Dagur - 19.03.1984, Page 7

Dagur - 19.03.1984, Page 7
6 - DAGUR -19. mars 1984 19. mars 1984 - DAGUR - 7 Höllin troðfull Forráðamenn Handknattleiks- sambands Islands sjá örugg- lega ekki eftir því að hafa farið með einn leikja íslands og Sovétríkjanna norður á Akur- eyri því þeir töltu inn í flugvél- ina sem fluttu liðin suður að leik loknum með ávísun upp á 160 þúsund krónur. Að vísu áttu þeir þá eftir að greiða Flugleiðum um 60 þúsund fyrir flugið með liðin, en hagnaður- inn er um 100 þúsund af fyrsta landsleiknum í handknattleik sem háður hefur verið á Akur- eyri. Geysileg aðsókn var að leiknum. Strax í forsölunni seld- ust um 1000 miðar og þegar leikurinn hófst á föstudagskvöld höfðu um 1400 manns troðið sér inn í íþróttahöllina. Feykileg að- sókn sem hreinlega bjargaði HSÍ því áhorfendur á leikjunum tveimur í Reykjavík voru ekki nema um 1400 á fyrri leiknum og rétt rúmlega 1000 á leiknum á laugardag. Allt skipulag „Landsleikja- nefndar“ Ólafs Ásgeirssonar varðandi leikinn var til fyrir- myndar og leikurinn mjög þokkaieg skemmtun fyrir áhorf- endur. Sovétmenn höfðu sigur á Akureyri 27:22 og þeir unnu einnig sigra í báðum leikjunum í Reykjavík, 24:21 í þeim fyrri og 22:19 í hinum síðari. 4 stig til Völsungs Völsungur þokaðist fjórum stigum nær íslandsmeistaratitli í blakinu um helgina er liðið lék gegn Þrótti og Víking. Völsungsstelpúrnar unnu báða leikina 3:0. Þrótt með 16:14, 15:2 og 15:6 eftir barning í fyrstu hrinu og Víking með 15:6, 15:5 og 15:8. Ætli það sé ekki best að láta eina stúlkuna í liði Þróttar lýsa því sem gerðist í þessum leikjum en hún sagði eftir leik Völsungs og Þróttar: „Þaö er ómögulegt að eiga við Völs- ungsstelpurnar, þær eru alltaf í sókn og slá allt sem hreyfist“. Bæði Þróttur og Víkingur léku einnig við KA. Þróttur sigraði KA óvænt 3:0 en á móti Víking var KA betra liðið og vann 3:1, einstaka hrinur fóru þá 11:15, 17:15, 15:18 og 15:2. Þorgils Óttar svífur hér glæsilega inn af línunni og skorar. Kristján Arason fylgist með. Mynd: KGA. KA komst áfram „Það má segja að þótt við höfum farið hægt af stað í þess- um Ieik hafi sigurinn aldrei Þrír nýir í búningi Þórs verið í neinni hættu,“ sagði Þorleifur Ananíasson fyrirliði KA í handbolta eftir að KA sigraði ÍBK í Bikarkeppni HSÍ í Keflavík fyrir helgina. Úrslit leiksins urðu 27:22 KA í vil eftir að staðan hafði verið 15:13 fyrir KA í hálfleik. KA hafði ávallt forustuna í leiknum og Keflvíkingarnir náðu aldrei að ógna sigri KA þrátt fyrir að þrjá af föstum leikmönnum KA vant- aði að þessu sinni. Gauti mark- vörður var ekki með, Jóhann Einarsson er brotinn og var ekki með og ekki heldur Magnús Birg- isson sem mun vera á förum til Noregs til starfa þar. Jón Kristjánsson var marka- hæstur KA-manna með sín 9 mörk, Þorleifur skoraði 6, Erl- ingur Kristjánsson 5, Sigurður Sigurðsson 4, Logi Einarsson 2 og Sæmundur Sigfússon 1. KA er nú komið í 8-liða úrslit í Bikarkeppninni en ekki liggur ljóst fyrir fyrr en upp úr næstu mánaðamótum hverjir verða fnótherjar liðsins næst. Þrír nýir leikmenn munu Idæð- ast búningi Þórs í sumar þegar keppnin í 1. deild knattspyrn- unnar fer í gang. Þetta eru þeir ÓIi Þór Magnússon sem kemur frá ÍBK, Páll Guðlaugsson markvörður sem síðast lék með Götu í Færeyjum og Kristján Kristjánsson sem lék með Völsungi í fyrra. Óli Þór er sennilega kunnastur þessara kappa en hann þykir einkar grimmur miðherji og hættulegur upp við mark and- stæðinga sinna. Hann hefur leik- ið með yngri flokkum ÍBK og í 1. deildinni í fyrra skoraði hann 6 mörk. Hinir nýju ieikmenn Þórs f. v.: Kristján, Páll og Óli Þór. „Mér líst mjög vel á þetta hérna hjá Þór,“ sagði Óli Þór er við ræddum við hann. „Þetta er betra en ég bjóst við, aðstaðan góð, þjálfarinn góður og hópur- inn samstilltur. Þó verður þetta erfiðara hjá Þór en í fyrra, nú vita menn hvað liðið getur en í fyrra var liðið óskrifað blað og náði mjög góðum árangri.