur þessi er um 15 kg
fyrir hvert tonn af áli sem fram-
leitt er.
(2) Mikilvægast er að sigvatn
frá kerbrotunum komist ekki í
ferskvatn þar sem flúor- og cyan-
íðsambönd geta orsakað eitrun í
lífverum.
(3) Förgun í flæðigryfju í sjó er
ekki talin hættuleg umhverfinu
þar sem þynning verður mikil og
í sjónum er talsvert magn af flúor
(um 1,4 ppm).
Ýmiss annar fastur úrgangur
fellur til bæði á b yggingartíma og
samfara rekstri en um magn er
erfitt að segja.
Frárennsli:
(1) Frárennsli er all.taf eitthvað
mengað olíu t.d. frá verkstæðum.
(2) Varmamengun getur verið
nokkur og ákveðin efnamengun
t.d. þegar vatn er notað við að
brjóta upp kerin. Ef þess er gætt
að veita frárennsli ekki á við-
kvæm svæði er ekki líklegt að
það hafi í för með sér mikla
röskun umhverfisins.
Mengunarvarnir:
Við ákvörðun um hreinsun er
einkum tekið mið af tvennu, þ.e.
kröfunni um bestu fáanlegu
mengunarvarnir og ýmsum
öðrum atriðum svo sem um-
hverfi, kostnaði og tækni. Stað-
setning álvers hefur mikil áhrif á
hver styrkur mengunarefna frá
því verður og misjafnt er hvað
landið þolir. Staðsetningin hefur
því áhrif á hvaða kröfur þárf að
gera til hreinsunar.
Til þess að vita hve mikillar
mengunar megi vænta þarf að
gera ýmsar rannsóknir á um-
hverfinu svo sem, „ítarlegar
veðurfarsathuganir, kannanir á
náttúrufari og rannsóknir á lík-
legri dreifingu úrgangsefna".
Reiknilíkön eru notuð við mat á
dreifingu úrgangsefna út frá
landslagi og veðurfari. „Við
mótun á kröfum um hreinsibún-
að eru niðurstöður rannsóknanna
hafðar til hliðsjónar,“ segir í
skýrslu Staðarvalsnefndar en ein-
hverjum þætti e.t.v. eðlilegra að
þær væru lagðar til grundvallar.
Mest af mengunarefnunum
kemur frá rafgreiningarkerunum
en í nýjum álverum er talið að
megi ná allt að 97% af hinu
mengaða lofti til hreinsibúnaðar-
ins en afgangurinn fer út í ker-
skálann og er mjög dýrt að
hreinsa það loft (III. stig).
Hreinsun á útblæstri getur ver-
ið þrenns konar:
1. Þurrhreinsun (I. stig)
(nýlega tekin í notkun í Straums-
vík)
Útblæstri frá kerunum er
beint til pokasíu sem hreinsar
rykið úr honum. Á leiðinni er ál-
oxíði blandað saman við útblást-
urinn, en það hvarfast við flúor-
vetni og breytir því í fast álflúor-
íð sem er síðan nýtt aftur. Þetta
hreinsunarstig hreinsar sem sagt
bæði flúorryk og flúorvetni en
hleypir öðrum lofttegundum í
gegn og þar á meðal brennisteins-
díoxíði. „Vandaður þurrhreinsi-
búnaður minnkar flúormengun
úr 16-20 kg/tonn af áli í 0,8-1,0
kg/tonn af áli.“
2. Vothreinsun (II. stig)
Ef umhverfisþættir valda því að
dreifing loftmengandi efna verð-
Þóroddur F. Þóroddsson.
ur takmörkuð getur verið nauð-
synlegt að hreinsa burt brenni-
steinsdíoxíð. Það er gert með
því að þvo útblásturinn frá poka-
síunum (I. stig) með vatni/sjó í
sérstökum þvottaturni og við það
minnkar magn af ryki og flúor
einnig. Á þennan hátt er loft-
menguninni breytt í frárennsl-
ismengun og verður það að telj-
ast galli á aðferðinni. Vothreins-
unin minnkar magn brennisteins-
díoxíðsins úr 40 kg/tonn í tæp-
lega 2 kg/tonn.
3. Hreinsun á kerskálalofti
(III. stig)
ítrasta árangri í hreinsun verður
ekki náð nema kerskálaloftið
verið einnig hreinsað. Nauðsyn-
leg loftræsting í kerskálanum ger-
ir það að verkum að loftmagnið
er um 1 millj. rúmm./tonn af áli og
verður slík hreinsun því hlutfalls-
lega dýr í ljósi viðbótarárangurs
sem hún nær að skila (u.þ.b. 0,3
kg flúor/tonn af áli
Á meðfylgjandi skýringarmynd
(úr skýrslu Staðarvalsnefndar) er
sýnt magn mengunarefna og
hreinsunarstigin, bent skal á að í
texta skýrslunnar var brenni-
steinsdíoxíð sagt vera 40 kg/tonn
en á myndinni 23 kg/tonn af áli.
í skýrslu Staðarvalsnefndar er
þess getið að vothreinsun væri
mjög æskileg eða nauðsynleg við
vissar aðstæður. „Til greina kæmi
þó að slíkri hreinsun yrði frestað,
þar til hætta er á að slík mengun
fari yfir ákveðin mörk og yrði
fylgst með því með reglubundn-
um rannsóknum. Það mælir þó á
móti slíkri frestun að vothreinsi-
búnaður kemur að miklu leyti í
stað þurrhreinsibúnaðar þegar
bilanir verða á honum.
Heimild:
Iðnaðarráðuneytið 1982:
Áfangaskýrsla Staðarvalsnefndar
um staðarval álvers.
Akureyri 12. febrúar 1984
Þóroddur F. Þóroddsson
jarðfræðingur.
Stúkan ísafold Fjallkonan:
Minja- og söfnunar-
gripir í tilefni
100 ára afmælisins
%
J00 ÁRÞ
I
\
m
w
s
,<r
Stúkan ísafold Fjallkonan no.
1 þakkar öllum er sýndu henni
vinsemd og virðingu á 100 ára
afmælinu 10. janúar sl.
Sérstaklega þakkar reglan hér
á Akureyri bæjarstjórn höfðing-
lega gjöf er hún færði Friðbjarn-
arhúsi, minjasafni Reglunnar.
í tilefni þessara tímamóta lét
stúkan ísafold gera ýmsa minja-
og söfnunargripi, m.a. minnis-
pening með mynd af Friðbirni
Steinssyni, er það sett, bæði gull
og silfur og er upplag mjög lítið.
Friðbjarnarhús.
Þá voru gefin út umslög með
mynd af Friðbjarnarhúsi og Frið-
birni Steinssyni, voru þau stimpl-
uð á afmælisdaginn og eru öll
uppseld.
í vor mun póstmálastjórn gefa
út frímerki í tilefni 100 ára af-
mælis Góðtemplarareglunnar á
íslandi. Verður það með mynd af
Friðbjarnarhúsi. Þá verða seld
númeruð umslög með álímdum
frímerkjum og verður upplag
mjög takmarkað.
Þeir sem hafa áhuga á því að
eignast peningana eða umslögin
eru vinsamlegast beðnir að hafa
samband við Svein Kristjánsson
s. 96-24360 eða Guðmund Magn-
ússon s. 96-22668.
FrétUtilkynning.