Dagur - 19.03.1984, Page 8
8-DAGUR-19. mars 1984
'máé, ^
LANDSLEIKUR Prrr
Eftir mikið japl og jaml og fuður tókst loksins að halda
landsleik í handknattleik í íþróttahöllinni á Akureyri og
verður ekki annað Sagt en að farið hafi verið af stað með
glæsibrag, þó ekki fengist íslenskur sigur. Andstæðingar
landans voru heldur ekki af lakari endanum - sjálfir
heimsmeistarar Sovétmanna.
Mikil stemmning var í Höllinni allan leikinn og var
„fimleikameisturum“ Sovétríkjanna klappað óspart lof í
lófa. það er samdóma álit manna að hér fari besta hand-
knattleikslið sem leikið hefur á íslandi fyrr og síðar og
víst er að fullkomnustu vélmenni með örtölvubúnaði
gætu ekki gert betur en Sovétmennirnir. Meðfylgjandi
myndir tók KGA Ijósmyndari Dags af áhorfendum á
þessum fyrsta landsleik í Höllinni en varðandi leikinn
sjálfan vísast til umsagnar Gylfa Kristjánssonar á
íþróttasíðum blaðsins. - ESE
Áfram ísland!
Skora íslendingar?
Valur Arnþórsson var heiðursgestur.