“ - Kristján Kristjánsson hefur leikið með Völsungi sl. tvö sumur sem tengiliður. Hann skoraði 5 mörk í 2. deildinni sl. sumar og var markahæstur leikmanna Völsungs sumarið 1982 með 8 mörk. Það liggur því fyrir hvert hlutverk þeirra Óla og Kristjáns á að vera hjá Þór. „Við eigum sennilega að skora mörk,“ sagði Kristján er við spurðum hann um þetta atriði. - Þriðji nýliðinn í liðinu á ekki að skora mörk, heldur að koma í veg fyrir að þau verði skoruð. Hann er Páll Guðlaugsson mark- vörður, nýkominn frá Færeyjum eftir tveggja ára dvöl þar. Páll er frá Vestmannaeyjum og lék með öllum yngri flokkum ÍBV og eitthvað í meistaraflokki. Sl. tvö sumur hefur hann leikið með Götu í Færeyjum og unnið til allra titla þar í landi sem hægt er í knattspyrnunni. M.a. var hann sl. tvö ár kjörinn „leikmað- ur ársins" hjá sínu félagi. Páls bíður það erfiða hlutverk að taka við af Þorsteini Ólafssyni í mark- inu og er ekki beint öfundsverður af því, en þeir sem til þekkja segja að hér sé á ferðinni leik- maður sem eigi eftir að koma á óvart í sumar með getu sinni. Urslitin hefjast á Akureyri Urslitakeppni hotnliðanna í 1. deild handboltans hefst á Ak- ureyri á föstudagskvöld kl. 20, en í þeirri keppni taka þátt KR, Þróttur, Haukar og KA. Liðin fjögur taka með sér stig- in úr leikjum vetrarins í 1. deild og er staða KA-manna þar lökust. KA er á botninum með aðeins tvö stig. Ekki er svo mjög langt í Haukana sem hafa 5 stig en KR og Þróttur eru langt þar fyrir ofan. Er því sýnt að KA og Haukar munu falla í 2. deild nema eitthvað mjög óvænt komi til. Hins vegar eru þessir leikir í úrslitakeppninni sem leiknir verða um fjórar helgar, alls 12 á hvert lið, góður skóli fyrir hina ungu leikmenn KA sem hafa ver- ið að leika sína fyrstu leiki í m.fl. í vetur. Sem fyrr sagði hefst keppnin á föstudagskvöld á Akureyri kl. 20, henni verður framhaldið á laug- ardag kl. 13 og síðustu leikirnir hefjast kl. 11 fyrir hádegi á sunnudaginn. Draumur Þórsara varð að martröð! Hafi Þórsarar gert sér vonir um að komast upp úr 3. deild- inni í handbolta og Ieika í 2. deild næsta vétur er óhætt að segja að sá draumur hafi breyst í martröð um helgina. Þá var fyrri umferð úrslitakeppni 3. deildar háð á Akureyri og Þórsarar náðu aðeins 2 stigum af 6 mögulegum. Á sama tíma unnu Ármennigar alla sína leiki og náðu í 6 stig og má segja að þeir séu komnir í 2. deild. Að lokinni þessari keppni um helgina er Ármann með 32 stig, Týr 27, Akranes 26 og Þór með 25. Þannig er þó möguleikinn á að ná 2. sætinu og þar með sæti í 2. deild ekki út úr myndinni hjá Þór þrátt fyrir allt. En það þarf ýmislegt að breyt- ast svo mikið er víst. Ef liðið leikur eins og það gerði um helg- ina er best að það sé áfram í 3. deild. En hins vegar er vitað að liðið getur meira, það hefur það sýnt. Um helgina var það flumbrugangurinn og fátið sem var alls ráðandi og skipti þá ekki máli hvort um var að ræða nýliða á sínu fyrsta ári í meistaraflokki eða gamla „jaxla“ sem eiga að þekkja öll afbrigði íþróttarinnar og þá spennu sem fylgir. Leikir Þórs gegn Akranesi og Ármanni voru hörmulegir, því mótmælir sjálfsagt enginn sem sá. Það sást aðeins