Dagur - 07.03.1984, Blaðsíða 12
LlMUM BORÐA
RENNUM SKÁLAR
B
Unnið að könnun á heimavistarþörf skólafólks á Akureyri:
„Heimavistarpláss fyrir 150
nemendur vantar fljótlega‘1
- segir Haukur Árnason sem á sæti í nefnd sem vinnur að könnuninni
Að undanförnu hefur verið
starfandi nefnd sem hefur það
hlutverk að kanna þörfína á
heimavistarhúsnæöi skólafólks
á Akureyri, og skipa nefndina
skólanefnd Verkinenntaskól-
ans og tveir fulltrúar tilnefndir
af Menntamálaráðuneytinu.
„Nefndin hefur verið að kanna
þörf framhaldsskólanéfúa á
auknu hefmavistárhúsnæði,"
sagði Haukur Árnason í samtali
við Dag, en Haukur sem er for-
maður skólanefndar Verk-
menntaskólans á sæti í nefndinni.
„Við höfum verið að athuga
hvernig húsnæði myndi henta
best, hvernig hægt væri að fjár-
magna þetta, og reyna að finna
sem hagkvæmastan rekstrar-
grundvöll fyrir þetta húsnæði.
Það má segja að nefndin sé að
vinna að frumkönnun á þessu
sviði. Nefndin hefur ekkert
ákvörðunarvald, heldur mun hún
skila niðurstöðum sínum til
bæjarstjórnar Akureyrar og
ráðuneytisins til frekari ákvarð-
anatöku, en þarna er mikið
óleyst mál á ferðinni.
Okkar athuganir til þessa sýna
að það muni í nánustu framtíð
vanta heimavistarpláss fyrir um
150 einstaklinga og er þá gert ráð
fyrir að hluti nemenda leysi sín
húsnæðismál áfram úti á hinum
almenna leigumarkaði að ein-
hverju leyti eins og verið hefur.
Þó er ekki fjarri lagi að ætla að
strax næsta vetur muni vanta um
60 pláss. Það er vitað að nokkrir
aðilar hafa hætt við að koma hér
í nám vegna þessa ástands.“
- Hefur ekki komið til tals að
tengja þetta að einhverju leyti
hótelrekstri í bænum?
„Jú, við höfum rætt við ferða-
málamenn og hótelrekendur,
enda virðist það hafa gefist vel að
reka heimavist Menntaskólans í
tengslum við hótelrekstur að
sumrinu. Ég á von á því að það
verði talið skynsamlegt að reyna
þessa leið að einhverju leyti.“
- Telur þú að hér sé um
vandamál að ræða?
„Ég vil ekki kalla þetta vanda-
mál, þetta er miklu fremur hags-
munamái fyrir nemendur hér í
nágrenninu að eiga aðgang að
góðu húsnæði. Þá er það örygg-
ismál fyrir aðstandendur að vita
að nemendur fara í gott verndað
umhverfi þar sem reglusemi er
viðhöfð. Þetta er einnig mál skól-
anna og bæjarfélagsins sem hefur
tekið á sig ákveðið hlutverk sem
menn vilja standa við. Til þess að
það sé gert eins og ætlast er til
þarf þetta húsnæði að vera fyrir
hendi,“ sagði Haukur, en nefnd-
in mun skila áliti sínu til bæjar-
stjórnar Akureyrar og Mennta-
málaráðuneytisins í maí í vor.
gk'-
Cabo Verde-skipið Fengur senn fullbúið:
„Mér líst vel
á skipið“
- segir Halldór Lárusson sem
verður skipstjóri í jómfrúarferðinni
Senn líður að því að Fengur,
skipið sem smíðað var fyrir
Cabo Verde-búa, haldi í fyrsta
sinn til heimahafnar. Þessa
dagana er verið að ganga frá
vélabúnaði skipsins og fyrsta
reynsluferðin verður farin í
byrjun næstu viku. Aleiðis til
Mindelo á Sao Vincent-eyju
sem verður heimahöfn Fengs,
verður svo haldið í kringum
20. mars.
- Mér líst vel á skipið og þetta
verkefni leggst vel í mig, sagði
Halldór Lárusson, skipstjóri sem
stjói'na mun skipinu fyrstu fjóra
mánuðina.
Að sögn Halldórs þá mun hann
ásamt sex manna áhöfn halda til
Cabo Verde-eyja en ferðin mun
taka um 20 daga. Fengur mun
verða á troll- og nótaveiðum og
m.a. verður veitt í beitu fyrir tún-
fiskveiðarnar sem skipið mun
halda til þegar fram líða stundir.
Túnfiskurinn er veiddur á stöng
og hafa eyjaskeggjar mest náð að
véiða um 30 tonn á einu skipi á «
einum og sama deginum.
Allt bendir nú til þess að vélar
og tæki skipsins virki fullkomlega
að niðurfærslugír undanskildum.
