Dagur - 05.03.1984, Page 9
5. mars 1984 - DAGUR - 9
í brúðuleikhúsi með Helgu og Sigríði:
Það var eftirvænting ríkjandi
er við lögðum leið okkar í
Dynheima si. miðvikudags-
morgun. Ekki voru þó ungling-
ar þar staddir eins og venju-
lega þegar eitthvað er um að
vera í húsinu sem er höfuðmið-
stöð unglingastarfs æskulýðs-
ráðs í bænum, heldur voru þar
stödd fjölmörg börn af barna-
heimilum á Akureyri og víðar
að til að fylgjast með sýningu
„Brúðuleikhúss Helgu og Sig-
ríðar“.
Þær Sigríður Hannesdóttir og
Helga Steffensen hafa „slegið í
gegn“ meðal ýngstu kynslóðar-
innar ef svo má segja með brúðu-
leikhúsi sínu. Og strax í byrjun
mátti sjá að kunnuglegar „pers-
ónur“ voru á ferðinni. Enginn
naut þó viðlíka hylli og hann
„Gústi“ en hann hefur verið tíður
gestur í barnatíma sjónvarpsins.
Krakkarnir gerðu allt til þess
að ná athygli „Gústa“ og kölluðu
til hans af krafti: „Sjáðu mig,
Gústi!!“ „Halló Gústi!“ og fleira
og fleira. En Gústi gaf sér ekki
tíma til þess að spjalla við hvern
og einn, sýningin „rúllaði“ og all-
ir skemmtu sér konunglega. Við
látum myndirnar hins vegar tala
sínu máli.
Myndir: KGA.