til sólar í leiknum gegn Tý þótt kaflar í þeim væru ekki til útflutnings og þá vannst eini sigurinn. Annars urðu úrslit leikjanna sem hér segir: Ármann:Þór: 28:22 (15:8). Markhæstur leikmenn Þórs: Sig- urður Pálsson 9, Guðjón Magn- ússon 6. Týr:Akranes: 34:25 (17:8) Akranes:Armann: 18:36 (17:7) Þór:Týr: 22:21 (8:9) Markhæstu leikmenn Þórs: Sig- urður Pálsson 7, Kristinn Hreins- son 4. Týr:Ármann: 23:26 (10:13) ÞóriAkranes: 23:28 (10:13) Markhæstu leikmenn Þórs: Sig- urður Pálsson 7, Guðjón Magn- ússon 3. Akureyringar komu svo sann- arlega á óvart í íslandsmóti fé- lagsliða í kraftlyftingum sem haldið var um helgina. Unnu öruggan sigur á keppinautum sínum, KR-ingum og hlutu því sæmdarheitið „Besta kraftlyft- ingafélag íslands 1984“. Keppnisfyrirkomulagið var með þeim hætti að hvert félag keppti á sínum eigin æfingastað og síðan gilti samanlögð stigatala þeirra fimm manna sem skipuðu hvert lið. Fyrir hönd Akureyrar kepptu, Kári Elíson sem lyfti samtals 615 kg (446.36 stig), Freyr Aðalsteinsson, 647.5 kg (409.47 stig), Víkingur Trausta- son, 775 kg (409.43), Flosi Jóns- son 632.5 kg (378.10) og Jóhann- es Hjálmarsson, 590 kg (328.51) samtals 1971.87 stig. Eitt Akur- eyrarmet var sett á mótinu af Víkingi Traustasyni, 170 kg í bekkpressu í 125 kg flokki. Auk fyrrgreindra lyftinga- manna kepptu á mótinu, Helgi Eðvarðsson (125 kg fl.) sem lyfti 560 kg, Bragi Konráðsson (110 kg fl.) 475 kg, Eiríkur St. Eiríks- son (100 kg fl.) 450 kg og Haukur Ásgeirsson (87.5 kg fl.) sem lyfti samtals 360 kg. - ESE Þórsarar skora í leik sínum við Týsara. Þórsarar náðu þar naumlega sigri. Mynd: KGA. Elmar gegn heims- meisturum Þjóðverja „Þetta verður auðvitað mjög skemmtilegt þótt ég reikni með að þetta sé meira til gam- ans gert en að um alvöruleik verði að ræða,“ sagði Elmar Geirsson, en hann hefur fengið boð um að mæta til Þýskalands 19. aprfl nk. og taka þar þátt í nokkuð merkilegum knatt- spyrnuleik. Leikurinn fer fram í borginni Trier sem er elsta borg Þýska- lands, og er leikurinn liður í há- tíðahöldum vegna 2000 ára af- Niðurröðun Islandsmótsins tilbúin Niðurröðun leikja í Islands- mótinu í knattspyrnu liggur nú fyrir hjá KSÍ enda styttist í það með degi hverjum að boltinn fari að rúlla. Keppnin í 1. deild karla hefst 20. maí og verður þá leikin heil umferð. Akureyrarliðin KA og Þór eiga innbyrðisleik og er það heimaleikur KA. Bendir ýmislegt til þess að leika verði hann á möl. Þremur dögum síðar hefst svo 2. umferð, Þórsarar leika þá á Akranesi gegn íslandsmeisturun- um en KA-menn fara til Kefla- víkur og mæta ÍBK. í 2. deild hefst keppnin einnig 20. maí. Nýliðar Tindastóls eiga að leika í Hafnarfirði gegn FH og Völsungar fara til Njarðvíkur og mæta UMFN. Siglfirðingar eiga hins vegar heimaleik og mæta Einherja. Keppnin í 1. deild kvenna hefst 16. júní. Þar er keppt í tveimur riðlum S.-Vesturlands- riðli og liðin á Norður- og Aust- urlandi eru saman í öðrum riðli. Fyrstu leikir í N.-Austurlands- riðli eru Höttur/Þór og Súlan/ KA. Þann 24. júní leika svo Þór/ KA og Höttur/Súlan. í 3. deild hefst keppnin 20. maí og er einnig leikið í tveimur riðlum þar. í riðlinum á Norður- og Austurlandi leika í 1. umferð Valur/Magni, HSÞ/Leiftur, Hug- inn/Austri og Þróttur N. situr yfir. mælis borgarinnar. Liðin sem þarna munu eigast við eru lið Eintracht Trier frá því 1976 en með því liði lék Elmar er liðið vann sig upp í 2. deild. Mótherj- arnir verða ekki mjög óþekktir, því þeir eru engir aðrir en leik- menn þýska landsliðsins sem urðu heimsmeistarar