Dagur - 27.02.1984, Qupperneq 4
4 - DAGUR - 27. febrúar 1984
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 130 Á MÁNUÐI -
LAUSASÖLUVERÐ 18 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GÍSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRÍKUR ST. EIRÍKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Iþróttasamskipti
í hættu
Svo er nú komið að ferðakostnaður íþróttafélaga
í innanlandsflugi er farinn að há eðlilegum sam-
skiptum íþróttafólks á landinu, og er þetta stað-
reynd þrátt fyrir hagstæða samninga íþrótta-
sambands íslands við Flugleiðir og fleiri aðila.
Ekki er nóg með að íþróttafélög á landsbyggð-
inni séu að burðast með langa skuldahala sem
jafnvel nema hundruðum þúsunda króna, vegna
þessa, heldur sitja íþróttamenn þessara félaga
ekki við sama borð og andstæðingar þeirra á hof-
uðborgarsvæðinu.
Til þess að hafa rekstur hinna ýmsu deilda
íþróttafélaganna sem hagkvæmastan hefur
nefnilega víða verið tekinn upp sá háttur að
leika tvo eða jafnvel þrjá leiki í hverri ferð, og sjá
allir að þarna hefur skapast íþróttalegt misrétti
svo ekki sé meira sagt.
Á sambandsstjórnarfundi íþróttasambands
íslands sem haldinn var á sl. ári gerði Knútur
Otterstedt formaður íþróttabandalags Akureyr-
ar þetta mál að umræðuefni. í máli hans kom
fram að árið 1982 nam ferðakostnaður Akureyr-
arfélaganna KA og Þórs auk skíðaráðs um 2,2
milljónum króna og á síðasta ári hljóðaði áætlun
um ferðakostnað upp á 4,5 milljónir króna. Mun
sú áætlun ekki hafa verið of há þegar öll kurl
komu til grafar.
Forráðamenn íþróttafélaga af landsbyggðinni
mæta ekki miklum skilningi þegar þeir ræða
þessi mál. Er skemmst að minnast tillögu Jóns
Arnþórssonar fyrrverandi formanns KA er hann
flutti á ársþingi Knattspyrnusambands íslands
á Húsavík í desember. í tillögu Jóns var fram á
það farið að stjórn KSÍ kannaði möguleika á því
að allur kostnaður við ferðir á íslandsmót komi á
einn reikning og að allir þátttakendur beri þar
jafna byrði.
Þingfulltrúar sáu ekki ástæðu til þess að leyfa
stjórn KSÍ að kanna þetta mál, því tillaga Jóns
var felld með atkvæðum fulltrúa þéttbýlisins á
höfuðborgarsvæðinu.
Landsbyggðarmenn heyra líka oft „grát“
þeirra er reka íþróttadeildir á höfuðborgarsvæð-
inu ef þeir þurfa að fara eina ferð á ári eða tvær
út á land með lið sín. Þessum sömu mönnum
finnst hins vegar ekkert athugavert við það að
andstæðingar þeirra þurfi hugsanlega að fara 10
ferðir. Er líka stundum haft á orði vegna þessa
að lengra sé frá Reykjavík til Akureyrar en frá
Akureyri til Reykjavíkur.
Stjórn íþróttasambands íslands verður að láta
þetta mál til sín taka, og reyna að finna lausn á
því. Annars eru eðlileg íþróttasamskipti milli
landsbyggðarinnar og höfuðborgarsvæðisins í
hættu. Og íþróttasamband íslands er jú sam-
band allra íþróttamanna landsins. gk-.
Guðmundur Heiðreksson
kjörinn formaður KA
- Kaflar úr ræðu fráfarandi formanns Jóns
Arnþórssonar sem hann flutti á aðalfundinum
Aðalfundur KA var haldinn
nýlega í Lundarskóla.
Þar lét Jón Arnþórsson
af formennsku í félaginu en
hann hefur verið formaður frá
árinu 1980. Þá hætti Skjöldur
Jónsson einnig í stjórn, en hann
hefur starfað meira og minna í
stjórn félagsins síðan árið 1956.
