Dagur - 19.03.1984, Blaðsíða 5

Dagur - 19.03.1984, Blaðsíða 5
Útburðarmál- inu vísað frá Á föstudag vísaði Mannrétt- indanefnd Evrópu í Strass- bourg frá kæru Ólafs Rafns Jónssonar og Danielle Somers í Þingvallastræti 22 vegna út- burðar úr eigin húsi. Með dómi Hæstaréttar á síðasta ári var Ólafi og Danielle gert að flytja úr íbúðinni. Útburði var frestað til 17. febrúar sl. og var þá sæst á að þau flyttu út innan eins mánaðar, sem þau gerðu. - Ég er búinn að hafa sam- band við lögfræðing okkar er- lendis vegna þessa máls og hann hafði ekkert heyrt um niðurstöðu Mannréttindanefndarinnar, sagði Ólafur Rafn Jónsson í samtali við Dag í morgun. Ólafur Rafn sagði að samkvæmt þeim upplýsingum sem hann hefði þá virtist sem að nefnd sú sem fjallaði um mál þeirra, hefði ekki fundist kæra þeirra nægilega rökstudd. - Við látum þó ekki deigan síga og munum að höfðu samráði við lögfræðing okkar rökstyðja mál okkar betur, sagði Ólafur Rafn Jónsson. - HS/ESE. Harður árekstur í Brekkugötu Harður árekstur varð í Brekku- götu sl. laugardagskvöld. Þar var Toyota-bifreið ekið af miklum krafti aftan á litla fólksbifreið sem tókst á loft og lenti á jeppa- bifreið nokkru framar. Báðar bifreiðarnar stóðu á bílastæðum. Ekki er ljóst hvað olli slysinu én talið er að stúlkan sem ók hafi misst stjórn á bifreiðinni skamma stund með fyrrgreindum afleið- ingum. Stúlkan og farþegi í bíln- um sluppu ómeidd og má það heita mikil mildi. Svo harður var áreksturinn að jeppabifreiðin sem vegur 1.7 tonn færðist fram um eina 40 sentimetra. Báðar fólksbifreiðarnar eru stórskemd- ar en minni skemmdir urðu á jeppanum. - ESE. 15 innbrot upplýst Að undanförnu hefur borið tals- unnar. uði. Það voru unglingar yfirleitt vert á því að brotist hafi verið inn Rannsóknarlögreglan hefur nokkrir saman í hvert sinn sem í verslanir og söluturna á Akur- nú upplýst flest ef ekki öll þess- frömdu innbrotin og stóðu sömu eyri. Hefur talsverðu verið stolið ara innbrota, eða alls 15 innbrot aðilar að mörgum innbrotanna. á sumum stöðunum og skemmdir sem framin hafa verið á sl. mán- - ESE. STÓRIUOD AÐUR NÚ Herra-skíðabuxur kr. 889.- kr. 589. Herra-skíðavesti kr. 789.- kr. 499. Herra-skíðajakki kr. 1389.- kr. 989. Herra-skíðaföt kr. 1989.- kr. 1289. Herra-samfestingur kr. 1989.- kr. 1289. Dömu-skíðaúlpa kr. 1089.- kr. 689. Dömu-skíðabuxur kr. 789.- kr. 489. Dömu-skíðasamfestingur kr. 1989.- kr. 1289. Dömu-skíðastretchbuxur kr. 1389.- kr. 989. Barna-snjóbuxur kr. 899.- kr. 489. Barna-skíðastretchbuxur kr. 1199.- kr. 689. HAGKAUP Akureyri 19. mars 1984-DAGUR K íþróttaskór barna stærð 23-33, verð kr. 325.- Ódýru barnabuxurnar stærð 104-152 átta litir, verð 260 kr. Ódýru gúmmískórnir komnir verð kr. 50.- W Eyfjörð \M Hjalteyrargötu 4 sími 22275 Eldridansaklúbburinn! Dansleikur verður í Alþýðuhúsinu laugardaginn 24. mars 1984. Húsið verður opnað kl. 21. Miðasala við innganginn. Allir velkomnir. Stjórnin. Jþ Aðalfundur Hestamannafélagsins Funa verður haldinn í Sólgarði fimmtudaginn 22. mars kl. 9 e.h. Stjórnin. Alþýðuflokks- fólk Alþýðuflokksfélögin á Akureyri halda síðbúna góugleði 24. mars nk. í Lóni við Hrísalund. Skemmtunin hefst kl. 19.00 með kokteil. Girnilegir veisluréttir, stórkostleg skemmtiatriði. Dansað til kl. 03.00, miðaverð kr. 500,- Upplýsingar og miðapantanir hjá önnu í síma 23422. Skemmtinefndin. Framkvæmda- stjóri Ungmennasamband Eyjafjarðar auglýsir eftir framkvæmdastjóra. Umsóknarfrestur er til 1. apríl. Uppiýsingar í símum 31315 og 25364 á kvöldin. Fasteignir Ðorgarhlíð: 4ra herb. endaíbúð á annarri hæð ca. 107 fm. Geymsla og þvottahús á hæðinni. Ðúðasíða: Grunnur undir einbýlishús ca. 130 fm. Hæð og ris. Til afhendingar strax. Má nota undir einingarhús. Eignamiðstöðin Skipagötu 1 Sími 24606 Sölumaður Björn Kristjánsson Heimasími 21776.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.