Þegar því hefur verið kippt í lið-
inn verður Fengur tilbúinn í
slaginn. - ESE.
Það var mikið um að vera um borð í Feng enda reynslusigling framundan.
Mynd: ESE.
Nýtt
íþróttahús
Unnið hefur verið að undir-
búningi og ýmsum athugunum
varðandi byggingu íþróttahúss
á Siglufírði á vegum íþrótta-
ráðs staðarins.
Það sem helst er talið koma til
greina er að byggja svokallað
límtrésbogahús, og yrði það
byggt sunnan sundhallar bæjar-
ins. Virðist það vera ódýrasti
kosturinn sem völ er á, og einnig
fljótvirkasti byggingarmátinn.
Kostnaðaráætlun, verði ráðist
í byggingu íþróttahúss af þeirri
gerð, er talin vera 8-9 milljónir
króna, og er þá verið að hugsa
um hús með vallarstærð 20x40
metrar, þ.e. löglegur handbolta-
völlur og yrði áhorfendarými fyr-
ir 300-400 manns.
í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir
að salurinn og tengibygging við
sundhöllina verði fullgerð. Annar
áfangi yrði síðan viðbygging við
sundhöllina þar sem yrðu bún-
ings- og baðherbergi til frambúð-
ar. Siglfirðingar gera sér nokkrar
vonir um að hafist verði handa
við bygginguna nú í sumar og
grunnur þá fullgerður, en kostn-
aður við það verk er talinn vera
um 1.8 milljónir króna. gk-.
„Nú eru bara hlýindi fram-
undan á Norðurlandi,“
sagði veðurfræðingur á
Veðurstofu íslands í
morgun. Það verður sunn-
anátt a.m.k. næstu tvo dag-
ana en á laugardag gæti
vindátt snúist eitthvað til
vesturs um tíma. Sem sagt,
hlýindi og blíða fram undir
helgina a.m.k.
• AfNTog
öðrum blöðum
Nú fer senn að líða að því að
Tíminn taki stakkaskiptum í
kjölfar þeirra breytinga sem
gerðar hafa verið á stjórnun
og starfsliðí. Hingað norður
heyrast þær fréttir að nafninu
á blaðinu verði jafnvel breytt,
en þó að nokkru haldið í það
gamla. Blaðið eigi nefnilega
að heita Nútíminn í höfuðið
á útgáfufyrirtækinu. Svo ku
vera meiningin að skamm-
stafa nafnið, rétt eins og þeir
gera á Dagblaðinu-Vísi, sem
heitir DV, og Verdens Gang í
Noregi, sem gjarnan gengur
undir nafninu VG. Nafnið á
Tímanum gamla og góða
verði því NT. Vonandi er að
Norðlensk trygging láti það
óáreitt, en það fyrirtæki hefur
notað þessa skammstöfun.
Þá mun það teljast til tíðinda
að NT verður síðdegis- eða
jafnvel kvöldblað og þá má
DV fara að vara sig. Hvort
nöfnum Moggans og Þjóðvilj-
ans og Alþýðublaðsins verð-
ur breytt í MB, ÞV og AB, skal
ósagt iátið, en hitt hefur hins
vegar komið til tals að fjölga
blaðsíðum Alþýðublaðsins
um helming, úr fjórum í átta,
en hafa þær bara helmingi
minni en nú er. Sniðugt!
# Tómlæti gagn-
vart reiðarslagi
Árni Steinar Jóhannsson,
garðyrkjustjóri á Akureyri,
skrifar grein í blaðið í dag um
veiðiheimildir Efnahags-
bandalagsins við Grænland.
Þegar hann var að kanna mál-
ið og ætlaði að fá upplýsing-
ar um hve þessar veiðar
væru mlklar og hvernig þær
skiptust, vissi það enginn í
íslenska stjórnkerfinu. Hann
leitaði því til Grænlandsráðu-
neytisins í Kaupmannahöfn
og fékk svör samstundis. Það
varð svo til þess að hann gat
upplýst ráðuneytismenn í
sjavarútvegsráðuneytinu um
þessi mál. Kannski er þetta
lýsandi fyrir tómlætið sem ís-
lendingar hafa sýnt þessu
máli, sem hefur verið í undir-
búningi í ein tvö ár, og er nú
kallað reiðarslag...
• Skiliö
hækjunum
Sjálfsbjörg á Akureyri lánar
út hækjur og annan hjálpar-
búnað. Þetta hefur komið sér
vel fyrir marga, en það vill
gleymast að skila hækjunum
þegar þeirra er ekki lengur
þörf hjá lántakanda. En það
eru aðrir sem hafa þörf fyrir
hækjurnar og hefur blaðið
verið beðið að hvetja lántak-
endur til að skila hækjunum
við fyrsta tækifæri, þegar
notkun er lokið.