Guðmundur Heiðreksson var
kjörinn formaður KA, og aðrir
í stjórn Stefán Gunnlaugsson,
Sigbjörn Gunnarsson, Ólafur
Ásgeirsson, Jóhannes Bjarna-
son, Gestur E. Jónasson og
Finnur Sigurgeirsson.
í skýrslu fráfarandi stjórnar
kom fram að yfir 1600 félagar
fylkja sér undir fána KA í marg-
víslegu íþróttastarfi, en við
grípum nú niður í skýrsluna
sem Jón Arnþórsson flutti:
Uppbygging margvíslegrar
íþróttaaðstöðu hefur frá því
fyrsta verið í fararbroddi hjá
KA bæði vallargerð og húsnæði
til þjálfunar. í dag er glæsilegt
íþróttasvæði KA við Lundar-
skóla að taka á sig lokamynd.
Aðal grasvöllurinn og malar-
völlur tilbúnir og æfingavellir,
bæði næst Lundarskóla og á
endilöngum norðurkanti
svæðisins fá á sig grænu kápuna
næsta sumar. Svæðið hefur ver-
ið girt að hálfu og möl komin í
bílastæði. Þá náðist sá merki
áfangi að leikinn var heima-
leikur á grasvellinum okkar
gegn Völsungi 12. júní sl.
Fjármálin
Allir sem sinna stjórnarstörfum
í íþróttafélögum kynnast því
fljótt að betri parturinn af starf-
inu fer í að reyna að afla fjár til
rekstursins og gengur þá á
ýmsu. Yfirleitt er það reynslan
að eftir því sem félaginu vegnar
betur í keppni, er auðveldara
að vinna að fjáröflun. Þverstæð-
an er hins vegar sú að þegar bet-
ur gengur íþróttalega séð, er
það m.a. vegna þess að meira
hefur verið fjárfest í ýmsu því
sem að þjálfun lýtur. Þess
vegna virðist enginn vinna þetta
stríð, en menn halda misvel í
horfinu. Það var gæfa þessarar
stjórnar að ráða Stefán Gunn-
laugsson sem framkvæmda-
stjóra, en hann hefur í
ólaunuðu starfi lyft Grettistaki,
og með hjálp góðra manna
snúið vörn í sókn. Jón Arnþórs-
son hefur á þessu starfsári setið
Jón Amþórsson fyrrverandi for-
maður KA.
þing HSl í Reykjavík sl. vor og
í haust sótti hann fund sem ÍSÍ
boðaði til um ferðakostnað
íþróttafólks. Einnig sat hann
þing KSÍ á Húsavík í desember
sl. Það var alveg sérstök ástæða
fyrir því, að formaðurinn gerð-
ist svona ferðaglaður, en hún
var sú að smám saman hefur
okkur ofboðið meira og meira
hvílíkt óskapa misrétti ríkir inn-
an ÍSÍ varðandi ferðakostnað
íþróttamanna.
í handboltanum t.d. þurfa
menn að keppa tvo daga í röð í
erfiðum leikjum til þess að nýta
eina ferð sem best. Þarna er
strax komið mjög umdeilanlegt
íþróttalegt misrétti burtséð frá
kostnaðarhliðinni. Og næsta
sumar er staðan sú í fyrstu
deildinni í knattspyrnu, að KA
og Þór hafa eins mikinn ferða-
kostnað og öll liðin á suðvestur-
horninu samanlagt.
Þennan vanda ræddi Jón sér-
staklega á öllum fundum, en
því miður fyrir daufum eyrum,
enda fulltrúar suðvesturhorns-
ins alltaf í meirihluta.
Á KSÍ þinginu flutti hann
eftirfarandi tillögu:
„Ferðakostnaður er vaxandi
áhyggjuefni hjá íþróttafélögun-
um í landinu í dag. Sá.kostnað-
ur var á þessu ári hjá knatt-
spyrnudeildum KA og Þórs vel
yfir helmingur allra útgjalda
þeirra. Til þess, að þessi þáttur
verði ekki óbærilegur og hindri
eðlilega þátttöku landsbyggða-
félaga í íslandsmótum, er því
beint til stjórnar KSÍ að kanna
möguleikana á því að allur
kostnaður við ferðir á íslands-
mót komi á einn reikning og að
allir þátttakendur beri þar jafna
byrði fjárhagslega."
