Dagur - 05.03.1984, Síða 2
2 - DAGUR - 5. mars 1984
Borðarðu rjóma-
bollur?
Heimir Ársælsson:
| Já, í tonnum, ég ætla að éta
50-60 stykki í dag.
wm
Ingólfur Magnússon (Golli):
Jaaá, reyndar . . . en ekki úr
heilhveiti.
■M
;; - •
Baddí Snælaugsdóttir:
Það fer eftir því hvort þær eru
áfengar eða ekki.
Jón Haukur Brynjólfsson:
Nei, hins vegar sakna
Rauða hússins.
eg
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir:
Nei, ég er í megrun.
ImiiA
d b ipt no
— segir Valtýr Hreiðarsson hjá Felli hf.
„Við erum með bókhaldsþjón-
ustu, ráðgjöf, aðstoð við skatt-
framtöl cinstaklinga og fyrir-
tækja, áætlanagerð og fleira
því skylt,“ segir Valtýr Hreið-
arsson en hann er annar aðal-
eigandi Fells h.f. bókhalds og
viðskiptaþjónustu á Akureyri.
Valtýr er Akureyringur eins og
Gunnar Jónsson sem er hinn
aðaleigandinn. Valtýr varð stúd-
ent frá MA og lauk síðan prófi
í viðskiptafræði við Háskóla
íslands, en fyrirtækið Fell h.f. var
stofnað 1978.
»Ég var í hlutastarfi á öðrum
stað þegar við byrjuðum með
Fell, og Gunnar vann fulla vinnu
annars staðar. Þetta þróaðist hins
vegar þannig að ég sagði mínu
starfi upp og fór að vinna hér
fulla vinnu og Gunnar hefur ver-
ið að minnka við sig aðra vinnu.
Auk þess höfum við verið með
fólk í vinnu hjá okkur.
Við erum komnir með fastan
hóp viðskiptavina, enda byggist
rekstur eins og þessi á slíku. Við
höfum nýlega fest kaup á Vector
4 tölvu sem gerir okkur kleift að
bjóða okkar viðskiptavinum upp
á betri og fljótari þjónustu.
Við érum með þó nokkuð
marga bændur sem við önnumst
bókhald fyrir og erum að vinna
að stöðluðu kerfi þar að lútandi.
Þar kemur tölvan að góðum not-
um því málin eru ekki ósvipuð
frá einum bónda til annars. Eins
erum við að vinna að stöðluðu
bókhaldi fyrir hreppa og önnur
minni sveitarfélög.
Já, ég held að allar tölur sýni
Valtýr Hreiöarsson.
að Fell hafi verið og sé vaxandi
fyrirtæki, en að vísu eru takmörk
fyrir endalausri þenslu því það
eru mörg fyrirtæki sem fást við
svipaða hluti og við, og fyrirtækj-
um sem vinna þarf fyrir fjölgar
ekki mikið. En við höfum verið
að reyna að færa út kvíarnar og
auka fjölbreytnina eins og t.d.
með ráðningarþjónustu og nýjum
leiðum í að skipuleggja og betr-
umbæta hluti hjá okkar viðskipt-
avinum, ekki bara færa debet og
kredit sem yrði heldur leiðinlegt
til lengdar.“
- Eins og venjan er í þessum
stuttu viðtölum spyrjum við við-
mælanda okkar um fleira en
starfið eitt, og þá er vinsælt að
leita eftir áhugamálum manna.
„Það er nú ekki mjög fjöl-
breytt. Ég hef aðeins komið ná-
lægt skátahreyfingunni og að-
stoðaði á síðasta landsmóti
skáta sem haldið var á Akureyri.
Þá kemur það aðeins fyrir að ég
bregð mér á gönguskíði þótt það
sé í svo litlum mæli að það taki
því varla að minnast á það. En
vinnan tekur mikinn tíma og stór
hluti frístundanna er notaður til
þess að slappa af heima fyrir.“
Mér blöskrar sóðaskapurinn
Hrcinn hringdi:
Mér blöskrar bölvaður sóða-
skapurinn sem veður uppi allt í
kringum okkur. Alls staðar er
bréfarusl og svo virðist sem sumir
af íbúum þessa bæjar hafi ekki
hugmynd um til hvers ruslakörfur
eru notaðar. Látum það vera þó
eitt og eitt smábréf utan af
tyggjópakka flögri út um bíl-
glugga en þegar ruslafötufylli af
hamborgarabréfum úr einhvers
konar álpappír fýkur á eftir, þá
er nóg komið.
Það er kominn tími til þess að
fólk fari að hugsa sinn gang. Ég
trúi því ekki að fólk gangi svona
um heima hjá sér en það er meira
en lítið sjúkt ef það heldur að
landið þeirra og bærinn sé ein
allsherjar ruslakarfa. Það sem
verst er er að þetta fólk hefur bölv-
aðan sóðaskapinn fyrir börnum
sínum og séu barneignir þess í
samræmi við ruslið sem það drit-
ar niður út um allan bæ þá er illt
í efni. Við verðum líklega komin
á kaf í sorphaug áður en langt um
líður.
Hver er höf-
undur vísunnar?
Borghildur Einarsdóttir fann
eftirfarandi vísu í fórum sínum,
en hún hefur áhuga á að vita hver
er höfundur vísunnar. Vísan er
svona:
Einum rómi seint mun sungin
sæludrápa um þveran heim.
Alltaf verður ekka þrungin
einstök rödd í hljómnum þeim.
Hreinn segir að sóöaskapurinn sé yfirgengilegur - jafnvel á Akureyri.