í knatt- spyrnu 1974. Þar verða margir þekktir kapp- ar á ferðinni eins og gefur að skilja, menn eins og Becken- bauer, Netzer, Overath og fleiri. Elmar sagðist hlakka til leiksins og það væri gaman að fá að keppa við þessa karla á gamals- aldri fyrst maður átti þess ekki kost á sínum tíma, eins og hann orðaði það. Gottlieb vann Gottlieb Konráðsson sigraði í flokki 20 ára og eldri á bikargöngunióti í lllíðar- fjalli um helgina. Annar varð Einar Ólafs- son frá ísafirði og þriðji Þröstur Jóhann- esson í. en gengnir voru 15 km. í flokki 17-18 ára pilta voru gengnir 10 km en þar sigraði Haukur Eiríksson A. í öðru sæti varð Bjarni Gunnarsson í. og Finnur V. Gunnarsson Ó. varð þriðji. í flokki 15-16 ára pilta voru gengnir 7.5 km og þar sigraði Ólafur Valsson S., Baldvin Kárason S. og Ingvi Óskarsson Ó. varð þriðji. Þórir Hákonarson S., sigraöi í flokki 13-14 ára (5 km), Magnús Erlingsson S. varð annar og Sveinn Traustason Fljótum varð þriðji. í flokki 16^18 ára stúlkna sigraði Stella Hjaltadóttir í„ Svanfríður Jóhannesdóttir S. varð önnur og þriðja Svanhildur Garð- arsdóttir í. í flokki 13-15 ára stúlkna sigraði Auður Ebenesardóttir í„ Ósk systir hennar varð önnur og jafnar í þriðja til fjórða sæti urðu Harpa Jónsdóttir Ó. og Eyrún Ing- ólfsdóttir í. - ESE. Norðlendingar sigursælir Bikarmót í svigi og stórsvigi fóru fram víða um land uin helgina og voru Akureyring- ar og Dalvíkingar sigursælir á þessum inótum. Á ísaflrði var keppt í flokkum karla og kvenna og þar sigraöi Daníel Hilmarsson frá Dalvík í bæði svigi og stórsvigi. Annar í sviginu varð Guðmundur Jóhannesson í„ en annar í stórsvigi varð Árni Þór Árnason R. og þriðji Ólafur Harðarson Ak. Nanna Leifsdóttir frá Akureyri sigraði bæði í svigi og stórsvigi kvenna. í sviginu varð Hrefna Magnúsdóttir Ak. önnur en Sigrún Grímsdóttir í. varð í þriðja sæti. í stórsviginu varð Signe Viðarsdóttir Ak. önnur og Anna María Malmquist Ak. þriðja. í Reykjavík var keppt í flokkum 15-16 ára og þar var tvöfaldur akureyrskur sigur í drengjaflokki. Hilmir Valsson sigraði og Smári Kristinsson varð annar. í stúlkna- flokki varð Snædís Úlfsdóttir R. fyrst en Guðrún H. Kristjánsdóttir Ak. varð önnur. Á Dalvík var keppt í flokki 13-14 ára. Keppt var í tveimur stórsvigsmótum og urðu úrslit þau að í flokki drengja sigraði Valdcmar Valdemarsson Ak. en annar varð Ásgeir Sverrisson R. í stúlknaflokki sigraði Guðrún Ágústsdóttir S. og Guð- björg Ingvarsdóttir í. varð önnur. í seinna stórsvigsmótinu sigraði Krist- inn Grétarsson í„ Valdemar Valdemars- son A. varð annar og Kristján Eymunds- son H. þriðji. í stúlknaflokki sigraði Þórdís Hjörleifsdóttir R. og Guðrún Ágústsdóttir S. varð önnur. I svigi drengja sigraði svo Valdemar Valdemarsson A. og Kristján Eymunds- son H. varð annar. I stúlknaflokki sigraði Gerður Guðmundsdóttir Neskaupsstað, Guðbjörg Ingvarsdóttir í. varð önnur og Kristín Jóhannsdóttir Ak. þriðja. - ESE. Þróttur sigraði KA var ekki stór hindrun fyrir íslands- meistara Þróttar í blakinu er liðin mættust í 8-liða úrslituin Bikarkeppni Blaksam- bandsins um helgina. Leikið var í Glerárskóla og Þróttur sigr- aði 3:0. Fyrsta hrinan tók stuttan tínia og lauk 15:1 fyrir íslandsmeistarana og loka- tölur úr 2. hrinu voru 15:6 Þrótti í vil. í þriðju hrinunni tóku KA-strákarnir við sér og þá héldu þcir vel i við Þróttara. KA var með forustu lengst af, t.d. 7:6 og 12:10 en Þróttur skoraði siðustu 5 stigin og sigraði 15:12 og leikinn þar ineð 3:0.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.