Það mátti ekki einu sinni
leyfa stjórn KSÍ að ræða þetta,
heldur var tillagan felld með 43
atkvæðum gegn 33. Þarna þótti
okkur lágt risið á köppunum!
Okkar skoðun er sú, að ef ekki
er fundin einhver sanngjörn leið
til að jafna út óréttlætið, þá er
ISÍ og sérsambönd þeirra farin
að leggja sitt af mörkum til
mjög alvarlegs íþróttalegs og
fjárhagslegs misréttis milli fé-
laga og landshluta.
Knattspyrnudeildin hefur
unnið mikið starf, m.a. í blaða-
útgáfu og nú síðast í útgáfu
glæsilegs dagatals sem er til
fyrirmyndar. Handknattleiks-
deildin sér um útburð bóka fyrir
Örn og Örlyg, og fyrirtækið
Veröld, seldur var jólapappír
og happdrætti er í gangi árið um
kring. Blakdeildin seldi ýmsar
pappírsvörur fyrir eldhús og
baðherbergi og var mætt með
getraunaseðla á kjörstöðum sl.
vor til að drýgja tekjurnar.
Deildirnar
Það eru knattspyrnudeildin og
handknattleiksdeildin sem eru
fjölmennastar og veiðnastar á
áhorfendur og stuðningsmenn.
Þriðja boltadeildin, blakdeild-
in, sækir á með 60-70 manns í
þjálfun og sendu þeir 4 lið til
keppni í fyrsta opna KA-mót-
inu í blaki í Höllinni á sl. vori.
Knattspyrnumennirnir
endurheimtu sæti sitt í 1. deild
með miklum myndarbrag, og
Gunnar Gíslason lék með A-
landsliðinu, en Erlingur Krist-
jánsson með landsliði 21 árs og
yngri og einnig með A-landslið-
inu.
í handboltanum keppum við
nú í fyrstu deild, og þótt barátt-
an sé hörð og gengið hafi á
ýmsu eru sá elsti og yngsti
glansnúmerin, Þorleifur Anan-
íasson og hinn bráðefnilegi Jón
Kristjánsson.
Þá eru efnilegir einstaklingar
í júdódeild og kempan Kári
Elíson heldur heiðri lyftinga-
manna á lofti! Síðast en ekki
síst skal getið Nönnu Leifsdótt-
ur, sem er þess heiðurs aðnjót-
andi að hafa verið valin til að
keppa á skíðum fyrir íslands
hönd á Olympiuleikum sem nú
eru haldnir í Sarajevo í Júgó-
slavíu. Nánar segir frá deildun-
um sérstaklega hér á eftir.
Lokaorð
Nú dregur að lokum þessarar
skýrslu. Eins og að framan er
getið hefur margt á dagana drif-
ið í leik og starfi. Við skulum
hvetja hver annan til dáða,
minnugir þess að „versti and-
stæðingurinn er lélegur sam-
herji“. Áramótakveðjan frá
stjórn KA var þessi í útvarpinu
á gamlársdag og skal hún
endurtekin hér: „KA-félagar og
velunnarar um land allt. Við
þökkum drengilegan leik, bar-
áttuna og starfið á árinu og ósk-
um ykkur öllum sigurríks nýárs.
Áfram KA.“
Af framansögðu má vera ljóst
að það skiptast á skin og skúrir
í rekstri eins íþróttafélags, jafnt
sem árangri hinna ýmsu deilda
og einstaklinga sem efla þær.
En það er þróttmikið lið karla
og kvenna, yngri og eldri sem
eiga heiðurinn af því sem áunn-
ist hefur og við byggjum á sterk-
um grunni þegar við horfum
bjartsýn til framtíðarinnar.